Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1986, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1986, Qupperneq 15
DV. FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1986. 15 Styðja íslendingar etturvopn? Styðja Islendingar ný eitur- vopn Bandaríkjamanna í Evrópu? Svo sýnist vera. Matthías Mat- hiesen utanríkisráðherra hefur sent frá sér tilkynningu þess efnis að Islendingar muni ekki mótmæla staðsetningu tvíþátta eiturvopna í Evrópulöndum sem Bandaríkja- menn biðja nú Nató-ríkin að samþykkja svo fremi þau verði ekki staðsett á íslandi. Þessi afstaða ís- lendinga var kynnt á fastanefndar- fundi Nató 14. maí sl. Daginn áður hafði ég samband við utanríkis- ráðuneytið og spurðist fyrir um fyrirmæli utanríkisráðherra til ís- lenska fastafulltrúans en fékk engin svör þar eð menn vissu greinilega ekkert um málið. Fasta- fulltrúinn var í fríi og staðgengill hans átti að sitja fundinn. Lokaá- kvörðun var tekin á varnarmála- ráðherrafundi Nató hinn 22. maí. Engin umræða hefur farið fram um þetta óhugnanlega mál á Alþingi og utanríkismálanefnd þingsins hefur ekkert um það fjallað. Hver er forsaga málsins? Bandaríkjastjórn samþykkti með naumum meirihluta eftir mikil átök innan þingsins að leyfa fram- leiðslu svokallaðra tvíþátta eitur- vopna, sem komið yrði fyrir í Evrópu, og veita til þessarar fram- leiðslu 152 milljónum dollara. Skilyrði yrði að vera að Natóríkin samþykktu að taka við vopnunum sem að sjálfsögðu eru kynnt sem „varnar" vígbúnaður gegn hugsan- legum árásum Sovétmanna. Mikil- vægt væri að halda þjóðþingum Evrópu utan við þessar fyrirætlan- ir, eða eins og sendiherra Banda- ríkjanna hjá Nató sagði: „Atlants- hafsbandalagið hefur forðast að gera þetta mál að pólitískum fót- bolta í Evrópu.“ Þjóðþing Evrópu- landa hafa því ekkert um þetta mál fjallað fyrr en á síðustu dögum fyr- ir ákvörðun og því síður hafa íbúar Evrópu nokkuð um þetta vitað. En nú hefur mikill óróleiki gripið um sig í Evrópu og á allra síðustu dög- um hafa utanríkisnefndir Noregs, Danmerkur, Grikklands og Holl- ands mótmælt þessum áformum. Og þeirri umræðu er ekki lokið. En íslenski utanríkisráðherrann var ekki lengi að ákveða afstöðu okkar Islendinga, enda þingið farið heim. Þó væri fróðlegt að vita hvort formaður utanríkisnefndar, Eyjólfur Konráð Jónsson, er sam- mála ráðherra sínum. Hvað eru svo tvíþátta eitur- vopn? Þau eiturvopn sem hingað til hafa verið framleidd - og notuð þrátt fyrir alþjóðlegan samning um bann við sýkla- og eiturvopnum frá 1972 >- hafa verið hættuleg öllum þeim sem með þau fara. Stöðug hætta er á leka og flutningar hafa valdið stórtjóni. Þrátt fyrir sam- þykkt um stöðvun eiturvopnafram- leiðslu í 14 ár hefur Bandaríkja- mönnum tekist að framleiða eitursprengju sem samsett er úr tveim skaðlausum efnum sem verða banvæn ef þau koma saman. Sprengjan er í tveim hólfum eins og myndin sýnir og er kölluð Agent GB. Aðeins annað efhishylkið er flutt á geymslustað inni í sprengj- unni, hinu er komið fyrir þegar á að nota hana. Um leið og sprengj- Guðrún Helgadóttir alþingsmaður Alþýðubandalagsins. unni er skotið verður hraður snúningur svo að efnin blandast i henni á 10 sekúndum. Hér er um að ræða banvænt taugagas en menn vita ekki hve víðtæk dreifing eitursins er. Blöndun efnanna hef- ur einungis verið prófuð undir ströngum varúðarskilyrðum rann- sóknarstofnana og prófun undir berum himni er stranglega bönnuð í Bandaríkjunum! Vitað er þó að engin leið er að takmarka áhrif sprengjunnar við hernaðarmann- virki og þess vegna verða saklausir borgarar henni fyrst og fremst að bráð ef til notkunar kemur. Ákvörðun utanríkisráðherra Hún er byggð á þrem kunnum atriðum i íslenskum stjórnmálum. íslenskri nesjamennsku (þ.e. kenningunni: þetta kemur okkur ekkert við, við erum svo langt í burtu), skorti á siðferðislegri ábyrgð (hinni gömlu kapítalísku grillu að hver sé sjálfum sér næst- ur) og himinhrópandi vanþekk- ingu. Sé utanríkisráðherra að verja landsmenn sína fyrir banda- rísku taugagasi er síðasta leiðin að krefjast þess að sprengjan sé ekki staðsett hér á landi. Sprengja þessi er nefnilega þess eðlis, eins og áður hefur komið fram, að hún skaðar aðeins þá sem hún er send til. Síðara hylkið er ekki sett í hana fyrr en skotmark hefur verið valið. Okkur stafar því meiri hætta af henni í öðrum Iöndum en hér heima. Og sé ráðherra samþykkur vopnabúnaði af þessu tagi er það hræsnin ein að telja Islendinga ábyrgðarlausa gagnvart meðbræðrum sínum með því einu að sprengjan sé ekki send héðan. Hver er staða lýð- ræðis innan Atlantshafs- bandalagsins? Samtök hinna vestrænu lýðræð- isþjóða eru ekki lýðræðislegri en svo að ákvörðun um staðsetningu banvænna eiturvopna er vísvitandi haldið utan við þjóðþing þeirra landa sem vopnin eiga að hýsa. Og íslenska ríkisstjórnin telur sig enga ábyrgð bera og hirðir ekki um að fylgjast með því sem fram fer suður í Brussel. heldur felur embættismönnum sínum að gera það sem Bandaríkjamenn segja. Við fyrirspurn minni til utanríkis- ráðuneytisins fékk ég þau svör daginn áður en fundur fastanefnd- arinnar var haldinn að ekkert benti til mikilvægra ákvarðana þar sem fastafulltrúinn hefði ekki beðið um afstöðu! Enda ætlaði hann ekki að sitja fundinn heldur staðgengill hans. Ráðherrafundurinn 22. mai Varnarmálaráðherrar Nató-ríkj- anna komu saman 22. maí. Þar var lokaákvörðun um staðsetningu tvíþátta eiturvopna Bandaríkja- manna í Evrópu að öllum líkindum tekin. Nema Evrópuríkin innan Nató taki höndum saman og mót- mæli þeirri villimennsku sem hér er á ferðinni. Nema málið verði „pólitískur fótbolti" eins og sendi- herra Bandarikjanna-í Nató nefnir þingræðislega umræðu í Evrópu- löndum svo kurteislega. Nema, Matthías Mathiesen geri sér ljóst að „sérstaða íslands sem herlauss ríkis“ (orðalag yfirlýsingar hans í Mbl. 16.5) veitir honum enga sið- ferðilega sérstöðu við ákvarðana- töku um æ skelfilegri vopnabúnað í heimi sem nú þegar ræður yfir margföldu því magni sem þarf til að tortíma okkur öllum. Auk þess er forsendan röng. Island er ekki herlaust land. Menn urðu felmtri slegnir þegar Ijóst varð að Sovétmenn reyndu að hylma yfir Chernobyl-slysið. Nú hafa menn hrokkið við þegar fyrir liggur að ríkisstjórnir „hinna vest- rænu lýðræðisríkja“ með Banda- ríkin í broddi fylkingar hugðust leyna þjóðþing Evrópu áformum um staðsetningu banvænna eitur- vopna í löndum þeirra. Stjórnkerfi sýnast hafa lítil áhrif á siðferðis- kennd stjórnmálamanna. Allir íslendingar kjósa þjóðfélag sem byggir á lýðræði og þingræði og hafna eigin vígbúnaði. Sam- kvæmt því hefur Matthías Mat- hiesen enga sérstöðu þegar ákvörðun um tortímingarvopn er tekin. Hann þekkir vilja þjóðarinn- ar mæta vel og hann er annar en vilji Bandaríkjamanna. En 22. maí ' sker úr um það hvers fulltrúi hann er. okkar eða þeirra. Guðrún Helgadóttir. Agent GB, hin nýja sprengja, fyrir ofan á myndinni. Fyrir neðan er eldri gerð eiturvopna. Sjálfstæðismenn sviku Sjálfstæðismenn gumuðu mikið af því fyrir síðustu borgarstjómarkosn- ingar að þeir myndu lækka skatta kæmust þeir til valda. Davíð torgar- stjóri sagði að kjörseðillinn breyttist í skattseðil að kosningum loknum héldu vinstri menn áfram völdum. íhaldið myndi aftur á móti lækka skatta borgarbúa og forgangsverk- efni væri að lækka fasteignaskatta. I stefnuskrá íhaldsins frá síðustu kosningum segir: Sjálfstæðisflokkurinn mun beita sér fyrir að sveigt verði snöggt frá þeirri skattheimtustefnu sem ríkjandi hef- ur verið síðustu 4 árin. - En hverjar hafa efhdimar verið? Blekking sjálfstæðismanna Sjálfstæðismenn benda á lækkun álagningarprósentu fasteignagjalda og útsvars á kjörtímabilinu og segja að skattar hafi lækkað. Þetta er blekking, vegna þess að það sem skiptir borgarbúa fyrst og fremst máli er skattbyrðin. Hefúr hún auk- ist eða minnkað á kjörtímabilinu? Lítum nánar á það. Fasteignagjöld 270 milljónir umfram tekjur Á kjörtímabilinu hefur skattbyrði vegna fasteignagjalda í Reykjavík aukist gífurlega eða um 20% umfram heildartekjur launafólks. Fram- reiknuð til meðalverðlags 1986 hefur skattbyrði borgarbúa vegna fasteignagjalda sl. ár auk- ist um 270 milljónir umfram heildartekjur launþega. Ef miðað er við kauptaxta, sem þorri fólks hjá borginni tekur laun eftir, er skatt- byrðin vegna fasteignagjalda enn meiri. Útsvar 233 milljónir umfram tekjur Ef skattbyrði vegna útsvarsálagn- ingar er skoðuð kemur eftirfarandi' í ljós: Skattbyrði vegna útsvars hefur hækkað um 233 milljónir á kjörtimabilinu umfram heildartekj- ur launafólks. Samtals er því um að ræða rúmlega 500 milljón króna hækkun á fasteignagjöld- um og útsvari á kjörtímabili Davíðs umfram heildartekjur borgarbúa á sama tímabili. Þjónustugjöld hafa hækkað verulega Ekki hefúr verið látið þar við sitja að auka skattbyrði vegna fasteigna- gjalda og útsvars á borgarbúa, heldur hafa þjónustugjöld ýmiss konar hækkað verulega á kjörtíma- bilinu. Þannig eru borgarbúar margfalt lengur að vinna sér inn fyrir dagvistargjöldum, gjaldi í strætisvagna og sundlaugar borgar- innar og fyrir hita og rafmagni. Félagsleg sjónarmið ekki ráðið ferðinni Ýmislegt má einnig benda á sem sýnir að félagsleg sjónarmið hafa ekki ráðið ferðinni hjá íhaldinu í borgarstjóm. Þótt kjaraskerðing launafólks hafi skilað borgarsjóði mörg hundruð milljónum á kjör- tímabilinu, þá hefur það ekki leitt til aukningar á félagslegum fram- kvæmdum á vegum borgarinnar. Þvert á móti hafa þær dregist sam- an. Framlög til dagvistarstofúana hafa minnkað til muna í valdatíð Davíðs. I því sambandi má benda á að í Kópavogi, þar sem m.a. Al- þýðuflokkurinn hefur stjórnað sl. kjörtímabil, hefúr aukning á dag- vistarrými orðið hlutfallslega margfalt meiri en í Reykjavík. Sama má segja um húsnæðismál aldraðra, sem best sést á því að eng- in leigu- eða þjónustuíbúð fyrir aldraða á vegum borgarinnar hefur verið tekin í notkun á kjörtímabil- inu. Að auki hefur biðlisti á stofnan- ir aldraðra meira en tvöfaldast á kjörtímabilinu. Fleira má til taka. Framlög til heilbrigðismála hafa minnkað um 33-34% og framlög til æskulýðsmála hafa dregist saman um 108%. Veitum þeim aðhald Gleymum því ekki í kjörklefanum: Að íhaldið hefur aukið skattbvrði borgarbúa um 500 milljónir króna. Að svikin voru loforð um lækkun fasteignagjalda. því skattbvrði þeiiTa jókst um 20% eða um 270 milljónir króna. Að íhaldið hefur hækkað þjónustu- gjöld á borgarbúa sem þeir eru nú margfalt lengur að vinna fyrir. Að biðlisti á stofnanir aldraðra hefur tvöfaldast á kjörtímabilinu. Að skjólstæðingum Félagsmála- stofnunar hefur fjölgað um 30-40% á kjörtímabilinu. Að rökstuðningur Davíðs fyrir bruðli vegna afmælis Reykjavíkur- borgar er að lifskjör hér séu einna best í heiminiun og tekjumismunur hvergi minni. Að 30 tekjuhæstu einstaklingar á höfuðborgarsvæðinu hafa á hverjum mánuði tekjur sem samsvara trvgg- ingabótum aldraðra í þrjú ár og dagvinnulaunum verkalýðsfélaga í tvö og hálft ár. Að sextándi hver Reykvíkingur þarf á aðstoð Félagsmálastofiiunar að halda. Að Davíð leysir húsnæðisvanda lág- launafólks með 5 leiguíbúðum á ári. Að biðlisti eftir leiguhúsnæði borg- arinnar að loknu kjörtímabili er 350 manns. Að íhaldið notaði 272 milljónir af Jóhanna Sigurðardóttir þingmaður fyrir Alþýðuflokkinn peningum borgarbúa til að hygla íhaldsfjölskvldum, en hafnaði tillögu Alþýðuflokksins um 90 milljónir úr borgarsjóði til kaupleiguíbúða. Verðlaunum þá ekki Þannig er stjórnað þar sem frjáls- hvggjan og gróðaöflin ráða ferðinni. Skoðanakannanir benda til að íhaldið í Reykjavík fái 10-11 af 15 borgarfúlltrúum. Þeir eiga ekki skil- ið að hljóta slíka traustsyfirlýsingu. Látiun það ekki henda okkur að verðlauna þá fyrir skattahækkanir og sóun á fjámiunum borgarinnar á kostnað þeirra verst settu. Verð- launum þá ekki fyrir biðlistana á stofnanir aldraðra eða húsnæðis- vandann í borginni. Verðlaunum þá ekki fyrir skömmtunarseðlana eða fátækt sextánda hvers borgarbúa. Veitum þeim nauðsynlegt að- hald í kjörklefanum 31. maí n.k. Jóhanna Sigurðardóttir Sjálfstæðismenn benda á lækkun álagn- ingarprósentu fasteignagjalda og útsvars á kjörtímabilinu og segja að skattar hafi lækkað. Þetta er blekking...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.