Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1986, Page 21
DV. MÁNUDAGUR17. FEBRÚAR1986.
íþróttir íþróttir íþróttir
Fjögur met í
Stokkhólmi
—á NM í f rjálsum innanhúss
Fjögur íslandsmet voru sett á
Norðurlandamótinu í frjálsum
íþróttum sem fram fór í Stokkhólmi
um helgina. Árangur íslensku kepp-
endanna dugði þó ekki í verðlauna-
sæti á mótinu.
• Svanhildur Kristjónsdóttir keppti
í 60 metra hlaupi og fékk tímann 7,69
Þórdís
vann í
Noregi
— ogvarð norskur
meistari
Systir Sigurðar Jónssonar skíða-
kappa hér á árum áður, Þórdís Jóns-
dóttir, varð um helgina norskur
meistari í alpagreinum á skiðum.
Sannaðist þar enn einu sinni að eplið
fellur sjaldan langt frá eikinni. Þórdís
hefur æft mjög vel að undanförnu og
sigur hennar í alpagreinunum um
helgina kom því ekki mjög á óvart.
-SK
sekúndur í undanrásum sem er nýtt
íslandsmet. f úrslitahlaupinu fékk
hún tímann 7,74 sekúndur og hafnaði
í 5. sæti.
• Hjörtur Gíslason setti íslandsmet
í 60 metra grindahlaupi er hann hljóp
á 8,29 sekúndum en eldra metið var
8,63 sekúndur. Hjörtur hljóp 60
metra hlaupið á 7,12 sekúndum sem
er íslandsmet en Jóhann Jóhannsson
hljóp á 7,13 sekúndum.
• Aðalsteinn Bernharðsson setti
fslandsmet í 200 metra hlaupi er
hann hljóp á 22,49 sekúndum. Finni
setti Norðurlandamet í hlaupinu á
mótinu er hann hljóp á 21,33 sekúnd-
um.
• Egill Eiðsson og Aðalsteinn Bern-
harðsson kepptu í 400 metra hlaupi.
Aðalsteinn fékk tímann 49,58 sek-
úndur og komst ekki í úrslit. Egill
hljóp á 49,46 sekúndum og komst í
úrslit og varð þar í 6. sæti og hljóp
á 49,60 sekúndum. _sk
12 marka
ósigur Þróttar
í keppninni sem gefa aukasætin tvö
í fyrstu deild á næsta ári, fóru fram
tveir leikir nú um helgina. Haukar
unnu Þrótt með 29 mörkum gegn 17
og HK vann KR með 21 marki gegn
19. -jks
Vítakeppni í Austurstræti
• „Svo skýtur þú í hægra hornið neðst. Ég held að hann sé veikastur fyrir þar, markmaðurinn,“ gæti Þor-
Ibjörn Jensson, fyrirliði íslenska landsliðsins í handknattleik, verið að segja við einn ungan handknattieiksmann á
sem var einn af fjölmörgum sem lögðu leið sína í Austurstrætið í gær. Þar fór fram afar skemmtileg kveðjuat- |
I höfn á vegum ferðaskrifstofunnar Samvinnuferða Landsýnar og þeir sem verið var að kveðja voru landsliðs- ■
“ menn okkar í handknattleik sem senn halda á HM í Sviss. Meðal þess sem gert var sér til gamans í gær var I
I vitakeppni. Handknattleiksunnendur fengu þá að spreyta sig af vítalinunni og í markinu stóðu landsliðsmar- I
| kverðir okkar. Þeir sem skoruðu fengu plötu landsliðsins gefins og fóru margir plötu rikari til síns heima að *
l
essi nýbreytni með af- I
myndinni hér að ofan 1
keppninni lokinni. Gífurlegur mannfjöldi safnaðist saman í Austurstrætinu og tókst þ<
brigðum vel að sögn Kjartans L. Pálssonar, blaðafulitrúa Samvinnuferða Landsýnar. Á ____________________________
reynir einn af þeim yngri fyrir sér og nýtur leiðsagnar landsliðsfyrirliðans. Kristján Arason er i hlutverki |
dómarans og blæs i flautu sína er keppendur áttu að framkvæma vitaköstin. Svipurinn á Geir Sveinssyni sem .
stendur við hlið hans er skondinn og ekki að sjá að hann sé i öllu sammála því sem landsliðsfyrirliðinn er að |
segja. Atla Hilmarssyni list hins vegar greinilega vel á þetta allt saman og gefur það i skyn mcð breiðu brosi. ■
DV-mynd Bjarnleifur. -SK I
I Bird var ]
! frábær !
I — þegarBoston I
j Celtics sigradi I
LosAngelesLakers |
j íNBA-deildinniíkörfu j
íBandaríkjunum
J Bandaríski körfuknattleiks- ■
I maðurinn Larry Bird, sem leikur I
■ með Boston Celtics, átti stórkost- I
I legan leik i gær með liði sinu •
■ þegar Boston vann öruggan og I
I sanngjarnan sigur, 99-105, en ■
| leikið var i Forum i Los Angeles. I
■ Larry Bird fór á kostum í leikn-1
I um og skoraði 22 stig sem í sjálfu I
■ sér er ekkert merkilegt. Hitt er |
I merkilegra að hann tók 18 frá- ■
I köst i leiknum og var allt í öllu I
" hjá Boston. Dennis Johnson átti I
I einnig mjög góðan leik fyrir *
■ Boston og skoraði 22 stig. Þess I
■ má geta að Kevin McHale lék J
I ekki með Boston vegna meiðsla. |
* JamesWorthy varlangbesturhjá .
I Lakers en hann skoraði 35 stig. |
Aðrir leikmenn náðu sér ekki vel ■
| á strik í leiknum og því fór sem I
■ fór. Af mörgum eru þessi tvö Uð I
I taUn í nokkrum sérflokki i NBA- ■
■ deildinni bandarisku. Þeir sem I
I vitið hafa segja að það sé öruggt J
I að þessi tvö Uð leiki til úrslita í |
* NBA-deildinni í vor og verða það .
I örugglegamiklirhörkuleikir. |
I________________________£KJ
• Bogdan Kowalczyk, landsUðsþjálfari i handknattleik, var heiðraður sér-
staklega fyrir fyrri landsleik íslands og Noregs í Laugardalshöllinni á föstu-
dagskvöldið. Sveinn Björnsson, forseti íþróttasambands íslands, sæmdi
Bogdan þá gullmcrki sambandsins. Bogdan hefur starfað hér við þjálfun í ein
átta ár og hefur náð undraverðum árangri og er vel að þessum heiðri kominn.
DV-mvnd Bjamleifur. -SK
Enn í lagi
meðÞ.Óttar
— hef ur náð sér eftir meiðslin gegn Noregi
Mörgum sjónvarpsáhorfendum brá
mjög í brún á laugardaginn þegar
sjónvarpið sýndi beint frá landsleik
íslands og Noregs i Seljaskóla. Þegar
leiknum var lokið sást hvar Þorgils
Óttar Mathiesen var studdur til
búningsherbergis af tveimur félögum
sinum. Margir héldu að nú væri
kappanum öllum lokið en svo virðist
ekki vera.
I gær sagði Þorgils Óttar að hann
hefði fengið hnykk á hnéð en þetta
væri ekki eins slæmt og hann hefði
haldið í fyrstu. Hann sagði að hann
væri jafngóður nú og hann var fyrir
leikinn gegn Norðmönnum og eru
það vissulega mikil gleðitíðindi. Þó
er greinilegt að ekkert má koma fyrir
og hnéð virðist ekki þola nein stórá-
tök. Það er vonandi að Þorgils Óttar
geti leikið leiki Islands í Sviss því
hann er margbúinn að sanna að hann
er okkar allrabesti línumaður. Sem
kunnugt er meiddist Þorgils í næst-
síðasta leik íslenska landsliðsins á
Baltic Cup í Danmörku í janúar.
Ytra krossbandið í hnénu slitnaði
og ljóst er að eitt af fyrstu verkefnum
Þorgils Óttars eftir HM verður að
fara i uppskurð. -SK.
Heimsmet hjá Koch
Austur-þýska frjálsíþróttakon-
an Marita Koch setti um helgina
nýtt heimsmet i 200 metra hlaupi
i a-þýska meistaramótinu i
frjálsum innanhúss. Koch hljóp ó
22,33 sekúndum en eldra heims-
metið var 22,39 sekúndur og átti
hún það sjálf og setti það í Búda-
pest árið 1983.
Áður á mótinu í Austur-Þýska-
landi náði heimsmeistarinn og
heimsmethafinn í langstökki
kvenna, Heike Drechsler, besta
tima ársins í 100 metra hlaupi er
hún hljóp á 10,24 sekúndum en
Marita Koch hljóp á 10,25 sekúnd-
um.
-SK