Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1986, Blaðsíða 8
8
DV. MÁNUDAGUR17. FEBRÚAR1986.
Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd
SOKKINN Á KAF
Þessi loftmynd er tekin yfir slysstaðnum þar sem sovéska farþegaskipið
„Mikhail Lermentov“ fór niður undan Port Core á Nýja Sjálandi. Neðst
á myndinni sést björgunarbátur á hvolfi en hann er enn fastur við skips-
skrokkinn og marar í hálfu kafi en stutt niður á skipið. Eins og frá er
sagt hér á hinni síðunni var öllum nema einum af 739 manns um borð
bjargað.
HÓFÍ í
NORSKU
ÚTVARPI
Björg Eva Erlendsdóttir, fréttaritari
DVÍOsló:
Ungrú alheimur er í Osló þessa
dagana á vegum Flugleiða.
Hólmfríði Karlsdóttur er tekið
opnum örmum hér í Osló. Fjölmiðlar
í Noregi gera meira veður út af þess-
ari Oslóarheimsókn hennar heldur
en sjálfri fegurðarsamkeppninni í
London í haust.
Þá var keppnin varla nefnd í
norskum íjölmiðlum.
Norska stúlkan gerði það þá heldur
ekki gott í keppninni.
Núna var tekið viðtal við Hófí á
einum besta útsendingartíma út-
varpsins í vinsælum morgunþætti á
laugardaginn. í sama þætti var gerð
hlustendakönnun á því hvort fólk
væri á móti fegurðarsamkeppnum
eða fylgjandi þeim.
Mjótt var á munum, en meirihluti
þeirra sem hringdu í útvarpið var
hlynntur fegurðarsamkeppnum.
Á eftir könnuninni fylgdi viðtalið
við Hófí sem fór að mestu leyti fram
á ensku.
Hún sagði frá reynslu sinni í Royal
Albert Hall í haust og frá hvers-
dagslífi sínu í Reykjavík.
Einnig kom það í ljós að hún mun
verða viðstödd í Osló í ágúst næst-
komandi þegar fulltrúi Noregs verð-
ur valinn í alheimsfegurðarsam-
keppnina næst.
stjóminni
Haukur Lárus Hauksson, fréttaritari
DV í Kaupmannahöfn:
Samkvæmt nýlegum skoðana-
könnunum er útlit fyrir að Danir
samþykki tillögur um breytingar á
aðildinni að Efnahagsbandalaginu i
svokallaðri leiðbeinandi þjóðarat-
kvæðagreiðslu 27. febrúar næstkom-
andi.
Samkvæmt skoðanakönnunum
segjast yfir 50 prósent kjósenda vera
fylgjandi tillögunum, 26 prósent
andvíg og 24 prósent hafa enn ekki
gert upp hug sinn.
Eins og við fyrri skoðanakannanir
eru kjósendur stjómarflokkanna
fylgjandi tillögunum en kjósendur
vinstri flokkanna eru á móti. í heild
virðist fylgi við stjómina í þessu
máli fara vaxandi.
Óvissa virðist aftur á móti um af-
Frakkarí
loftárás
Ásteytingur Frakklands og Líbýu
um málefni mið-afríkanska ríkisins
Chad braust að nýju fram í gær og
gerðu Frakkar loftárás á yfirráða-
svæði uppreisnarmanna í norður-
hluta landsins. Var sagt að flugvöll-
ur uppreisnarmanna hefði verið
eyðilagður í loftárásinni.
Líbýumenn, sem mjög hafa notað
þennan flugvöll til flutninga á her-
gögnum og hermönnum til stuðnings
uppreisnarmönnum, sökuðu Frakka
um „villimennsku“og átöldu þá fyrir
árás á borgaralegan flugvöll sem
notaður væri til flutninga á matvæl-
um og læknislyíjum.
Hissene Habre, forseti Chad, hafði
óskað hjálpar Frakka vegna fram-
rásar uppreisnarmanna og em þetta
fyrstu beinu afskipti Frakka af borg-
arastríðinu í Chad síðan franskt
herlið varð þaðan á burt í nóvember
1984 samkvæmt samkomulagi við
Líbýu.
stöðu kjósenda Jafhaðarmanna-
flokksins. Af þeim eru 44 prósent
andvíg tillögunum, 26 prósent fylgj-
andi meðan 30 prósent hafa enn ekki
tekið afstöðu.
Naumur sigur Soares
Nú er ljóst að Mario Soares, gamal-
kunnur leiðtogi portúgalskra sósíal-
ista og forsætisráðherra landsins í
þrjú skipti, hefur unnið sigur í
portúgölsku þingkosningunum.
Soares verður fyrsti forseti Portú-
gal úr röðum óbreyttra borgara í 60
Eftir að talningu atkvæða var sem
næst lokið árla í -morgun var ljóst
að Soares var með einu til tveim
prósentum fleiri atkvæði en mót-
frambjóðandi hans og frambjóðandi
hægri aflanna, lagaprófessorinn
Diogo Freitas Do Amaral.
Þúsundir stuðningsmanna Soares
fögnuðu sigrinum með flugeldum og
lúðrablæstri í Lissabon fram á rauða
nótt.
„Þakka ykkur fyrir þennan sigur,
þetta er sigur lýðræðis, frelsis, um-
burðarlyndis og friðar,“ sagði Soares
á fundi þúsunda stuðningsmanna við
aðalstöðvar sínar í Lissabon í nótt.
Tókst að sameina vinstri öflin
Sigur Soares kemur nokkuð á
óvart.
Sósíalistaflokkur Soares tapaði
miklu fylgi í þingkosningum síðast-
liðinn október og skoðanakannanir
höfðu ekki gefið Soares meira en 10
prósent fylgi fyrir forkosningamar
til forseta í j anúar síðastliðnum.
í forkosningunum fékk Soares rúm
25 prósent atkvæða en Do Amaral
tæpan helming.
Soares virðist svo í sjálfri kosn-
ingabaráttunni hafa tekist að hnýta
saman skiptar fylkingar vinstri-
manna er höfðu þríklofnað í forkosn-
ingunum og vinna nauman sigur.
Soares tókst meira að segja að afla
sér stuðnings kommúnista á síðustu
þrem vikunum fyrir kosningamar,
en hinn Sovétsinnaði kommúnista-
flokkur Portúgal hefur löngum eldað
grátt silfur við Soares vegna hat-
rammrar andstöðu hans við hugsjón-
ir kommúnismans.
Soares tekur við af Antonio Ramal-
ho Eanes hershöfðingja er gegnt
hefur forsetaembætti í Portúgal eftir
tvö fimm ára kjörtímabil.
BARN DEYR VEGNA
EYÐNI í SVISS
Mário Róarés skí!ark|örséðlT sinúní inní éinum kosnfúgutium í Portúgál.
Frá Gissuri Helgasyni, fréttaritara
DVíZiirich:
Þriggja ára barn andaðist í síðustu
viku úr eyðni á spítala hér í Zúrich.
Bamið hafði sýkst í móðurkviði en
faðirinn mun vera í hinum alræmda
áhættuhópi, það er að segja kyn-
tivorfnr --------------------
Annað barn, fjögurra ára að aldri,
hefur verið á spítala vegna sýkingar
en hefur nú fengið að fara heim. Þar
var einnig um að ræða sýkingu fyrir
fæðingu.
Alls hefur nú fundist um 101 alvar-
legt tilfelli um eyðni frá áramótum í
Sviss.
Danir fylgja