Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1986, Side 7
DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL 1986.
71
Atvinnumál Atvinnumál Atvinnumál Atvinnumál
Akureyri:
Risaveislan
var giæsileg
Frá Jóni G. Haukssyni, blaðamanni
DV á Akureyri:
Stærsta matarveisla norðan heiða
írá upphafi íslandsbyggðar nefndu
menn árshátíð starfsmannafélags sam-
bandsverksmiðjanna á Akureyri sem
haldin var I íþróttahöllinni á Akur-
eyri á laugardagskvöldið - stórglæsi-
leg veisla, tæplega 700 matargestir
mættu.
Verksmiðjumar eru íjölmennasti
vinnustaður landsins. Starfsmannafé-
lagið á „Gullbrúðkaup" um þessar
mundir, 50 ára afmælisdaginn ber upp
á næsta miðvikudag, 23. aprfl. Til
þessa hafa einstakar deildir verk-
smiðjanna verið með sínar árshátíðir
sér en í tilefhi afinælisins var haldin
ein allsherjarveisla. Enda dugði ekk-
ert minna til en salurinn í fþróttahöll-
inni. Bautinn á Akureyri útbjó matinn
í þessa risaveislu.
Riðuveikin í Þingeyjaisýslum:
Svar um bætur
fæst í vikunni
Frá Jóni G. Haukssyni, blaðamanni
DV á Akureyri:
„Það er ekki búið að ganga frá þessu
máli, hvort af bótum getur orðið, en
ég reikna með að það liggi fyrir nú í
vikunni," sagði Guðmundur Sigþórs-
son, skrifstofustjóri i landbúnaðar-
ráðuneytinu, í gær um það hvort
fjárveiting fengist fyrir bótum til
þeirra bænda í Þingeyjarsýslum sem
hyggjast skera niður fé í haust vegna
riðuveikinnar sem þar er.
Bændur í Þingeyjarsýslum bundust
í marsbyrjun samtökum um að skera
niður fé í haust vegna riðuveikinnar.
Alls verður sex þúsund fjár skorið nið-
ur, þar af þrjú þúsund í Kelduhverfi,
sem er um helmingur sauðfjár þar.
Ef af bótum verður koma þær til
greiðslu haustið 1987 og 1988. „Ég vil
engu spá um hvaða ákvörðun verður
tekin,“ sagði Guðmundur um líkur á
að bætur fáist hjá fjárveitingavaldinu.
Eskifjörður á metið í síldarsöltun.
Síldarsöltunin á vertíðinni 1985:
Mest saltað
á Eskifirði
Útflutningi á þeirri síld, sem söltuð
var á vertíðinni 1985, er nú að mestu
lokið. Aðeins er eftir að afskipa nokkr-
um þúsundum tunna af ýmsum
tegundum síldarflaka sem framleidd
eru í tilraunaskyni á vegum Síldarút-
vegsnefiidar í samráði við kaupendur
i Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku.
Á vertíðinni 1985 var saltað meira
af Suðurlandssíld en nokkru sinni fyrr,
að árinu 1980 undanskildu. Heildar-
söltun varð 258.698 tunnur. Mest var
saltað í vikunni 27. október til 2. nóv-
ember eða samtals í 104.910 tunnur.
Af einstökum söltunarhöfnum var
mest saltað á Eskifirði eða í 38.333
tunnur samtals, í 27.928 tunnur í
Grindavík, í 21.732 tunnur á Reyðar-
firði og í 21.637 tunnur á Fáskrúðsfirði.
-KB
Kaupmenn stela fé frá neytendum
- segja Neytendasamtökin um kýrkjötsmálið
„ítrekað hafa komið fram fullyrðing-
ar um að sumar verslanir hefðu í
frammi gróf vörusvik með þvi að selja
kýrkjöt sem nautakjöt. Þessar stað-
hæfingar hafa verið viðurkenndar af
talsmanni kaupmanna," segir í álykt-
un sem samþykkt var á fundi Neyten-
dasamtakanna fyrir skömmu.
Ennfremur segir í ályktuninni: „Þeir
kaupmenn, sem viðhafa þessi vöru-
svik, eru í raun að stela fé frá neytend-
um. Neytendasamtökin skora á
samtök framleiðenda og kaupmanna
að koma í veg fyrir þessa ólögmætu
viðskiptahætti þegar í stað. Neytenda-
samtökin munu fylgjast með þróun
þessara mála og áskilja sér allan rétt
til þess að grípa til þeirra aðgerða sem
geta tryggt neytendum að hagsmunir
þeirra séu virtir í svona viðskiptum.“
-KB
Hvaó er
það
ódýrasta á boðstólum í dag ef ekki það ódýrasta.
KJÚLLETTUR eru fitulitlar og því tilvaldar fyrir
þá sem þurfa að hugsa um línurnar.
Og síðast en ekki síst eru KJÚLLETTURNAR
fljótleg máltíð, þú tekur þær úr frystinum og
steikir frostnar í ca. 5 - 10 mín. og þá er herra-
mannsmáltíð tilbúin.
ísfugl
Varmá Reykjavegi 36 Mosfellssveit
Sími: 666103
Fáðu þér KJÚLLETTUR þú hefur þrjár góðar ástæður