Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1986, Síða 8
8
DV. FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1986.
Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd
Útvarpsstöð kristinna í Líbanon segir að sprengjutilræðið í morgun hati átt sér
stað á nákvæmlega sama stað og i fyrra er bílsprengja drap 41 vegfaranda
og særði á annað hundrað.
Bílsprengja
skekur Beirút
(1)
>
X>
X
X
cö
T-l
T-l
cx
JD
Ákaflega forn í mér
enda alinn upp á
safni
Viðtal við Þórarin
Eldjárn
bJD
cö
Arkitektalegur, lista-
mannslegur, fríkaður
fatahönnuður og skrif-
(N
-er ti
Á BLAÐSÖLUSTÖÐUM
w
Alltsem þig hefuralltaf
langað til að vita um
kræklinga.., en þorðir
ekki að spyrja
Að minnsta kosti þrír létu lífið og
63 særðust i öflugri sprengingu á versl-
unargötu á annatíma í kristum hluta
austur-Beirút í morgun.
Talið er að sprengjunni hafi verið
komið fyriri bifreið er stóð við götuna.
Töluverðar skemmdir urðu á húsum
í nágrenninu auk þess sem margar
bifreiðir við verslunargötuna eyði-
lögðust. Brak úr byggingum og bif-
reiðahræ töfðu mjög fyrir fjölmennu
liði björgunarmanna er vann að því
að koma særðum á sjúkrahús.
Talið er að enn séu einhveijir fastir
í braki húsa í nánd við sprengjustað-
inn og er unnið að björgun þeirra.
Útvarpsstöð kristinna i Líbanon
sagði í morgun að sprengjunni hefði
verið komið fyrir á nákvæmlega sama
stað og bílsprengju er í fyrra drap 41
og særði á annað hundrað manns.
Blóðugir bardagar hafa átt sér stað
í Beirút að undanförnu og hafa að
minnsta kosti 40 manns fallið frá því
á miðvikudag í átökum kristinna og
múhameðstrúarmanna.
Argentína slít-
ur stjórn-
málasambandi
Ríkisstjóm Argentínu hefur slitið
stjómmálasambandi við Suður-Afríku
vegna árásar þeirra á þijú grannrík í
norðri á dögunum.
Frá því lýðræði var endurreist i Arg-.
entínu hefur fordæming argentínskra
stjómvalda á aðskilnaðarstefnu suð-
ur-afrískra stjómvalda stöðugt aukist
og samskipti ríkjanna versnað til
muna.
Á dögum herforingjastjómar í Arg-
entínu, frá 1976 til 1983, stóðu sam-
skipti landsins við Suður-Afríku með
miklum blóma og ræddu stjórnvöld
ríkjanna í mikilli alvöru um stofhun
vamarbandalags ríkja við Suður-
Atlantshaf.
Suður-afrískir stjómarerindrekar í
Bueinos Aires verða að hafa sig á
braut ffá Argentínu fyrir lok þessa
mánaðar.
Sögulegt sorp
Embættismenn í Fort Worth í Texas
grófú í vikunni hylki með sorpi, sem
valið var af handahófí, fyrir sagn-
fræðinga framtíðarinnar að rannsaka.
„Þetta óvenjulega hylki ætti að
verða áhugavert eftir tuttugu til þrjá-
tíu ár, þegar sorp verður orðið allt
öðmvisi en það er í dag,“ sagði Bob
Bolen borgarstjóri.
Meðal þess, sem var sett í hylkið,
var notaður sími, illa farinn hjálmur
slökkviliðsmanns, leikskrá úr leikhúsi
í borginni og gömul dagblöð.
Séifræðingar hreinsunardeildar
borgarinnar, sem hyggjast setja upp
skilti til að merkja staðinn, segja að
hylki af þessari tegund muni endast í
að minnsta kosti 30 ár án þess að það
sjálft, eða innihaldið, skemmist.