Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1986, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1986, Blaðsíða 5
DV. FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1986. 5 Stjórnmál Stjórnmál Össur Skarphéðinsson dreifir málgagninu meðal starfsmanna Hitaveitunnar. DV-mynd GVA. „Félagi Davíð með skærin á lofti“ vinnustaðarfundur með Össuri og Guðna „Kosningabaráttan hingað til hefur einkennst af því að Sjálfstæðisflokk- urinn hefur ekki komið með neina málefhalega umræðu. Mogginn hefur þvert á móti verið fullur af 'myndum af félaga Davíð með skærin á lofti að klippa borða. Davið hér og Davíð þar en málefnin eru engin,“ sagði Össur Skarphéðinsson m.a. í inngangsorðum sínum á vinnustaðarfundi sem hann og Guðni A. Jóhannsson, einnig fram- bjóðandi Alþýðubandalagsins, efridu til hjá Hitaveitunni. Össur gerði siðan að umræðuefni að sjálfstæðismenn hefðu neitað að taka þátt í stjómmálafundi DV.......allir aðrir flokkar eru með en einn flokkur er í fýlu. Davíð var örugglega með í ráðum í þeirri ákvörðun ...“ Össur sagði að það væri enginn munur á Sjálfetæðisflokknum í borg- arstjóm og Sjálfetæðisflokknum í ríkisstjóm. Á báðum stöðum hefði flokkurinn stuðlað að launalækkun- um. Hann tók tvö dæmi. Annars vegar farmiða SVR, sem hefðu hækkað sex- falt á kjörtímabilinu, og hins vegar aðgöngumiða að sundlaugunum, sem einnig hefðu hækkað sexfalt á sama tíma, og spurði svo: „Hefur kaup ykk- ar sexfaldast á kjörtímabilinu?" Annað sem Össur gerði að umræðu- efni var málefni aldraðra í borginni en þar væri ferill núverandi meirihluta ekki glæsilegur. Á kjörtímabilinu hefðu biðlistar aldraðra efitir húsnæði tvöfaldast, 1300 væru á biðlista nú og af þeim ríkti neyðarástand hjá 3-500 manns. „Þetta er smánarblettur á Reykja- víkurborg og við alþýðubandalags- menn ætlum okkur að breyta þessu,“ sagði Össur. Annað atriði sem Össur gerði m.a. að umræðuefhi var landakaupin við Ölfusvatn en þau kallaði hann dæmi um slappa fjármálastjóm borgarinnar. Guðni A. Jóhannesson ræddi á eftir Össuri um húsnæðismál í borginni og málefhi Hitaveitunnar. Hann sagði húsnæðismálin nú komin í ógöngur vegna mistaka í skipulagsmálum, en hvað málefni Hitaveitunnar varðaði gerði hann að umræðuefni Nesjavafla- virkjun og taldi hana ótimabæra framkvæmd þar sem ekki væri til markaður fyrir alla þá orku er hún mundi framleiða og vildu alþýðu- bandalagsmenn fresta henni en kaupa í staðinn orkuna sem þyrfti frá Lands- virkjun. Þegar starfefólki Hitaveitunnai gafst tækifæri til að spyija frambjóð- enduma stóð Jóhannes Zoega hita- veitustjóri upp og hélt það sem kalk mætti þriðju framboðsræðuna á fund- inum. Þar reifaði hann sín sjónarmic í málefnum Hitaveitunnar og sagði ac á þeim 30 árum sem hann hefði unnic að málefhum hennar hefði Alþýðu- bandalagið ávallt verið á móti öllun framkvæmdum. „Ég man ekki eftir neinu skrefi f þessu tímabili án baráttu og nöldun Alþýðubandalagsins. gegn því,“ sagð hann m.a. Lítið var spurt eftir orð Jóhannesa en frambjóðendunum boðið í mat þa sem einstakir starfsmenn ræddu vii þá almennt um ýmis mál. -FR Fréttir Fréttir TVeir menn í gæsluvarðhald: Versluðu með falska 100 dollara seðla Tveir menn hafa verið útskurðaðir í gæsluvarðhald vegna mikils magns af fölskum 100 dollara seðlum sem gengið hafa kaupum og sölum hér á landi að undanfömu. Upp komst um fölsku seðlana þegar verslunareigandi kom með seðil í banka til að skipta. Seðillinn var þykkari heldur en gjald- kerinn átti að venjast. Við rannsókn kom í ljós að fleiri þannig seðlum hafði verið skipt í bönkum. Talsvert magn af fölskum seðlum, sem komu erlendis frá, var í umferð og er upphæðin talin skipta þúsundum dollara. Hver seðill er að verðgildi um kr. 4.100, þannig að mennimir hafa komist yfir tugi þús- unda íslenskra króna með því að setja fölsku seðlana í umferð. Þeir skiptu seðlunum í verslunum og bönkum auk þess sem þeir seldu einstaklingum seðla. Fljótlega bárust böndin að mönnunum tveimur, sem hafa nú verið úrskurðaðir í gæslu- varðhald til 28. maí. -sos Opið Föstudag 9-20 Laugardag 10-16 i i ELECTR0LUX ■ HRÆRIVEL Frystikista TL 15OO99.700,- Oster 960-21 áður 37125 áður 16.560,- Frystiskáp TF 750 99.990,- Electrolux N15 áður 56.569,- áður 12.097,- Frystiskáp TF 965 39.990,- áður 46.179,- J___I VIDE0 Örbylcjfuoln j ,( Jy 1 X400. LITASJÓNVÖRP VHS-Video a.ff;35.900,- 14” Litasjónvarp 25.900,- im-ft limer mrft Ijarslýringu * VHS-Video «».4! nu*ft fjarslýrmgu ' .... 2.900,- i 20” Litasjónvarp ,lgr. 31.900,- með Qnrslýringii J - FERÐATÆKI VIDEOSPÓLUR __ i Stereokassettuútvarp kr. 4.900,- VHS-Spóla E 180 kr. Klukkuútvarp kr. 1.886,- 3 limar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.