Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1986, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1986, Blaðsíða 18
18 DV. FIMMTUDAGUR 20. MARS1986. Mennin Menning Mennin Mennin Bille August og kærleikurinn Bjargvættur danskrar kvik- myndagerðar er geðþekkur ungur maður, Bille August að nafni. Nýj- asta kvikmynd hans, Trú, von og ást, sem nú hefur verið telíin til sýninga í Regnboganum, hefur þegar slegið öll aðsóknarmet í Danmörku. Til þessa munu yfir milljón Dana hafa séð myndina. í beinhörðum tölum þýðir það að hún hefur halað inn rúmlega 20 milljónir danskra króna, sem er næstum þrisvar sinn- um meira en hún kostaði. En Bille August er ekki alveg óþekkt stærð á íslandi heldur, því mynd hans, Zappa, hlaut mjög góð- ar viðtökur er hún var sýnd hér í hittiðfyrra. Ef ég man rétt völdu margir íslenskir kvikmyndagagn- rýnendur Zappa sem eina af bestu myndum ársins 1984. Trú, von og ást er einmitt beint íramhald á Zappa. Hún gerist á árunum 1963-64, þegar aðalpersónur fyrri myndarinnar eru orðnar 16-17 ára og þurfa að horfast í augu við alvöru lífsins. Aðstæður haga því þannig að á örstuttum tíma verða óharðnaðir unglingar, þau Björn, Erik, Kirsten og Anna, að læra að hugsa og breyta eins og fullorðið fólk. Þeir upplifa ást, hatur og botn- lausa örvæntingu en komast þó út úr hremmingum sínum ókalin á hjarta. Baksviðið er upphaf Bítlatíma- bilsins, þegar unglingspiltar eru að myndast við að greiða hárlubbann niður í augu og skakklappast um á hælaháum skóm. Elskendurnir ungu, Björn og Anna, hittast á Bítlatónleikum, og tónlist frá þess- um árum ítrekar það sem gerist á tjaldinu. Öll sviðsetningin er frám- unalega vel gerð og hinir ungu leik- arar, sem margir hverjir höfðu aldr- ei komið nálægt leik, eru hver öðr- um betri. Fölskvalaus hlýja Umfram allt eru allar persónur meðhöndlaðar af næmum mann- skilningi og fölskvaíausri hlýju, blandaðri danskri kímni sem sting- ur í stúf við ópersónulega formúlu- vinnu svo margra ensk-amerískra kvikmynda. Bille August skrapp til landsins í tilefni af frumsýningu á Trú, von og ást og var þá króaður af stundar- korn á Hótel Loftleiðum. Um Au- gust er annars það að segja að hann er fæddur árið 1948 og nam kvik- myndatöku bæði við sænska og danska kvikmyndaskólann. Síðan vann hann nokkur ár sem kvikmyndatökumaður í Sviþjóð en vakti fyrst athygli í heimalandi sínu með stuttri mynd, Kim G. Um tíma gerði August þætti fyrir danska sjónvarpið, m.a. Busters verden, sem margir kannast við, en fyrsta kvikmynd hans í fullri lengd var Honningmáne, gerð 1978. Svo BilleAugust. Ljósm.GVA kom Zappa og framhaldið þekkjum við. Ég byrjaði á því að spyrja Bille August um átrúnaðargoð hans meðal leikstjóra. Ástin í öllum myndum „Ken Loach, Milos Forman, svo hef ég líka ánægju af eldri myndum Francis Ford Coppola." Ég bað hann að lýsa Trú, von og ást með nokkrum orðum. „Zappa fjallaði að mestu um mannvonsku og valdagræðgi, og þess vegna fannst mér nauðsyn að draga upp mynd af öðrum þáttum mannlífs, og þá helst ástinni. Trú, von og ást fjallar aðallega um hið síðastnefnda, um elsku foreldra og barna, um ástina sem nokkurs konar sálsýki, um erótíska ást, en umfram allt um náungakærleikann. f stuttu máli, um ástina sem upplif- un og jafnframt einföldustu og hald- bestu leiðina út úr angist og ein- semd.“ Ég minntist á hæga, óþving- aða hrynjandi myndarinnar og hið „opna“ yfirbragð hennar. „Mér finnst gott að vinna þannig. Ég vil síður njörva niður hluti i mínum myndum, heldur skapa bæði mér og áhorfendum svigrúm. Þann- ig fær maður áhorfendur til að lifa sig inn í það sem gerist á hvíta tjaldinu, en ekki með því að skipu- leggja allt út í ystu æsar. Þetta er líka spurning um að láta persónurnar halda í söguþráðinn, ekki öfugt.“ í hvora áttina stefnir dönsk kvik- myndagerð ? „Ætli við séum ekki nokkrir á svipaðri línu. Til dæmis er okkur Nils Malmroos stundum líkt saman, sem er ekki nema von, því við erum útskrifaðir úr sama kvikmynda- skóla. Ekki snefill af eftirsjá En ég held að okkur Dönum hafi tekist að vinna eftir eigin formúlum, út frá dönskum forsendum, í stað þess að reyna að keppa við engilsax- neska framleiðslu - sem er hvort sem er ómögulegt. Mér skilst að íslen- skir kvikmyndagerðarmenn hafi svipaðar skoðanir á þessum málum og við.“ Kvikmyndir Bille August, Zappa og Trú, von og ást, gerast báðar í fortíð. Ég spyr hvort undirrót þess- ara mynda sé nostalgía af einhverju tagi. „Alls ekki. Ég held að ekki sé snefil af nostalgíu að finna í Trú, von og ást. Ég lét Zappa gerast á sjötta áratugnum miðjum vegna þess að þá er að verða til ný og stöndug millistétt í Danmörku, eftir sult og seyru eftirstríðsáranna. Með þessari nýju stétt koma ný viðhorf inn í danskt samfélag og þau reyni ég að túlka i gegnum samband drengjanna í Zappa. Síðan fara þessi viðhorf halloka fyrir öðrum, eins og vonandi kemur fram í Trú, von og ást. Sú mynd hefur svo alveg sérstaka þýðingu fyrir mig sjálfan, því hún fjallar um mína eigin æsku.“ Bille August er með nánustu framtíð á hreinu. „Nú er ég að vinna að kvikmynd sem byggð er á bók Martins Ander- sen-Nexö, Pelle Erobreren, og hafa danskir og sænskir aðilar sameinast um þetta verkefni sem er mikið og kostnaðarsamt." -ai RÚSSNESK TÓNUST Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar islands í Háskólabiói 15. mars. Stjórnandi: Karolos Trikolidis. Einleikari: Dimitris Sgouros. Efnisskrá: Pjotr lllitsch Tschaikowsky: Píanókonsert nr. 1 i b-moll op. 23 og 1812, hátíðatorleikur op. 49; Sergei Prokofief: Mars og Scherzo ur Ástum þriggja glóald- ina; Dimitri Schostakowitsch: Polki úr ballettinum Gullöldinni; Aram Katscha- turian: þrir þættir úr ballettinum Gajaneh. Loks virðast heígartónleikamir ætla að öðlast vinsældir með tón- listarunnendum. Það kann svo sem að vera að Grikkinn ungi, Dimitris Sgouros, sem heillaði fólk upp úr skónum hjá Tónlistarfélaginu á fimmtudagskvöldið, hafi dregið óvenju vel að. Hann hóf líka leikinn með hinum geysivinsæla píanókon- sert númer eitt eftir Tscaikowsky. í rómantíkinni má segja að saman fari tækniþroski og tilfinninga hjá þessum unga snillingi. Hér var rúsínan framreidd strax og tón- leikagestir ekki látnir bíða pylsuen- dans. Þarf ekki að orðlengja að Dimitris Sgouros brilleraði á Tscha- ikowsky og mega menn nú fara að hlakka til þess að fá hann hingað aftur að tveimur árum liðnum. Ekkertslor Appelsínuástir er ballett sem er geysigaman að spila og ekki er hann síðri á að horfa og heyra. Vanastur er maður því að marsinn frægi, eins og flestir þættir ballettsins sem til- efni til þess gefa, séu sem mestri snerpu hlaðnir. Það kann því að hafa verið sjálfstæðisbrölt að láta hljómsveitina spila Marsinn eins og dansa ætti hann með þung lóð bundin við fætur, en ekki kunni ég að meta það. Polki Schostakowitsch Tónlist EYJÓLFUR MELSTED Dimitris Sgouros. (sem útvarpsþulur var svo vinsam- leg að lesa Sjóstakkóvitsj í tilkynn- ingu) tókst bærilega, einkum fyrir fallega leiknar einleikshendingar. Ur því minnst er á einleikshending- ar er rétt að gleyma ekki leik óbós- ins og klarínettanna í byrjun Vögguvísunnar úr Gajaneh balletti Katschaturians það var sko ekk- ert slor. Ættu ekki að setja neinn á höfuðið Dúndurforleikurinn 1812 var lokaverk tónleikanna og þar gekk mikið á. Ekki þar fyrir, hann var allglæsilega spilaður á heildina lit- ið. Réttilega var leikið bæði á kor- netta og trompeta. Þetta hafa blás- arar okkar áður gert, til dæmis í Sinfóníu Césars Franck, en þá láðist mér að geta þessarar smekkvísi þeirra. Klukknahljómnum var nú varpað vélrænt yfir tónleikagesti, tignarlegu klukknaspili, en sem hefði mátt koma óbjagað út úr græjunum, svo að spurning var hvort ekki hefði átt að halda sig við frumbýlingshátt og röraklukkur hljómsveitarinnar. Og svo vantaði fallstykkin. Við íslendingar erum lítil hernaðarþjóð og eigum engin fallstykki á lager. En fyrir um aldar- íjórðungi kom á markaðinn lítil gervifallbyssa sem tekur blönk haglaskot af hlaupvídd 12, sérstak- lega ætluð fyrir þennan forleik og aðra músík þar sem slíkt knallerí á að heyrast. Þessi hljómsveitarfall- stykki kostuðu ekki nema eitthvað á annað hundrað Bandaríkjadali svo að ekki ættu slík hljóðfærakaup að setja hljómsveitina á höfuðið. Glæsilegar hreyfingar -rýrtinnihald Hljómsveitarstjórinn Karl Kasp- ar Trikolidis (nú Karolos) er óneit- anlega glæsilegur á stjórnpalli. Stjórn hans _er virkilega eitthvað fyrir augað. Á hinn bóginn fer ekki hjá þvi að hún sé fremur ætluð áheyrandanum, eða þá áhorfandan- um, - en hljómsveitarmanninum. Dæmi: í hápunkti í fyrsta þætti píanókonsertsins hrærði hann dra- matískt frammi fyrir fiðlunum, þegar þeir sem þörf höfðu fyrir slag og stýringu voru blikkblásarar, en þeim sinnti hann ekki. Ótal fleiri tilvik mætti nefna. Ég fæ ekki séð að stjórn hans hafi að marki breyst frá því fyrir bráðum tveimur áratug- um - glæsilegar hreyfingar en held- ur rýrt innihald, sem út af fyrir sig kom ekki stórlega að sök á þessum tónleikum. EM Hvaðer útgáfufeyra? Svarfrá Þorsteini Antonssyni Undirritaður höfundur bókarinnar „Sjáendur og utangarðsskáld" óskar þess að koma á framfæri við DV eftir- farandi athugasemd við grein Arnar Ólafssonar (Skammhlaup, 13.3. ’86, DV). I grein gagnrýnandans stendur og er þá verið að vitna til athuga- semda minna um bók Péturs Gunn- arssonar, Ég um mig frá mér til mín: „ „í bókinni er útgáfufeyra. . . “ en hver er nokkru nær fyrst ekkert er farið út í það hvað sé útgáfufeyra í bókinni og hvers vegna?“ í bókinni (Þ.A.) stendur: „í bókinni er útgáfu- feyra... Einn fimmti hluti bókarinnar er auðar síður.“ Þetta ætti varla að fara á milli mála. Vafalítið er um að ræða fljót- færni af hálfu gagnrýnandans eins og reyndar greinin öll gefur tilefni til að ætla. Ég, sem höfundur þeirrar bókar, sem um er fjallað, vil þó taka fram að ég er sammála því sem kemur firam í greininni í öllum aðalatriðum: bók mín stenst ekki sem kennslurit í bókmenntafræði (frekar en t.d. mat- reiðslu) og má reyndar sjá það þegar af titilsíðu hennar þar sem tekið er fram að um greinasafn sé að ræða. Viðleitni til að beina þeirri forvitni, sem hún vekur, inn á þá braut hlýtur að mistakast og ef haldið er til streitu af einsýni eins og ástæða er til að ætla um umrædd skrif, að leiða af sér heift og forundrun. Orðið „greina- safh“ stendur í kynningarorðum gagnrýnandans sjálfs. Með bókinni vakti fyrir mér einkum að vekja for- vitni eins og tekið er fram í formáls- orðum, um skáldskap en ekki fræði- Þorsteinn Antonsson. kenningar. Og forvitni hefur mér tekist að vekja með umræddum gagn- rýnanda eins og sjá má með skemmti- legum hætti af grein hans - þótt ekki hafi tekist eins vel til með afleiðing- arnar. En þær eru ekki á mínum snærum nema þessi lesblinda á at- hugasemd mína um auðar síður. Dylgjur er engar að finna í bók minni. Með þökk fyrir birtinguna. Þorsteinn Antonsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.