Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1986, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1986, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 12. JÚLl 1986. Skelli mér hringinn meö konunni og krökkunum, segir Gunnbjörn galvaskur. Eyjólfur ætlar að slappa af og sofa fram eftir í sínu fríi Allavega vinnur í Odda hresst og skemmtilegt fólk sem svaraði góð- fúslega öllum spurningum blaða- manns og stillti sér upp fyrir ljósmyndarann eins og þaulæfðar fyrirsætur. Keðjurnar með til vonar og vara „Ég er að hugsa um að skella mér hringinn," sagði Gunnbjörn Guð- mundsson sem vinnur í umbrotinu. „Ég vonast til að fá sæmilegt veður, í það minnsta að það snjói ekki á okkur, en engu að síður ætla ég að hafa með mér keðjurnar svona til vonar og vara. Ég á inni fjórar vikur í sumarfrí og ætla að taka tíu daga í hring- ferðina en annars er allt óákveðið. Hugsanlega förum við hjónin með báða krakkana í viku til tíu daga utanlandsferð. En það ræðst allt af efnum og aðstæðum.“ Við þessar upplýsingar ráku samstarfsmennirn- ir upp torkennilegt óp og glósur um flottræfilshátt dundu á Gunnbirni. Honum hafði víst alveg láðst að skýra hinum frá þessum utanlands- fararhugmyndum. Eins latur og frekast er unnt Eyjólfur Jónsson vinnur í umbrot- inu með Gunnbirni. Hann ætlar að skjótast upp á fjöll í sínu fríi: „Bara í fjóra, fimm daga. Við ætlum að brölta upp á Fjallabak nokkur saman - tíu til fimmtán manna vinahópur. En þetta verður sem sagt mjög stutt ferð. Restin af fríinu, sem er tæpar fjórar vikur, fer siðan í að standsetja íbúð sem ég var að taka á leigu, mála og svona. Þar fyrir utan ætla ég svo að slappa af og sofa fram eftir - vera eins latur og frekast er unnt,“ sagði Eyjólfur og fór um hann sæluhrollur við tilhugsunina um dásemdirnar framundan. Ásta Lorange, sem vinnur í því sem kallað er skeyting, ætlar hringinn. Nú, þó ekki með Gunnbimi, kallaði einn vinnufélaginn. Ásta hló og hristi höfuð. Hún ætlar ekki með Gunnbirni. Þau ætla bara tvö, hún og maðurinn hennar. „Við höfum um landans um þessar mundir. Júlí og ágúst eru mestu sumarleyfismán- uðirnir og um fátt meira rætt á vinnustöðum en sumarfrí og aftur sumarfrí. Nokkrir eru að koma úr fríi og skemmta sér og starfsfélögunum við að segja sögur úr sumarleyfinu, sannar eða lognar. Aðrir eru í fríi; ýmist afslappaðir og sælir einhvers staðar í sólinni í útlöndum eða þá regnbarðir hér heima, nema auðvitað þeir sem em svo heppnir að eiga heima fyrir norðan og austan og líta út eins og sviðnir hrútspungar, eins og góður maður orðaði það. Þriðji hópurinn eru svo þeir sem eiga sumarfríið eftir og ganga um i vinnunni með dreymandi augnaráð og hugsa um komandi sæludaga. Skemmtilegir Oddamenn Starfsfólkið í Prentsmiðjunni Odda tilheyrir þessum hópi, eða réttara sagt tilheyrði, því þar var lokað á fóstudaginn og langþráð sumarleyfi því hafið. Helgarblaðið heimsótti þá Oddamenn síðasta daginn fyrir frí' til að forvitnast um hvað ætti að gera í sumarleyfinu. Hvort það var tilhugsunin um væntanlegt frí sem olli kátínunni sem ríkti meðal starfsfólksins eða hvort því finnst einfaldlega mjög gaman í vinnunni skal ósagt látið. Stefán Sveinbjörnsson ætlar aö eyða fríinu í solinni fyrir norðan, segir hann, fyrir utan eina viku í rigningu í Brekkuskógi til aö kæla sig niður. „Ég fer í fríið, ég fer í fríið ...“ söng Þorgeir Ástvaldsson hér um árið og víst er að sumarfrí er ofarlega í hug- Ásta Lorange ætlar hringinn, þó ekki með Gunnbirni. Almar, Óðinn og Þorsteinn stimpla sig út í síðasta skipti fyrír fri. Þeir eru ævintýramenn og ætla að herja á ókunn Fríið hjá Stefáni Ásgrímssyni og fjölskyldu fer í að klára sumarbústað sem lönd I friinu. DV-myndir Óskar Örn fjölskyldan á á Laugarvatni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.