Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1986, Page 8
8
DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. APRlL 1986.
Utlönd
Utlönd
Utlönd
Utlönd
150 taidir af eftir
að stífía brast
Stífla brast á Sri Lanka á sunnudag-
inn og flóðbylgja sópaði tylft þorpa til
sjávar en samkvæmt nýjustu fréttum
af slysasvæðinu er óttast að 150 manns
hafi farist í flóðinu. Tíu þúsund manns
neyddust til þess að flýja heimili um
tíma. Nú er fólk tekið að snúa aftur,
það er að segja þeir sem eiga eftir slys-
ið einhver heimili að snúa til.
100 þúsund ekru uppistöðulón, sem
var ofan við stífluna, brast fram, þegar
stíflan fór, og hefur þurrkast úr því
hver dropi. Stíflan var komin mjög til
ára sinna enda byggð í ríkistíð
Mikið veður út af
hirslu Capone en
var svo ekkert
Sjónvarpið var mætt á staðinn og
fjöldi fréttamanna þegar opnuð var
öryggisgeymsla sem talin var geyma
einhver áður óþekkt leyndarmál
mafíuforingjans illræmda, A1 Cap-
one, hvort sem það væri líkamsleifar
myrtra óvina hans, fjársjóðir, leyni-
skjöl eða þjófagóss. En það reyndist
vera mikið veður gert út af engu.
Mennimir sprengdu sig í gegnum
múr á lokaðri öryggisgeymslu i hót-
eli sem var höfuðstöðvar bófaflokks
Capones, glæpakóngsins í Chicago á
bannárunum, en hún hefur staðið
læst síðan og uppgötvaðist raunar
ekki fyrr en í fyrra. En þá komu
þeir að öðrum steyptum vegg, sem
sprengja þurfti í gegnum einnig. Enn
komu þeir að þriðja veggnum, sem
var þá síðasta fyrirstaðan.
Þegar þeir loks komust inn í
geymsluna reyndist hún galtóm.
A1 Capone, glæpakóngur
bannáranna, lét eftir sig óopnaða
öryggisgeymslu sem gerði menn
uppvæga út af engu.
Abbabodhi konungs sem ríkti árin 602
til 614 eftir Krist. Vatnið hefur verið
notað í áveitukerfi sem vökvaði 6.800
hektara ræktunarlands til hrísgijóna-
ræktar, sykurreyrs og fleira. Brást
stíflan þó á þeim stað þar sem steypt
hafði verið við hana renna við endur-
bætur sem gerðar voru á stíflunni 1875
af breskum nýlenduyfirvöldum.
Skipuð verður rannsóknarnefnd til
þess að kanna nákvæmlega hvað olli
bilun stíflunnar.
Mannvirki þetta var í Kantalai-
héraði, sem er skammt frá borginni
Trincomalee í austurhluta Sri Lanka.
Mjög fljótt var brugðið við til hjálp-
ar hinu bágstadda fólki. Þyrlur björg-
uðu 60 manns af húsþökum og úr
tijátoppum þar sem hafði leitað hælis
í flóðinu. Um tvö hundruð manns var
bjargað í gúmbáta.
Óhappið bar að án þess að nokkur
viðvörun fengist. Á fáeinum klukku-
stundum hafði flóðið sópað burt
þorpum sinhale-manna, tamíla og
múslíma.
Kvittur hefur komist á kreik um að
skæruliðar hafi sprengt stífluna en það
þykir ekki sannað. Þegar hefúr verið
fyrirskipuð smíði nýrrar stíflu til
bráðabirgða. Jafnframt verður að
leggja að nýju aðalþjóðveginn, sem
tengir Tincomalee við höfúðborgina
Colombo, en hann sópaðist burtu.
Umsión:
Guðmundur Pétursson og
Valgerður Jóhannsdóttir
Island á rás
tvö í franska
sjónvarpinu
Gizur Helgason, fréttaritari DV í
Zúrich:
Rúmlega hálfrar stundar þáttur um
Island var í franska sjónvarpinu á rás
tvö á laugardagskvöld. Þátturinn var
þó nokkuð góður að mínu mati. Tón-
» *•
-4 V*‘ • ’ 'i
-W' ' 1
rr úS n 4v* ■
listin var gamalkunnugt gnauð í vindi.
Vegimir, sem myndatökumenn höfðu
ekið um, vom grýttir, holóttir og
þröngir. Þær ár, sem farið var yfir,
virtust flestar óbrúaðar.
Þarna voru fallegar myndatökur frá
Þingvöllum. Sigið var í kletta við
Öxarárfoss til grjótsýnatöku. Gullfoss
sást þama í allri sinni dýrð. Land-
mannalaugum brá fyrir, þar sem fjórir
Frakkar sáust hlaupa berrassaðir um
móana, áður en þeir steyptu sér í yl-
volgt vatnið. Skeiðarársandur var
sýndur og síðast en ekki hvað síst
Vatnajökull, en honum vom gerð góð
skil með myndatökum bæði ofanjarðar
og neðan. - Við myndatökur var með-
al annars notast við eins konar
vélknúinn svifdreka.
Þetta sýndist nokkuð vel heppnuð
kynningarmynd. Sér í lagi höfðaði hún
til þeirra sem arka vilja fáfamar slóð-
ir og kynnast ósnortnu umhveríi. Af
þulinum mátti skilja að kvikmynda-
tökumennimir frönsku hefðu verið
yfir sig hrifnir af hinni hrikalegu feg-
urð sem landið býr yfir.
Á lista yfir þá, sem unnu að gerð
myndarinnar, vom nokkur íslensk
nöfn, sem fóm fram hjá mér, því að
listann bar svo hratt yfir skjáinn.
Rétt á eftir þessum dagskrárlið sýndi
rás eitt í þýska sjónvarpinu íþrótta-
þátt þar sem menn sáu Ásgeir Sigur-
vinsson skora gullfallegt mark í leik
Dortmund og Stuttgart þar sem lið
Ásgeirs vann, 4-0.
Álverið á Sunndaleyri, sem gæti
sameinast Norsk Hydro.
Áh/er i eina sæng
Gizur Helgason, fréttaritari DV í A/S og Ardal og Sunndalverk A/S
Zurich: munu vera komnar á lokastig sam-
Sameiningarviðræður norsku kvæmt fréttum Reuters. Herma jiær
stórálfyrirtækjanna Norsk Hydro að Norsk Hydro, sem er að 51% í
það í för með sér að hið nýja fyrir-
tæki verður eitt hið stærsta sinnar
tegundar í allri Evrópu með árs-
Ef af sameiningunni verður, hefur framleiðslu upp á 500 þúsund tonn.
eigu ríkisins, muni ætla sér meiri
hluta í Ardal og Söndalverk.
Pianósnillingurinn Vladimir
Horowitz heillaði sovéska tónlist-
arunnendur.
Stymp’
ingar
tilað
hiusta
á Horo-
witz
Tónlistamemar stympuðust í ör-
væntingu við lögregluna í Moskvu
til þess að missa ekki af fyrstu
hljómleikum Vladimir Horowitz í
Sovétríkjunum í 61 ár. Tókst
nokkrum þeirra að lauma sér að-
göngumiðalaust inn í hljómleika-
höllina í Moskvu.
Það var uppselt á hljómleikana,
sem útvarpað var beint til fjölda
landa. Margir biðu við inngang-
inn, rellandi eftir aukamiðum,
þegar útlenda diplómata og heldra
fólk í Sovétríkjunum dreif að.
Þurfti fólkið lögregluvemd til að
komast í gegnum mannfjöldann.
25 tónlistamemar stympuðust við
lögregluna og tókst nokkrum
þeirra að laumast inn, upp á efstu
svalir, jafnharðan og lögreglan bar
þá út, uns gefist var upp fyrir þeim.
Hinn 81 árs gamli Horowitz flutt-
ist frá Sovétríkjunum árið 1925 og
sneri loks aftur í síðustu viku til
þess að halda tvenna tónleika,
aðra í Moskvu og hina í Len-
ingrad.
Fyrir hlé flutti Horowitz sónötu
Mozarts í C-major, tvær prelódíur
eftir Rachmaninov og tvö verk eft-
ir Scriabin. í hléinu ætlaði allt
vitlaust að verða í fagnaðarlátum
áheyrenda sem nær kaffærðu svið-
ið í blómum. - „Yndislegt!“ „Ólýs-
anlegt!“ voru þau orð sem
áheyrendur tóku sér í munn um
píanóleik hins aldna snillings.
Einn taldi þó að Horowitz hefði
tekist jafhvel enn betur upp á æf-
ingu fýrir tónleikana.
Eftir hlé lék Horowitz verk eftir
Schubert og Lizst og tvo marsúrka
og pólónesu eftir Chopin. Að tón-
leikunum loknum risu allir sem
einn úr sætum og hylltu hljómlist-
armanninn. Margir höfðu haft með
sér ferðasegulbönd til þess að taka
upp flutninginn og eiga þó flestir
þessir aðdáendur hljómplötur með
píanóleik Horowitz. Haft var á
orði að túlkun gamla mannsins á
Scriabin ætti sér enga hliðstæðu.
- Hann varð að leika aukalög, þijár
prelodíur eftir Rachmaninov.
Horowitz, sem er bandarískur
ríkisborgari, ætlar aftur heim til
Bandaríkjanna í lók mánaðarins.