Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1986, Side 33
DV. FÖSTUDAGUR 23. MAl 1986.
45
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Mats og nýja ástin
Nýja ástin hans
Mats Wilander heitir
Sonja Mulholland og
er fyrirsæta í New
York. Þau reyna að
hittast sem oftast
þegar tími gefst frá
störfum.
N új orkarar segj a
þau skötuhjú ljóma
af hamingju þama á
strætum þannig að
ekki þarf að óttast
um Mats eftir að upp
úr slitnaði milli hans
og hinnar norsku
Annette Olsen.
Sú norska var elds-
nögg að ná sér i
nýjan tennisleikara
sem heitir Stefan
Edbergoghefur
hann oftar en einu
sinni veitt Mats
harða keppni á vell-
inum. Svo erbara að
bíða og sjá hversu
lengi sælan endist á
báðum vígvöllum.
Bruce verður
bráðum pabbi
Rokkarinn Bruce
Springsteen er að verða fað-
ir og iðar í skinninu af
eftirvæntingu. Fyrir
skömmu bauð hann heilum
her vina sinna á veitinga-
staðinn Odeon i New York
til þess að fagna væntan-
legri fjölgun og þar blómstr-
aði hin verðandi móðir,
Julianne Phillip, sem aldrei
fyrr. Julianne, sem er ein
þekktasta sýningarstúlka
Bandaríkjanna, er í leyfi frá
störfum og einbeitir sér að
innkaupum á bamafatnaði
og endurhönnun barnaher-
bergis fýrir hinn væntan-
lega erfingja.
Björn Borg þykir sá sæt-
asti í Svíþjóð þessa dagana,
ekki síst eftir að snoðklipp-
ing á kappanum varð lýðum
ljós. Hins vegar var hárið
enn á höfðinu þegar mynda-
tökurnar voru unnar fyrir
nýju tískulínuna i fatafram-
leiðslunni og fyrirsætan í
fatnaðinum var aðeins ein -
fyrmefndur Björn Borg.
Meðfylgjandi mynd sýnir
eina þmmusæta mynd af
Bimi þar sem hann tyllir
tánum pent út í fjöruborðið.
I annarri hendi hefur hann
röndótta strigaskó og hinni
er haldið fast í buxnastreng-
inn.
Fötin eru svo ekki gefins
enda þurfa menn að borga
fyrir að líta út eins og goðið
sykursæta - sagt er að
næsta verkefni verði hönn-
un bamafatnaðar með
fangamarki sonarins svo
græða megi grimmt á barn-
eigninni líka.
Að Gleðibanka
slepptum
Gleðibankamaðurinn Eiríkur Hauksson gerir fleira en gleðjast á sviði,
hann kennir af fullum krafti í Seljaskóla i Breiðholti. Sagan segir að
vinsældir hans séu slíkar að stelpumar í bekknum neiti að fara út í frímín-
útur því helst vilji þær sitja sem fastast og horfa á Eirík aðdáunaraugum.
En prófin gefa engum grið, þau hafa staðið yfir þennan mánuðinn og
bæði kennarar og nemendur langþreyttir þegar löngum innisetum lýkur.
Meðfylgjandi DV-myndir tók GVA af þeim hressa Eiríki Haukssyni í
körfubolta með nemendum í skólaportinu að loknu löngu prófi. Það er
nauðsynlegt að hreyfa útlimina aðeins eftir alla yfirleguna.
Boltanum
er vist ætlað
að lenda
í körtunni.
Að prófi loknu er hreyfingin hressandi.
Ólyginn
sagði...
Don Johnson
og Philip Michael Thomas leika
nána samstarfsmenn og vini í
sjónvarpsþáttunum Miami Vice. í
veruleikanum hafa leikararnir
megna andstyggð hvor á öðrum
og reyna að forðast nokkurt sam-
neyti utan þáttanna. Þeir talast
ekki við undir upptökum og það
hefur valdið miklum erfiðleikum.
Núna hótar framleiðandinn að
láta annan hvorn hætta í þáttun-
um nema samkomulagið verði
bætt í einum grænum hvelli.
Julian Lennon
er heldur spældur núna og hefur
svo sannarlega ástæðu til. Það
byrjaði með því að hann var tek-
inn fyrir of hraðan akstur og
löggan hótaði að hirða af honum
ökuskírteinið. Þegar hann ætlaði
síðan að afhenda skírteinið til
frekarí umfjöllunar kom í Ijós að
hann hafði gleymt því heima og
ekki léttist brúnin á laganna verði
við það. Julian þótti bót í máli
að geta sannfært viðstadda um
að hann hefði ekki verið ölvaður
undir stýri að auki og ætlar gaur-
inn nú ákveðið að taka aksturs-
mátann til endurskoðunar í
framtíðinni.
Gregory Peck
er að l(eika I kvikmynd með öðrum
gömlum frá hollíárunum. Þeir eru.
Burt Lancaster og Kirk Douglas'
og munu félagarnir þrir fá ein-
hverja vasaaura fyrir vikið. Univer-
sal kvikmyndafirmað er að öngla
saman aurum til þess að fjár-
magna myndina sem forsvars-
menn félagsins gera sér svo vonir
um að lokki fólk frá vídeóinu sínu
og inn I næsta kvikmyndahús.
v