Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1986, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1986, Síða 23
DV. MÁNUDAGUR17. FEBRÚAR1986. 23 i Iþróttir j iþróttir Í íþróttir íþróttir Fyrsti Evrópuleikurinn við Frakka í haust? — rætt við Ellert Schram, formann KSÍ, um Evrópukeppni landsliða. Möguleiki á þriggja landa keppni á laugardalsvelli í mai „Evrópukeppni landsliða hefst í haust og við erum að gera okkur vonir um að fá Frakka, Evrópumeistarana, i fyrsta leikinn. Ef það gengur upp leika Frakkar með Michel Platini fremstan í flokki á Laugardalsvellinum i septemb- er. Við ræddum við fulltrúa Frakklands eftir dráttinn í riðlana í Frankfurt á föstudag. Þeir ætla að athuga málið og endanlega verður gengið frá leikdegi fyrri leiks landanna 10. mars nk,“ sagði Ellert B. Schram, formaður KSÍ, við DV i gær. Hann var þá nýkominn heim frá Þýskalandi, þar sem hann var viðstaddur dráttinn í riðlana í Evrópukeppni landsliða ásamt tveimur stjórn- armönnum sínum, Gylfa Þórðarsyni og Þór Símon Ragnarssyni. „Fulltrúar Sovétríkjanna og Aust- ur-Þýskalands, sem voru í Frankfurt, höfðu ekki umboð til að ákveða leik- daga Islands við þessi lönd. Hins vegar ræddum við málin við þá og einnig við fulltrúa Norðmanna. ís- land er, sem kunnugt er, í riðli með Frakklandi, Sovétríkjunum, Austur-Þýskalandi og Noregi í þriðja riðlinum. ísland leikur vin- áttulandsleik við Norðmenn á Laugardalsvelli 20. ágúst í sumar. Sá leikur verður eins og ákveðið var en gerir það að verkum að Norðmenn leika ekki í Evrópukeppninni hér í sumar. Hins vegar er góður mögu- Vestur-þýski sundmaðurinn Frank Hoffmeister sigraði og náði ágætum tíma í 100 m baksundi á stórmóti í Barcelona á Spáni á laugardag - grand prix sundmóti. Hann synti vegalengdina á 55,46 sek. Frank Scheeider, Austur-Þýskalandi, varð annar á 57,78 sek. Stefan Pfeiffer, V-Þýskalandi, sigraði í 400 m skrið- sundi á 3.53,09 min. Anders Hol- leiki á því að ísland leiki í keppninni í Noregi í haust,“ sagði Ellert. Þess má geta að KSÍ-mennirnir sömdu um kvennalandsleik við V-Þýskaland og 21 árs landslið þýskra þegar þeir voru í Frankfurt. Leikirnir verða hér heima í sumár. Þriggja landa keppni Þá má geta þess að KSÍ hefur lengi haft í undirbúningi að efna til þriggja landa keppni síðustu vikuna í maí og þá á Laugardalsvelli. Rætt hefur verið við fulltrúa Hollands, írlands og Wales en þessi lönd eru eins og ísland ekki með í úrslitakeppni mertz, Svíþjóð, annar á 3.56,95 mín. Kristin Otto, Austur-Þýskalandi, sigraði í 100 m skriðsundi kvenna á 56,18 sek. Önnur varð Tamara Costache, Rúmeníu, á 56,28 sek. 1200 m flugsundi karla sigraði Harri Garmendia, Spáni, á 2.02,34 mín. Daninn Jan Larsen varð annar á 2.02,37 mín. hsím heimsmeistarakeppninnar í Mexíkó í sumar. íslenska landsliðið mundi þá leika við tvö af þessum löndum í keppninni ef af verður. „Við ræddum fyrst við Walesbúa og Ira um að taka þátt í þessari keppni og síðan komu Hollendingar inn í myndina. Það er fullsnemmt um það að segja hvort af keppninni getur orðið. Við hjá KSÍ höfum mikinn áhuga á því. En það gætu verið erfiðleikar, - mikið um að vera á knattspyrnusviðinu síðustu vikuna í maí. KSÍ mun gera allt sem í þess valdi stendur til að koma þessari þriggja landa keppni á - hún er mjög áhugaverð," sagði Ellert Schram. Sterkasti riðillinn „Þriðji riðillinn er erfiðastur," sagði Franz „keisari" Beckenbauer, landsliðsþjálfari Vestur-Þýskalands, eftir að drátturinn í riðla Evrópu- keppninnar lá fyrir í Frankfurt. Allir virðast þar á einu máli - sammála Beckenbauer. Mjög erfiðir mótherj- ar, sem íslenska landsliðið leikur við í riðlinum. „Maður verður að sætta sig við niðurstöðuna í drættinum. Riðill okkar er sterkastur, það fer ekki milli mála. Sovétríkin og Austur- Þýskaland verða erfiðustu mótherjar okkar þar. En jafnvei fsland verður ekki auðveld bráð. Ég er þó bjart- sýnn á árangur franska landsliðsins en við vitum betur hvar við stöndum eftir heimsmeistarakeppnina í Mex- íkó,“ sagði Henri Michel, landsliðs- þjálfari Evrópumeistara Frakk- lands, eftir dráttinn í Frankfurt. Margir voru mjög ánægðir með niðurstöðu dráttarins. Federico Sor- dillo, forseti ítalska knattspymu- sambandsins, sagði. „Við vorum heppnir - ítalir verða taldir sigur- • EHert Schram, formaður KSÍ. stranglegastir í 2. riðli. Portúgal hættulegasti mótherjinn en portú- galska landsliðið er ekki eins sterkt og á dögum Eusebio." Þess má geta að Svíþjóð, Sviss og Malta eru einnig í 2. riðli. Bobby Robson, landsliðs- þjálfari Englands, var að vonum ánægður með dráttinn. England í léttasta riðlinum að flestra mati - með Norður-írlandi, Júgóslavíu og Tyrklandi. Ánægðastir voru þó full- trúar landa, sem stutt ferðalög eru til frá Englandi. Þeim fannst gott að losna við hina erfiðu, ensku áhorf- endur. Hins vegar litlar líkur á að enskir fari í stórhópum með landsliði sínu til Tyrklands og Júgóslavíu. Holland er í riðli með Ungverja- landi, Póllandi, Grikklandi og Kýp- ur og hollenski landsliðsþjálfarinn Leo Beenhakker sagði. „Þetta er erfiður riðill með Austur-Evrópul- öndunum tveimur. Við höfum alltaf átt í erfiðleikum með leikaðferð þeirra. Hins vegar fer það ekki milli mála að þriðji riðillinn er sá erfið- asti. Besta knattspyrnan verður eflaustí2. riðli.“ hsim Island í riðli með Danmörku — í Evrópukeppni 21 árs landsliða ísland er i riðli með Dönum i Evrópukeppni landsliða, leik- menn 21 árs eða yngri. Þegar dregið var til keppninnar í Franfurt lenti ísland i 6. riðii ásamt Danmörku, Tékkó- slóvakíu og Finnlandi. Dráttur- inn var annars þannig. 1. riðill: Spánn, Rúmenia, Austurríki og Albania. 2. riðill: Portúgal, Sviþjóð, Sviss og ítalia. 3. riðill: Frakkland, Sovétrík- in, A Þýskaland og Noregur. 4. riðill: England, Júgóslavía og Tyrkland. 5. riðill: Ungverjaland, Pól- land, Grikkland og Kýpur. 6. riðill: Danmörk, Tékkó- slóvakia, Finnland og ísland. 7. riðill: Belgia, írland og Skotland. 8. riðill: V-Þýskaland, Búlgar- ía, Lúxemborg og Holland. hsím Saunders stjóri WBA Framkvæmdastjórinn kunni í ensku knattspyrnunni, Brian Saunders, var fyrir helgi ráðinn framkvæmdastjóri West Brom- wich Albion, neðsta liðsins í 1. deild. Nobby Stiles, sem hefur verið við stjórnvölinn frá þvi mágur hans, Johnny Giles, var rekinn sem stjóri WBA í haust, verður áfram hjá félaginu sem aðstoðarmaður Saunders. Fyrir nokkrum árum gerði Saunders garðinn frægan hjá Aston Villa. Gerði Birmingham-liðið að enskum meisturum. Fór síðan til Birmingham. West Brom- wich er útborg Birmingham. hsím Agæt sundaf rek á mótí í Barcelona Reykjavíkuitiorq býðurtil sölu 18 íbúðir í paitiúsum að Hjallaseli 19-23. íbúðirnar eru um 69 fm. að stærð og fylgir hlutdeild í sameiginlegri lóð og lóðarhluti til einkaafnota. Þeir einir geta keypt íbúðir og búið í þeim sem eru orðnir 63 ára gamlir og hafa verið búsettir í Reykjavík a.m.k. 3 undanfarin ár. íbúðareigendur eiga rétt á að njóta þjónustu sem veitt verður í dvalarheimili aldraðra að Hjallaseli 55. íbúðirnar eru boðnartil sölu á kostnaðarverði þeirra kr. 3.223.000 og áætlaður afhendingartími þeirra er í apríl/maí 1986. Reykjavík, febrúar 1986 BORGARSTJÓRINN í REYKJAVÍK Athygli er vakin á því að mögulegt er að taka íbúð upp í kaupverðið. Söluskilmálar og greiðslukjör ásamt uppdráttum og lýsingu á íbúðunum liggja frammi á skrifstofu Reykjavíkurborgar, Austurstræti 16,2. hæð. íbúðirnar verða til sýnis kl. 13-15 alla virka daga frá 24. febrúar n.k.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.