Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1986, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1986, Blaðsíða 36
Frjálst,óháö dagblað FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1986. Hafskipsmálið: Upphæðirnar *• skiptatugum milljóna kr. „Rannsókninni miðar vel áfram og málin eru óðum að skýrast. Unnið er af fullum krafti við yfir- heyrslur og gagnaöflun," sagði Hallvarður Einvarðsson, rann- sóknarlögregiustjóri ríkisins. í samtali við DV er við spurðum hann um Hafskipsmálið. I ,jóst. er að upphæðirnar sem um er að ræða í þessu máli skipta tug- lun milljóna króna. Hallvarður vildi ekki nefna neinar tölur í j)essu sambandi en sagði: „Það eru vissulega stórar tölur í þessu *■ -“ dæmi.“ Aðspurður vildi Hallvarður ekki greina nánar frá því hvaða greinar )>að væru innan refsilöggjafarinn- ar sem gæsluvarðhaldsföngunum er gefið að sök að hafa brotið. „Að rannsókn okkar lokinni rnunum við senda málið til ríkis- saksóknara sem heimfærír svo málið til jjeirra lagaákvæða sem við eiga." -FRI „ Fimm kærðu til Hæstaréttar Fimm jjeirra manna sem nú sitja í gæsluvarðhaldi vegna Hafskips- málsins kærðu gæsluvarðhaldsúr- skurðinn til Hæstaréttar. Mál þeirra verður þar tekið til umfjöll- unar eftir helgina, um leið og gögn þess berast réttinum en síðan hefur Hæstiréttur þríggja sólarhringa frest til að kveða upp sinn úrskurð. Sá sem ekki hefur kært gæslu- varðhaldsúrskurðinn er Sigurþór Guðmundsson en hann hlaut styst gæsluvarðhald þeirra sexmenning- anna. Sjötti maðurinn sem handtaka átti er væntanlegur til landsins í dag og mun RER )>á hafa tal af honum en ekki hefúr verið tekin ákvörðun um hvort gæsluvarð- halds verður einnig krafist yfir honum. -FRI LOKI Verður upphafshöggið þá tekið úr Sundahöfn? Stjómmálafundur DV í Háskólabíói á mánudaginn: Allir ræðumenn listanna valdir Allir stjómmálaflokkar sem bjóða fram til borgarstjómar í Reykjavík, að Sjálfstæðisflokki frátöldum, hafa ákveðið hvaða ræðumenn verða sendir á stjómmálafund DV sem haldinn verður i Háskólabíói næst- komandi mánudag. Fyrir Framsóknarflokk mætir Sigrún Magnúsdóttir, fyrir Alþýðu- flokk Bryndís Schram, fyrir Al- þýðubandalag Össur Skarphéðins- son, fyrir Kvennalista Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og fyrir Flokk mannsins Áshildur Jónsdóttir. Sjálfstæðisflokkurinn hefur sem kunnugt er hafriað boði um þátttöku í stjómmálafundi DV vegna þess að kosningastjóm flokksins telur óréttlátt að Sjálfstæðisflokkurinn fái ekki meiri tíma til umráða en hver hinna flokkanna, „...og gefa minni- hlutaflokkunum 5 sinnum lengri tíma til að ráðast á Sjálfstæðisflokk- inn en hann hefur til að færa fram sína stefnu", eins og segir orðrétt í bréfi kosningastjómarinnar til rit- stjóra DV. DV-fundurinn hefst í Háskólabíói klukkan 20 næstkomandi mánu- dagskvöld með leik Lúðrasveitar Reykjavíkur og hefjast framsögu- ræður hálftíma síðar. Dregið verður um röð ræðumanna og fá fulltrúar framboðslistanna 10 mínútur til umráða hver. Að því loknu gefst fundargestum tækifæri til að varpa fram fyrirspumum til framsögu- manna. Fundarstjóri á stjómmálafundi DV 26. maí verður Magnús Bjam- freðsson. -EIR Fréttamennska er ekki hið eina sem Sonja B. Jónsdóttir getur lagt fyrir sig. Það urðu gestir Hrafnsins áþreifanlega varir við í gærkvöldi er sjónvarpsfréttakon- an tók lagið með kvartett Friðriks Theódórssonar. DV-mynd GVA. Veðrið á morgun: Sunnan- menn sólar- megin Enn blæs norðaustanáttin um allt land. Fyrir norðan og vestan verður rigning og kaldi, hiti á bilinu 3-5 stig. Betra veður verður sunnanlands, léttskýjað og sæmilega hlýtt yfir daginn. Hiti verður 10-13 stig. Sérstakur kvennalisti: „Við erum bara við“ í Norðfiarðarhreppi innan við Neskaupstað eru tveir listar í framboði, annar skipaður konum og körlum en hinn aðeins konum. Það sem vekur athygli er að þessi kvennalisti er ekki í neinum tengslum við sjálfan Kvennalist- ann. „Við erum bara við,“ sagði Stein- imn Steinþórsdóttir, efsta konan á kvennalistanum, sem reyndar heitir Listi umbótasinna. Þessi listi bauð friun í síðustu kosningum og var þá skipaður bæði konum og körlum. „Þegar við fórum að kanna mál- ið núna komumst við að þeirri niðurstöðu að með því að hafa ein- ungis konur á lista ættum við mun meiri fylgi en ella. Þetta kemur m.a. til af því að nokkuð er um bæjarríg hér. Hann beinist aðal- lega gegn körlum og þess vegna þótti okkur ekki ráðlegt að hafa karla á listanum,“ sagði Steinunn. Listi Steinunnar hefur setið í minnihluta þetta kjörtímabil og hinn listinn er boðinn fram af meirihlutanum. -APH Golfvöllur í Viðey? Meðal sjálfstæðismanna i borg- arstjórn eru uppi hugmyndir um golfvöll í Viðey. Mikil aukning er sögð vera í íþróttagreininni og þar með þörf fyrir nýjan völl og meðal annarra hugmynda er golfvöllur í landi Reykjavíkurborgar upp með Korpu eða í Korpúlfsstaðalandi. Núverandi aðstaða golfrnanna við Korpúlfsstaði er aðeins til bráða- birgða. „Golfvöllurinn í Viðey er ein- ungis hugmynd, engar ákvarðanir hafa verið teknar," sagði Júlíus Hafstein, formaður íþróttaráðs, í samtali við DV. -EIR Sex ára drengur fyrirbíl Sex ára drengur var fyrir bifreið á Selásbraut í Reykjavik í gær kl. 20,28. Drengurinn var að koma út úr strætisvagni ásamt móður sinni. Hann hljóp þvert yfir götuna og í veg fyrir bifreið. Drengurinn liggur á gjörgæsludeild, meiddur á höfði og fótum. -SOS Ologlegt að boða yfirvinnu- bannið Yfirvinnubanni háseta í Sjó- mannafélagi Reykjavíkur lauk í gær eftir að Félagsdómur haföi úrskurðað að það væri ólöglegt. Dómurinn taldi m.a. að boðað yfirvinnubann bryti í bága við kjarasamninga Sjómannafélagsins og einnig bráðabirgðalögin sem sett voru til að stöðva verkfallsað- gerðir sjómanna a kaupskipaflot- anum. -APH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.