Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1986, Blaðsíða 3
DV. FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1986.
3
Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir
40 þúsund danskar fýrir
að opna „töfraföskuna“
- íslenskir sveitarstjórnarmenn grátt leiknir af dönskum sölumönnum
Knud Gravab, útsendari danska ráð-
gjafarfyrirtækisins Scankey, virðist
hafa náð ótrúlegum árangri í sölu-
mennsku hér á landi. Hvert sveitarfé-
lagið á fætur öðru hefur greitt um 40
þúsund danskar krónur fyrir það eitt
að fá að líta ofan í skjalatösku hans
og skoða þar skýrslur um ný atvinnu-
tækifæri sem henta einkar vel íslensk-
um aðstæðum. Daninn hefur þegar
verið á Siglufirði, Selfossi, Borgamesi,
Blönduósi og í Búðardal og á öllum
stöðum hefur verið farið með skýrslur
„Þetta leit vel út í upphafi en þvi
miður borguðum við manninum,“
sagði Óttar Proppé, bæjarstjóri á Si-
glufirði. Siglfirðingar fengu Knud
Gravab, sölumann Scankey, einmitt í
heimsókn fyrir nokkrum mánuðum.
Þeir em sagðir hlaða haglabyssumar
þegar þeir heyra á fyrirtækið minnst
nú.
„Við fengum fjögur tilboð frá Dan-
anum en sáum strax að þetta var tóm
þvæla og settum upp í hillur. Daninn
vildi að við færum að framleiða ein-
hveijar jámplötur með götum í eða
þakstál sem tvö önnur fyrirtæki á
hans sem trúnaðarmál. Allir fengu
sömu hugmyndimar og greiddu sama
verð fyrir. Þess vegna hefur skjala-
taska hans hlotið nafhið „töfrataskan"
i munni íslenskra sveitarstjómar-
manna.
Bjartar vonir og vanþekking
„Þama virðist hafa verið um að
ræða samspil bjartra vona, vanþekk-
ingar og djarflegrar sölumennsku,"
sagði starfsmaður Iðntæknistofiiunar
landinu em að framleiða. Og svona
til að gleðja okkur var hann með au-
katilboð um rækjuræktun. Gallinn við
það tilboð var bara sá að ræktunin
miðaðist við hitabeltisloftslag enda
var hann víst búinn að selja rækju-
hugmyndina áður í Guatemala," sagði
Óttar Proppé.
Danski sölumaðurinn dvaldi á Siglu-
firði i þijár klukkustundir og fyrir það
greiddu Siglfirðingar 40 þúsund dan-
skar krónur. „Ég ráðlegg ekki nokkr-
um manni að eiga viðskipti við
Scankey. Þetta er hneyksli," sagði
Óttar Proppé. -EIR
sem nú hefur látið málið til sín taka.
„íslendingar virðast hafa oftrú á er-
lendri ráðgjöf og taka hana framyfir
íslenska þó í boði sé.“
Vinnubrögð Danans voru á þann veg
að hann kom að máli við sveitarstjóm-
armenn, sýndi þeim í trúnaði ofan í
„töfratöskuna" og gaf þeim 15-20 daga
umhugsunarfrest. Að þeim fresti liðn-
um var haldið í næsta sveitarfélag.
„Það er engu líkara en Daninn hafi
ekið eftir þjóðvegi eitt og boðið öllu
Enginn fékk að lita ofan i „töfratösk-
una“ fyrr en búið var að greiða álit-
lega fjámpphæð: „Þarna virðist hafa
verið um að ræða samspil bjartra
vona, vanþekkingar og djarflegrar
sölumennsku." DV-mynd PK.
kviku að líta ofan í tösku sína,“ sagði
einn viðmælenda DV.
Þaksteinar og gardínubrautir
Tilboð Danans vom sérstaklega
hugsuð fyrir íslenskar aðstæður. Lítil
fyrirtæki sem hentuðu vel litlum sveit-
arfélögum. Tveir til þrír menn í vinnu
og svo var hægt að panta vélamar hjá
Scankey. Allt í einum pakka og fram-
leiðsla gat hafist strax og vélamar
bárust. Hér var um að ræða fram-
leiðslu þaksteina, gaidínubrauta,
baðinnréttinga en bleiuverksmiðjan
var þó hvað vinsælust. íbúar í Vík í
Mýrdal vom búnir að kaupa þá hug-
mynd þegar þeir fréttu að Scankey var
búið að selja Akureyringum sams kon-
ar verksmiðju.
Einfaldir íslendingar
Að sögn iðnráðgjafa og starfsmanna
Iðntæknistofhunar er mál þetta á
ákaflega viðkvæmu stigi. Klögumálin
ganga á víxl og lögfræðingar halda í
alla enda sem hægt er að festa reiður
á. Samningar þeir er Danir hafa gert
hér á landi em óaðfinnanlegir og svo
virðist sem einfeldni íslendinga hafi
komið þeim sjálfum i koll. -EIR
Sorgarsaga af Stokkseyri:
Gardínutappar
fyrir hálfa
heimsbyggðina
Viðskipti fyrirtækisins Stjömuplasts
á Stokkseyri við danska ráðgjafarfyr-
irtækið Scankey er sorgarsaga frá
' upphafi til enda. Er eigendur Stjömu-
plasts gerðu samninga sína um
vélakaup héldu þefr að verið væri að
panta vélar sem framleiddu gardínu-
stangir með öllu er því fylgir. Þegar
búið var að setja vélamar upp kom á
daginn að þær framleiddu ekkert ann-
að en tappa í sjálfar gardínubrautim-
ar.
„Þama var byijað á vitlausum enda.
Ef til vill vom vélamar of dýrar og
of afkastamiklar því þær gátu fram-
leitt gardínutappa fyrir áttfaldan
danskan markað. Ekki bætti svo úr
skák að markaðurinn fyiir gardínu-
tappa hér á landi virtist ekki vera fyrir
hendi,“ sagði starfsmaður Iðntækni-
stofnunar í samtali við DV. „Allir
samningar sem Danimir gerðu hér á
landi vom á dönsku og sjálfur neitaði
Knud Gravab að tala annað en
dönsku. Ég held að íslenskir viðkipta-
vinir hans hafi einfaldlega ekki skilið
hann.“
-EIR
Scankey á Siglufírði:
Buðu hita-
beltisrækju
Sumarbúðirnar Tungu. Svínadal
FYRIR 6-10 ARA BÖRN
Sumarbúða sæluvist Margt er hér til gamans gert
sækja börnin ungu. er gleður hjörtun ungu
Þessu stýrir létt af list og öryggið er opinbert
Linda hér í Tungu. á öllu hér í Tungu. (Emmó)
Þessar vísur eiga við sumarbúðirnar í Tungu, Svínadal, sem er ca 80 km frá Reykjavík og ca 20 km frá
Akranesi. Við byrjum 24. maí. Þetta er tilvalið tækifæri fyrir foreldra sem eru t.d. að fara utan. Og einnig
sem sumarfrí fyrir börn. Markmið sumarbúðanna er að veita börnum úr þéttbýli tilbreytingu og tækifæri
til að komast í kynni við náttúruna; dvelja um tíma í fögru umhverfi og að auka áhuga fyrir íþróttum.
Upplýsingar í síma 91-54548 Hafnarfirði, 93-2462 Akranesi og 93-3956 Tungu.