Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1986, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1986, Blaðsíða 2
2 DV. FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1986. Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir Vélsleðaslysið við Skjálfandafljót: „Það hefur orðið stórslys! Akureyri: Kennedy- bræður slasast Jón G. Hauksson, DV, Akureyri: Bræðumir Vilhelm og Eyjólfur Ágústssynir, tveir af Kermedy- bræðrunum svonefndu á Akureyri, liggja nú báðir slasaðir á sjúkra- húsum. Vilhelm liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild Borgarspítalans eftir að hafa hrapað á vélsleða nið- ur 20 metra þverhnípt bjarg inni við Gæsavötn um hvítasunnu- helgina. Hann hafnaði í Skjálfandafljóti og flaut meðvit- undarlaus niður ána en var bjarg- að af félögum sínum, Oddi Óskarssyni og Kristjáni Grant. Þeir stóðu úti í ánni í rúma tvo klukkutíma með Vilhelm á snjó- spöng sem þeir brutu úr árbakkan- um. Vilhelm var í gær úr lífshættu en mikið slasaður, allur brotinn hægra megin og lungað fallið sam- an. Hinn bróðirinn, Eyjólfur, slasað- ist í Hlíðarfjalli á uppstigningar- dag er torfæruhjól hans kastaðist um fjóra metra fram afsnjóhengju. Eyjólfur hentist af hjólinu og lenti á höfðinu. Við það hálsbrotnaði hann, tveir hálsliðir eru brotnir. Hann liggur nú á sjúkrahúsinu á Akureyri og er á batavegi. Að sögn lækna hlýtur hann ekki varanieg örkuml. Þeir Kennedy-brseður eru ein- hverjir þekktustu menn á Akur- eyri. Þeir reka Bílaleigu Akureyrar auk þess sem þeir eru með umboð fyrir Mitsubishi og fleiri bíltegundir á Akureyri. Þeir bræður eru athafnamenn, þekktir fyrir dugnað og lífsgleði og hafa ætíð staðið mjög vel saman. Íþróttalíf á Akureyri hafa þeir mjög látið til sín taka. Örlögin höguðu því þannig að sama dag og Vilhelm slasaðist flaug Skúli bróðir þeirra einkaþotu bræðranna heim til Akureyrar með Eyjólf af Borgarspítalanum. Jón G. Hauksson, DV, Akureyri: „Þegar ég kom að gilbrúninni blasti við mér þessi hrikalega sjón; Villi hreyfingarlaus, fljótandi á bakinu nið- ur ána. En sem betur fer myndaði hjálmurinn flotholt þannig að ekki flaut yfir höfuðið," sagði Oddur Óskarsson. Hann kom fyrstur að Vil- helm Ágústssyni sem hrapaði á vél- sleða niður 20 metra þverhnípt bjarg, ofaní Skjálfandafljót skammt frá Gæsavötnum. Þetta gerðist rétt eftir klukkan 22 síðastliðið laugardags- kvöld. Vilhelm liggur nú þungt haldinn á gjörgæsludeild Borgarspítalans i Reykjavík. Hann var ásamt þremur öðrum vél- sleðamönnum, þeim Kristjáni Grant, syni hans, Karli Grant, og Oddi Óskarssyni á leið inn í Gæsavatna- skála norðan við Vatnajökul þegar slysið varð. Vilhelm er þrautreyndur vélsleðamaður og hefur farið með Kristjáni Grant ótal ferðir um hálend- ið undanfarin 15 ár. „Ég hljóp eina 10—15 metra meðfram gilbrúninni en lét mig þá húrra niður aflíðandi snjóbreiðu niður í ána. Ég óð að Villa og tókst að stöðva hann en þegar það gerðist var farið að flæða yfir andlit hans,“ sagði Oddur í sam- tali við DV í gær. Hann bætti við: „Kristján kom skömmu síðar útí til mín. Við færðum Villa að vesturbakkanum. Það var vonlaust að koma honum upp úr, að- stæður voru þannig, þverhnípt bjargið. Við gripum því til þess ráðs að brjóta snjóspöng úr árbakkanum og á henni lá Villi í tæpa tvo tíma eða þar til Vilhelm Ágústsson skömmu áður en slysið varð. Vélsleði hans er í bak- sýn, einhver fullkomnasti vélsleði landsins, búinn talstöð og lórantæki. „Ég er þó Hfandi“ - rætt við Eyjólf Ágústsson sem hálsbrotnaði í Hlíðarfjalli Jón G. Hauksson, DV, Akureyri: „Ég man eftir mér eftir lendinguna og sagði sí svona við sjálfan mig: Ég er þó lifandi," sagði Eyjólfúr Ágústs- son, yngsti Kennedy-bróðirinn, 35 ára, í samtali við DV i gær þar sem hann lá á sjúkrahúsinu á Akureyri. Hann hálsbrotnaði, braut tvo hálsliði þegar hann kastaðist á torfæruhjóli ijóra metra fram af snjóhengju í Hlíðar- fjalli á uppstigningardag. Hann hlýtur ekki varanleg örkuml eftir slysið. „Ég er á góðum batavegi og lækn- amir segja að ég hafi sloppið ótrúlega vel, eins vel og hægt er,“ sagði Eyjólf- ur. Hann var með tveimur félögum sín- um, þeir báðir einnig á torfæruhjólum í gili rétt sunnan við Skíðahótelið er slysið varð. „Þetta var ekki glæfraakstur heldur var snjóblindan svo mikil og þvi fór sem fór. Ég missti máttinn, lamaðist í báðum fótum og vinstri hendi fyrstu mínútumar eftir fallið. En til allrar hamingju fann ég hvemig krafturinn kom í báða fæturna. Ég er með verki í handleggjunum ennþá og vinstri höndin er öll að koma til, verða kraft- meiri.“ Eyjólfúr verður að liggja meira og minna grafkyrr á sjúkrahúsinu á Ak- ureyri næstu þrjár vikumar. Hann er með kraga um hálsinn og má ekki reisa sig upp. 1 gær þegar DV ræddi við hann gekk spóla af leik Þórs og Fram af myndbandi við sjúkrarúmið en Eyjólfúr var á árum áður þekktur knattspymumaður með KA. EyjóHur Ágústsson á sjúkrahúsinu á Akureyri í gær. Hann er á góðum bata- vegi og hlýtur ekki varanleg örkuml. DV-mynd JGH Þverhnipt bjargið þar sem Vilhelm fór fram a< á vélsleðanum. Sleðinn lenti á syllu við árbakkann og kastaðist Vilhelm út i ána. Hann flaut hreyfingarlaus á bakinu niður eftir ánni en var bjargað á síðustu stundu. Upp við árbakkann, lengst til hægri á myndinni, stóðu þeir Kristján og Oddur hátt í tvo tíma og hlúðu að Vilhelm sem lá sárþjáður á ísspöng. hjálp barst frá snjóbílnum Bangsa sem kom frá Gæsavatnaskála. Kuldinn var ofboðslegur þar sem við vorum þama þrír úti í ánni. Við urðum að halda undir fætur Villa því spöngin minnkaði sífellt, var að bráðna." Ferð þeirra félaga hófet á laugar- dagskvöldið. Þeir óku frá Akureyri rétt fyrir kvöldmat að bænum Halld- órsstöðum í Bárðardal. Þaðan óku þeir á vélsleðunum upp á Vallafjall. Það var stafalogn, glampandi sólskin og færið eins og best verður á kosið. „Það var mikill hiti og Villi hafði þá einmitt orð á því hvort ekki væri rétt að binda hjálmana aftan á sleð- ana. Ég svaraði að það skyldum við ekki gera, það myndi eflaust kólna með kvöldinu. Það varð því úr að við höfðum hjálmana á okkur, sem betur fer, því hjálmurinn hefúr örugglega bjargað lífi hans,“ sagði Kristján Grant. Þeir félagar héldu áfram ferð sinni. Þeir óku á vélsleðunum inn á Sprengi- sandsslóð og tóku stefhuna á Gæsa- vatnaskálann sem er norðan við Vatnajökul. Þegar þeir komu að Skjálfandafljóti urðu þeir að nema staðar vegna þess að áin var opin, þar var engin snjóbrú. „Við ókum aílir suður með ánni en Villi og Oddur fóru meira til suðurs og hurfú mér sjónum. Við feðgamir komumst yfir ána á snjóbrú og eftir það stöðvuðum við sleðana austan árinnar. Ég sagði við Karl son minn: Hvað hefúr orðið af Villa og Oddi, ég sé þá hvergi? Karl skrapp þá niður að ánni og gáði að þeim. Hann kom aftur eftir eina mínútu og sagði: Það hefur orðið stórslys!“ sagði Kristján Grant. Þeir þremenningamir, Kristján, Karl og Oddur, skoðuðu daginn eftir aðstæður þar sem Vilhelm hafði farið fram af og þá kom í ljós að gljúfúr- brúnin sást ekki fyrr en um 8 metrum áður en komið var að henni. Það er einnig nákvæmlega sú vegalengd sem bremsuför em eftir sleða Vilhelms. En sjálft þverhnípt gljúfrið sést ekki fyrr en við gljúfurbrún. stendur straum af kosnlngabaráttunni Sjálfstæðtsmenn, grelðum heimsenda gíróseðla. Skrifstqfa happdrættlsins í Valhöll er opin alla daga kl. 09.00 — 22.00. Aðetns dreglð úr seldum míðum. DREGIÐ 27 MAÍ 1986 i Glæsilegir vinningar að verðmæti kr. 1.749.780,- 3 fólksbifreiðir: Nissan Cherry GL 5 dyra, Corolla 1300 5 dyra og Suzuki Swift 5 dyra. 14 glæsilegir ferðavinningar SJÁLFSTÆÐISMENN STÖNDUM SAMAN UM D-LISTANN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.