Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1986, Side 10
10
DV: ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL 1986.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Þýsk kynning á
norrænum bókmenntum
Ásgeir Eggertsson, fréttaritari DV í
Miinchen:
Hvítir máfar á flugi í suðvestur
voru tákn umfangsmestu ráðstefhu
sem haldin hefur verið í Vestur-
Þýskalandi til kynningar á nor-
rænum bókmenntum.
Tveir fulltrúar frá Islandi tóku
þátt í þessari ráðstefiiu. Þeir Sigurð-
ur A. Magnússon og Þorgeir
Þorgeirsson. Þeir em einir af fáum
Umræður um hlutverk Norður-
landabókmennta
Sigurður sagði að yfirleitt hefði
verið mjög góð aðsókn á þá umræðu-
fundi sem haldnir vom á ráðstefn-
unni. Til dæmis var rætt um
félagslegt og pólitískt hlutverk bók-
mennta á Norðurlöndum. Einnig var
rætt um kvennabókmenntir á Norð-
urlöndum.
Vert er að geta þess að Austur-
Þjóðverjar hafa verið duglegir við
að gefa út íslenskar bækur. Nýlega
kom út bók Tryggva Emilssonar,
Fátækt fólk. og áður hafa komið út
bækur eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson
og Þorgeir Þorgeirsson.
Konsúllinn greiðir götu ís-
lenskra bóka
Víst er að einni konu eiga íslensk-
ir rithöfundar mikið að þakka. Það
er Gisela Maurer, konsúll í Hanno-
ver, sem jafnframt er bókaútgefandi.
Hún hefur meðal annars gefið út
bækur eftir Sigurð A. Magnússon
og er óstöðvandi í að greiða veg ís-
lenskra bókmennta í Vestur-Þýska-
landi.
íslenskum höfundum sem hafa verið
þýddir á þýsku.
Norrænar bókmenntir fái meiri
umfjöllun
Á ráðstefnunni, sem lauk í gær,
vom flestir sammála um það að
norrænar bókmenntir eigi skilið
meiri umfjöllun en hingað til hefúr
átt sér stað í Þýskalandi. Að vísu
hér í Þýskalandi. I sjónvarpsviðtali
við prófessor Karsten Jessen kom
-fram að bókaforlögin ættu einnig í
töluverðum vandræðum vegna þess
hve fáir þar hefðu vald á norrænum
málum. Og þess vegna væm bóka-
forlögin neydd til þess að leita til
fólks utan fyrirtækisins, sem yfirleitt
þætti heppilegra að komast hjá.
Sigurður Á. Magnússon sagði
einnig í símtalinu að bókaútgefend-
ur væm mjög stilltir inn á met-
sölubækur, en nú væri nokkur von
um að úr rættist, þar sem ráðstefhan
hefði tekist mjög vel. Hann sagði að
skáldsögur sínar, sem hefðu hingað
til selst treglega, hefðu selst upp á
ráðstefhunni. Það er þær birgðir sem
þar vom.
Sigurður A. Magnússon sagði góða þátttöku í viðræðufundunum á bókmenn-
takynningunni, þar sem íslensku rithöfundamir sátu fyrir svömm.
Þorgeir Þorgeirsson var einnig á bókmenntaráðstefnunni norrænu í V-
Þýskalandi, en hann og Sigurður em meðal fárra íslenskra höfunda sem
gefnir hafa verið út á þýsku.
þekkja flestir Astrid Lindgren og
Knud Hamsun, en þegar talið berst
að Göran Tunström eða Antti Tu-
uri, reka flestir upp stór augu.
Hetjudýrkun í tengslum við
nasismann
Skýringuna á þvi hvers vegna
norrænar bókmenntir em eins lítið
lesnar í Þýskalandi og raun ber vitni
sagði Sigurður A. Magnússon,
staddur í Hamborg, í símtali við tíð-
indamann DV, vera arf frá tímum
nasismans. Sagði hann að í þessu
sambandi hefði verið djarft að nota
orðið „norrænn" því að það vekti
stundum upp tengsl við hetjubók-
menntimar, sem mjög hefðu verið
dýrkaðar af nasistum.
Vantar þýska þýðendur
Það em fleiri vandamál sem nor-
rænar bókmenntir eiga við að glíma
Vilja Karin Söder
r
áfram í formanns-
ssetið en Johanns-
son varaformann
Gunnlaugur A. Jónsson, fréttaritari
DV í Lundi:
Karin Söder, sem gegnt hefur emb-
ætti formanns sænska miðflokksins
til bráðabirgða, eftir að Thorbjöm
Fálldin var þvingaður til að segja
af sér formennsku síðastliðið haust,
nýtur vinsælda og trausts flokks-
manna. Kosninganefiid flokksins
hefúr ákveðið að fara fram á það við
Söder að hún gefi kost á sér við for-
mannskjör í Miðflokknum á lands-
þingi hans í sumar.
Kosninganefndin leggur það til að
Olof Johannsson verði varaformað-
ur flokksins. Upphaflega, eða aðeins
nokkrum dögum eftir byltinguna
gegn Fálldin, lagði sama nefhd til
að Johannsson tæki við formenns-
kunni af Fálldin. - Johannsson
kvaðst þá hins vegar ekki reiðubú-
inn til að taka ákvörðun á svo
skömmum tíma.
Fylgi Johannssons minna en
ætlað var
Enda varð fljótlega ljóst að fylgi
Johannssons innan flokksins var
ekki nægilega mikið. Ýmsir höfðu
raunar lagst gegn honum af gmn
um að Johannsson hefði setið á
svikráðum við Fálldin og átt hlut-
Karin Söder hefur enn ekki ákveðið
hvort hún verður við tilmæjum
kosninganefndar Miðflokksins og
gefur kost á sér til áframhaldandi
formennsku.
deild í byltingunni gegn honum.
Karin Söder var hins vegar ein
þeirra sem hörmuðu mjög að Fálldin
skyldi knúinn frá formennsku og
vitað er að hún nýtur stuðnings
Fálldins sjálfs.
Ætlaði um tíma að hætta
Hún hafði fyrir einu ári ákveðið
að hætta í stjóm flokksins, en
breyttar aðstæður fengu hana ofan
af því. Karin Söder hefur þó enn
Umsjón: Guðmundur Pétursson
Olof Johannsson þótti á sinum tíma
liklegasti arftaki Thorbjöms Fálldins
í Miðflokknum sænska, en kosninga-
nefndin stingur nú upp á honum i
varaformannssætið.
ekki gefið ákveðið svar um, hvort
hún muni gefa kost á sér til áfram-
haldandi formennsku á landsþinginu
í sumar. „Það em ýmsar hliðar máls-
ins sem ég á eftir að velta fyrir
mér,“ segir hún.
Karin Söder er 58 ára gömul. Hún
hefur verið varaformaður Mið-
flokksins frá 1979. Hún gegndi
ráðherraembætti í tveimur ríkis-
stjómum Fálldins, var utanríkisráð-
herra 1976 til 1978 og félagsmálaráð-
herra 1979 til 1982.