Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1986, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1986, Blaðsíða 19
DV. FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1986. 31 Iþróttir Iþróttir íþróttir p * „ Eg er ekkert að leggja árar í bát“ - segir Teitur Þórðarson. Loks vann Öster Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, frétta- manni DV í Sviþjóð. „Það var gott að fá þessi stig,“ sagði Teitur Þórðarson, þegar Öster vann sinn fyrsta sigur í Allsvenskan á keppnistímabilinu í gær. Sigraði þá Kalmar FF á heimavelli sínum í Váx- jö, 1-0. Við sigurinn komst Öster úr næst neðsta sætinu í það áttunda. Hefur fimm stig eftir sex umferðir. 12 lið í Allsvenskan. „Nei, ég er ekkert að leggja árar í bát en ég mun ekki leika með Öster að minnsta kosti næstu þijár vikurn- ar, svo þetta er talsvert langur stans hjá mér vegna meiðslanna. Þetta hef- ur ekki gengið vel hjá okkur á keppnis- timabilinu og ástæðan til þess er að nokkuð hefur verið um meiðsli auk veikinda,“ sagði Teitur eftir að hafa horft á félaga sína sigra. Eins og skýrt hefur verið frá hér í DV slasaðist Teit- ur þegar hann fór með nokkra fingur í vélsög fyrir hálfum mánuði. Hann heldur öllum fingrunum en vísifingur fór í sundur. Fingurinn hefur verið „negldur" saman. Teitur má ekki æfa með félögum sínum hvað þá leika þvi hann má ekki fá högg á fingurinn. Heil umferð var í Allsvenskan í gær- kvöldi. AIK sigraði Djurgárden, 3-2, í innbyrðisviðureign Stokkhóbnslið- anna. Sigurmark AIK var skorað á síðustu sekúndum leiksins. Brage og Örgryte gerðu jafntefli, 1-1, IFK Gautaborg sigraði Halmstad og fékk Eggert Guðmundsson á sig fiögur mörk. Úrslit 4-0. Halmstad er með fimm stig eins og Öster. Malmö FF vann Hammarby 5-0 og Norrköping vann Elfsborg 4-0. Tvö lið virðast í sérflokki í Allsvenskan. IFK Gauta- borg, sem er með 11 stig eftir 6 umferðir. Aðeins gert eitt jafntefli og Malmö FF, sem er með níu stig. hsím Amór skoraði tvívegis og svo í loftið í landsleikina - hefur enn ekki samið við Anderiecht Frá Kristjáni Bernhurg, fréttamanni DV í Belgíu. Ég horfði á Arnór Guðjo- hnsen leika með Anderlecht í síðari bikarleiknum við Waterschei í Brussel í gærkvöldi. Anderlecht, beigisku meistararnir, sigraði 6-1 og Amór lék að mínu mati hreint frábærlega vel. Skoraði tvö af mörkum liðsins á glæsi- legan hátt og fór svo beint í loftið ef svo má segja í Iandsleikina á Reykja- víkurleikunum. Er kominn til Islands, þegar þetta er lesið, og verður greini- lega í góðu formi í leikjunum á Laugardalsvelli. Amór átti viðræður í gær við for- ráðamenn Anderlecht um nýjan samning en ekki tókust samningar. Arnór er að vonast til að hann nái samningi við félagið til eins árs - for- ráðamenn Anderlecht vilja heldur semja til tveggja ára. Strax eftir leik- inn við Tékka á Laugardalsvelli á fimmtudag fer Amór aftur til Belgíu. Mun hann ræða við forráðamenn Anderlecht strax og harrn kemur aftrn- til Brussel á fóstudag. Eftir leikinn í gær sagði hann við mig að hann von- aðist til að þá vrði samið. Nokkuð bjartsýnn á það. Ragnar Margeirsson lék ekki með Waterschei í gær í Briissel. Er farinn heim til íslands til að undirbúa bnið- kaup sitt. -hsím „Þetta verður erfiður því íslandi hefur farið - sagði Jackie Charlton, þjálfari írska liðsins, við komuna „Þetta er nú í þriðja eða fiórða skip- tið sem ég kem til Islands svo að ég þekki orðið sæmilega til hér,“ sagði Frank Stapleton þegar hann var spurður að því hvemig honum litist á landið. „Þetta verða athyglisverðir leikir fyrir okkur. Við erum að undir- búa liðið fyrir verkefni framtíðarinnar svo þetta verða mikilvægir leikir fyrir leikmenn ef þeir ætla að festa sig í liðinu.“ Verður þú áfram hjá Manchester United? „Það em viðræður í gangi um nýj- ann samning milli mín og forráða- manna United. Það er erfitt að segja hvernig þær fara en ég á þó frekar von á því að vera áfram hjá liðinu," sagði Stapleton. Þegar Stapleton var spurð- ur að þvi hvort hann og Liam Brady væm á leiðinni til Arsenal brosti hann í kampinn. „Þó vissulega væri gaman að spila með Brady á ný þá er okkar ferill auðvitað alveg aðskilinn núna. Hvort hann fer til Arsenal eða ekki skiptir ekki höfuðmáli fyrir mig.“ Hvernig líst þér á landsleikina sem eru núna framundan? „Ég spilaði við Island í Evrópu- keppninni 1983 og ég veit að þetta verður erfiður leikur. Nú, og svo em Tékkarnir auðvitað alltaf erfiðir við- ureignar. Ég kannast auðvitað við nokkra leikmenn í íslenska liðinu, t.d. Sigurð Jónsson sem spilar í Englandi. Þið emð með nýjan þjálfara eins og við og sjálfsagt ætla allir leikmenn liðsins að hafa áhrif á hann. Það má því búast við mikilli baráttu," sagði Stapleton sem leikur sinn 50 landsleik á móti Islandi á sunnudaginn. „Tímabilið endaði hroðalega fyrir okkur“ „Þetta er í annað sinn sem ég kem hingað til lands og ég get ekki sagt annað en að ég hafi gaman af þvi að koma hingað," sagði vamarmaðurinn sterki, Paul McGrath, hjá Man. Utd. „Jú, auðvitað er ekki hægt að segja annað enn að tímabilið hafi endað hroðalega hjá okkur. Það er grátlegt að missa af öllum verðlaunum. sér- staklega eftir þessa frábæru byrjun." Hvað ftnnst þér um endurnýjun samningsins við Atkinson? „Það er engan veginn hægt að kenna honum mn hvernig fór. Það erum al- veg eins við leikmennirnir sem bmgðumst. Einnig vonun við óheppn- ir með meiðsli lykilmanna. Svona er nú einu sinni knattspvman. Það þýðir ekkert að vera að hugsa um þetta. Það em erfiðir landsleikir framundan og það verður að einbeita sér að þeim. Jackie Cbarlton hefur brýnt fyrir okk- ur mikilvægi þeirra og við tökum þesa leiki mjög alvarlega." sagði McGratb í gærkvöldi sem er ein af traustustu vamarmönn- um ensku knattspymunnar. Brady kemur ekki Nei. Liam Brady komst því miðúr ekki með. Hann var að leika í ítalska bikamum í gærkvöldi með Inter Mílanó og meiddist þar. Hann komst þess vegna ekki með okkur í þessa ferð." sagði Jackie Charlton. þjálfari írska liðsins. Hann heftu’ nýlega tekið \áð liðinu og ætlar sér stóra hluti með það. írska liðið ætti líka að geta náð langt. nóg er af stjömunum í þvi. „Þetta verða þýðingarmiklir leikir fyTÍr öll þrjú liðin. Ég er að þreifa mig áfram með leikmenn og ég tel þetta mikilvæga leiki fyrir þátttöku okkai- í Evrópukeppninni i haust. Ég hef séð til íslenska liðsins og ég veit að þvi heftu- farið mikið fram. Það verðm- því að taka ísland alvarlega sem mótheija og það numimi við gera." sagði Jackie Charlton. landsliðsþjálfari íra. -SMJ „Munum ekki spila vamaiieik“ - segir Sigfried Held „Við spilum gegn góðum þjóðum svo við verðum að hugsa um varnarleik- inn. Ég mun þó ekki leggja upp neina sérstaka varnarleiksaðferð. Við spil- um einfaldlega eins og leikurinn þróast,“ sagði Sigfried Held landsbðs- þjálfari en hann og landsliðsnefnd hafa valið eftirtalda leikmenn í leikina gegn írlandi og Tékkóslóvakíu 25. og 29. maí nk. Tölurnar aftast gefa til kynna fyrri landsleiki. Markverðir: Miðjumenn: Bjarni Sigurðsson, Brann, 11 Pétur Ormslev, Fram, 22 Friðrik Friðriksson, Fram, 4 Arnór Guðjohnsen, Anderlecht, 18 Þorsteinn Bjarnason, ÍBK, 28 Sigurður Jónsson, Sheff. Wedn., 6 Varnarmenn: Ómar Torfason, FC Luzern, 20 Viðar Þorkelsson, Fram, 3 Guðmundur Þorbjörnsson, Baden Loftur Ólafsson, KR, 3 Gunnar Gíslason, KR, 20 Framlínumenn: Ólafur Þórðarson, IA, 5 Pétur Pétursson, Hercules, 26 Ágúst Már Jónsson, KR, 3 Sigurður Grétarsson, FC Luzern Guðni Bergsson, Val, 6 Ragnar Margeirsson, Waterschei Guðmundur Steinsson, Fram Halldór Áskelsson, Þór A. „Þetta er stuttur tími sem við fáum en við verðum þá bara að nýta hann vel. Ég fæ hópinn saman í kvöld þegar leikjunum í 1. deild lýkur. Auðvitað þarfnast maður alltaf meiri tíma en hægt er að fá,“ sagði Sigfried Held sem hefur ekki nema einn dag til að undir- búa landsliðshópinn fyrir leikinn gegn írum. -SMJ • Michel Platini. Spá Platini - markakóngstitlinum á HM ítalska íþróttablaðið mikla La Gaz- zetta dello Sport bað markakóugana á síðustu níu heimsmeistaramótum í knattspymu að spá hver yrði marka- kóngur á HM i Mexíkó, sem hefst annan laugardag. Michel Platini, Frakklandi, og Rudi Völler, Vestur- Þýskalandi, hlutu flest atkvæði, vom jafnir. Tveir spámannanna, Gerd Muller, V-Þýskalandi, og Gregorz Lato, PóUandi, vom með danska mið- heijann Preben Elkjær Larsen í öðm sæti. hsim i)- X* -viymoia MMÉÉnNiiVtc. • Rudi VöUer. Ársþing HSÍ hefst í dag Arsþing Handknattleikssambands íslands hefst i dag kl. 18 með þingsetn- ingu. Það verður haldið á Hótel Esju. Búast má við fiörugu þingi eftir eitt- hvert glæsilegasta ár i sögu íslensks handknattleiks. Á laugardag verður þinginu framhaldið og hefst þá kl. 10. Lýkur siðai-i hluta laugardags. Meðal aimars vei-ður fiallað um fiölgun Uða í 1. deild á ársþinginu. Frestað vegna landsleikja Vegna Reykjavíkiirleikanna. sem hefiast á sunnudag með leik íslands og írlands á Laugardalsvelli, er nú ljóst að fresta verður leikjum i 1. deild sem áttu að vera á moi-gun, laugardag- inn 24. maí. Þá áttu Þór og IBV að keppa á Akureyri og Breiðablik og Fram í Kópavogi. Leikir þessir hafa verið færðir til þriðjudagsins 10. júní kl. 20.00. Leikur UMFN og Selfoss í 2. deild, sem átti að vera í Njarðvík í gær- kvöldi, verður háður á rnorgun kl. 15.00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.