Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1986, Page 8
8
DV. FIMMTUDAGUR 20. MARS1986.
Markos til Panama?
Haft er eftir heiniildum innan
ríkisstjórnar Panama í morgun að
Markos, fyrrum forseti Filippseyja,
og flölskylda hans hafi fengið hæli
í Panama „af mannúðarástæðum1'
og verði séð fyrir öruggum viöveru-
stað.
Sömu heimildir segja að búist sé
við formlegri tilkynningu stjórn-
valda innan skamms.
Ekkert hefur verið gefið uppi um
hvenar Markos og fjölskylda muni
ætla að koma til Panama né hvar
í landinu þau muni dveljast.
Forsetinn fyrrverandi dvelst nú
sem kunnugt er ásamt fjölskyldu á
Hawaii í góðu yfirlæti eftir flótta
frá heimalandinu um borð í banda-
rískri herflugvél í síðasta mánuði.
Bandarískir embættismenn hafa
sagt að Markos sé orðinn lang-
þreyttur á því fjölmiðlafári er hann
hefur valdið í Bandaríkjunum, þar
sem meint fjármálasvindl forsetans
fyrrverandi er í sviðsljósinu, og hafi
hann ekki síst þess vegna viljað
leita að öðrum dvalarstað en
Bandaríkjunum.
Bandaríska utanríkisráðuneytið
hefur staðfest að það hafi haíl
samband við ríkisstjórnir fjöl-
margra ríkja og kannað grundvöll-
inn fyrir hæli fyrir Markos.
Markos, fyrrum Filippseyjaforseti,
er orðinn þreyttur á öllu fjölmiðla-
fárinu í kringum fjármál sín i
bandariskum fjölmiðlum og vill nú
fá hæli annars staðar en í Banda-
ríkjunum.
Árás á ísraelska
sendiráðsmenn í Kaíró
Upplýsingar þýðingarmesta
vitnisins stóðust ekki
Hans Holmer, Iögreglustjóri í Stokk-
hólmi, á ekki sjö dagana sæla. Nú
stendur lögreglan í svo til sömu spor-
um og í byijun leitarinnar að morð-.
ingja Palmes.
OPEC-fundurinn í Genf:
Rætt um fjórðungs minnkun olíuframleiðslu
Ráðherrar samtaka olíufram-
leiðsluríkja, er enn funda í Genf um
leiðir til að bregðast við ört lækkandi
heimsmarkaðsverði á olíu, ræddu um
það á fundi sínum í gær að minnka
olíuframleiðslu sína um fjórðung til
að draga úr framboði og hækka olíu-
verð á ný.
Með þessu telja OPEC-ríkin sig geta
aukið eftirspumina það mikið að ol-
íuverð hækki upp i allt að 20 dollara
fyrir tunnuna.
„Nú er olíuframleiðsla OPEC-ríkj-
anna um 17 milljónir tunna á dag og
ef okkur tekst að minnka framleiðsl-
una ætti okkur að takast að hækka
olíuverðið upp í 20 dollara fyrir tunn-
una á nokkrum vikum,“ sagði Ril-
wánu Lukman, olíumálaráðherra
Nígeríu, á blaðamannafundi í gær,
eftir fjórða dag skyndifundar OPEC
í Genf.
Olíuframleiðsluríki innan OPEC
binda vonir við almenna samstöðu
sem flestra olíuframleiðsluríkja um
minnkandi framleiðslu eftir að full-
trúar fimm olíuríkja utan OPEC,
Mexikó, Malaysíu, Egyptalands,
Óman og Angóla, áttu viðræður við
ráðherra OPEC-ríkjanna í gær.
Búist er við formlegum tillögum
oliuframleiðsluríkjanna í dag um
allsheijar samdrátt í framleiðslu.
Fram að þessu hafa allar tilraunir
OPEC-ríkjanna þrettán til að koma á
framleiðsluþaki innan hvers aðildar-
ríkis, þar sem heildarframleiðsla
OPEC á dag færi ekki yfir 16 milljónir
tunna, misheppnast vegna ósamstöðu
og falsaðra framleiðslutalna.
rásinni. Annar bíllinn lokaði öku-
leið Peugeot-bifreiðar fsraelsmann-
anna, þannig að hún var neydd til
að stöðva, á meðan annað ökutæki
þeirra bar að með mönnum vopnuð-
um hríðskotarifílum er létu skot-
hríðina dynja á vagni ísraelsmann-
anna.
Heimildir frá Kaíróflugvelli
herma að fsraelsmenn hafi sent
sérstaka sjúkraflugvél frá Tel Aviv
til að sækja hina særðu og sé þeim
nú hjúkrað í ísrael.
Þetta er þriðja árásin á ísraelskt
sendiráðsfólk á tveim árum í Kaíró,
einu höfúðborg arabaríkis þar sem
ísraelsmenn hafa erlent sendiráð.
-------------------
Illa útleikin Peugeot bifreið ísra-
elsku sendimannanna í morgun
eftir skotárás arabísku hryðju-
verkamannanna. Ein ísraelsk eig-
inkona sendiráðsmanns var vegin
og þrír félagar hennar úr sendiráði
ísraels helsærðir.
Símamynd Polfoto í morgun
Gunnlaugur Jónsson, fréttaritari DV
íSvíþjóð:
Sænska lögreglan sleppti í gær
manninum sem í heila viku hefur
setið í vörslu hennar grunaður um
morðið á Olof Palme. „Þýðingarmik-
ill hlekkur í sönnunarkeðjunni hefur
brostið," sagði Holmer lögreglustjóri
í gær. Yfirlýsing hans kom geysilega
á óvart þar sem flestir fjölmiðlar í
Svíþjóð voru orðnir sannfærðir um
að hinn handtekni væri morðingi
Palmes. Ekki kom síður á óvart sú
staðhæfing lögreglunnar að annar
maður hefði undanfarna daga einnig
setið í vörslu hennar en að hann yrði
sömuleiðis látinn laus.
Holmer lögreglustjóri lét í ljós
mikla óánægju sina bæði með verj-
endur mannsins, sem gáfu fjölmiðlum
upplýsingar, svo og þau þijú sænsku
dagblaðanna sem birtu mynd af
manninum og nafn hans.
Blöðin þurfa að greiða skaða-
bætur
„Blöðin í Svíþjóð, sem hafa birt
nafn mannsins og mynd af honum,
koma til með að þurfa að greiða
honum háar skaðabætur," sagði Leif
Silbersky, einn kunnasti og reyndasti
lögfræðingur Svíþjóðar. Hann bætti
því hins vegar við að þetta myndi
ekki gilda um þá fjölmörgu erlendu
fjölmiðla sem birtu mynd af mannin-
um. Silbersky sagði að hefði þetta
gerst í Bandaríkjunum hefði maður-
inn orðið milljónamæringur, svo háar
skaðabætur væru dæmdar þar í landi.
Hann giskaði á að dagblaðið Arbetet,
sem .fyrst birti mynd af manninum í
fyrradag, kæmi til með að þurfa að
greiða um það bil tvö hundruð og
fimmtíu þúsund íslenskar krónur.
Maðurinn fer huldu höfðu og hefur
ekki treyst sér til að snúa aftur til
fyrri starfa en hann var kennari í
Stokkhólmi. Hann liggur að ein-
hveiju leyti undir grun ennþá þó
skort hafi sannanir til að fá framleng-
dan gæsluvarðhaldsúrskurð. Verj-
endur mannsins hafa hins vegar
ekkert viljað gefa út á það hvort
maðurinn kunni að verða handtekinn
áný.
Byssumenn sátu fyrir sendiráðsbíl
ísraelska sendiráðsins í Kaíró, höf-
uðborg Egyptalands, í morgun. Ein
ísraelsk kona, starfsmaður sendi-
ráðsins, var skotin til bana og þrír
aðrir sendiráðsmenn alvarlega
særðir í árásinni.
Israelsmennimir vom að koma frá
kynningarbás sínum á alþjóðlegri
vömsýningu er nú fer fram í Kaíró
og vom á leið til dvalarstaðar síns
er árásarmennimir létu til sín taka.
Svonefnd „Byltingarsamtök
Egyptalands" hafa lýst ábyrgð á
hendur sér vegna ódæðisins og hafa
varað alla bandaríska og ísraelska
ríkisborgara í Egyptalandi við svip-
uðum örlögum ef þeir komi sér ekki
úr landi hið fyrsta. Að auki er þess
krafist að egypsk stjómvöld slíti
þegar í stað öllum samskiptum við
ríkisstjóm ísrael.
ísraelsmenn senda sjúkravél
Að sögn lögreglunnar tóku tvö
ökutæki byssumannanna þátt í á-
Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd
Ekki bara Ijósmyndavörur, einnig
hljómtæki á hreint ótrúlegu verði
inmmrnrrmnnminmi
ILJÓSMYNDAÞJÓNUSTAN HF||
LAUGAVEG1178 - REVKJAVÍK. - SÍMI 685811
m