Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1986, Page 44
DV. MÁNUDAGUR17. FEBRÚAR1986.
Vr
44
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
t
Bítlamir á gullaldarárunum, með hneykslanlega hárgreiðslu og iklæddir
byltingarkenndum, kragalausum jökkum. Varla myndi nokkur lyfta svo
mikið sem annarri augnabrún yfir fjórmenningunum í dag. George og
Ringofyrirmiðju.
T
í
m
a
r
í
x
b
r
G
y
t
a
s
t
Tveir hinna frægu bítlafjórmenn-
inga vom í Lundúnum nýverið við
upptökur á tónlistarfílmu og með-
fylgjandi mynd var tekin við það
tækifæri. Greinilegt er að timinn
hefur markað sín spor hjá þeim
ekki síður en öðrum, George er nú
42ja ára gamall en Ringo 45. Hár-
toppurinn frægi, sem greiddur var
vandlega fram á ennið, hefur fengið
að fjúka og er nú brúskurinn
kembdur vandlega upp firá enninu,
snyrtilegir karlar það!
Fræg er sagan um bresku hús-
móðurina sem sagði næstverstu
fréttir sem henni yrðu sagðar ef
dóttir hennar tæki upp á því að
giftast einum Bítlanna. Verstu
fréttimar væru ef dóttirin giftist
Mick Jagger í Rolling Stones.
Líklega myndu þeir Ringo og Ge-
orge sleppa í gegnum nálaraugað
núna, eftir gagngerar breytingar á
ytra borðinu.
Þessi mynd var tekin af þeim félögum í Lundúnum nýlega. Það hefur
heilmikið vatn runnið til sjávar síðan fyrri myndin var tekin, aldurinn
er að færast yfir poppgoðin ekki síður en aðra.
Sonurinn er orðinn
STOR
Sonur Rogers Vadim og Catherine
Deneuve er orðinn stór og kominn
á svið eins og móðirin. Enda varla
við öðru að búast - faðirinn frægur
kvikmyndaleikstjóri og framleið-
andióg móðirin ekki minna þekkt
kvikmyndaleikkona. Hann er að
finna á kaffihúsaleiksviðinu Le bec
fin í París og heitir stykkið Le bel
indifferent og Le meinteur eftir
Jean Cocteau. Við leikinn nýtur
Christian stuðnings móðurinnar
sem bendir á það sem henni finnst
miður fara í leiknum og hrósar því
jákvæða. Hinn frægi faðir hans
hefur ekki séð leikinn ennþá, enda
búsettur í Hollívúdd og á illa heim-
angengt þessa dagana. Christian
dvaldi hjá föður sínum á síðasta
ári og sagði það hafa verið mikla
reynslu - nokkuð sem hann ætlar
að byggja ýmislegt á við leikstörfin
í framtíðinni. En bætir þó við að
það geti varla talist kostur að vera
sonur þessara heimsfrægu foreldra,
hann þurfi að berjast fyrir því að
koma sínu nafni á blað án þess að
það falli í skuggann af fornri frægð
foreldranna. Líklega nokkuð til í
þvi, ennþá hefur ekkert viðtal eða
frásögn birst af kappanum án þess
að pabba gamla og mömmu væri
getið - þar með talinn Sviðsljós-
stúfur í DV uppi á íslandi.
1*
Tíu ára gamall með móður sinni á
götu í París.
„Hvernig er ég á sviði,
mamma?“ Christian
ogCatherineágóðri
stundu.
r