Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1986, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1986, Page 9
DV. MÁNUDAGUR17. FEBRÚAR1986. 9 Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd Skólaropna áHaitiáný Ástand er nú smám saman að verða eðlilegt á Haiti eftir ólgutíð er skap- aðist í kjölfarið á flótta Jean Claude Duvalier og fylgdarliðs fyrir tíu dögum. Henri Namphy hershöfðingi, yfir- maður hins nýja sex manna þjóðar- ráðs Haiti, er nú fer með öll völd í landinu, fyrirskipaði skólum lands- ins að opna á ný og hófst kennsla í þeim í morgun. Duvalier lét loka skólum landsins fyrir fimm vikum vegna ólgunnar í landinu og mikilla óeirða meðal námsmanna. Talið er að að minnsta kosti 120 manns hafi látið lífið í átökum á Haiti síðustu vikurnar. Bandaríski öldungadeildarþing- maðurinn Paul Trible, er einnig á sæti í utanríkismálanefnd banda- ríska þingsins, hefur ferðast um Haiti að undanförnu. Hefur þingmaðurinn skorað á Reagan forseta að auka neyðarhjálp til Haiti til muna til að reyna að draga úr hörmungarástandi af völd- um hungurs í vissum héruðum landsins. Dönskum fóng- umóareyðni Haukur Lárus Hauksson, fréttaritari DViKaupmannahöfn: Mikill eyðnisótti hefur gripið um sig meðal fanga í ríkisfangelsum í Danmörku. Um tvö hundruð fangaverðir frá Vridlöselille ríkisfangelsinu hafa lýst yfir óánægju sinni með að fangar smitaðir af eyðni geti ekki fengið meðhöndlun á sérdeildum. Hefur andrúmsloftið meðal fang- anna einkennst af mikilli spennu að undanfömu, en í Vridlöselille fang- elsinu em að minnsta kosti sex eyðn- issjúklingar. Hafa fangamir hótað fangavörð- unum með að stinga þá með nálum og sprautum er hafa komist í snert- ingu við smitað blóð ef ekki verði neitt að gert. Hvort sem hótanir þessar em raun- vemlegar eða ekki þá þykir fanga- vörðunum sér vera ógnað og telja að ástandið fari úr böndunum ef fangarnir geti ekki vakið athygli á ótta sínum með öðmm hætti. Ástand mála þykir einnig koma niður á smituðum föngum í auknum mæli þar sem þeir einangrast og verða fyrir aðkasti. Fangelsisyfirvöld telja ekki grund völl fyrir sérmeðhöndlun hinna smituðu þar sem smithætta er engin við venjulega umgengni. Duvalier óvel- kominngestur Frönsk yfirvöld gera nú ítrekaðar tilraunir til að losna við hinn útlæga forseta Haiti, Jean-Claude Duvalier, eftir að misfórst tilraun til þess að fljúga með hann til Bandaríkjanna. Eftir tíu daga leit em þau komin með á lista ein sjö Afríkuríki (þar á meðal Líberíu), sem líklegust þættu til þess að veita viðtöku þessum vandræða- lega gesti. Eftir að hafa látið fljúga með Duvalier til Frakklands hafa banda- rísk yfirvöld dregið hann og íjöl- skyldu hans í dilk „óæskilegra út- lendinga". Höfðu frönsk yfirvöld uppi ráðagerðir um að fljúga með Duv'alier til Bandaríkjanna um þessa helgi, en á síðustu mínútu var hætt við vegna mótmæla frá Washington. - Duvalierfjölskyldan hefst við í skíðahóteli uppi í Talloires skammt frá svissnesksu landamæmnum. í upphafi ætluðu fi-önsk yfirvöld ekki að „hýsa“ Duvalier nema í viku til átta daga. En þeim hefur ekkert gengið að koma honum yfir á ann- arra landa yfirvöld. Ein sjö lönd em sögð hafa neitað honum um landvist. - Duvalier hefur nú formlega sótt um hæli fyrir sjálfan sig og fjölskyldu sína í Frakklandi. 740 á sjávarháska Öllum nema einum bjargað af sovésku f arþegaskipi Sovéska farþegaskipið Mikhail Lermontov fórst í gær við Port Gore á suðurströnd Nýja-Sjálands eftir að hafa rekist á sker. Með skipinu vom 739 manns, þar af329íáhöfn. Einn sovéskur áhafharmeðlimur er talinn af. Flestir farþeganna vom frá Ástral- íu, en á meðal þeirra v.oru nokkrir Bretar, Bandaríkjamenn og Vestur- Þjóðverjar, flestir á eftirlaunaaldri. Hafði fólkið keypt sér tveggja vikna skoðunarferð í kringum eyjar Nýja-Sjálands með þarlendri ferða- skrifstofu. Mikhail Lermontov var yfir 20 þúsund tonn að stærð með farþega- rými fyrir 650 farþega. Sökk skipið fimm klukkustundum eftir að það rakst á rifið, aðeins nokkrum mínút- um eftir að tekist hafði að koma síðasta áhafnarmeðlimnum frá borði. Þeir sem björguðust komust í gúmbáta og var fljótt bjargað af nýsjálenskum björgunarmönnum. David Lange, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, hefur krafist rann- Haukur Lárus Hauksson, fréttaritari DV i Kaupmannahöfn: Vegna kaldra loftstrauma er borist hafa með austanáttinni að undan- sóknar á slysinu og kvað það með ólíkindum að skipstjórnarmenn skyldu ekki hafa orðið varir við skerið sem sást með berum augum fömu hefur orðið töluverð ísmyndun við strendur Danmerkur. Á það sérstaklega við austur- strendumar þar sem ísbreiðumar þegar sjór brotnaði á því. Nokkrir farþeganna hafa staðfest að hafa séð skerið nokkrum mínútum áður en skipið steytti á því. hafa náð allt að 400 metra frá landi og verið um 20 sentimetra þykkar. Hafa smábátar lokast inni í höfnum þar sem ísinn er mestur. Því hafa ísbrjótar orðið að aðstoða smærri skip og báta við að komast leiðar sinnar og er það í fyrsta skipti í vetur sem þeir leggja úr höfn. Ferjusigling- ar hafa enn ekki orðið fyrir neinum töfum. Frost hefur annars ekki verið veru- legt en þó að jafnaði tvær til fimm gráður að degi til og allt niður í 15 gráður á næturnar. Sjávarhiti er mínus ein gráða og er búist við áframhaldandi ísmyndun næstu daga. Skip i ísnauð á dönsku sundunum SCACOM 80 VHP MARtNE RAOKJTKLEPHONí 1 1 | 'C5 '* "*» o W ttl M,.u m m '-Si? rvC 1 : Xv; * fN , X.. ; nk. v v " Vanir sjómenn vita hve mikið öryggi felst í góðri talstöð, Zodiac Seacom 80 er ein sú besta sem völ er á Heimilistæki bjóöa nú skipa- og bátatalstöövar frá Svíþjóö, sem eru í hæsta gæðaflokki: Zodiac Seacom 80. Seacom 80 er afar þægilegt og fullkomiö öryggistæki á góöu veröi. Seacom 80 getur vaktaö 2 rásir samtímis, kall- rás og alþjóölegu neyðarrásina, rás 16, sem hefur forgang. Fljótandi kristallar segja til um hvaöa rás sé í gangi og aðgengilegir, upplýstir snertitakkar gera rásaval mjög auövelt. Seacom 80 talstöðin er í þremur hlutum — tr'tæki, sem er eins og símtól, talstööin sjálf meö 55 alþjóðlegum VHF rásum og svo lítill, en kröftugur hátalari. Seacom 80 er fyrirferðarlítil og hentar vei viö þröngar aðstæður. Talstööin er í sleða sem hægt er aö festa í loft eöa á borö og auðvelt er aö losa tækiö og fara meö heim. Taltækiö situr tryggt í sérhönnuöu sæti og hátalarann má festa þar sem hans er helst þörf. Settu þig í gott samband viö okkur hjá Heimilistækjum. Seacom 80 er talstöö sem þú þarft aö heyra meira um! Heimilistæki hf Tæknideild — Sætúni 8. Simi 27500. gott folk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.