Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1986, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1986, Blaðsíða 11
DV. FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1986. 11 Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál B-listinn: Akureyri áfram höfuðstaður Norðurlands „Við framsóknarmenn leggjum áherslu á að Akureyri gegni áfram hlutverki sínu sem höfuðstaður Norð- urlands. Fjölbreytni í atvinnu, menn- ingu og menntamálum er meginfor- senda þess að við þetta hlutverk sé staðiðsagði Sigurður Jóhannesson, efsti maður B-listans, lista Framsókn- arflokksins á Akureyri. „Við munum bæta aðstöðu atvinnu- fyrirtækja í bænum, styðja og styrkja uppbyggingu nýrra atvinnugreina og stuðla að nýtingu allra möguleika til fjölgunar atvinnutækifæra á Eyja- fjarðarsvæðinu. Að þessu höfum við verið að vinna Sigriður Stefánsdóttir, efsti maður G-listans á Akureyri. DV-mynd JGH á undanfömum kjörtímabilum með góðum árangri og munum halda því áfram af fullri einurð eins og hingað til þrátt fyrir það áfall sem hér varð í atvinnumálum byggingariðnaðarins sem orsakaðist af efnahagslegum að- stæðum í þjóðfélaginu. Minnihlutaflokkarnir, Sjálfstæðis- flokkur og Alþýðuflokkur, hafa engin sérstök ráð átt í þessum málum og hafa fylgt okkar tillögum í einu og öllu. I menntunarmálum her hæst áfram- haldandi uppbygging Verkmennta- skólans og við munum stuðla að því að væntanleg háskólakennsla fái hér góða aðstöðu. Við höfum lagt fram mikið fjármagn til grunnskólabygginga umfram laga- skyldu og munum sjá um að nægilegt skólahúsnæði verði ætið fyrir hendi vegna grunnskólans. Það er stöðug þörf fyrir aukningu félagslegrar þjónustu og munu málefni aldraðra verða mjög til umfjöllunar á komandi kjörtímabili. í stuttu máli: Við framsóknarmenn munum stuðla áfram að því að Akur- eyri sé bær þar sem gott er að búa, gott að starfa og gott að eldast," sagði Sigurður Jóhannesson, efsti maður B-listans á Akureyri. -JGH Sigurður Jóhannesson, efsti maður B-listans, lista Framsóknarflokksins á Akur- eyri. DV-mynd JGH Flokkur mannsins: Lágmarkslaun verði 30 þús. G-listi: Félagsleg sjónarmið ráði á öllum sviðum „Okkar stefriuskrá er ekki bara krafa um einstakar framkvæmdir heldur leggjum við fram okkar grund- vallarstefnu um að félagsleg sjónarmið ráði á öllum sviðum, hvort sem er í atvinnumálum, málefnum aldraðra, skólamálum eða húsnæðismálum,“ sagði Sigríður Stefánsdóttir, efsti mað- ur G-listans, lista Alþýðubandalagsins á Akureyri. „Við hjá Alþýðubandalaginu á Ak- ureyri höfum þó sett ýmsa hluti í forgang. í skólamálum hlýtur það að vera lágmarkskrafa að öll böm geti sótt skóla í sínu hverfi; þess vegna viljum við að Síðuskóli hafi forgang áfram og verði kláraður. f dagvistunarmálum þarf að gera stórátak. Við viljum til að mynda að Hamarkot verði næsta dagvist. Búið er að hanna hana og nú þarf að hefja framkvæmdir. Þriðja málið, sem við alþýðubanda- lagsmenn leggjum áherslu á, em málefhi aldraðra. Við teljum að það Þau eni í framboði A-listi Alþýðuflokksins Freyr Ófeigsson Gísli Bragi Hjartarson Áslaug Einarsdóttir Helga Ámadóttir Pétur Torfason Þórey Eyþórsdóttir Bjami Asmundsson Herdís Ingvadóttir Gunnar Gunnarsson Jóhann G. Möller Gunnhildur Wæhle Franz Árnason Gunnar Egilson Hrefna Bragadóttir Kristján Halldórsson Þorsteinn Þorsteinsson Jón Smári Friðriksson Jómnn G. Sæmundsdóttir Ingólfur Ámason Jón Helgason Rósa M. Sigurðardóttir Steindór Steindórsson B-listi Framsóknarflokksins Sigurður Jóhannesson Úlfhildur Rögnvaldsdóttir Ásgeir Amgrímsson varði sæmd hvers bæjar hvemig að þeim er staðið. Fjöldamörg verkefni eru framundan. Við viljum að aldraðir geti búið við öryggi og valið sjálfir hvar og hvemig þeir búa. í ítarlegri stefhuskrá okkar er ekki hvað síst minnst á atvinnumálin. Við lítum svo á að bærinn beri ótvíræða ábyrgð á atvinnumálunum og viljum að hann taki beinan þátt i þeim, auk þess að styrkja og styðja starfandi fyr- irtæki. Við alþýðubandalagsmenn teljum að kosningamar snúist um stjórnmála- stefnu og hvaða sjónarmið eigi að ráða hér á næsta kjörtímabili. Það er hættulegt fyrir Akureyri ef ríkis- stjómarstefnan, kjararán og niður- skurður félagslegra framkvæmda, verður einnig ráðandi hér i bænum. Stuðningur við Alþýðubandalagið er gegn slíkri stefnu, hann er öflug krafa um félagshyggju,“ sagði Sigríður Stef- ánsdóttir, efsti maður G-listans. -JGH Kolbrún Þormóðsdóttir Þórarinn E. Sveinsson Unnur Pétursdóttir Sigfús Karlsson Ársæll Magnússon Ólafur Sigmundsson Þóra Hjaltadóttir Jónas Karlesson Jóhannes Sigvaldason Áslaug Magnúsdóttir Hallgrímur Skaptason Snjólaug Aðalsteinsdóttir Magnús Orri Haraldsson Sigfríður Þorsteinsdóttir Sólveig Gunnarsdóttir Jón Sigurðsson Gísli Konráðsson Stefán Reykjalín Valur Amþórsson D-listi Sjálfstæðisflokksins Gunnar Ragnars Sigurður J. Sigurðsson Bergljót Rafnar Björn Jósef Amviðarson Tómas Gunnarsson Guðfmna Thorlacius Jón Kr. Sólnes Eiríkur Sveinsson Björg Þórðardóttir „Flokkur mannsins leggur fyrst og fremst áherslu á launamál; að lág- markslaun verði hækkuð í 30 þúsund krónur og að fólk geti lifað af 40 stunda vinnuviku. Það er mannrétt- indamál. Ef við náum áhrifum munum við hækka laun bæjarstarfsmanna Akureyrarbæjar þannig að lágmarks- launin verði 30 þúsund. Eins munum við koma því til leiðar að þau fyrir- tæki, sem borga starfsfólki sínu þessi lágmarkslaun, hafi forgang um við- skipti við bæinn,“ sagði Melkorka Edda Freysteinsdóttir, efsti maður M-listans, lista Flokks mannsins á Akureyri. „Þá leggjum við ekki síður áherslu á atvinnumálin en þau em jú tengd launamálunum. Staðan nú á Akureyri er þannig að fólk flýr Akureyri vegna lágra launa og ládeyðu í atvinnulífinu hér. Þessari þróun verður að snúa við. Við leggjum til að atvinnumálanefhd bæjarins geri könnun á framleiðni fyr- irtækjanna í bænum með það í huga að fundnar verði leiðir og kappkostað að auka framleiðnina og hagræðing- una í fyrirtækjunum. Þá viljum við í Flokki mannsins inn- leiða það að heimilisstörf verði metin að verðleikum, að fólk eigi kost á að vera heima með bömunum sínum, hluta úr degi fyrst um sinn, og fái greitt fyrir sem samsvarar kostnaði bæjarins af dagvistunum fyrir bam. Bárður Halldórsson Þorbjörg Snorradóttir Gunnlaugur Búi Sveinsson Nanna Þórsdóttir Júlíus Snorrason Árni Stefánsson Hólmgeir Valdemarsson Sigríður Valdimarsdóttir Davíð Stefánsson Ingi Þór Jóhannsson Sverrir Leósson Margrét Kristinsdóttir Jón G. Sólnes G-listi Alþýðubandalagsins Sigríður Stefánsdóttir Heimir Ingimarsson Sigrún Sveinbjörnsdóttir Þröstur Ásmundsson Yngvi Kjartansson Guðlaug Hermannsdóttir Kristín Hjálmarsdóttir Páll Hlöðversson Ingibjörg Jónasdóttir ltögnvaldur Ólafsson Hilmir Helgason' Karen S. Kristjánsdóttir Kristján Hannesson Hugrún Sigmundsdóttir Gunnar Halldórsson Hrefna Helgadóttir Melkorka Edda Freysteinsdóttir, efsti maður M-iistans, Flokks mannsins á Akureyri. DV-mynd JGH Ennfremur viljum við að skólamál, umhverfismál og málefni aldraðra séu í góðu horfi. Jóhannes Jósepsson Helga Frímannsdóttir Torfi Sigtryggsson Anna Hermannsdóttir Hulda Jóhannesdóttir Einar Kristjánsson M-listi Flokks mannsins Melkorka Freysteinsdóttir Ragnheiður Sigurðardóttir Ingimar Harðarson Magnús Bragason Jóhann Eiríksson Þorbjörg Þorbjömsdóttir i Ásdís Bragadóttir Laufey Sigurpálsdóttir Trausti Valdimarsson Þómnn Óttarsdóttir Herdís Maríanne Guðjónsdóttir | Þorvaldur Þórisson Inga Magnúsdóttir Vala Valdimarsdóttir Anna Guðnadóttir i Sigurður Ólason Kristín G. Helgadóttir Hjördís Björk Þorsteinsdóttir Anna Gunnarsdóttir Ragnheiður Ragnarsdóttir Ama K. Heiðarsdóttir Líney Kristinsdóttir Að lokum þetta: Flokkur mannsins sker sig frá hinum flokkunum að því leyti að við viljum að manneskjan sjálf sé í fyrirrúmi, við hugsum um vellíðan fólksins. Við höfúm engin tengsl við hagsmunaaðila í viðskiptalífinu sem kippa í spotta og stýra í raun ferðinni eins og við höfum dæmi um hjá liinum flokkunum," sagði Melkorka Edda Freysteinsdóttir hjá Flokki mannsins. -JGH Urslit síðast Urslit í kosningunum á Akureyri vorið 1982 urðu þessi: A 643 atkv. og 1 maður B 1640 atkv. og 3 menn D 2261 atkv. og 4 menn G 855 atkv. og 1 maður V 1136 atkv. og 2 menn B, G og V (Kvennaframboð) mynduðu meirihluta.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.