Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1986, Page 16
60
DV. LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1986.
, jKonungurinn
er dáinn“
Sérstæð sakamál - Sérstæð sakamál - Sérstæð sakamál
Vacharachi liðsforingi.
Sunnudaginn 9. júní 1946 fannst
Ananda, tuttugu og tveggja ára gam-
all konungur Síams, látinn í svefn-
herbergi sínu. Kúla úr .45 hlaup-
víddar skammbyssu hafði hæft hann
í höfuðið.
Hafði konungurinn framið sjálfs-
morð eða hafði hann verið ráðinn
af dögum? Málaferlin stóðu í mörg
ár og níu árum eftir dauða konungs-
ins voru þrír menn teknir af lífi fyrir
að hafa stytt honum aldur. Ekki hafa
þó allir talið að niðurstaða réttarins
hafi verið á rökum byggð og sumir
hafa haldið því fram að konungurinn
hafi framið sjálfsmorð af því að hann
hafi verið ástfanginn af svissneskri
prestsdóttur sem hann hafi vitað að
hann myndi ekki geta átt. Ýmislegt
mælir þó gegn sjálfsmorðskenning-
unni.
Var við nám í Sviss
Ananda hafði búið í Sviss mestan
hluta ævi sinnar en þar var hann við
lögfræðinám er hann sneri um stund-
arsakir heim. Ætlun hans var að fara
aftur til Lausanne í vikunni á eftir
til að ljúka lögfræðiprófi.
Vegna langvarandi íjarveru að
heiman var Ananda orðinn óvanur
hitanum í Bangkok og á laugardeg-
inum kallaði hann til sín lækni og
kvartaði um meltingartruflanir. Bjó
konungur þá í Stórhöllinni í Bang-
kok. Læknirinn sá að konungur var
með nokkurn hita en gaf honum síð-
an lyf og góð ráð.
Móðirin lítur
inn til hans
Um klukkan sex morguninn eftir,
er konungur átti aðeins rúmar þrjár
stundir ólifaðar, kom Mahidol prins-
essa, móðir Anandas, i heimsókn til
hans. Hann var þá sofandi en hún
vakti hann og spurði hvernig honum
liði. Hann kvað þá líðan sína góða.
Annar af þjónum konungs, Butr,
segist hafa komið til hans klukkan
hálfníu með appelsínusafa og dag-
blað eins og venja hans hafi verið.
Hafi konungur þá gengið inn í svefn-
herbergi sitt, sest á rúmið og starað
fram fyrir sig.
Annar þjónn, Nai Chit, sem kom
til vinnu nokkru síðar, segist hafa
tekið sér stöðu við hlið Butr fyrir
framan íbúð konungs. Þjónamir
sögðust svo hafa heyrt skothvell úr
ibúðinni klukkan tuttugu mínútur
yfir níu. Hafi Nai Chit þá litið inn í
íbúð konungs en síðan farið til móð-
ur hans, Mahidol prinsessu. Er hann
kom til hennar sagði hann: „Kon-
ungurinn hefur skotið sig.“
Á bakinu
Er komið var að konungi lá hann
á bakinu með hendur við hlið sér.
Nálægt vinstri hönd hans var .45
hlaupvíddar skammbyssa en gat eftir
kúlu var á enninu yfir hægri auga-
brúninni.
Brátt fylltist svefnherbergi kon-
ungs af skelfdum ættingjum og
samstarfsmönnum. Þeirra á meðal
var forsætisráðherrann Pridi sem
heyrðist hrópa á ensku: „Konungur-
inn hefur framið sjálfsmorð." Yfir-
maður lögreglunnar, sem kvaddur
var á vettvang, áleit í fyrstu að kon-
ungurinn hefði stytt sér aldur og
ýmsir við hirðina voru einnig þeirrar
skoðunar; en eins og áður segir þá
fóru ýmsir síðar að efast um að sú
skýring gæti verið rétt.
Andlegur og verald-
legur leiðtogi
Síamskonungar (Síam heitir nú
Thailand) eru ekki aðeins veraldlegir
leiðtogar heldur æðstuprestar og því
stundum nefndir lávarðar lífsins; en
eins og kunnugt er eru landsmenn
Búddatrúar. Þeir eru því enn þann
dag í dag taldir annað og meira en
venjulegir dauðlegir menn. Finnst
mörgum landsmönnum því fráleitt
að ræða um sjálfsmorð þegar kon-
ungur landsins á í hlut.
2. júlí var loks gefin út opinber til-
kynning um dauða konungs. Þar var
vikið að veikindum hans en því síðan
haldið fram að konungur, sem var
mjög vanur meðferð skotvopna, hefði
orðið fyrir slysaskoti.
Þrálátur orðrómur
Ekki lét almenningur sér þessa
skýringu þó nægja og brátt komst á
kreik þrálátur orðrómur um að ekki
hefði allt verið með felldu með dauða
konungs. Komust sögur um það
meira að segja á prent. Ástæðan til
þess var meðal annars sú að nokkrir
læknar höfðu látið i ljós það álit að
konungur hefði verið skotinn í
hnakkann; nánari líkskoðun hafði
leitt í ljós tvö kúlnagöt, annað á
hnakka og hitt á enni.
Pridi forsætisráðherra setti á lagg-
irnar rannsóknarnefnd en það
magnaði aðeins sögusagnir um að
ekki hefði allt verið með felldu því
að ýmsir grunuðu sjálfan forsætis-
ráðherrann um græsku vegna stjórn-
málaástandsins. Gengu sumir meira
að segja svo langt að segja að liðs-
foringi að nafni Vacharachi og
lágreistur stjórnmálamaður að nafni
Chaleo hefðu tekið þátt í samsærinu
með Pridi en forsætisráðherrann
hafði komið því til leiðar að báðir
þessir menn voru ráðnir við hirðina
þótt konungur hefði síðan látið segja
þeim upp; Vacharachi fyrir að þykj-
ast vera veikur og Chaleo fyrir
vanrækslu í starfi og fyrir að sýna
virðingarleysi.
Byltingartilraun
Pridi varð brátt afar óvinsæll og
þar kom að höfuðandstæðingur hans
í stjórnmálum, Pibul marskálkur,
stofnaði nýjan stjórnmálaílokk,
„Mátturinn ræður“.
Ananda konungur með móður sinni, Mahidol prinsessu.
Bhoomipol konungur, Sirikit drottning og börn þeirra.