Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1986, Blaðsíða 16
16
Spurningin
Hvernig kannt þú við
þennan mikla snjó?
Jón Guðmundsson, löggilt gamal-
menni: Ég kann ágætlega við hann,
hann sýnir að það er vetur og ég fer
leiðar minnar á reiðskjótum postul-
anna.
Gunnar Gunnarsson nemi: Þetta er
allt í lagi, vonandi að verði ekki
jafnkalt og veturinn sextíu og sjö til
átta. En þetta er einangrun.
Björn Örlygsson nemi: Hann setur
mig ekki í neinn vanda, ég er á
góðum nagladekkjum og allt í besta.
lagi að veturinn skuli loksins vera
byrjaður.
Margrét Heiðdal afgreiðsludama:
Mér finnst gaman að fá hann öðru
hvoru en ég vona bara að hann verði
ekki ofmikill.
Jóhanna Marta Óskarsdóttir, vinnur
á Múlalundi: Bara ágætlega, og þó,
eiginlega er mér svolítið illa við hann
og vona vegna pabba og mömmu að
hann fari.
Helgi Hermann Hannesson nemi:
Mér líkar hann ekkert sérstaklega
vel, hann tefur fyrir. Þó að hann sé
fallegur að sjá er vont að ganga í
honum. Ég vona að hann fari fljótt.
DV. FIMMTUDAGUR20. MARS1986.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Verðlækkun
á bensíni
Jónas Bjarnason framkvæmda-
stjóri skrifar:
I ágætu lesendabréfi í DV 11.
mars sl. er þess m.a. getið að ekki
hafi heyrst mikið frá FÍB þótt verð-
lækkun á bensíni hafi komið til
framkvæmda í öllum löndum öðrum
en íslandi fyrir mörgum mánuðum.
Þessi athugasemd byggist sem
betur fer á nokkrum þekkingar-
skorti almennt um bensínverð og
aðgerðir FÍB í sambandi við verð-
lagningu á bifreiðabensíni hér á
landi. Varðandi þá verðlækkun á
bensíni, sem nú stendur yfir á
heimsmarkaði, þá heíur FÍB skýrt
„Þess er að vænta að bensinverð í
þessum mánuði lækki að minnsta
kosti um 6 til 7 krónur".
opinberlega frá því 15. febrúar sl.,
hvernig hagkvæmast er að standa
að innkaupum á bensíni til Islands
og hvernig bensínverð er samsett.
Niðurstaða var sú að þrátt fyrir
fyrri óhagstæð innkaup ætti verð á
bifreiðabensíni að lækka í mars-
mánuði um 6-7 krónur. Var þetta
miðað við verð á Rotterdammarkaði
14. febrúarsíðastliðinn.
Þann 11. mars hafði bensínverð
hérlendis lækkað um 2 krónur. Þess
er að vænta að bensínverð í þessum
mánuði lækki að minnsta kosti um
6 til 7 krónur eins og FÍB hefur
áður bent á að sé sanngjöm og
eðlileg lækkun, miðað við Rotter-
dammarkað 14. febrúarsl.
Rétt er að benda á að þar hefur
bensínverð (FOB) lækkað enn um
25% síðastliðinn mánuð, eða frá
14/2. Að öðru leyti er vísað til grein-
ar FÍB um verðlækkun á bensíni
sem birtist í DV mánudaginn 24.
febrúar síðastliðinn.
Jon Kjell, stjama
á líðandi stundu
Prútti skrifar:
Mig langar til að leggja nokk-
ur orð í belg varðandí þáttinn Á
líðandi stundu sem er merkileg
og þörf nýjung hjá sjónvarpinu.
Finnst mér þátturinn vera mis-
skilinn að sumu leyti og vil
reyna að bæta úr.
f fyrsta lagi er oft talað um
.úáttínn hans Ómars*’ eins og
Omar sjái um þáttinn á eigin
spýtur en hið rétta er að Ómar
er aðeins einn þriggja umsjónar-
manna þáttarins. Þetta orðalag
telst því ekki sanngjamt gagn-
vart þeim Sigmundi Emi og
Agnesi. Með sama rétti mætti
tala um þáttinn hans Simma eða
þáttinn hennar Agnesar. Bið ég
fólk að hætta þessu Ómarstali
og geta allra þriggja umsjónar-
mannanna þegar um þá er rætt.
í öðru lagi virðast margir
halda að þátturinn sé eingöngu
til skemmtunar en þetta er ekki
rétt. Vil ég minna á að í fyrsta
þætti var sagt að þátturinn yrði
byggður upp á gríni og alvöru,
þ.e.a.s. blandaður þáttur. Fyrir
fólk sem finnst að allt eigi að
vera svo létt og skemmtilegt er
óvenju alvarlegur þáttur sama
og óvenju lélegur þáttur en
þetta er á misskilningi byggt
einsogáðurergetið.
í þriðja lagi heitir þátturinn
ekki „A líðandi stund” heldur
„Á líðandi stundu”. Er mikil-
vægt aö u-ið só notað, bæði af
fegurðarástæðum og svo á alltaf
að fara rétt með nöfn.
Að síðustu vil ég geta þess
manns sem ég tel vera stjömu
þáttarins, það er Jon Kjell Selje-
seth. Þessi frábæri listamaður
beitir hljóðgervlinum af mikilli
smekkvísi og lipurð og er ómiss-
andi að mínu mati. Þar að auki
er hann sífellt að breyta útsetn-
ingunni á kynningarlaginu, eftir
því sem við á, og nú er svo komið
að á miðvikudagskvöldum bíður
þjóðin fyrir framan sjónvarpið
með öndina í hálsinum eftir að
heyra hvernig Jon Kjell muni
meðhöndla stefið. Meira af Joni
Kjell!
Íslensktímarit:
Hlutdræg um-
fjöllun í sjónvarpi
Lesandi skrifar:
Það var við hæfi að einhver gerði
smáúttekt á tímaritum sem gefin
eru út hér á landi og líftíma þeirra
- og dauða gegnum árin.
Og í þetta réðst sjónvarpið í
Kastljósþætti sínum sl. fóstudag.
En þvílík umfjöllun! Hún var eins
hlutdræg og írekast gat orðið. Það
var rætt við ýmsa aðstandendur
þessara tímarita, og lengst og mest
við aðstandanda tímarits sem lagði
upp laupana - aðallega vegna
skorts á auglýsingum, að því er
manni skildist!
Sennilega hefur útkoma tveggja
nýrra tímarita, Stíls og Heims-
myndar, ýtt á eftir úttekt sjónvarps-
ins. Útkoma þessara tímarita er enn
eitt merkið um að hér þrífast tímarit
og eru mikið lesin.
Það sem stakk þó mest í augu í
þessari umíjöliun sjónvarpsins um
tímarit var það að hvergi var minnst
á það tímarit sem lengst og tíðast
hefur komið út í þessu landi, Vik-
una, heimilisblaðið, sem nú hefur
komið út í nærfellt hálfa öld.
Það er kannski vegna þess að
Vikan er langódýrasta tímaritið í
landinu, kostar ekki nema 125 kr.
meðan flest önnur kosta um eða
yfir 200 kr. og sum nær 300 kr!
Það var ekki einu sinni sýnt ein-
tak af Vikunni, á meðan sjónvarps-
myndavélinni var rennt eftir röðum
innlendra og erlendra tímarita. Það
hlýtur að vera eitthvað meira en
lítið sem umsjónarmaður þessa
Kastljóss hjá sjónvarpinu hræðist,
að þora ekki að geta eins vinsælasta
tímarits landsmanna gegnum árin.
Auðvitað er svona umíjöllun til
þess eins að vekja fólk til umhugs-
unar um hvað sé á bak við svo
hlutdræga umfjöllun sem Kastljós
sjónvarpsins setti á svið.
Og engum verður þessi umfjöllun
til framdráttar fremur en þeim aðil-
um (tímaritum), sem fengu að kenna
á hlutdrægni hins ríkisrekna fjöl-
miðils og þeim aðila sem fæst til að
framfylgja eða setja upp fréttaskýr-
ingu með þessum hætti!
■■■■
Það var ekki einu sinni sýnt eintak af Vikunni, á meðan sjónvarpsmynda-
vélinni var rennt eftir röðum innlendra og erlendra tímarita.
■ -iwwrii nau-.„