Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1986, Blaðsíða 32
32
Andlát
Ása Þuríður Bjarnadóttir lést 13.
mars sl. Hún fæddist í Austurkoti á
Vatnsleysuströnd 12. ágúst 1903.
Foreldrar hennar voru Guðrún Ás-
grímsdóttir og Bjarni Guðmundsson.
Ung að árum giftist Ása Bjarna
Árnasyni, en hann dó fyrir rúmlega
13 árum. Þau bjuggu allan sinn
búskap í Hafnarfirði. Þeim hjónum
varð átta barna auðið, þrjú þeirra
eru á lífi. Útför Ásu verður gerð frá
Hafnarfjarðarkirkju í dagkl. 15.
Gunnar Einarsson frá Hjörsey, er
andaðist aðfaranótt lð.þ.m., verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 25. mars kl. 13.30.
Útför Jónasar L. Jónssonar frá Hris-
um, sem andaðist 15. mars, fer fram
22. mars kl. 14 frá Víðidalstungu-
kirkju, V-Hún. Farið verður í áætl-
unarbíl frá Reykjavík. Þeir sem hafa
áhuga á fari hringi í síma 21896 og
20554.
Ólafur Einarsson skrifstofumaður,
Espigerði 12, lést að morgni 19. mars
í Landakotsspítala.
Guðmundur Júlíus Júlíusson, Bás-
enda 3, andaðist í Landspítalanum
aðfaranótt 18. mars.
Elísabet Sigurðardóttir frá Bónda-
stöðum lést í St. Jósefsspítala, Hafn-
arfirði að morgni 19. mars.
Þorgils Jónsson, Ægissíðu, Rangár-
vallasýslu, andaðist í Landakotsspít-
ala 18. þessa mánaðar.
Anton Kristinn Einarsson, Skeggja-
stöðum, Vestur-Landeyjum, er lést
12. mars, verður jarðsunginn frá
Akureyjarkirkju laugardaginn 22,
mars kl. 14. Húskveðja verður frá
heimili hins látna kl. 13. Ferð verður
frá Umferðarmiðstöðinni kl. 10.30.
Margrét Bjarnadóttir, Ystu-Vík,
verður jarðsungin frá Svalbarðs-
kirkju laugardaginn 22. mars kl. 14.
Helga Helen Andreasen, Brattholti
6c Mosfellssveit, sem lést af slys-
förum 16. mars, verður jarðsungin frá
Lágafellskirkju laugardaginn 22.
mars kl. 14.
Anna Lísa Ólafsdóttir, verður jarð-
sungin fostudaginn 21. mars kl. 15
frá Bústaðakirkju.
Ymislegt
Bann við veiðum
um páskahelgi
og um línu- og netasvæði út af Suð-
vesturlandi og Faxaflóa.
Ráðunéytið hefur gefið út reglu-
gerð um eftirfarandi:
1. Allar fiskveiðar báta minni en 10
brl. eru bannaðar frá kl. 20 22. mars
til kl. 10 árdegis 1. apríl.
2. Þorskanetaveiðar báta 10 brl. og
stærri eru bannaðar frá kl. 20 25.
mars til kl. 10 árdegis 1. apríl.
3. Allar togveiðar eru bannaðar á
svæði sem að suiinan markast af línu
sem dregin er 270° frá Stafnesvita.
Að vestan markast svæðið af 23° 40’5
V og að norðan af 64° 20’0 N. Bann
þetta gildir frá og með 1. apríl til og
með 15. maí.
4. Allar togveiðar eru ennfremur
bannaðar á svæði sem markast af
línum sem dregnar eru á milli eftir-
greindra punkta:
1) 63°10’0 N, 22°00’0 V
b) 63°25’3 N, 22°00’0 V
c) 63°33’7 N, 22°03’0 V
5. Jafnframt hefur ráðuneytið ákveð-
ið að línusvæði það sem sett var út
frá Sandgerðisvita á sl. hausti falli
úr gildi frá og með 26. mars nk.
DV. FIMMTUDAGUR 20. MARS1986.
Utvarp_____________Sjónvarp
Margrét Sverrísdóttir:
Kvarta ekki yfir kvöldinu
Sjónvarpið í gær var náttúrlega
ekki eins og það átti að vera - það
vantaði Ómar - en þrátt fyrir það
gaf ég því smágaum og lét mér bara
vel líka. Stelpan stóð sig eins og
hetja með þáttinn Smellir, Euryth-
mics er hljómsveit að mínu skapi,
söngkonan Lennox er alveg meiri-
háttar, eins og börnin segja. Ef þessi
þáttur verður áfram jafngóður og í
gær er hann tvímælalaust rós í
hnappagat sjónvarpsmanna. Alla-
vega er alveg gefið að ég á eftir að
horfa á fleiri Smelli.
Cleo Laine er líka söngkona sem
ég held mikið upp á - þannig að ég
get ekki kvartað yfir kvöldinu í gær
- en ég er ekki mikið fyrir jass, kunni
því ekki fyllilega að meta hljóm-
sveitina sem spilaði með henni,
Árna Egilsson og þá. Cleo er hins
vegar með ofboðslega skemmtilega
rödd, frábæra rödd.
Ég horfði á Hótel í gær þó sá
þáttur sé ekki í neinu sérstökum
metum hjá mér. Hann er svona í
svipuðum gæðaflokki og Dallas -
það er í lagi að horfa á hann ef
maður hefur ekkert annað við að
vera.
Eiginlega hefði ég frekar átt að
hlusta á bókaþátt Njarðar P. Njarð-
vík, það er virkilega góður dag-
skrárliður sem allir hljóta að geta
haft gaman af.
Neskirkja
Föstuguðsþjónusta í kvöld kl. 20.
Fyrirlestrar um þjóðsagna-
myndir Ásgríms Jónssonar
Nú stendur yfir í sýningarsölum
Norræna hússins sýning á þjóð-
sagnamyndum Ásgríms sem sett var
upp í samvinnu við Ásgrímssafn. Á
sýningunni eru þjóðsagnamyndir frá
ýmsum tímabilum á listferli málar-
ans, sem spannar yfir sextíu ár. 1
sambandi við sýninguna verða
haldnir tveir fyrirlestrar í fyrirlestr-
arsal Norræna hússins. I kvöld,
fimmtudag, kl. 20.30 heldur Hrafn-
hildur Schram listfræðingur og for-
stöðumaður Ásgrímssafns fyrirlestur
með litskyggnum um þjóðsagna-
myndir Ásgríms og sunnudaginn 23.
mars kl. 17 talar Hallfreður Örn
Eiríksson cand. mag. um þjóð-
sagnaval Ásgríms og segir frá þjóð-
sögum sem hann gerði myndir eftir
og nokkrum öðrum þjóðsögum, sem
hafa verið vinsælt myndefni hjá list-
málurum. Allir eru hjartanlega vel-
komnir á meðan húsrúm leyfir. Ás-
grímssýningin er opin. daglega kl.
14 19til6. apríl.
Viðurkenning fyrir merkt fram-
lag til umhverfismála á höfuð-
borgarsvæðinu árið 1985.
Að venju mun stjórn samtaka sveit-
arfélaga á höfuðborgarsvæðinu veita
sérstaka viðurkenningu í næsta
mánuði fyrir merkt framlag til um-
hverfismála á þessu svæði árið 1985.
Margir aðilar á höfuðborgarsvæðinu
veita nú viðurkenningu fyrir einstök
hús, þrifalegar lóðir og götur, en
markmiðið með þessari almennu
viðurkenningu samtakanna er að
hvetja sveitarstjórnir, hönnuði og
framkvæmdaaðila á höfuðborgar-
svæðinu til að leggja jafnframt
áherslu á það heildarumhverfi sem
mótað er. Hér gæti t.d. verið um að
ræða athyglisvert skipulag, átak í
trjárækt í þéttbýli, gerð útivistarað-
stöðu, listskeytingar, hjólreiðastíga
o.m.fl. Er hér með óskað eftir ábend-
ingum um áhugavert framlag til
umhverfismála á þessu svæði á liðnu
ári og að þær séu sendar Skipulags-
stofu höfuðborgarsvæðisins, Hamra-
borg 7, 200 Kópavogi, fyrir 4. apríl e'
nk.
IBM kynnir hugbúnað fyrir IBM
PC einmenningstölvur
IBM býður til námsstefnu dagana
18. -20. mars nk. Kynnt verður notk-
un IBM PC einmenningstölvunnar.
Daglega verða haldnir 3 fyrirlestrar
sem hefjast allir kl. 14.30. Að loknu
kaffihléi er sýning eða kynning á
verkefnum en dagskránni lýkur kl.
17. Væntanlegir þátttakendur eru
beðnir að skrá sig í síma 687373.
Bækur
BJÖRG EINARSD(jmR
„Úr ævi og starfi íslenskra
kvenna“ II
,,Úr ævi og starfi íslenskra kvenna”
II er rúmar 400 síður að lengd. Hver
síða er prentuð í tveimur litum,
meginmál í svörtum lit en rammi um
það og myndir eru í brúnum tón.
Yfir 200 myndir prýða bókina og eru
40 þeirra sérstaklega teknar vegna
útgáfunnar.
Björg Einarsdóttir samdi handritið
á grundvelli útvarpserindanna. Val-
gerður Kristjónsdóttir yfirfór það
síðan og setti greinarmerki. hún las
einnig að mestu prófarkir. Sigríður
Erlendsdóttir sagnfræðingur las
handritið yfir og veitti mikilsverðar
leiðbeiningar. Flestar ljósmyndanna
tók Jóhannes Long, setning fór fram
í leturvali, filmuvinna, plötugerð og
prentun sá Grafik um og Bókfell
annaðist band. Elísabet Cochran
hannaði bók og bókarkápu.
í þessu öðru bindi af „Úr ævi og
starfi íslenskra kvenna" eru 17 frá-
söguþættir þar sem sagt er frá 24
konum, sú elsta fædd 1812 og látin
1882 en hin yngsta fædd 1896 og lifði
til ársins 1981.
Hér er greint frá konum sem gerð-
ust brautryðjendur á ýmsum sviðum,
t.d. í blaðamennsku og sem rithöf-
undar og fræðimenn, höfðu forgöngu
í nýjum iðngreinum, grundvölluðu
tónlistarkennsku, hvöttu til stofnun-
ar sparisjóðs, risu öndverðar gegn
sölu fossa til útlendinga og efldu
þannig umhverfis- og náttúruvernd,
skipuðu sess húsfreyja á fjölmennum
skólaheimilum, gerðust alþingis-
menn, giftust aðalsmönnum og héldu
nafni íslands á lofti með öðrum þjóð-
um, urðu listaskáldi kveikja að ljúfs-
áru ástarljóði, og fleira mætti telja.
Ferðalög
Páskaferðir Útivistar
1. Snæfellsnes-Snæfellsjökull, 5 dag-
ar, 27.-31. mars. Brottför skírdag kl.
9. Frábær gistiaðstaða að Lýsuhóli.
Sundlaug, heitur pottur, ölkelda.
Gönguferðir um fjöll og strönd.
Kynnist dularkrafti jökulsins í Úti-
vistarferð. Fararstj. Kristján M.
Baldursson og fl. 2. Snæfellsnes—
Snæfellsjökull, 3 dagar,29.-31. mars.
Brottför laugard. kl. 8. Sama til-
högun og í 5 daga ferðinni. 3. Þórs-
mörk, 5 dagar. 29.-31. mars. Frábær
gistiaðstaða í Útivistarskálanum í
Básum. Gönguferðir við allra hæfi.
Fararstjórarnir Ingibjörg og Fríða
sjá um að engum leiðist. Brottför
skírdag kl. 9. 4. Þórsmörk, 3 dagar,
29. 31.mars. Brottför laugardag kl.
8. Sama tilhögun og í 5 daga ferð-
inni. 5. Öræfi-Skaftafell, 5 dagar.
27.-31. mars. Gist í hinu nýja og
glæsilega félagsheimili að Hofi i
Öræfum. Snjóbílaferð á Vatnajökul.
Farið um þjóðgarðinn , á Skálafell-
sjökul og víðar. Pantið tímanlega.
Hægt er að hafa gönguskíði með í
öllum ferðunum. Uppl. og farmiðar á
skrifst. Lækjarg. 6a, símar 14606 og
23732. Sjáumst.
Ferðafélag íslands
Dagsferðir sunnudag 23. mars.
1. Kl. 10.30: Skíðaganga úr Bláfjöll-
um að Kleifarvatni. Gangan tekur
um 5 klst. Góð æfing fyrir þá sem
ætla í Landmannalaugar um páska.
Verð kr. 400. 2. KI. 13: Fjallið eina
(223 m) Sveiíluháls Kleifarvatn.
Þetta er þægileg gönguferð. Verð kr.
350. Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin. Farmiðar við bíl.
Frítt fyrir börn í fylgd fullorðinna.
KÖKUBASAR
Kökubasar verður haldinn laugar-
daginn 22. mars 1986 kl. 15.00 (kl.
3.00) í Framheimilinu við Safamýri.
Framkonur.
Afmæli
70 ára er í dag, 20. mars, Bjarni
Sveinsson hafnarvörður, Silfurgötu
21 í Stykkishólmi. Hann er borinn
og barnfæddur þar og hefur búið þar
alla sína ævi. Lengst af stundáði
hann sjómennsku. Hann og kona
hans, Anna Kristjánsdóttir, ætla að
taka á móti gestum næstkomandi
laugardag á heimili dóttur sinnar og
tengdasonar þar í bænum í Sunda-
bakka 13.
MiOCNS
ÞINGHOLTSSTRÆTI I