Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1986, Side 13
DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL 1986.
13
Vegið að rótum velmegunar
£| „Á síðustu misserum hefur frjáls-
^ hyggjuliðið í Sjálfstæðisflokknum
beint sjónum sínum mjög að námslána-
kerfinu. Þessir bókstafstrúarmenn, sem
trúa á óskeikult kerfi fræðikenninngar-
innar, vilja gera námslán að fjárfestingar-
lánum,..“
Umræða undanfarinna mánaða
um lánamálin hefur svo oft byggst á
vanþekkingu á sögu þessa mála-
flokks að ég finn mig knúinn til að
benda á nokkur atriði, þótt ég hafi
búið lengi erlendis, en ég hafði mik-
il afskipti af þessum málum fyrir
u.þ.b. áratug.
Kröfur námsmanna
Núverandi endurgreiðslukerfí
námslána var komið á í meginatrið-
um árið 1976. Þá sem nú voru uppi
frjálshyggjuraddir um að námslán
skyldu vera á svipuðum kjörum og
fjárfestingarlán. Námsmenn kröfð-
ust þess hins vegar að endurgreiðsl-
ur skyldu vera í samræmi við tekjur
manna að námi loknu, þ.e.a.s. stig-
vaxandi hundraðshluti af tekjum
manna umfram lágmarksfram-
færslutekjur. Þessari kröfu var
annars vegar beint gegn því augljósa
samfélagslega ranglæti að sumir
mala gull á menntun sinni en aðrir
teljast til meðaltekju- eða láglauna-
fólks án þess að nokkur fylgni sé á
milli launa og samfélagslegs mikil-
vægis starfsframlagsins. Hvor gegnir
t.d. mikilvægara hlutverki, tann-
læknirinn eða fóstran?
Hins vegar færðu námsmenn þau
augljósu rök fyrir kröfu sinni að
enginn getur náð hári af sköllóttum
manni. Með tekjutengingu endur-
greiðslna væri tryggð hnökralaus
innheimta og með vönduðum út-
reikningum á námslengd og tekjum
hinna ýmsu hópa langskólafólks
gátu námsmenn sýnt fram á að um
70% af námslánunum myndu skila
sér til Lánasjóðs að nýju.
Þá sat að völdum ríkisstjóm sömu
flokka og nú. Eftir mikið japl og
jaml og fuður komst hún að mjög
framsóknarlegri niðurstöðu, þ.e.a.s.
hún var hvorki fugl né fiskur. Kjami
endurgreiðslnanna er föst upphæð,
en henni til viðbótar kemur mun
minni tekjutengd „aukaafborgun".
Miðað við tillögur námsmanna legg-
ur þetta kerfi mun þyngri álögur á
lágtekjufólk í hópi menntamanna en
Kjallarinn
GESTUR
GUÐMUNDSSON,
HÁSKÓLAKENNARI
í KAUPMANNAHÖFN
hins vegar teygist óþarflega á endur-
greiðslum hátekjumanna og þeir
sleppa jafhvel við að borga hluta
lána sinna. Þetta kerfi er þó skárra
en það sem boðið er upp á í ýmsum
nágrannalöndum. Það skilar t.d. rík-
issjóði mun meiri endurgreiðslum en
danska lánakerfið en leggst öllu
réttlátara á menn miðað við tekjm-
þeirra.
Árið 1980-1 sönnuðu þingmenn
fávísi sína og skort á umhugsun þeg-
ar þeir lengdu endurgeiðslutimann
úr 20 árum í 40, þarrnig að margir
núverandi námsmenn verða enn að
endurgreiða námslánin sín að lok-
inni starfsævi.
Bókstafsþrælar
frjálshyggjunnar
Á síðustu misserum hefur frjáls-
hyggjuliðið í Sjálfstæðisflokknum
beint sjónum sínum mjög að náms-
lánakerfinu. Þessir bókstafstrúar-
menn, sem trúa á óskeikult kerfi
fræðikenningarinnar, vilja gera
námslán að fjárfestingarlánum, sem
bera vexti auk verðtryggingar og
greiðast með jöfnum afborgunum.
Þessir kjánar hafa ekki áttað sig á
því að menntun er fyrst og fremst
samfélagsleg fjárfesting - hún skilar
sér í aukinni verðmætasköpun víða
í samfélaginu en laun menntamanna
ráðast af allt öðru. Verði þessum
ofetækisfullu bókstafetrúarmönnum
að vilja sínum munu þeir bijóta allt
það niður sem byggt hefur verið upp
á framhaldsskólastigi til að tryggja
jafhrétti tíl náms, þeir munu vinna
menningu þjóðarinnar óbætanlegt
tjón og þeir munu draga svo mjög
úr ásókn í menntun að íslenskt sam-
félag mun dragast aftui- úr í sam-
keppni þjóðanna. Þessa illa upplýstu
ofstækismenn verður að stöðva áður
en það er um seinan.
Ég leyfi mér að heita á framsókn-
armenn að þeir setji samstjómar-
flokki sínum stólinn fyrir dymar.
Menn eins og Halldór Ásgrímsson
og Ingvar Gíslason hafa áður sýnt
skilning á málefhum námslána. Og
enn em til þeir sjálfstæðismenn sem
meta heilbrigða skynsemi meir en
bókstaf frjálshyggjunnar eða hvað
segir menntamálaráðherra vor,
Sverrir Hermannsson?
Eigi að breyta einhverju um end-
urgeiðslur námslána, væri nær að
hverfa til upprunalegra tillagna
námsmanna. Ég hygg að allir aðrir
en ofetækisfyllstu frjálshyggjumenn
geti séð að tillögur þeirra geta ein-
ungis leitt til ófamaðar. Hins vegar
kynnu menn að segja að Lánasjóð-
urinn sé orðinn of dýr á þessum
samdráttartímum og einungis fijáls-
hyggjumennimir hafi bent á raun-
hæfa leið tíl spamaðar. Ég vil því
ljúka þessum pistli með spamaðar-
tillögum.
Sparnaóartillögur
Draga ber stórlega úr lánveiting-
um til námsmanna í Bandaríkjim-
um. Það er almennt viðurkennt af
þeim sem til þekkja að fyrrihlutanám
í bandarískum háskólum er mun
lakara en hliðstætt nám á Islandi
og öðrum Evrópulöndum en hins
vegar mun dýrara fyrir Lánasjóðinn.
Með samræmdum breytingum á
úthlutunarreglum Lánasjóðs og
reglum ýmissa deilda háskólans (t.d.
lagadeildar og verkfræði- og raun-
vísindadeildar) skal gera náms-
mönnum kleift að vinna í auknum
mæli með námi, en námstími, þar
sem þeir getí notið lána, lengist að
sama skapi. Slík breyting myndi
augljóslega leiða til spamaðar þegar
í stað og sennilega líka þegar allt
er tekið með í reikninginn því að æ
fleiri myndu taka lítil lán en fjár-
magna nám sitt að langmestu leyti
með eigin vinnu.
Það eru þvi ýmsar leiðir tíl spam-
aðar án þess að þær þurfi að bitna
á jafnréttí til náms og vega að rótum
velmegunar á íslandi.
Gestur Guðmundsson
„Og enn eru til þeir sjálfstæðismenn sem meta heilbrigða skynsemi
meir en bókstaf frjálshyggjunnar, eða hvað segir menntamálaráð-
herra vor, Sverrir Hermannsson?“
Atvinnuáætlun í Reykjavík
a „Til þess að nýta skilyrðin, sem
^ Reykjavík hefur að bjóða, þarf að
marka skýra og heildstæða atvinnuáætlun
til nokkurra ára.“
Vissir þú að í Reykjavík er sérstök
nefnd á vegum borgarstjómar, sem
kallast atvinnumálanefnd? Ég er
viss um að það hefur farið fram hjá
þér. Það er satt best að segja ekkert
undarlegt. I atvinnumálanefnd
Reykjavíkur gerist nefhilega ekki
neitt. Þessi nefhd heldur samt sem
áður fundi tvisvar í mánuði mestan
hluta ársins. Þeir sem eiga þess kost
að lesa fundargerðir atvinnumála-
nefhdarinnar reglulega taka eftír því
að þær em afar rýrar og endur-
spegla þannig vel fundina. Reyndar
koma fram á fundunum upplýsingar
um fjölda atvinnulausra í Reykjavík
hveiju sinni og skiptingu eftir starfs-
greinum.
Nefnd án frumkvæðis
Tillöguflutningur af hálfu nefhd-
armanna, sem miðar að nýjungum í
atvinnulífi Reykjavíkur, telst hins
vegar til tíðinda. Sömuleiðis frum-
kvæði af hálfu nefhdarinnar, sem
eflir og treystir atvinnu í borginni.
Undantekning frá þessu em ítarleg-
ar tillögur alþýðubandalagsmanna,
fyrr á kjörtímabilinu, sem lagðar
vom fram í borgarstjóm og vísað til
atvinnumálanefndarinnar þar sem
meirihlutinn hefur svæft þær. Það
virðist því stefna meirihluta borgar-
stjómar að koma í veg fyrir
umræður og ákvarðanir sem beinlín-
is em til styrktar atvinnulifinu. Starf
meirihlutans í atvinnumálanefhd
ber þess skýran vott. Ábyrgðina ber
núverandi íhaldsmeirihluti, eins og
á öðm því sem borgarbúar hafa
kynnst á liðnum fjómm árum og
snýr að atvinnumálum. Best muna
menn trúlega þegar Bæjarútgerðin
var afhent ísbiminum, sem stóð á
fallandi fæti. Það verður ekki gert
að umtalsefhi hér, heldiu- skal minnt
á þá kosti sem Reykjavik hefur í
atvinnulegu tilliti og nauðsyn mark-
vissrar atvinnuáætlunar í Reykja-
vík.
Reykjavík er stórt markaðssvæði.
Reykjavíkurborg er helsta út- og
innflutningshöfn landsins. í Reykja-
vík er næg og ódýr varmaorka, bæði
til framleiðslu og hitunar. Raforka
er ömgg og fyllilega samkeppnisfær
við önnur svæði. f borgarlandinu er
að finna bæði gott og nægjanlegt
vatn, sem atvinnustarfseminni er
mikilvægt. Nægir þar að nefha fisk-
vinnslu og aðra matvælafiramleiðslu.
Þá er Reykjavík miðstöð samgangna
í landinu. Állt þetta er til þess fallið
að hér í borginni geti verið öflugt
og blómlegt atvinnulíf, sem auðvitað
er einn homsteinn góðra lífskjara.
Hvað ber að gera?
Til þess að nýta skilyrðin, sem
Reykjavík hefur að bjóða, þarf að
marka skýra og heildstæða at-
vinnuáætlun til nokkura ára. Slíka
áætlun þarf að vinna í nánu sam-
starfi við verkalýðsfélögin í borginni
og þær stofnanir, sem starfa á sviði
atvinnumála og þróunar atvinnu-
veganna. I slíkri atvinnuáætlun
þurfa m.a. eftirtalin atriði að vera
fólgin:
- Efla starf atvinnumálanefndar og
ráða iðnfulltrúa, sem vinni með
einstaklingum, fyrirtækjum og
stofnunum að atvinnuþróun og
einstökum verkefhum á sviði at-
vinnumála í borginni.
- Könnun á vörum og vörutegund-
um, sem nú em fluttar inn, en
hentað gætu innlendum fram-
leiðendum.
- Að borgin útvegi lánsfé eða fram-
lög til nýrra fyrirtækja, einkum
í framleiðslugreinum.
- Frestun og jafnvel lækkun opin-
berra gjalda til borgarsjóðs vegna
nýrra fyrirtækja í framleiðslu-
greinunum.
- Að borgin taki beinan þátt i fyrir-
tækjum sem standa að nýjungum
í framleiðslu.
Kjallarinn
TRYGGVI ÞÓR
AÐALSTEINSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI MFA
OG 5. MAÐUR Á
BORGARSTJÓRN ARLIST A
ALÞYÐUBANDALAGSINS
- Aðstoð við rannsóknir, þróunar-
rekstur og upplýsingaöflun
einstakra fyrirtækja og iðn-
greina, sem leitt gæti til aukinnar
framleiðslu og nýjunga.
í atvinnuáætlun Reykjavíkur þarf
að taka tillit til þeirra sem af ein-
hveijum ástæðum standa höllum
fæti á vinnumarkaði og bæta um-
hverfi vinnustaðanna. í því sam-
bandi skulu nokkur atriði nefhd:
- Fólki með skerta starfeorku verði
í auknum mæli tiyggður aðgang-
ur að vinnustöðum Reykjavíkur-
borgar. Stuðlað verði að þátttöku
fatlaðra á almennum vinnustöð-
um og fjölgun vemdaðra vinnu-
staða.
- Fyrirtæki borgarinnar þurfa að
vera til fyrirmyndar hvað varðar
öiyggi, aðbúnað og hollustu-
hætti.
- Efla þarf heilbrigðiseftirlit með
vinnustöðum og eftirlit með
heilsu starfefólks.
Það er líka hlutí af atvinnustefriu
að gera heimavinnandi foreldrum
auðveldara að stunda vinnu utan
heimilis, m.a. með byggingu fleiri
dagvistunarstofnana og samfelldum
skóladegi bama.
Stefnuna vantar
Þetta eru nokkrir þættir af mörg-
um, sem miða að því að efla og
treysta atvinnu í Reykjavik. Nú
skortir stefnu boigaryfirvalda. Fyrir
vikið er atvinnulífið veikt og illa
undir sveiflur eða hugsanleg áföll
búið.
Frumgreinar atvinnulífeins hafa
dregist saman í Reykjavík, en þjón-
ustugreinamar vaxið hratt. Það
endurspeglar vissulega tímann, en
vekur áhyggjur þeirra sem vilja
treysta undirstöður atvinnu og lífe-
kjara. Heildstæð atvinnuáætlun og
framkvæmdir í samræmi við hana,
sem Alþýðubandalagið mun beita
sér fyrir, er farsæl leið og forsenda
þróunar atvinnulífe i Reykjavík á
komandi árum.
Tryggvi Þór Aðalsteinson