Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1986, Side 15
LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1986.
15
^ ~ ” -
_______________
aldrei farið hringinn svo ég veit ekk-
ert hvað þetta tekur langan tíma.
Ég á þrjár vikur í frí og við ætlum
bara að stökkva upp í bílinn, keyra
af stað og sjá svo til. Við ætlum að
gista sitt á hvað í tjaldi og á hótel-
um. Þetta er alveg galopin ferð.
í fyrra fórum við til Rhodos. Mann
langar náttúrlega út aftur en hring--
urinn er ódýrari.
Á vit ævintýranna
Þeir vinirnir Almar Sigurðsson,
Óðinn Valdimarsson og Þorsteinn
Bragason ætla að halda á vit ævin-
týranna í sínu sumarleyfi. Þeir fara
til Bandaríkjanna. Fyrst er meining-
in að dvelja viku í New York og
teyga í sigheimsmenninguna. „Síðan
skilja leiðir. Ég fer á vesturströndina
og flakka þar um í -tvær vikur en
hinir ætla til Mexíkó og fleiri landa
í Suður-Ameríku, skilst mér,“ sagði
Almar.
„Það var gott þið komúð til að
mynd af þeim, þetta gætu verij
ustu forvöð,“ sögðu hokkrir
laganna. „Við erum ekkért örugg
með að þeir skili sér aftur. Þeir ætla
kannski að reyna að meika það í
Ameríkunni. Og það getur verið gott
að eiga nýlega mynd af þeim ef það
þarf að lýsa eftir þeim.“ En vinirnir
þrír glottu bara og gáfu ekkert út á
þessar athugasemdir.
sið-
nnufé
Kríthvítir Sunnlendingar eða
kaffibrúnir norðanmenn
„Ég ætla í sólina og sumarhitann
á Akureyri," sagði Stefán Svein-
björnsson prentari og lagði áherslu
á orðin sól og sumarhiti. Hann er
reyndar nýkominn að norðan, var
þar í viku i sól og tuttugu og fimm
stiga hita. Þess sáust greinileg merki
á húðlitnum sem var ekkert likur
þessum skjannahvíta sem við sunn-
lenskir vesalingar burðumst með.
„Þið hefðuð átt að taka af honum
litmynd svo brúni liturinn sæist,“
sagði einn vinnufélaginn, kríthvítur
og öfundsjúkur.
„Ég fer með fjölskylduna og verð
í þijár vikur fyrir norðan. Við verð-
um hjá kunningjafólki okkar,“ sagði
Stefán. „Síðan ætla ég að vera viku
í bústað sem Prentarafélagið á í
Brekkuskógi. Það er rigningarsvæði
hér fyrir sunnan, það verður ágætt
að kæla sig niður þar.“
ENN Á NÝ KYNNIR ÚRVAL NÍKN
OG SPENNANU ÁHNGASTADÁ MAUMKA
Það eru liðin mörg ár síðan
Úrvalsfólk tyllti tám niður á
sælureitinn Mallorka í fyrsta skiptið.
Síðan þá höfum við hjá Úrvali
kappkostað að bjóða frábæra
gistiaðstöðu á Mallorka og nú er
komið að nýjasta áfangastað okkar
suður í sælunni: Sa Coma.
Sa Coma ströndin.
íbúðarhótelum: Royal
Mediterrano og Royal Cala
Millor. Bæði hótelin eru á strönd
inni og er gistiaðstaðan öll til
fyrirmyndaiv
Sérstakt
kynningarverð
f sumar
Safna fyrir utanlandsferð
Síðasti Oddamaðurinn, sem við
ræddum við þennan síðasta föstudag
fyrir frí, var Stefán Ásgrímsson,
verkstjóri í umbrotsdeild. „Ég ætla á
Laugarvatn," sagði hann. „Ég er að
smíða sumarbústað í Miðdalnum,
reyndar langt kominn, við erum að
setja panilinn inn í hann og svo að
ganga frá lóðinni. Hann verður alveg
tilbúinn fyrir næsta sumarfrí.
Annars erum við að safna fyrir
utanlandsferð með alla fjölskylduna,
hvenær sem það verður nú. Vonandi
verður það áður en bömin verða öll
uppkomin."
Og með það kvöddum við starfs-
fólkið í Prentsmiðjunni Odda.
Vonandi hefur það og aðrir sumar-
leyfissjúkir landsmenn það gott í
fríinu. -VAJ
Sa Coma er glæsileg sandströnd á austurhluta
Mallorka. Þeim sem þekkja til á Mallorka mun líka vel
við þennan stað. Ströndin er á milli bæjanna S'llliot og
Cala Millor. Þar finnur þú allt sem er ómissandi í
sólarferðum; verslanir, veitingahús og margvíslega
þjónustu við ferðamenn.
Sennilega er gistiaðstaðan á Sa Coma trompið. Þú
getur valið um gistingu í tveimur glænýjum
í tilefni kynningarinnar verður boðið sérlega hagstætt
verð í sumar. Fjölskylda, hjón og tvö börn 4-11
ára borga aðeinskr. 23.100.-pr. mann fyrir 2ja
vikna ferð.
Flogið er í áætlunarflugi til Luxemborgar og þaðan
áfram til Palma með Luxair. Þaðan er ekið til Sa Coma.
Innifalið í verði er flug, gisting og akstur milli
flugvallar og gististaðar.
I
Kjörbókin er óbundln og örugg ávöxtunarleið. Hún ber háa vexti, sem leggjast vió höfuðstól
á 6 mánaöa fresti. Til þess aö tryggja aö Kjörbókareigendur njóti ávallt hagstæðustu kjara
er ávöxtun Kjörbókarinnar ársfjórðungslega borin saman viö ávöxtun bundinna 6 mánaöa
vísitölutryggðra reikninga og hagstæöari leiöin valin.
Kjörbókin er góð bók fyrlr bjarta framtíð.
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna