Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1986, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1986, Blaðsíða 14
14 DV. FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1986. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaðurog útgáfustjórl: SVEINN R. EYJÖLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÖNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON Auglýsingastjórar: PÁLLSTEFÁNSSON og INGÖLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLT111, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF„ ÞVERHOLT111 Prentun: ÁRVAKU R H F. - Áskriftarverð á mánuði 450 kr. Verð í lausasölu virka daga 45 kr. - Helgarblað 50 kr. Samningarnir óhaggaðir Efnahagslegar forsendur kjarasamninganna standa óhaggaðar, þótt verðbólga hafí. í síðasta mánuði verið lítið eitt meiri en við var búizt og kaup hækki aðeins umfram áætlun. Það var rétt hjá atvinnurekendum að samþykkja viðbótarkauphækkun upp á hálft prósent til að halda friðinn. Þrír mánuðir eru frá því, að samning- arnir voru gerðir. Reynslan er góð til þessa. Fjölmargir spyrja, hvort samningarnir fái staðizt út árið og hvort ekki hefjist á ný verðbólgualda að þeim loknum. Vonir eru góðar enn, þótt margt geti gerzt, sem spilli þessum árangri. Laun munu hækka um ríflega þrjú prósent um næstu mánaðamót, í stað tveggja og hálfs prósents, sem samn- ingamenn gerðu ráð fyrir. Ástæðan er, að verðbólgan hefur hækkað um rúm þrjú prósent frá fyrsta janúar til fyrsta maí. Launanefnd Alþýðusambands og Vinnu- veitendasambands reiknar nú með, að verðbólgan verði í ár 8-8,5 prósent í stað 7-7,5 prósenta, sem búizt var við. Fyrsta spurningin, sem vaknar, er hvort þessi aftur- kippur þýði, að við komumst að nýju í vítahring verðbólgu, mikilla kauphækkana og gengisfellingar. Svarið er enn sem komið er nei. Fyrstu mánuðir eftir samninga voru hagstæðir. Nú kemur einn mánuður með verri útkomu. Hvers vegna? Svarið felst í því, að fa.ll bandarísks dollars á al- þjóðamarkaði hefur dregið krónuna niður, svo að hún lækkar gagnvart helztu myntum. Þessu fylgir verð- hækkun, sem einkum hefur sést í fatakaupum. Sumar- tízkan tekur við. Gengisfall dollars hefur valdið tekjutapi hjá fiskvinnslu, en á móti kemur lægra olíu- verð. I slíku felst einmitt meginhættan fyrir samning- ana. Versni hagur fiskvinnslu- töluvert, þegar á árið líður, verður ekki komizt hjá frekara gengissigi krón- unnar með þeim verðhækkunum, sem því fylgja. Samningamenn í Garðastræti tóku að sér að knýja ríkis- stjórnina til að festa gengið. Slíkt er auðvitað ekki hægt til frambúðar nema ýmislegt annað breytist, svo sem að ákvörðun fiskverðs verði frjáls. Verðbólga hefur ekki verið mikil, þótt nú hafi aðeins orðið að hopa gagnvart henni. Matvöruverð hefur að meðaltali sáralítið hækkað. Þetta hefur aukið verðskyn neytenda, sem loks nú hafa getað gert sér einhverja raunhæfa hugmynd um, hvað matvælin kosta. Áður voru hækkanir svo miklar, að verðskynið var eyðilagt. Nú geta neytendur borið saman verðlag í einstökum búðum með nokkru viti. í því felst hið eina raunhæfa verðlagseftirlit, verðlagseftirlit neytandans sjálfs, sem knýr kaupmenn til að halda verðlagi niðri vegna sam- keppni við aðra kaupmenn. Þarna sést strax mikilvægur árangur síðustu kjarasamninga. Þáttur ríkisvaldsins verður hinn mikilvægasti og ræður mestu um framhaldið. Ríkisstjórnin hefur allt að vinna í því, að samningarnir standist og efnahagur þjóðarinnar þróist eins og ráð var gert fyrir í Garða- stræti. Þetta er mjög mikilvægt, að ráðherrar hafa sjálfir persónulega hag af því að láta samningana standast. Athyglisvert verður að fylgjast með, hvort ríkissjóður verur rekinn með miklum halla og hvernig hallanum verður mætt. Halli á ríkissjóði getur sett verðbólguna á rás. Ekki má auka erlend lán og láta okkur enn einu sinni lifa stórlega um efni fram. Það mun, þegar fram líður, kollvarpa forsendum samninganna. Haukur Helgason. Kjallarinn „Rökin fyrir gámaflutningum eru ofur ein- föld. Það fæst meira fyrir fiskinn á þann hátt.“ í sjávarútvegi Sviptingar Einhvem tímann snemma á síð- ustu öld skrifuðu sjómenn í Lofoten í Norður-Noregi konungi sínum til og fóm fram á að hin skelfilega rán- yrkja með nýjum veiðarfærum, þ.e. línu og þorskanetum, yrði stöðvuð. Okkur finnst það hlægilegt nú að kóngurinn skyldi verða við þessum óskum og banna með tilskipun öll afkastameiri veiðarfæri en handfæri. Á íslandi hefur nú 2 öldum síðar mtt sér til rúms ný fiskflutninga- tækni. Háværar kröfur em nú uppi um það að með einhverjum hætti verði að hindra eða stöðva útflutn- ing á ferskum fiski í gámum. Ekki er langt síðan útvegsmenn töldu afar óeðlilegt að ferskur fiskur skyldi fluttur út með vöruflutningaskipum. Veiðiskipin sjálf ættu að sjá um slíka flutninga. Mótmæli útvegsmanna og sjómanna em nú þögnuð fyrir nokkm en aðrir hagsmunagæzlu- menn sjá um andófið. Verkalýðs- félög halda að fiskvinnslufólk missi atvinnu, fiskverkendur telja sig tapa hráefni. Aftur em stjómvöld ákölluð eins og í Lofoten forðum og árangur- inn verður sjálfsagt sá sami. Þessi þróun verður ekki stöðvuð af stjóm- völdum svo fremi sem hún er hagkvæm og skynsamleg. Rök með og móti Rökin fyrir gámaflutningum em ofúr einfóld. Það fæst meira fyrir fiskinn á þann hátt. Þegar afli hvers skips er takmarkaður, eins og nú verður að gera, er reiknings- dæmið auðvelt fyrir hvem útvegs- mann. Fyrir stjómvöldin marg- hrjáðu á dæmið líka að vera einfalt. Heildaraflinn á íslandsmiðum er líka takmarkaður og það hlýtur að vera keppikefli að fá sem mest fyrir þann afla með sem minnst- um heildartilkostnaði, hvort sem sá tilkostnaður verður til í landi eða á sjó. Atvinnubótafiskvinna getur ekki verið neitt markmið í sjálfu sér. En þama er einmitt komin ein höfuðröksemdin gegn gámaflutning- unum. Menn kalla það umhyggju fyrir atvinnumöguleikum fiskverka- fólks. Nú er það svo að enn vantar víða fólk til fiskvinnu og nokkur hundmð útlendingar munu vinna slík störf hérlendis sem stendur. At- vinnuleysi fiskverkafólks em því ekki nothæf rök til að hindra fersk- fisksölu heldur er hér um að ræða gamalt og nýtt skipulagsleysi innan sjávarútvegsgeirans. Getgátur Aðrír segja að okkar dýrmætasti markaður, þ.e. freðfiskmarkaðurinn í Bandaríkjunum, sé í hættu vegna skorts á hráefni til fiystihúsanna. Björn Dagbjartsson alþingismaður Sjálfstæðisflokks. Þegar litið er á heildina er þetta auðvitað firra. Sala á ferskum fiski alls, þ.e. ísfisksala fiskiskipa að við- bættum gámafiski, var litlu meiri á sl. ári en oft hefur verið. Aukning á freðfisksölu í Evrópu var meiri en sem þvi nemur. Fiskvinnslufyrirtæki hafa sjálf flutt út gámafisk í stórum stfl. Þá em þeir til sem vefengja að raunvemlegur hagnaður sé af sölu útflutts fisks í gámum. Talað hefur verið um hin og þessi gjöld sem drag- ast frá söluandvirðinu. Aðrir tala um eitthvað sem þeir kalla „þjóð- hagslega hagkvæmni". Enn fremur dylgja sumir um alls konar svindl og svínarí í kringum sölu á gáma- fiski, auðvitað nafnlaust og órök- stutt, eins og slíkur málflutningur venjulega er. Allt em þetta getgátur sem afsann- ast best á stöðugri aukningu gámaútflutningsins. Þetta er ábatasamt þrátt fyrir aukagjöld. Gjaldeyristekjur eru svipaðar og tilkostnaður minni fyrir hvern fisk úr sjó dreginn. Það verður því erfiðara að trúa „svindlsögunum" því fleiri sem taka þátt í þessari verzlun. Ýmsar aukaverkanir Það fer ekki hjá því að átökin um gámafiskinn hafa birzt í ýmsum myndum og víðar en margir ætla. Tillaga forstjóra Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna og samþykkt Fé- lags Sambandsfiskframleiðenda að fiskkvótum beri að úthluta til vinnslustöðva en ekki útgerðar er af þessum toga spunnin. Auðvitað er það mögulegt og raunar aðeins annað afbrigði kvótakerfis við fisk- veiðar. Ég á þess ekki von að þessi breyting fái hljómgmnn. Við völd- um þá aðferð að skipta afla á skip á fullkomlega lýðræðislegan hátt og hún er að mörgu leyti eðlilegri án þess að farið sé nánar út í þá sálma. Spumingum eins og þeirri hver eigi fiskinn í sjónum eða hvort fiskverkendum sé betur treyst- andi til að fara með þá auðlind fyrir hönd þjóðarinnar en útvegsmönnum og sjómönnum verður ekki svarað hér. Vandi fiskvinnslunnar stafar að hluta til af því að hagsmunir veiðanna virðast alltaf sitja fyrir í sameignarfyrirtækjum útgerð- ar og vinnslu Og svo væri rétt að huga að því hvort fiskvinnslu- stöðvar eru ekki of margar og of dýrar rétt eins og fiskveiðiflot- inn. Uppboösmarkaðir Þá kom talsmaður Síldarútvegs- nefndar nýlega fram með þá hugmynd að heimilt yrði að selja ferska síld til erlendra móðurskipa í haust. Tillagan er alls ekki fráleit en afskaplega undarlegt að hún skuli koma úr herbúðum S.Ú.N. Rætt hefur verið um að koma á fiskmörkuðum, eins konar uppboðs- mörkuðum, a.m.k. á Reykjavíkur- svæðinu. Með því móti væri vinnslustöðvum a.m.k. gefinn kostur á að keppa við gámafiskinn á jafh- réttisgrundvelli. Þar með væri ríkismat á ferskum fiski úr sögunni enda eru kröfúr um afnám þess vax- andi. Loks vill Verkamannasambandið láta kanna gámaútflutninginn. Ekki er mér alveg ljóst hvað fyrir þeim vakir en af blaðafregnum virðist þar alls ekki vera um neina herör gegn gámafiski að ræða. Það mætti svo sem tína til fleira úr þessari umræðu þó að hér verði látið staðar numið. Það er ljóst að töluverðar sviptingar standa yfir í íslenzkum sjávarútvegi. Þróun í átt til meiri hagkvæmni verður ekki stöðvuð með boðum og bönnum. Viðbrögðin verða að stjómast af skynsemi og framsýni. Bjöm Dagbjartsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.