Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1986, Page 13
í
DV. LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1986.
57
Heilir og sælir, lesendur góðir.
Löngum hefur verið vani hagyrð-
inga og skálda á íslandi að yrkja um
hesta sína. Stefán Ólafsson, prestur
í Vallanesi, kvað:
Bylur skeiðar virktavel,
vil ég þar á gera skil.
Þylur sanda, mörk og mel,
mylur grjót og syndir hyl.
Litfari minn ljúfur er,
liggur hann úti flatur.
Hann mun þegar héðan fer
hrafna- og tófumatur.
Hér kemur svo brot úr hestaminn-
Stefán Eggertsson, bóndi í Steðja
í Borgarfirði, kvað:
Heims um gljána herðir skeið
hún með tána svarta.
Þetta er bjána bölvuð reið,
brátt mun Grána kvarta.
Þorsteinn Magnússon frá Gilhaga
kvað eftirfarandi lýsingu á hesti:
Þrekinn stóð í straumi þungum,
sterkur óð hann kröpin blá.
Klaka tróð á breiðum bungum,
beinin góð hann treysti á.
Elín Jónsdóttir frá Árnesi í Tungu-
sveit kvað eftirfarandi hestavísur:
Forlög þjóðar, fáks og manns,
fótspor saman undu,
íslending og hestinn hans,
heillastrengjum bundu.
Hjörleifur Jónsson á Gilsbakka í
Austurdal í Skagafirði kvað:
Vaknar yndi ýtum hjá,
öllu hrindir táli.
Lífsins myndir ljósar þá,
ljóða bindast máli.
Andlegt skammdegi
Vonir bjartar bregðast því
bilar hjartans styrkur.
Það er hart að þola á ný
þetta svartamyrkur.
Orðin falla ekki á glæ,
allra síst hjá konum.
Nú vilja allar fá sér fræ
og fjölga kjúklingonum.
Um stúlku eina kvað Einar:
Þó hún byrst á brúnir sé
og brosið minni á vetur,
samt er hún ekki öll úr tré
ef þú skoðar betur.
Þegar augun geisla grá,
grun ég í það renni,
að inni fyrir ólgi þrá,
sem einhverntima brenni.
Sigluvíkur-Sveinn (Sveinn Sveins-
son) kvað:
Jurt er enga frjóvgun fær
fölnuð hengir blómin.
Tómas Guðmundsson skáld kvað:
Hárin mér á höfði rísa,
er hugsa ég um kærleik þinn.
Þetta er annars ágæt vísa,
einkum seinni parturinn
Kristján Níels Jónsson, K.N., kvað
í gamni:
Leið ég hata hófsemdar,
heiðurs glata vana.
Breið er gata glötunar,
greiðir Satan hana.
Þetta er b j ána bölvuð reið
ingu eftir Sveinbjöm Bjömsson frá
Narfakoti á Vatnsleysuströnd en
hann fæddist um miðja síðustu öld:
Þó að næddu niðdimm él,
nauða klædd í trylli,
áfram þræddi veginn vel,
visku gæddur snilli.
Margan sprettinn þekkan þá,
þreif hann réttu spori,
yfír klettaklungur grá,
krafta mettur þori.
ísabungum breiðum á,
byljir sprungu úr skorum.
Undir sungu svellin blá,
Svifti þungum sporum.
vandaðaðar vörur
Hleðslutæki
6,12 og 24 volta.
Margar gerðir.
BENSÍNSTÖÐVAR
SKELJUNGS
Skeljungsbúðin
Síðumúla33
símar 681722 og 38125
vandaðaðar vörur
\Rafkapals-
tromlur
110 og 20 metra.
| Afar hagstætt verð.
bensin-
Shell STDÐVARNAR
Skeljungsbúðin
SíÖumúla33
Símar 681 722 og 38125.
Þreytti skeiðið þolinn æ,
þjóðarleiðum vanur.
Yfír heiðar, engi, snæ,
ötull reiðarsvanur.
Traustur, lipur, fríður, frár,
fjörsins gripinn ráði,
Fram á svipul elliár,
aldrei fípast náði.
Firna grettið fljót og myrkt,
frjálst í glettustandi
eins og klettur stóð hann styrkt
- stefndi rétt að landi.
Guðmundur Ingi Kristjánsson,
skáld á Kirkjubóli í Bjarnardal í
Önundarfirði, kvað:
Séra Einar Friðgeirsson, prestur á
Borg á Mýrum um og fyrir síðustu
aldamót, orti eftirfarandi vísur:
Þann ég undrast sólarsið
að sótroðna á kvöldin.
Ætli það sé af andstyggð við
eitthvað bak við tjöldin.
Augun tapa yl og glans,
ástin fegurðinni,
ef að besta brosið manns
botnfrýs einu sinni.
Séra Einar kvað eftirfarandi á
kvennanámskeiði þar sem rætt var
um garðyrkju og hænsnarækt:
Það er ætíð meining mín,
megnan bætir trega,
brúði mæta og brennivín,
að brúka gætilega.
Ekki veit ég af hvaða tilefni Sveinn
orti eftirfarandi níðvísu:
Þú ert varla af nýtum nýtur,
nauðug falla afþér tár.
Þú ert allra skíta skítur,
skítahallarlalli grár.
Sigurður Jónsson frá Katadal
kvað:
Innra lengi ungri mær
anna þrengir dróminn.
Aldrei brenni bragða ég vín
né bragi nenni að tóna.
Fellt hefur ennþá ást til mín
engin kvenpersóna.
Og svo hér að lokum hringhenda
eftir Ármann Dalmannsson:
Fjöllin klæðir kaldur snær,
kristals þræðir titra.
Ljómar bæði land og sær,
Ijós í hæðum glitra.
Verið þið sæl að sinni.
Stefán Jóhannesson,
Kleifum,
Gilsfirði,
371 Dalasýsla.
Sími 93-4772.
Nýtt hefti á
blaðsölustöðum
núna.
4. HEFTI - 45. ÁR - MAÍ 1986 - VERÐ KR. 160
Hversvegnamenn berja konursínar ...... 3
Hvaðþýðadraumarnir? .................. 9
Góðráðtiltölvunotenda ................ 15
Kossinn ogsaga hans .................. 17
Einntilatlöguviðsjóræningja .......... 22
Rugluð Rúmenia Ceausescus ............ 29
Ótrúlegt en satt:
Skórinnsemkomúrheiðskírulofti ........ 35
Fórnarlambið ......................... 38
Siglingará þurru landi ............... 41
Hugsuníorðum ......................... 46
Hvað
þýða draumarnir?
Bls. 9
Kossinn
og saga hans
Bls. 17
Siglinqar
á þurru landi
Bls. 41
Syndin
er að breytast
Bls. 68
VEGNA
MENN
BERTA
KQNtÍR
SINAR
Bls. 3
Helstu trúarbrögð heims;
Gyðingdómur ........ 48
Urvalsljóð ................... 66
Syndineraðbreytast . 68
Völundarhús .................. 76
Postojna
-Arnarhellarnir undursamlegu . 77
Ungafólkiðogumferðin . 85
Kolefni:
Efni sem likaminn hafnarekki . 88
Framliðnir vilja endurnýjast . 93