Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1986, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1986, Blaðsíða 30
42 DV. FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1986. MIKE OLDFIELD & JON ANDERSON - SHINE (VIRG- IN) Mike Oldfíeld leikur hér og syngur við hvern sinn fingur, hefur greinilega verið í góðu skapi þegar hann samdi þetta lag. Og söngur Jons.Anderson fell- ur að þessu einsog flís við rass. AÐRAR AGÆTAR MR. MISTER - IS IT LOVE (RCA) Ekki eins gott lag og Brok- en Wings og Kyrie enda ekki hægt að ætlast til að allt sé í toppklassa. Engu að síður ágætis rokklag, sem getur tekið sér bólfestu í höfðinu á manni um stundarsakir. SHALAMAR - A NIGHT TO REMEMBER (MCA) Gamalt vín á nýjum belgj- um, lagið frá 1982 en blandan ný. Lagið jafngott fyrir það, léttur danstaktur og fjölbreyttur söngur. Smellur aftur? Af hverju ekki? LICK THE TINS - CANT'T HELP FALLING IN LOVE (SEDITION) Það er ég viss um að Prest- ley gamli hefur snúið sér við í gröfinni þegar þetta kom út, gamla lagið hans í þjóðlagastíl! En hann getur legið rólegur því þetta er bara skrambi skemmtileg útsetning. NICK HAYWARD - OVER THE WEEKEND (ARISTA) Þessi strákur hefur sannað það fyrir löngu að hann getur gert góða hluti, það er kraftur í honum og þetta lag gæti allt eins náð langt, laglínan er einföld og gríp- andi og það má dansa eftir þessu með glans. TVÆR MIÐUR GODAR PATTILABELLE & MICHAEL MCDONALD - ON MY OWN (MCA) Þetta lag zzzzzsnork.. .er dáldið væmið og zzzzz ekki laust við að zzzzzzsnork... mann syfji þegar maður zzzzzz hlustar á það. Hvað er Michael McDonald að syngja svona jukk? SPITTING IMAGE - THE CHICKEN SONG (CENTRAL) Afsakið meðan ég æli, þetta er ljóta hörmungin, verra en fuglasöngurinn og Agadoo til samans. Hvers konar tónlistarsmekk hafa Bretar eiginlega orðið? Væri ég Breti myndi ég skammast mín. Oj bara. -SþS- ■HKHHHI HIPSWAY - HIPSWAY Áhrif úr of mörgum áttum Sveit þessi telst til nýliðadeildarinn- ar bresku hvar nokkur gróska hefur ríkt að undanfómu. Þetta er fyrsta breiðskífa fjórmenninganna. Tónlistarstefna Hipsway er í stuttu máli stefnuleysi. í þessari frumraun þeirra ægir mörgu saman og við nána hlustun koma ótal áhrifavaldar upp í hugann. Það er athyglisverðast að tónlist Hipsway skuli sverja sig einna mest í ætt við tónlist annarra nýliða. Hér á ég við Simply red. í rauninni má segja að tvær plötuhliðar séu á málinu. Annars vegar em fönkáhrif mjög áberandi á hlið 1 og hins vegar er hlið 2 a la Simply red. Dálítið ótrú- leg flokkun en svona er þetta nú samt. Platan hefst á laginu Honeythief sem var fyrsta lag sveitarinnar á smáskífú. Kitlandi gítarleikur Pim Jones og góð- ur söngur Grahame Skinner em aðall þessa ágæta lags. Enginn furða þó það vekti allra fyrstu athygli á sveitinni. En þessari athyglisverðu byijun er ekki fylgt eftir. Af níu lögum á plöt- unni em fjögur sem standast gæðaeft- irlit. I þeim ollum er einfaldleikinn í fyrirrúmi. Bassi, trommur, gítar og söngur að viðbættu píanói og einstaka hljómborði. Hispursleysið hæfir Hips- way greinilega best. Strengjum, blást- urshljóðfærum og soulsöngkonum er algerlega ofaukið. Það sem háir fjórmenningunum í Hipsway mest af öllu er áhrifagimi. Hljóðfæraleikur er góður, söngurinn er góður, lögin em mörg hver góð, En sem frumraun er platan ekki nægi- lega afgerandi. Hipsway sker sig á engan hátt úr og verður auðveldlega mglað saman við aðra. Hvað úr Hipsway verður veit því enginn. Vandi er um slíkt að spá. Alla- vega er ástæðulaust að þylja bölbænir að svo komnu máli. Lög eins og Ho- neythief, Ask the lord, Bad thing longing og Broken years sýna að Hips- way er ekki alls vamað. Fjórmenning- unum kæmi hins vegar best að fara sínar eigin leiðir. Það er margsannað. -ÞJV TALK TALK - THE COLOUR OF SPRING Ekkert léttmeti á þessum bæ Þeir em ekki á léttu nótunum þre- menningamir sem skipa bresku hljómsveitina Talk Talk. Tónlist þeirra, sem öll er frekar róleg, er samt sem áður flókin og þarnast því tals- verðrar hlustunar. Ekki er laust við að á köflum sé hún einnig drungaleg. The Colour Of Spring er þriðja plata Talk Talk. Áður hafa komið The Party’s Over sem kom út 1982 og It’s My Life er kom út 1984. Yfirleitt hefur tónlist Talk Talk fengið góðar viðtökur og em þeir virt- ir af flestum sem vilja leggja sig niður við að hlusta á vandaða popptónlist. Nýja platan þeirra, The Colour Of Spring, er einmitt gott dæmi um vand- aða tónlist þar sem talsverður metnað- ur býr að baki, þótt platan sé í heild nokkuð þung og of róleg til að þola þær 48 mínútur sem tekur að spila hana. Lögin em átta á plötunni, flest góð lagasmíð, og em vel þess virði að hlusta á. Lögin em öll samin af söngvara Talk Talk, Mark Hollis, og Tim Friese-Greene sem jafnframt er upp- tökustjóri. Það sem má kannski finna að lögunum er að þau em nokkuð keimlík þegar til lengdar lætur, en góðar útsetningar ásamt góðum flutn- ingi bætir það upp. Nokkuð em þau misjöfn. Bestu lögin eins og Happiness Is Easy, April 5th. Living ln Another CULTURE CLUB - FROM LUXURY TO HEARTACHE Menningarieg deyfð Það hefúr oft verið ógæfa hljóm- sveita að byrja ferilinn með látum og vera hampað í bak og fyrir. Mörgum þeirra hljómsveita sem fyrir þessu verða reynist erfitt að halda dampi og í sumum tilfellum hefúr alltof gott start hreinlega riðið hljómsveitum að fúllu. Culture Club er ein af þessum hljóm- sveitum sem byijaði feikivel, bæði var World og Time It’s Time em lög og flutningur sem þeir í Talk Talk geta verið hreyknir af. Önnur em ekki eins vel heppnuð og eitt þeirra, Chameleon Day, þar sem Mark Hollis syngur með mjög takmörkuðu undirspili, er ein- göngu vitni þess að rödd hans er ekki nógu góð til að geta valdið slíku. í heild verður að telja tónlist Talk Talk nokkurs konar menningarrokk ef svo má orða það. Ekkert er nýtt. Má finna samlíkingu með nokkrum öðrum hljómsveitum sem spila van- daða tónlist. En það er óhætt að segja að manni líður vel við að hlusta á tónlist sem þessa eins og hún er borin fram á The Colour Spring. HK. tónlist hljómsveitarinnar í sviðsljós- inu gæðanna vegna og þá var for- söngvarinn Boy George ekki síður í sviðsljósinu, enda sérkennilegur kar- akter svo ekki sé meira sagt. Síðan þetta var hefur heldur hallað undan fæti hjá Culture Club, síðasta plata hljómsveitarinnar fékk frekar dræmar undirtektir og sú sem hér er til umfjöllunar gefur heldur ekki til- efni til hátíðahalda. Það sem einkenndi tónlist Culture Club í byrjun var skemmtileg blanda af soulpoppi, góðar melódíur og hressi- legur flutningur. En því miður virðist einsog komið sé eitthvert slen í mann- skapinn, hressleikinn er að mestu á brott og þreytan hefur tekið yfir- höndina. Þannig er yfirbragð þessarar plötu frekar þunglamalegt miðað við það sem áður var en inná milli bregður fjörinu fyrir einsog í lögunum Move Away, Work On Me Baby og Come Clean sem kemur skemmtilega á óvart fyrir kántríáhrifin. Ég efa það ekki að hæfileikamir eru til staðar í Culture Club og engin ástæða til að afskrifa hljómsveitina þrátt fyrir lakari frammistöðu en við var búist. Manni getur jú mistekist og það er bara að vona að Eyjólfur hressist, sem fyrst. -SÞS- SMÆLKI Sæl nú!.. .Heilagur Bob Gel- dof stendur i ströngu þessa dagana, ekki er nóg meö aó hann sé eins og útspýtt hundskinn út um allar jarðir að skipuleggja Afrikuhlaup og aðrar uppákomur tengd- ar Afrikusöfnuninni, heldur var hann lika að gefa út fyrsta hluta sjálfsævisögu sinnar - Is That It? - og auk- inheldur var hann ad skrifa undir samning um útgáfu á sóiópiötu síöar á árínu. Bo- omtown Rats eru alJs ekki úr sögunni þrátt fyrir þetta en tæpast hefur Bob tima til aö vinna með þeim næsta órió.. .Einsog viö sögöum frá á dögunum helur Roger Taylor trommari Duran Dur- an tekið sér f rí frá hljóm- sveitinni um stundarsakir og i kjölfar þess er nú mikif spámennska i gangi um að hljómsveitin sé aö sundrast endanlega. Sagt er aö Andy Taylor sé á förum og fari hann sé lítið púöur i þeim sem eftir eru. Umboðsskrif- stofa Duran manna hefur hvorki játað né neitaö sögu- sögnum um aö Andy Taylor sé hættur.. .Norska hljóm- sveitín A-Ha lenti i kröppum dansi á dögunum er hún var á leiö tif hinnar árlegu tón- listarhátíóar í Montreaux í Sviss. Flugvéiin sem flulti norsku guttana og fleiri far- þega frá París til Sviss varð fyrir eldingu og kastaöist óþyrmilega til við höggiö. Voru A-Ha menn aö sögn frekar fölir á vangann víð komuna til Montreaux... Ástralska hljómsveitin INXS lenti líka í svaðilförum í flug- vél fyrir skömmu, hún var á ferð inni áströlsku óbyggö- unum að gera myndband við nýjasta lagið sitt er litíl flug- vél með htjómsveitina innanborðs brunaði útaf flugbrautinni. Enginn slas- aóist en þaó var skjáifti í mönnum er þeir kiöngruðust útúr vélfnni. Þeir fengu hins vegar góöan tima tii að jafna sig á skjálftanum þvi þeir uróu aö bíöa i heilan dag á meðan gert var við flugvél- Jx' % v ína.. .Frankie Goes To Hollywood voru lika á Mon- treaux hátiðinni og skandai- iseruðu. Skandallinn byrjaói á sviöinu er hljómsveitin var að flytja nýtt lag - Warriors Of The Wasteland - og einn liðsmaðurínn fékk fiðring í tærnar og sparkaöi niður einni trommu og einsog hendi væri veifað voru allir Frankarnir farnir að sparka öllu umkollásviðinu. Skandallinn hélt svo áfram i veislu sem hljómsveitin Queen hélt um borð í snekkju og svo kórónuðu Frankarnir skandalínn meö að vera hent útaf hótelínu sem þeir bjuggu á og lá vist ekki inni þar það sem eftir erævínnar.. .sælað sinni... -SÞS-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.