Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1986, Síða 40
40
DV. MÁNUDAGUR17. FEBRÚAR1986.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Langeyrarvegi 7, hæð og risi, Hafnarfirði, þingl.
eign Egils Tyrfingssonar, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 20. febrúar
1986 kl. 15.00.
__________________________Baejarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Laufási 3, efri hæð, Garðakaupstað, þingl. eign
Agnars Guðmundssonar, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 20. febrúar
1986 kl. 15.30.
Bæjarfógetinn í Garðakaupstað.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 76., 78. og 80. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á eign-
inni Öldugötu 42, 3.h. t.v„ Hafnarfirði, tal. eign Erlu Sveinbjömsdóttur, fer
fram eftir kröfu Landsbanka islands, Gjaldheimtunnar í Hafnarfirði, Vilhjálms
H. Vilhjálmssonar hdl., Jóns Finnssonar hrl. og Bjarna Ásgeirssonar hdl. á
eigninni sjálfri fimmtudaginn 20. febrúar 1986 kl. 14.30.
Bæjarfógetinn I Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Sléttahrauni 28, 3. hæð t.v., Hafnarfirði, tal. eign
Sigurðar J. Einarssonar, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 20. febrúar
1986 kl. 15.00.
_____Bæjarfógetinn i Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 82., 89. og 97. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eign-
inni Sviðholtsvör 6, Bessastaðahreppi, þingl. eign Hjalta Þórs Björnssonar,
fer fram eftir kröfu Bjarna Ásgeirssonar hdl. á eigninni sjálfri firnmtudaginn
20. febrúarl 986 kl. 17.30.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Þóroddarkoti 5, Bessastaðahreppi, tal. eign
Eyjólfs Karlssonar, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 20. febrúar 1986
kl. 17.00.
____Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu.
Ég hef verið með bólur síðan ég
var unglingur. Fyrir utan lýtin
sem af þeim stafa hefur rakstur
ávallt verið mér vandamál. Fyrir
stuttu var mér bent á að reyna
snyrtivörur sem heita EVORA og
eru ótrúlega græðandi. Mér var
ráðlagt að raka mig með hreinsi-
kremi og nota EVORA rakakrem
í staðinn fyrir raksápu og rak-
spíra. Strax eftir 2-3 skipti með
notkun þessara krema fann ég og
sá stórmun á andlitinu á mér.
Bóiumar hverfa og raksturinn
varð í fyrsta skipti mjúkur og
þægilegur og ég finn ekki fyrir
skeggrót allan daginn. Þetta er
stórkostlegur munur fyrir mig og
þakka ég það eingöngu EVORA
snyrtivörunum.
Þórður Þórisson.
Þetta eru orð eins ánægðs við-
skiptavinar. Við getum lítið
meira sagt til viðbótar, nema að
EVORA snyrtivörumar em unn-
ar úr náttúruefnum sem eru mjög
virk og græðandi.
Verslunin Ingrid,
Hafnarstræti 9,
sími 621530.
Avocado áburðurinn frá EV0RA
Útsöiustaðir:
Árbæjarapótek.
Mosfellsapótek
Kaupfélagið á Sauðárkróki.
Kjalfell, Gnoðarvogi 78.
Heilsumarkaðurinn,
Hafnarstræti 11.
INGRID, Hafnarstræti 9.
Póstsendum, sími 62-15-30.
Heildsölubirgðir
Hallgrímur Jónsson.
Simi24311.
ÁTTÞÚ
hakkapeffitta
Finnsku
NOKIA-snjódekkin
hafa reynst vel
á íslandi!
BIFREIÐAR & LANDBUNADARVELAR
Suðurlandsbraut 14
Varahlutir 3 92 30 /Jjý
’SP' Skiptiborð 38600
Banaslys
í Ölfusi:
Harður árekstur varð milli tveggja
mótorhjóla og fólksflutningabíls
skammt frá Kögunarhóli í Olfusi
um níuleytið á föstudagskvöldið.
Tveir ungir Hvergerðingar biðu
bana og tveir aðrir voru fluttir á
Slysadeild Borgarspítalans í
Reykjavík.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi
varð slysið með þeim hætti að
I gærkvöldi I gærkvöldi
Kristín Jónsdóttir kennari:
Sjónvarpið að verða of gott
Ég horfði eitthvað á sjónvarpið öll
kvöldin um helgina, ég geri það
yfirleitt um helgar ef ég er heima.
Ég hafði nokkurt gaman af mynd-
inni The boys from Brazil á föstu-
dag og svo horfi ég náttúrlega allt-
af á fréttir og Kastljós.
Á laugardagskvöld sá ég báðar
myndimar, sú fyrri var svona ekta
amerísk, hvorki góð né vond, en
mér fannst góðir þættir i þeirri
seinni þó hún væri fremur sundur-
laus.
Ég hef fylgst með Blikum á lofti,
en mér þykja þeir þættir orðnir
heldur svona dauflegir og í raun
ekkert sem gerist hverju sinni. Ég
hef, eins og ég segi, fylgst með
þessum þætti og það er nú bara
einn eftir svo ætli ég haldi það
ekki út.
Ég má ekki gleyma myndinni Á
fálkaslóðum, hún er mjög skemmti-
leg. Og það liggur við að sjónvarpið
sé að verða of gott því mann langar
stundum bara að sitja við það og
horfa og horfa. Það fer að taka of
mikinn tíma frá manni. En auðvit-
að er gott að það skuli alltaf vera
að batna, því t.d. em sumir sem
liafa lítið annað við að vera. Ég
held að sjónvarpið sé jafnvel betra
í miðri viku heldur en um helgar,
t.d. var ítalski þátturinn ansi góður
og Ómar er líka alveg afbragð.
Ég hlusta lítið á útvarpið nema
fréttir. Það er helst eitthvað seinni
partinn, einn og einn umhverfis-
þáttur sem ég heyri, en aldrei fyrri
hluta dags. Enda vil ég lítið um
útvarpið dæma en held að það sé
alveg ágætt.
Andlát
Thorberg Einarsson netagerðar-
meistari andaðist í Landspítalanum
13. febrúar.
Stefán Jón Valdimarsson frá Hrísey
lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak-
ureyri 13.þ.m.
Guðlaug B. Pálsdóttir sjúkraþjálfi
lést 9. febrúar sl. Hún fæddist 2.
febrúar 1955. Guðlaug lauk námi í
sjúkraþjálfun í Osló í júní árið 1979.
Hún starfaði á Borgarspítalanum
nær samfleytt frá árinu 1979 til maí
1984. Útför hennar verður gerð frá
Langholtskirkju í dag kl. 13.30.
Jóna Marteinsdóttir er látin. Hún
fæddist á Fáskrúðsfirði þann 12.
ágúst 1906. Foreldrar hennar vom
hjónin Rósa Þorsteinsdóttir og
Marteinn Þorsteinsson. Jóna giftist
Elísi Þórðarsyni en hann lést árið
1950. Þau hjónin eignuðust fjóra
syni. Útför Jónu verður gerð frá
Bústaðakirkju í dag kl. 13.30.
fremra hjólið lenti framan á rú-
tunni, sem var á vesturleið, rétt við
Kögunarhól. Tveir piltar, Geir
Halldórsson og Gísli Jón Hannes-
son, vom á hjólinu og munu hafa
látist samstundis. Þeir vom sautj-
án og átján ára gamlir. Tveir félag-
ar þeirra vom skammt undan á
hinu hjólinu, tókst ekki að forðast
brakið og liggja nú á Borgarspítal-
Guðmundur Halldórsson, fyrrv. út-
sölustjóri, Flókagötu 35, lést 13.
febrúar að Hátúni lOb.
Herdís Loftsdóttir, fyrmm húsfreyja
að Gunnarsstöðum í Hörðudal, fædd
23. maí 1895, lést á Akranesspítala
5. febrúar sl. Eiginmaður hennar var
Guðbrandur Magnússon bóndi að
Gunnarsstöðum en hann lést árið
1969. Jarðarförin fór fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Jómnn Guðjónsdóttir lést 8. febrúar
sl. Hún fæddist á Patreksfirði 2.
nóvember 1905. Hún giftist Oddgeiri
Magnússyni en hann lést árið 1952.
Þeim hjónum varð sex bama auðið.
Útför Jómnnar verður gerð frá Foss-
vogskirkju í dag kl. 15.
Fundir
Fundur í félagi einstæðra for-
eldra
„Þú - ég, við öll og þið hin = mann-
leg samsk i pti “ er umræðuefni á
almennum fundi í Félagi einstæðra
foreldra sem verður mánudagskvöld-
ið 17. febrúar í Skeljahelli, Skeljanesi
6, og hefst fundurinn kl. 20.30. Máls-
hefjendur em Flosi Ölafsson leikari
og Helga Ágústsdóttir rithöfundur.
Síðan verða frjálsar umræður og
fyrirspurnir. Tekið skal fram að nýir
félagir eru velkomnir og hvatt er til
að menn komi stundvíslega. Um-
ræðuefnið ætti að höfða til flestra
og félögum er hent á að fjölmenna
og hika ekki við að leggja orð í belg.
Á fundinum verður efnt til skyndi-
happdrættis með góðum vinningum
og kaffi og meðlæti verður á borðum.
Afmæli
75 ára er í dag, 17. febrúar, systir
Anna, Holtsbúð 87, Garðabæ.
anum í Reykjavík með fótbrot og
önnur minniháttar meiðsli. Ekki
hefur ennþá verið unnt að yfir-
heyra piltana og því ekki ljóst hvað
olli slysinu.
Geir Halldórsson var fæddur 11.
12. ’67 og til heimilis að Bláskógum
2a í Hveragerði en Gísli Jón Hann-
esson var fæddur 9.5.68, til heimil-
is að Þelamörk 42 í Hveragerði., .
-baj
Afbrotafaraldur
á höf uðborgar-
svæðinu
Rannsóknarlögregla ríkissins
þurfti að sinna fast að 40 útköllum
um helgina vegna þjófhaða og inn-
brota. Hvergi var um stórvægilega
þjófnaði að ræða en skemmdir
nokkrar.
Á laugardag hafði lögreglaú á Sel-
fossi hendur í hári þriggja pilta,
15-16 ára. Þeir óku þar um á stolinni
bifreið. Piltarnir eru grunaðir um að
hafa brotist inn á 18-20 stöðum frá
því seint í síðustu viku. Þar af eru
3 4 bílþjófnaðir.
Alls urðu fimm skólar fyrir barðinu
á innbrotsþjófum um helgina. Veru-
legar skemmdir voru unnar í Val-
húsaskóla á Seltjarnarnesi. Auk þess
heimsóttu óboðnir gestir Öldutúns-
skóla, Öskjuhlíðarskóla, Hjallaskóla
og félagsmiðstöðina í Garðabæ. -GK
Mikilölvun
íÓlafsvík
Umtalsverð ölvun var í Ölafsvík
aðfaranótt sunnudagsins, lögreglan
hafði í nógu að snúast og þrír stútar
voru teknir við stýri, grunaðir um
ölvun við akstur. Aðallega áttu
þarna í hlut unglingar frá Hellis-
sandi og Ólafsvík. Enginn gestur
dvaldi þó i gistihúsnæði lögreglunn-
ar um nóttina þrátt fyrir áðumefnda
atburði.
Smábrunar
um helgina
Slökkviliðið var hafði það fremur
náðugt um helgina, fór þó á Hjalla-
veg um tíuleytið þar sem kviknað
hafði rúmdýnum. Þar var mikill
reykur en óvemlegur bruni.
Á laugardagskvöld var tilkynnt um
bmna í vinnuskúr í Mjóddinni í
Breiðholti. Þar var einnig um smá-
bmna að ræða og gmnur leikur á
íkveikju. -baj
Mótorhjólaslys
íNjarðvík
Tvö létt bifhjól lentu í árekstri í
Njarðvík á laugardagskvöldið.
Að sögn lögreglunnar í Keflavík
urðu þar ekki umtalsverð slys á
mönnum og sluppu ökumenn með
minni háttar skrámur og meiðsli. -baj
Fimmtugs manns
saknaðíEyjum
Ekkert hefur ennþá spurst til
rúmlega fimmtugs Vestmannaeyings
sem saknað hefur verið síðan á
miðnætti aðfaranótt miðvikudags.
Þá sást til hans á leið um borð í eigin
bát í Vestmannaeyjahöfn. Leitað var
alla helgina og höfnin slædd en án
árangurs. Leitarskilyrði em slæm
vegna fjölda loðnubáta í höfn vegna
brælunnar á miðum og hefur leit að
manninum nú verið hætt af þeim
sökum. -baj
Tveir ungir piltar
létu lífið