Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1986, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1986, Side 32
Kjúklingamenn DV á Akureyri * „Við höfum ekki skrifað undir ennþá en það verður gert innan sjö daga. Það getur fátt komið í veg fyrir það,“ sagði Helgi Helgason, annar eigenda kjúklingastaðarins Crown Chicken á Akureyri, í gæi- kvöldi en eigendur hans, þeir Helgi og Jón Rafn Högnason, ætla að kaupa veitingahúsið Sjallann á Ak- ureyri ásamt fleirum. Hlutafélag verður stofnað um kaupin og keypt á kaupleigusamningi. Um það á hverju stæði núna varð-‘ andi undiskrift kaupsamnings sagði Helgi: „Við bíðum núna eftir ákveðnum upplýsingum úr rekstri Sjallans. Það er svona verið að (Tn- pússa dæmið.“ '■t Helgi vildi ekki segja hverjir það væru sem stæðu að kaupunum með þeim Jóni Rafni. Hann neitaði því þó að þeirra á meðal væri Haukur Adolfsson, fyársterkur pipulagninga- meistari á Akureyri, sem mjög hefur verið orðaður við kaupin. Sjallinn er skuldum vafið fyrir- tæki. Heildarskuldir hans nema um 80 milijónum króna. Að sögn Helga er ætlunin að nýja hlutafélagið yfir- taki allar skuldirnar. * ICY-vodka fer illa í þingmenn Það eru ekki allir þingmenn sáttir við að einkaaðilum verði heimilað að framleiða áfengi hér á landi. Framsóknarmennimir Óiafur Þ. Þórðarson og Stefán Vaigeirsson og alþýðubandalagsmaðurinn Stein- grímm- Sigfússon reyndu af öllum sínum mætti að hindra framgang frumvarps þess efnis. Þeir töldu (jarri lagi-að þetto mál ætti að vera forgangsmái ríkisstjórnarinnar á síðustu dögum þingsins. Þetta væri mikil breyting á áfengislöggjöfinni og ekki til þess að draga úr neysiu áfengra drykkja. En allt kom fyrir ekki. Atkvæðagreiðslu var frestað en líklegt er að frumvarpið verði að lögum á miðvikudaginn. Búist er við að framleiðendur iCY-vodka flytji framleiðsiuna hingað tíi lands en um þessar mundir er drykkurinn fram- leiddur í Bretlandi. Sjá frekari fréttir af þingstörfum í nótt á bls 2 -APH Geriö uerösamanburö og pantiö úr Siml: 52866 LOKI Já, Búddatrúin er greinilega í Sókn. Búddabrúðkaup í Skipholtinu - 40 íslendingar taka Búddatrú Fyrsta íslenska búddabrúðkaup- ið var haldið í hinum nýju húsa- kynnum verkakvennafélagsins Sóknar við Skipholt í gærkvöldi. Þar gaf japanskur prestur, séra Yanagisaka, saman þau Ásgpir Júlíus Ásgeirsson og Mayjumi Ás- geirsson frá Japan. Ásgeir Júiíus er grafískur ljósmyndari og starfar á auglýsingastofu í Reykjavík. Samhliða brúðkaupinu meðtóku 40 íslendingar Búddatrú, tóku við lögmálinu eins og það er nefnt. Eru þeir nú orðnir meðlimir í búdda- söfnuði, Soka Gakkai, er hefur höfuðstöðvar í Japan; alþjóðasam- tökum leikmanna er leggja stund á búddisma. „Við kyrjum kvölds og morgna," sagði Herbert Guðmundsson söngvari, einn þeirra er tók við lögmáiinu í gærkvöldi. „Ég kyrja í hálftíma á morgnana og þrjú kort- ér á kvöldin. Það nægir fyrir daginn." Japanski presturinn flaug utan í morgun en brúðguminn, Ásgeir Júiius Ásgeirsson, sagði: „Þetta brúðkaup er engin tilviijun. Það byggir á lífsspeki Búddisma, tekur mið af fortíð, nútíð og framtíð sem gerir það mögulegt að skapa ham- ingjusamt og varanlegt hjóna- band.“ -EIR Frá brúðkaupinu í gærkvöldi: Brúðguminn situr á fremsta bekk ásamt systur sinni. Gestir voru fjölmargir og tóku þeir flestir BÚddatrÚ. DV-mynd KAE. Amarflugsábyrgð á hraðferð Ríkisábyrgð að iáni ti! Amarflugs upp á 2,5 milljónir dollara, rúmar eitt hundrað milljónir króna, var til um- ræðu í ríkisstjóminni fyrir hádegi. Líkur benda til að málið verði keyrt í gegnum Alþingi. Enda þótt almennur vilji sé fyrir stuðningi við Amarflug eru uppi efa- semdir um svo hraða afgreiðslu málsins. Ráðuneytismönnum hafði í morgun ekki gefist nægur tími tii að skoða stöðu flugfélagsins og meta tryggingar þess. Stuðningur stjómvalda er ein af for- sendum þess að svokallaðir níumenn- ingar leggi fram nýtt hiutafé. -KMU Veðrið á morgun: Solog blíða Áfram heldur góðviðrið. Á morgun verður bjart sunnan- og vestanlands og getur hiti farið upp í 8-9 stig inn til landsins. Úrkomulaust verður um allt land og norðlæg eða norðaust- iæg átt ríkjandi. Þetta gerir það að verkum að Norðlendingar verða að sætta sig við minni skerf af sóiskininu því skýjað verður um allt norðan- og austanvert landið. Hiti kemst þó í 6-7 stig en kaldara verður á annesj- um. -S.Konn. Áfengi hækkar „Við erum auðvitað að hækka verðið," sagði Gústaf Níelsson, skrif- stofustjóri Áfengis- og tóbaksversl- unar ríkisins, í samtali við DV í morgun. Útsölur ÁTVR eru lokaðar í dag vegna verðbreytinga. Hækkunin er í kringum 10% að meðaltali en mismunandi eftir teg- undum. Mest verður hækkunin á freyðivíni sem hækkar um 17% en rauðvín og hvítvín hækka um 15%. Minnst verður hækkunin á innlendu framleiðslunni sem Gústaf sagði að hækkaði um 4-5%. Þannig gæti ís- lenskt brennivín farið upp í 780 kr. flaskan. Viskí hækkar um 8% og vodka um 7%. Vindlingar hækka um 6-8%, neftóbak og reyktóbak um 7% en vindlar um allt að 11%. Síðast hækkaði áfengi í verði í nóvember. Síðan hefur gengi hækk- að 2-10% og framfærsluvísitalan um 7% og kaupgjald sömuleiðis," sagði Gústaf Níelsson, skrifstofustjóri ÁTVR. -A.Bj.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.