Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1986, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1986, Síða 14
14 DV. MÁNUDAGUR17. FEBRÚAR1986. Útgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaðurog útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JONSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÖSKAR MAGNÚSSON Auglýsingastjórar: PALLSTEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLT111, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF„ ÞVERHOLT111 Prentun: ARVAKUR H F. - Áskriftarverð á mánuði 450 kr. Verð í lausasölu virka daga 45 kr. - Helgarblað 50 kr. Hvað með fiskinn ? Kvikmyndin um kjarnorkustríð, sem sýnd var í sjón- varpinu um daginn, hefur endurvakið umræðu um lélegt ástand íslenzkra almannavarna. En umræðan varð ekki langvinn, því að áhugaleysi okkar á almannavörnum stingur í stúf við ríkjandi sjónarmið í nágrenninu. Við þurfum öflugar almannavarnir, ekki bara vegna eldgosa og annarra náttúruhamfara, heldur einnig vegna atómstríðs, jafnvel þótt engar sprengjur féllu hér á landi. Við verðum að vera undir það búin, að áhrif slíkrar styrjaldar berist vítt um jörðina. Margir telja, að sjónvarpskvikmyndin hafí vanmetið áhrif kjarnorkustyrjaldar á veðurfar og gróðurskilyrði. Um leið má segja, að hún hafi líka vanmetið getu þjóð- félags manna til að skipuleggja sig að nýju við erfíðar aðstæður og koma af stað endurnýjaðri tækniþróun. Fyrir löngu er orðið tímabært, að íslendingar vakni til lífsins í almannavörnum. Við lifum ekki lengur yið ógnaröryggi atómsprengjunnar. Það hefur breytzt í tímahraks-óöryggi. Viðbragðstími heimsveldanna gegn kjarnorkuárás er kominn niður fyrir tíu mínútur. Við slíkar aðstæður er enginn tími til að halda fundi, ef tölvurnar segja, að kjarnorkuárás sé skollin á. Tækniþróunin hefur valdið því, að það er ekki lengur skák heimsveldanna, heldur hættan á tæknimistökum, sem er orðin líklegasta orsök atómstríðs. Hið fyrsta, sem við þurfum að gera okkur grein fyrir, er, hvort við höfum mat. Svo vel vill til, að við höfum meiri matarbirgðir miðað við fólksfjölda en nokkur önnur þjóð í heiminum. Birgðir okkar af búvöru eru skiptimynt ein í samanburði við birgðir sjávarfangs. í hverju plássi landsins er fullt af frosnum fiski og öðrum sjávarafla, sem líklega gæti nægt þjóðinni í nokkur ár, ef hún yrði sambandslaus við umheiminn og hefði enga olíu til að veiða meiri fisk. Almannavarnir hafa ekkert látið frá sér fara um þetta mikilvæga atriði. Hvað á að gera við allan þennan fisk? Við þurfum að vita, hvort geymslurnar séu öruggar gegn geislun og öðrum stríðsáhrifum. Við þurfum að búa svo um hnútana, að fiskur og önnur matvæli vinnslustöðvanna endist okkur um ófyrirsjáanlega framtíð. Vitrænasta verkefni almannavarna væri að haga málum þannig, að geymslurnar væru öruggar gegn geislun og héldu rafinagni í hamförum. Unnt þarf að vera að olíukeyra frystingu í geymslunum, meðan verið er að koma raforkuverum og rafveitum í gang. í þessu skyni þurfa að vera til gangfærar dísilstöðvar og nægar birgðir af olíu, svo og rekstrarvörum til að koma orkuverum í gang eftir stóráföll og til að halda þeim síðan í gangi um langan aldur. Aldrei hefur sézt nein opinber áætlun um slík atriði. Um alla sjávarsíðu íslands býr fólk í járnbentum steinsteypuhúsum nokkurn veginn við hlið hinna gífur- legu matarforðabúra fiskvinnslunnar. Það ætti að vera tiltölulega ódýrt skipulagsatriði að tryggja, að lífið haldi áfram í flestum þessara byggðarlaga. Maðurinn hefur undraverða hæfileika til að laga sig að breyttum aðstæðum. Þar að auki höfum við tækni- þekkingu og mikla reynslu af skipulagningu starfa okkar. Engin ástæða er til að ætla, að mannkynið leyfi rottunni að taka völdin á jörðinni, þótt slysið gerist. Þó er hart, að einmitt þjóð íjarlægðar, einangrunar, matarbirgða, tækniþekkingar og peninga skuli fljóta sofandi að feigðarósi skorts á almannavörnum. Jónas Kristjánsson Niðurstaða í bjórmálinu Umræðan í bjórmálinu hefur nú verið til lykta leidd: Áhrif bjórlíkis- ins á heildarneysluna liggja fyrir. Nýjustu tölur um áfengisneyslu landsmanna sýna að bjórlíkið bættist ekki við aðra neyslu eins og Áfengisvamaráð spáði. Áfengisvarnaráð, sem æ ofan í æ hefur hamrað á því að bjórinn yrði aðeins viðbót, hefur þar með orðið undir í umræðunni og ber að segjaafsér. Sérstaklega beini ég þeim orðum til Jóhannesar Bergsveinssonar læknis, sem getur ekki sóma síns vegna setið í þessu ráði áfram. Jafnframt hefur nú fengist svar við fyrirspumum Halldórs á Kirkjubóli um hvemig verðleggja skuli bjórinn þegar hann kemur. Svarið er: eins og bjórlíkið! En í stuttu máli: Umræðunni er í raun lokið. Komi Jóhannes og félagar ekki fram með nein mótrök skoðast þessi ósigur þeirra endan- legur. JÓN ÓTTAR RAGNARSSON DÓSENT FRJÁLSLYNDI í FRAMKVÆMD ÁFENGISNEYSLA Á MANN MIÐAÐ VIÐ 100% ÁFENGI 2} LÉTT VÍN m STERKIR DRYKKIR MYNDA LFTRAR r 3 BREYTINGAR A AFENGISNEYSLU 1974 - 1985 '74 ’75 '76 '77 '78 '79 '80 '81 '82 '83 '84 '85 MYNDB LÉTT VÍN STERK VÍN 3 LÍTRAR PR. MANN 2 Á ÁRI 1 0 ÁR „Þannig hefur það ótrúlega gerst að léttu vínin og bjórlíkið hafa dregið úr hinni skefjalausu aukningu áfengisneyslu sem einkenndi árin eftir stríð.“ a „Nýjustu tölur um áfengisneyslu ^ landsmanna eru jafnvel enn betri en ég þorði að vona og stefna þvert gegn öllum spám Afengisvarnaráðs.“ Nýjustu tölur Nýjustu tölur um áfengisneyslu landsmanna eru jafnvel enn betri en ég þorði að vona og stefna þvert gegn öllum spám Áfengisvarna- ráðs. I stuttu máli kemur í ljós að á þeim tíma, sem „pöbbabyltingin“ átti sér stað, jókst heildarneyslan ekki hætishót. Hún þvert á móti dróst saman. Skýringin er augljós. Bjórlíkið er dýrt og því bættist það ekki við þá neyslu sem fyrir var, heldur ýtti það einfaldlega öðru áfengi til hlið- ar. Þetta hafði að vísu þau áhrif að svo virðist sem hlutdeild sterku drykkjanna hafi aukist á árinu 1985, en sú ályktun er sem sé ekki raunhæf. Því bjórlíki er ekki sterkur drykkur, heldur veikur. Og það sem gildir nú er að alþingismenn sjái til þess að við fáum hingað alvörubjór. Léttvín ogbjórlíki Þessar niðurstöður eru í full- komnu samræmi við reynsluna af léttu vínunum. Því var spáð af Áfengisvarnaráði að léttu vínin mundu bætast við það áfengi sem fyrir var drukkið í landinu. Það fór allt saman á annan veg. Mynd A sýnir neysluna eins og hún var frá 1880 til 1980. Eins og sjá má jókst hún sérstaklega ört á tímabilinu frá 1930 fram til um 1975. Þá komu léttu vínin til sögunnar. Samkvæmt kenningum Jóhannes- ar og félaga hefðu léttu vínin nú átt að bætast við og heildarneyslan að aukast til muna. Hið gagnstæða gerðist eins og sést á mynd B. Léttu vínin voru verðlögð dýrt og í stað þess að bætast við neysluna héldu þau aukningunni í skefjum!! Sama hefur nú gerst með bjórlík- ið. Þrátt fyrir fullyrðingar um aukna áfengisdrykkju í landinu og fleira jókst hún ekki hætis hót síðustu 2 árin. Þannig hefur það ótrúlega gerst að léttu vín og bjórlíkið hafa dregið úr hinni skefjalausu aukn- ingu áfengisneyslu sem einkenndi árin eftir stríð. Þar við bætist auðvitað að notk- un á veiku áfengi (bjórinn með- talinn) er miklu hættuminni en notkun sterkra drykkja. Þarf þá ekki frekar vitnanna við! Bjórinn strax Ekki er að efa að alþingismenn þumbist við. Ekki er að efa að stúkumenn sigi á mig og aðra sín- um hulduher og Velvakandaliði. Hefur það einmitt verið ljótasti angi þessa máls hvemig fáeinir stúkumenn hafa æ ofan í æ reynt að breyta þessari umræðu í per- sónulegt skítkast. Núna þegar þeir eru endanlega orðnir undir í umræðunni er ekki að efa að þeir munu beita öllum brögðum til þess að draga hana niður á þann flöt. Hitt er jafnframt ljóst að frjáls- lyndu öflin í þessu landi láta ekki endalaust traðka á sér. Og á Al- þingi eru margir einlægir umbóta- sinnar, þ.á m. forsætisráðherra. Ég skora á þessa menn að kalla saman alla þá sérfræðinga sem um þessi mál hafa fjallað, halda ráð- stefiiu, ef ekki dugir minna, til að draga fram rök og mótrök. Lokaorð Endanlegur úrskurður hefur loksins fengist í bjórmálinu. Reynslan bæði af léttu vínunum og bjórlíkinu sýnir að við getum áhyggjulaust leyft hér bjór svo fremi hann verður verðlagður líkt og bjórlíkið. Hvorki þarf að óttast að heildar- neyslan aukist né heldur að áfeng- issýki í landinu muni aukast. Þvert á móti mun ástandið skána. Þar með mun annað þjóðþrifamál og heilbrigðismál verða útkljáð. Vonandi geta allir, sem áhuga hafa á bættri heilbrigði íslensku þjóðar- innar, snúið bökum saman....... upp frá því. Jón Óttar Ragnarsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.