Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1986, Page 20
20
DV. MÁNUDAGÚR17. FEBRÚAR1986.'
Reykjavíkurskákmótið:
„KONAN MIN ÞYKIST VERA SKAKMAÐUR"
* * m ma^m w m n ■■ ■ m m ■
segir Rússinn Mikael Tal
Metaðsókn var að Reykjavíkur-
skákmótinu um helgina. Það var
svo pakkað af fólki í aðaltaflsaln-
um í gær að ómögulegt reyndist að
smokra sér þar inn. Atburðarásin
var eftir því og ekki tíðindalaus
taflmennska á Loftleiðum. Besta
skákin í 4. umferð, sem tefld var á
laugardaginn, var skák Margeirs
Péturssonar og Wilders frá Banda-
ríkjunum. Margeir fórnaði manni,
sótti á og vann fallega. Önnur skák
vakti sérstaka athygli, skák land-
anna Kurt Hansens og Bent Lars-
ens. Það er mikil samkeppni og
ekkert fóstbræðralag á milli þeirra.
Skákin var blóðug. Hansen er efsti
maður á mótinu og Larsen ætlaði
sér að vinna en hefur eflaust verið
allt of spenntur og tapaði að lokum.
Davíð Ólafsson kom á óvart og
vann alþjóðameistarann Ligtering
frá Hollandi. Björgvin Jónsson,
sem kveðið hefur mikið að á þessu
móti, tapaði fyrir Guðmundi Sigur-
jónssyni á laugardaginn. Björgvin
er sonur Jóns Oddssonar hæsta-
réttarlögmanns en ekki Jóns Böð-
varssonar eins og sagt var í DV sl.
föstudag. Björgvin er þó ekki alls
ótengdur Jóni Böðvarssyni því
hann er stjúpsonur hans. Utut frá
Indónesíu, sem komið hefur svo á
óvart, hélt því áfram í 4. umferð
og vann Quinteros. Það var sögu-
legt með Jón L., hann lék sig í mát
vegna tímahraks og tapaði fyrir
Salov sem er mjög efnilegur á þessu
móti, með efstu mönnum.
Reshevshy lagðist á bæn
Elsti keppandinn á mótinu, hinn
74 ára gamli Reshevshy, er gyðing-
ur. Hann keppir helst ekki á laug-
ardögum og þá ekki fyrr en
klukkustundu eftir að sólin er sest.
Þetta skapaði hin mestu vandræði
á laugardaginn. Hringt var sér-
staklega og athugað með sólarlag-
ið. Jú, klukkan 18.00 ótti sólin að
setjast. Skákin mátti þá hefjast
klukkan 19.00. En Reshevshy þurfti
einn og hálfan tíma til bænagjörða,
skákin gat því ekki orðið klukkan
í dag má búast við spennandi umferð
á Reykjavíkurskákmótinu enda fer
nú að færast harka í leikinn eftir
„upphitun“ í fyrstu umferðunum.
Meðal þeirra sem tefla saman í dag
eru Margeir Pétursson og Mikhail
Tal og er hætt við að sú skák verði
mjög í sviðsljósinu. Margeir hefur
teflt sérlega frísklega í síðustu um-
ferðum og hann átti skákir helgar-
innar. Tefldi í Tal-stíl gegn Banda-
ríkjamanninum Wilder á laugardag
og skák hans við Indónesann unga,
Utut Adianto, í gær lauk með þrá-
skák eftir mannsfóm Asíubúans. Og
Tal gat ekki stillt sig um að fórna
hrók gegn Jóhanni Hjartarsyni í gær
- til þess eins að þráskáka.
Sóknarþunginn var mikill í skák
Margeirs og Wilder. Bandaríkjamað-
urinn tefldi kóngsindverska vöm en
sneri síðan taflinu yfir í nokkurs
konar Benkö-bragð, með því að fóma
peði á drottningarvængnum. Frum-
kvæði hans var í burðarliðnum en
Margeir beið ekki boðanna heldur
hóf sjálfur sóknaraðgerðir á kóngs-
væng. Sókn Margeirs varð hættu-
legri en það var ekki fyrr en hann
lék kóngnum sakleysislega í homið
19.00. Kristiansen þurfti því að
bíða, reyndist liðlegur og vann
siðan skákina. Bænagjörðin hjálp-
aði Reshevshy ekki í það skiptið.
Jóhann skákaði Tal og jafntefli
Um fjögur hundruð manns kíktu
við á Loftleiðum á sunnudeginum.
Allir hópuðust að Tal og Jóhanni
Hjartarsyni. Jóhann kom Tal á
óvart hvað eftir annað, sá við
hróksfórn fyrir kóngsókn og skák-
in endaði með jafntefli. Tal skýrði
skákina á eftir við mikinn fögnuð
og hlátur áhorfenda.
Stjarna 5. umferðar var þó Hann-
að ljóst varð að hann stóð til vinn-
ings. Wilder varð að gefa drottning-
una og skákina gaf hann skömmu
síðar.
Skák
JÓN L. ÁRNASON
Hvítt: Margeir Pétursson
Svart: Michael Wilder
Kóngsindversk vöm.
1. d4 Rffi 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6
5. f3 0-0 6. Be3 a6 7. Bd3 c5 8. Rge2
Rc6 9. Bc2 b6 10. d5 Ra5 11. Bd3 Rd7
12. f4 b5 13. cxbð axb5 14. Bxb5 Ba6
15. Bxa6 Hxa6 16. b3 Da8 17. 0-0 Hb8
18. Hbl Hab619. e5!?
Upphafið að sókninni. Hann svarar
19. -dxe5 með 20. f5 og hefur þá reit
á e4 fyrir riddarann og nær frum-
kvæðinu.
19. -Hb4 20. e6 fxe6 21. dxe6 Rffi 22.
Rg3 c4 23. f5 cxb3 24. fxg6 Rg4? 25. Rd5
Rxe3 26. Dh5 h6 27. Rxe3 Da7 28. Rgf5
Rc4
es Hlífar Stefánsson sem rúllaði
Sævari Bjarnasyni, alþjóðlegum
meistara, og vann með mannsfóm.
Margeir tefldi opna skák við Utut
sem endaði með jafntefli eftir mikl-
ar sviptingar.
„Mun tefla til dauðadags"
Rússinn Mikael Tal lék á als oddi
í skákskýringarsalnum í gær er
hann skýrði mistök sín í skákinni
gegn Jóhanni Hjartarsyni. Það er
ekki lognmollan yfir honum, sterk-
ur persónuleiki sem lætur orðin
falla óþvingað.
29. Khl!
Hótunin 30. Rxh6+ Bxh6 31. Dxh6
með máti er óviðráðanleg en þetta
framhald gekk ekki strax vegna Dxe3
með skák á kónginn.
29. -Dxe3 30. Rxe3 Rxe3 31. axb3
Rxfl 32. Hxfl Hxb3 33. g3 He3 34. Dh4
Og svartur gafst upp.
Hannes Hlífar fórnar enn
Þeir félagar Hannes Hlífar Stef-
ánsson og Þröstur Ámason standa
fyllilega uppi í hárinu á sér eldri og
reyndari mönnum. Þröstur hefur
barist vel í skákinni við Finnann
Yrjölá og er skákin fór enn einu sinni
Tal tefldi á fyrsta Reykjavíkur-
skákmótinu sem haldið var árið
1964 og vann þá. „Það er komin
ný kynslóð frábærra skákmanna
sem ég þekki lítið. Ég er að tefla
við svo marga í fyrsta skipti núna.
Þeir em að koma mér á óvart, eins
og Jóhann," sagði Tal er DV hitti
hann að máli. „En það er svo dá-
samlegt að vera héma, þetta er svo
eðlilegt og óspillt land. Það er teflt
allt of stíft, ég hef ekki einu sinni
tíma til að skoða neitt, er bara hér
á Loftleiðum.“
Tal er búinn að tefla í 40 ár, er
í bið í gærkvöldi var ekki annað að
sjá en að Þröstur væri búinn að snúa
taflinu sér í vil. Og Hannes tefldi
snilldarskák í gær.
Hvítt: Sævar Bjarnason
Svart: Hannes H. Stefánsson
Tarrasch-vörn
I. d4 d5 2. c4 e6 3. Rc3 c5 4. cxd5
cxd4 5. Dxd4 Rc6 6. Ddl exd5 7. Dxd5
Bd7 8. Rf3 Rffi 9. Ddl Bc5 10. e3 De7
11. a3
Svartur hefur fómað peði fyrir
skjótari liðsskipan. Hér er 11. Be2
talið betra.
II. -0-0-0 12. Dc2 Kb8 13. Be2 g5! 14.
b4(?) g415. bxc5 gxf316. gxf3
Nú á kóngurinn ekkert skjól en ef
16.Bxf3 þá 16. -Rd4!
16. -Dxc5 17. Bb2 Ra5 18. Bd3 Dg5 19.
Ke2 Hhe821.h4?
21. -Hxe3+!22. Kfl
Eftir 22. fxe3 Dg2+ nær svartur
hróknum aftur og nær vinnandi
sókn.
22. -Df4! 23. Be2 Hxf3! 24. Bxf3 Dxf3
25. Hgl Bf5! 26. Ddl Bd3+ 27. Re2 He8
28. Hc2 Rc4! 29. Bd4 Rd5!
Hver þruman á fætur annarri.
Hvítur er rígbundinn um ökklana
og fær ekki varist öllum hótunum.
30. Rg3 Rde3+ 31. Kgl Rxdl 32. Hxf3
Bxc2 33. Rg3 Hd8 34. Bc5 Hd7
- Og s vartur vann létt. JLÁ.
giftur og tveggja bama faðir. „Ég
er meira að Segja orðinn afi. Konan
mín þykist vera skákmaður. Ég
segi auðvitað já, eins og alltaf við
konuna mína.“ Fyrir Tal er skákin
allt, vinna og áhugamál. „Ég mun
tefla til dauðadags og ekkert barma
mér á dánarbeðinu,“ sagði Tal.
Gestalistinn
Gestur laugardagsins var Stein-
grímur Hermannsson forsætisráð-
herra, sem mætti í gifsinu og bar
sig vel. Páll Jónsson í Pólaris var
sessunautur forsætisráðherrans og
fór vel á með þeim. Fleiri góðir
menn mættu um helgina: Björn
Theodórsson, fjármálastjóri Flug-
leiða, Haraldur Blöndal lögfræð-
ingur, Arnmundur Bachmann lög-
fræðingur, séra Leó Júlíusson,
Bjarki Bragason hagfræðingur,
Ásgeir Ásgeirsson og Omar Jóns-
son forritarar, Sigurður Þórðarson
fasteignasali, Lúðvík Jósepsson
fyrrum ráðherra og hinn gamli
baráttufélagi hans í pólitíkinni
fyrir austan, Jóhannes Stefánsson,
Geir Gunnarsson þingmaður, Örn-
ólfur Thorsson íslenskufræðingur,
Halldór Jónsson, skákmaður frá
Akureyri, Þorvaldur Óskarsson
skólastjóri, Albert Guðmundsson
ráðherra, Ragnar Halldórsson í
álinu, Helgi Samúelsson arkitekt,
Baldur Hermannsson, Elín Hirst
og Eiríkur Jónsson blaðamenn,
Friðrik Friðriksson, fjármálastjón
IBM, frú Fanney Sigurjónsdóttir,
Alfreð Jónsson frá Grímsey. Yngri
kynslóðin sýndi áhuga, þarna var
Hanna Eiríksdóttir, 6 ára, og Frið-
rik Ámi Friðriksson, 4 mánaða.
-KB
Reykjavíkur-
skákmótið
4. umferð
Hvítt Svart
1. Bent Larsen-Curt Hansen 0-1
2. Walter Brown-Mikhail Tal 'h-'/i
3. Róbert Byrne-Predrag Nikolic 'A-'A
4. Jóhann Hjartarson-Florin Gheorghiu Vt-Vt
5. Jón L. Árnason-Valery Salov 0-1
6. Thomas Welin-Nick De Firmian 0-1
7. Yasser Seiravan-Vitaly Zaltsman 'A-'/j
8. Harry Schiissler-Anthony Miles O-l
9. Larry Christiansen-Boris Kogan 'A-'/t
10. Sergey Kudrin-Joel Benjamin 'A-'A
11. Karl Þorsteins-Helgi ólafsson 'A-'A
12. Anatoly Lein-Larry A. Remlinger 1-0
13. Efim Geller Carsten Höi 1-9
14. Margeir Pétursson-Michael Wilder 1-0
15. Utut Adianto-Miguel A. Quinteros 1-0
16. Guöm. Sigurjónsson Björgvin Jónsson 1-0
17. Maxim Dlugy Sævar Bjarnason bið
18. Lev Alburt-Antti Pylhálá 1-0
19. John P. Fedorowicz-Róbert Haröarson 1-0
20. Samuel Reshevsky-Jens Kristiansen 0-1
21. Davíð ólafsson Gert Ligtering 1-0
22. Paul van der Sterren-Karl Burger 1-0
23. Benedikt Jónasson John W. Donaldson 0-1
24. Haukur Angantýss.-Ásgeir Þ. Árnason 0-1
25. Þröstur Þórhallsson Andrew Karklins 'A-'A
26. Hans Jung-Bragi Halldórsson 0-1
27. ólafur Kristjánsson Juerg Herzog 1-0
28. Guöm. Halldórsson-Þorst. Þorsteinsson
'A-'A
29. Jóh. Ágústsson Leifur Jósteinsson 'A-'A
30. Kr Guömundsson Hannes H. Stefánsson 0-1
31. Jouni Yijola-Þröstur Árnason biö
32. Karl Dehmelt-Jón G. Viöarsson 1-0
33. Dan Hnnsson Tómas Björnsson 1-0
34. Halldór G. Einarsson-Eric Schiller 0-1
35. Áskell ö. Kárason Har. Haraldsson 0-1
36. Árni Á. Árnason-Hilmar Karlsson 'A-'A
37. Lárus Jóhnnnesson Guðm. Gíslason 0-1
5. umferð
Hvitt Svart
1. Valery Salov-Curt Hansen blö
2. Anthony Miles-Nk* DeFirmlan blö
3. Mikhail Tal-Jóhann HJartarson 'A-'A
4. Predrag Nikolio-Walther Browne 1-g
5. Robert Byrne-Anotoly Lein blö
6. Florin Gheorghlu-Guöm. Slgurjónsson 'A-'A
7. Vitaly Zaltsman-Etlm Geller 'A-'A
8. Utut Adianto-Margelr Pétursson 'A-'A
9. Boris Kogan-Yasser Selrawan blö
10. Paul van der Sterren-Bent Larsen o_i
11. Sergey Kudrln-Larry Chrlstiansen 'A-'A
12. Joel Benjamln-Karl Þorsteins 1-0
13. Heigl Ólafsson-Tómas Welin 1-g
14. John W. Donaldson-Lev Alburt 'A-'A
15. Jens Krlstlansen-Jón L. Ámason biö
16. Daviö Ólafsson-John P. Fedorowicz 0-1
17. Ásgeir Þór Ámason-Maxin Dlugy biö
18. Mig. A. Qulnteros-L. A. Remllnger biö
19. BJÖrgvln Jónsson-Larry SchUssler biÖ
20. Michael Wllder-Ólafur Krlstjánsson i_o
21. Carsten Höl-Ðragi Halldórsson biö
22. Snvar BJarnason-Hannes H. Stefénsson 0-1
23. Benedikt Jónasson-Samuel Reshevsky 0-1
24. Gert Ugterink-Guömundur Halldórsson i_o
25. Leifur Jóstelnsson-Karl Dehmeft bið
26. Anttl Pyhölfr-Þröstur Þórhallsson 'A-'A
27. Andrew Karkllns-ÞorsL Þorstelnsson 0-1
28. Róbert Haröarson-Jóhannes Ágústsson 1-0
29. Karl Burger—Þröstur Ámason 1-0
30. Eric Schlller-Oan Hansson 1-0
31. Jounl Yrjola-Kristjén GuÖmundsson biö
32. Juerg Horzog-Haukur Angantýsson 'A-'A
33. Haraldur Haraldsson-Hans Jung blö
34. Hilmar Karisson-Tómas BJÖmsson 'A-'A
35. Jón G. Vlöarsson-Árnl Á. Ámason 1-0
36. GuÖm. Gislason-Halld. G. Einarsson 1-0
37. Lárus Jóhannesson-Áskell öm Kárason 1-0
Yngri kynslóðir koma rússneska stórmeistaranum Tal á óvart. Jóhann okkar Hjartarsson kom honum i bobba
í gær, sá við sókninni og varðist af hörku. Skák þeirra endaði með jafntefli og Jóhann gekk frá skákborði með
bros á vör.
Hannes Hlífar
tefldi snilldarskák
Margeir og Tal tefla saman í dag