Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1986, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1986, Blaðsíða 10
10 DV. FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1986. Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál DV spyr á Akureyri: Hverju viltu spá um úrslit bæjarstjórnarkosninganna á Akureyri? Einar Björnsson: Framsókn fær 3 eins og síðast og það sama er að segja um Sjálfstæðsflokkinn, hann fær 4 aftur. Nú, G og A fá fúlltrúa Kvenna- framboðsins. Þá hef ég ekki trú á að Flokkur mannsins fái mikið. jC Jónas Skagfjörð: Alþýðubandalagið, G-listinn, vinnur mjög á og bætir við sig tveimur ef ekki þremur mönnum. Menn spá því jafnvel að hann leggi bæinn undir sig. Þá reikna ég með að D-listinn tapi einum manni og Framsókn og Alþýðuflokkur standi í stað. Sigríður Traustadóttir: Ég spái G- listanum, Alþýðubandalaginu, auknufylgi. Hann gæti fengið 3 menn. Ég ímynda mér að hann taki af Framsókn og fái megnið af fylgi Kvennaframboðsins. Þá tel ég mjög tæpt á því að D-listi haldi sinum fjórða manni. Óðinn Geirsson: Ég vona að D-listinn auki við sig. Ég spái því að Framsókn missi einn mann og hann fari til sjálf- stæðismanna. Þá held ég að G og A hirði sinn manninn hvor frá Kvenna- framboðinu sem ekki býður nú fram. Bjarni Bjarnason: Ég segi að sjálf- stæðismenn, D-listinn, fái hreinan meirihluta og nái 6 mönnum inn. Þeir hirða allt fylgi Kvennafram- boðsins, enda er fólk orðið þreytt á þessu vinstra rugli og atvinnuleysi hér. Katrín Steinsdóttir: D-listinn fær 6 menn og hreinan meirihluta. Ég held nefnilega að Akureyringar taki sömu stefnu og Reykvíkingar, þessa tvo viðbótarmenn fær D frá Framsókn og Kvennaframboðinu. Hinn maður Kvennaframboðsins fer til G. Akureyri er Akureyri Ferðamönnum finnst það alltaf sér- stök tilfinning að koma til Akureyrar. Bærinn hefur ákveðinn ævintýrablæ yfir sér, hann er fallegur, nánast allar götur eru malbikaðar, kirkjuna þekkja allir og þá ekki síður kirkjutröppum- ar, þessar sem allar telja þrepin í. Þá má ekki gleyma Sjallanum. Það kemur enginn til Akureyrar án þess að fara í Sjallann. Enda er það svo að skreppi sunnanmaður um helgi til Akureyrar er hann ævinlega spurður um það hvernig hafi verið í Sjallanum þegar hann kemur til baka. Ibúar á Akureyri eru nú tæp 14.000 og um 9.500 eru á kjörskrá. Bærinn er tvímælalaust höfuðstaður Norður- lands. Það hljómar kannski undarlega en helmingur Akureyringa hefúr flust til bæjarins á síðustu 10-15 árum. A hverju ári flytja um 500 í bæinn og um 500 í burtu. Akureyri hafði danskt yfirbragð fram að seinni heimsstyrjöld, enda bjuggu í bænum lengi vel danskir kaupmenn og iðnaðarmenn. Það er sérstaklega Innbærinn Á Akureyri sem er „danskur", það er leiðin frá flugvellinum inn í miðbæinn. Atvinnulífið á Akureyri er nokkuð fjölbreytt, miðað við aðra bæi úti á landsbyggðinni. Iðnaður hefúr ætíð verið nokkuð traustur, fyrirtækin í sjávarútveginum eru sterk og úr- vinnsla landbúnaðarafurða er í blóma. Sambandsverksmiðjumar eru stærsti vinnustaður landsins og KEA stærsta kaupfélag landsins. í komandi kosningabaráttu ber at- vinnulífið mest á góma. Mörgum finnst það hafa verið í ládeyðu síðustu ár og Akureyringar sjálfir tala um að Akureyri sé orðin láglaunasvæði. Þá er það líka spuming hvert atkvæði Kvennaframboðsins fara þar sem kon- umar ætla ekki að bjóða fram sér þann 31. maí. -JGH Það er alltaf sérstök tilfinning að koma til Akureyrar. ingin þar er hvert atkvæði Kvennaframboðsins fara. komandi kosningabaráttu ber atvinnulífið þar hæst og spum- Gunnar Ragnars, efsti maður D-listans á Akureyri. D-listinn: Bærinn þarf nýja og sterka foiystu „Við sjálfstæðismenn leggjum á það áherslu að rífa atvinnumálin í bænum upp úr þeirri stöðnun sem þau óneit- anlega em í. Akureyringar þurfa nýja forystu - ný viðhorf í bæjarmálum. Það þarf að hverfa frá þeim viðhorfum sem verið hafa við lýði síðastliðin 12 ár undir forystu Framsóknarflokksins. Og með núverandi meirihluta hefur bærinn í reynd verið foiystulaus vegna ósamstöðu og ósamkomulags," sagði Gunnar Ragnars, efsti maður D-list- ans, lista Sjálfstæðisflokksins á- Akureyri. „Við leggjum á það megináherslu að hér á Akureyri og við Eýafjörð verði enn sterkari byggðarkjami og að hér verði aðalmótvægið við þétt- býlið í Reykjavík. Það gerum við með því að bæta atvinnulífið. Gera þarf átak í orkumálum og við viljum hefja nýja sókn í sjávarútvegi. Tvö skip bætast við flota Akureyringa í haust og við ætlum að freista þess að nýr togari komi til ÚA í stað Sól- baks. Þá er brýnt að ráðast í byggingu fiskihafnar en það skapar sterkar líkur á að hingað laðist fyrirtæki í sjávarút- vegi. Efla þarf Akureyri sem ferða- mannabæ og þá viljum við að landbúnaður í Eyjafirði njóti forgangs vegna sérstakra landgæða. Við munum taka á málum hitaveit- unnar. Stefna okkar þar er skýr: Við stefnum að þvi að hitaveitukostnaður verði lægri í lok kjörtímabilsins en í upphafi þess. I skólamálum þarf að hraða upp- byggingu Verkmenntaskólans; hann hefur gífurlega þýðingu fyrir atvinnu- lífið. Við fögnum kennslu á háskóla- stigi í bænum og munum vinna enn frekar að því að festa hana í sessi,“ sagði Gunnar Ragnars, efsti maður D-listans. -JGH A-listinn: Leggjum fram harða atvinnumálastefnu „Umfram allt viljum við alþýðu- flokksmenn að hafin verði kröftug framkvæmdastefna á vegum Akur- eyrarbæjar. Við lítum svo á að menn séu í bæjarstjóm til að framkvæma hlutina - en ekki bara að segjast ætla að framkvæma þá, eins og svo.áber- andi hefur verið hjá meirihlutanum, Framsókn, Alþýðubandalagi og Kvennafrámboðinu, allt síðasta kjör- tímabil. Akureyrarbær hefur verið í lægð og meirihlutinn gerði ekki það sem hann gat til að bæta ástandið," sagði Freyr Ófeigsson, efsti maður A-listans, lista Alþýðuflokksins á Ak- ureyri. „Við alþýðuflokksmenn setjum fram mjög harða atvinnumálastefnu fyrir þessar kosningar og í henni felst að við erum fyrirfram ekki á móti neinum atvinnufn^guleikum, þar á meðal stór- iðju. Við viljum styðja eftir mætti við bakið á þeim fyrirtækjum sem fyrir eru í bænum, samhliða því að stuðla að stofnun nýrra, með beinni þátttöku bæjarins ef þurfa þykir. Ennfremur horfum við björtum aug- um á Akureyri sem verslunar- og ferðamannabæ og lítum svo á að bæj- arstjómin eigi að gera sitt til að stuðla að því. Va.'ðandi skipulagsmálin viljum við að framkvæmd skipulagsins á mið- bænum verði haldið áfram en núver- andi meirihluti stöðvaði framkvæmdir á því. Skipuleggja þarf Oddeyrina og hefja framkvæmdir. Þá viljum við ljúka endurskoðun aðalskipulags þar sem gert yrði ráð fyrir byggð á Suður- brekkunni. í félagsmálum er brýnt að halda áfram að efla heimilisþjónustuna og uppbyggingu aðstöðu fyrir aldraða. Við viljum að bærinn komi myndar- lega inn í byggingu íbúða sem félag aldraðra hyggst reisa á Brekkunni," sagði Freyr Ófeigsson, efsti maður A-listans á Akureyri. -JGH Freyr Ófeigsson, efsti maður A-listans á Akureyri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.