Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1986, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1986, Síða 12
12 DV. MÁNUDAGUR17. FEBRÚAR1986. Svartá og Blanda Stangaveiöifélag Reykjavíkur hefur tekiö á leigu allan veiðirétt í Svartá utan Hvamms frá 1. júlí til 10. sept- ember auk silungasvæðis í Svartá ofan Hvamms og í Fossá í júlí og ágúst. Einnig hefur félagið tekið á leigu hluta veiðiréttar í Blöndu neðan stiga frá 5. júní til 4. september auk tilraunastangar í Langadal ofan stiga. Umsóknir um veiðileyfi berist sem fyrst afgreiðslunni að Háaleitisbraut 68, Austurveri, s. 686050 og 83425, en þar eru veitttar allar nánari upplýsingar. Stangaveiðifélag Reykjavíkur. Vilt þúverða skiptinemi i sumar? AFS býður ungu fólki 2 mán. sumardvöl 1986 í: * Danmörku, Finnlandi, Portúgal, Spáni, Frakklandi, Þýskalandi: 15-18 ára. * Bretlandi, íriandi: sjálfboðaliðavinna: 16-21 árs. * Noregi: sveitastörf: 15-19 ára. * Hollandi: menningar- og listadagskrá: 16-22 ára. * Bandaríkjunum: enskunám: 15-30 ára. Umsóknartími er frá 21. janúar til 21. febrúar. Skrifstofan er opin kl. 14-17 virka daga. ERT ÞÚ AÐ MISSA AF LESTINNI? ^lfvS á íslandi -alþjóbieg fræbsla og samskipti - Hverfisgötu 39, P.O. Box 753,121 Reykjavík, simi 91-25450. JIS rAAAAAA "* ízícdo: nGiuQiJ im«8nfi* m**fcjui» l tatii, Jón Loftsson hf. Hringbraut 121 Sími 10600 GJAFAVÖRUDEILD. Nýttfrá VILLEROV & BOCH Aðeins hjá okkur Neytendur Neytendur Neytendur Lúxus eða nauðsyn -tollar og álagning á myndlistarvörur „Við getum ekki notað þá liti sem við helst vildum því við höfum ekki efni á að gera þau mistök sem óhjákvæmilega verða í námi. Þetta leiðir til þess að myndlistarmenn fara að mála minni myndir og spara við sig litina. “ Á litum sem notaðir eru til málunar, kennslu og auglýsingagerðar er 35% tollur og 30% vörugjald auk þess sem smásöluálagningin getur nálgast 80-90%. „Ég verð að segja að mér finnst þetta mjög undarleg stefna, að þykjast vera að hlúa að menningu og listum en gera listamönnum jafnframt ókleift að stunda listina sem skyldi,“ sagði Jóhanna Guðjónsdóttir í Litn- um um það ófremdarástand sem ríkir í mólum myndlistarmanna varðandi tolla og álagninu á olíuliti, striga og aðrar þær vörur sem myndlistar- menn nota í listinni. Samband íslenskra myndlistar- manna hefur reynt að vinna að því að fá tolla og aðflutningsgjöld af myndlistarvörum minnkuð eða felld niður en lítið hefur miðað í þeim málum enn sem komið er. Penninn og Liturinn eru meðal þeirra fyrir- tækja sem flytja þessar vörur inn og selja í smásölu og tekur verslunar- fólk í þessum verslunum í sama streng og hefur reynt að fó þessi mál lagfærð. Hér eru seldir tvenns konar olíulit- ir, svokallaðir skólalitir sem inni- halda meira fyllingarefni og eru því ódýrari en ekta olíulitir sem eru tærari og vandaðri. Penninn selur Windsor og Newton liti og kosta skólalitir í 37 ml túbum 131 krónu en vandaðri litir frá 140 upp í 600 krónur í 21 ml túbum. Dósir sem innihalda 250 ml af olíulit kosta um 400 krónur. Liturinn selur hollenska liti sem heita Amsterdam og kosta 60 ml af listmálaralitum 243 krónur og 200 ml 699 krónur. Strigi er seldur eftir metramáli, hör eða bómull. Liturinn selur metrann af bómull á 964 krónur og grófan hörstriga á 1589 krónur. Penninn selur fínan bómullarstriga á 543 krónur og grófan hörstriga, sem er dýrastur, á 1570 krónur. Umtalsverð álagning Álagning í smásölu og heildsölu er frjáls og svo virðist sem hún sé einnig töluverð enda hreyfast þessar vörur lítið miðað við annað og gjöldin, sem greiða þarf ríkinu, eru há. Jón Mýr- dal yfirtollvörður sagði að umræður um þessa hluti væru alltaf í gangi en númer tollskrárinnnar væru al- þjóðleg norm sem ekki væri hægt að hnika, aftur á móti væri það löggjaf- arvaldsins að ákveða álagninguna fyrir hvert númer. „Það má telja skatta á listsköpun lúxus og þá lúxus stjórnvalda, en litir til listmálunar, kennslu og auglýsingagerðar eru með 35% tolli, 30% vörugjaldi og 1% vöruafgreiðslugjaldi. Þetta má kanski teljast lúxustollur en hæsti tollur, sem lagður er á vöru, er 80%-“ Strigi flokkast sem vefnaðarvara og tollar því mun hagstæðari. Pensl- ar og rammar eru tollfríir sé flutt inn frá fríverslunarsvæðinu en 17% toll- ur komi þeir utan svæðisins. „Við höfum ekki efni á að mála eins og við helst vildum.“ „Mér dettur ekki í hug að kaupa túpuliti. Ég reyni heldur að búa til mína eigin liti, en það eru lélegar og óljósar uppskriftir sem við förum eftir og blöndum saman litardufti, línolíu og vaxi sem bindiefni. Þetta fer út í það að fólk málar smærra og minna og það er ekki góð þróun,“ sagði einn nemandi í málaradeild Myndlista- og handíðaskólans. Nemendurnir eru mjög óhressir með þessi mál og allir tóku í sama streng með það að eina leiðin væri að nota annað efni en það sem þau helst vildu nota, oft venju- lega plastmálningu sem hefur þann ókost að endast illa og hún hefur einnig allt aðra eiginleika en olíu- málning. „Ef við gefum okkur málverk sem er 1,30x1,10 og reiknum með striga, blindramma, grunni og litum, þá er ekki ofreiknað að ætla að efniviður- inn kosti um 3000 krónur. Svo fólk getur auðveldlega séð hvað mörg slík málverk námsmaður hefði efni á að mála,“ sagði nemi á 3. ári. Eins og áður sagði hefúr lítið miðað í þá átt að fá tolla af vörum fyrir myndlistarmenn lækkaða en spurningin hlýtur því að standa um hvort listsköpun sé lúxus eða nauð- syn eða hvort myndlistarmenn og listunnendur séu betur settir með minni málverk og sparlegri litanotk- un. -S.Konn. Piparsveinar og kvengrænmetisætur kaupa tilbúna rétti { Fréttabréfi Útflutningsmiðstöðv- Markaður tilbúinna matvæla í ar iðnaðarins segir að í ýmsum Bretlandi hefur aukist úr 45 millj. löndum séu matvælaframleiðendur kg árið 1980 í 102 millj. kg árið í óða önn að aðlaga vörur sínar 1985. Á fyrstu 10 mánuðum ársins markaði þar sem vaxtarmöguleikar 1985 voru 1638 nýir tilbúnir réttir eru miklir, þ.e. tilbúin matvæli. settir á markað í Bretlandi. örbylgjuofhar munu ryða þessum Athuganir sýna að stærstu nú- vörum braut. verandi notendur tilbúinna rétta I breskri spá kemur f'ram að eru barnafjölskyldur, fólk sem áætlað er að árið 1990 eigi 40-80% vinnur vaktavinnu, fólk sem vill allra heimila í Bretlandi örbylgju- borða heitan morgunverð, pipar- ofna. Nú er talið að um 14% sveinar og grænmetisætur af kven- breskra heimila eigi örbylgjuofna. kyni. -A.Bj. fFELAGLSMALASTOFNUN REYKJAVÍ KU RB0 RGAR Fjölskyldudeild óskar eftir tilsjónarmönnum til að styðja börn og unglinga. Um er að ræða 10-40 tíma á mánuði: Fólk sem: - hefur gott innsæi og áhuga á mannlegum samskiptum. - er hugmyndaríkt og hlýlegt í viðmóti, en jafnframt ákveðið. - hefur tök á að skuldbinda sig a.m.k. í Vi ár. Getur sótt um, óháð menntun eða stöðu. Nánari upplýsingar veittar í síma 621611, kl. 10-12, alla virka daga fyrir 21. febrúar nk.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.