Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1986, Page 9
LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 1986.
9
Ferðamál
Hús og jörð saman í eitt
Þegar komið er að bænum er engu
líkara en að hann sé hálfgróinn inn
í landið sjálft og erfitt að sjá skilin
milli bæjar og lands. Talið er að
þama séu rústir margra eyðibýla
sem farið hafa í eyði á undanfomum
öldum vegna uppblásturs og sand-
foks. Einnig er talið að þama hafi
verið reist klaustur en það hafi aldr-
ei hlotið vígslu.
Staðurinn er í vörslu Þjóðminja-
safhsins. Það er stórmerkilegt að sjá
hvemig húsaskipan hefur verið á
fyrri öldum. Á loftinu í timburskál-
anum vom t.d. sex rúmstæði. Rúmin
em mjög stutt en breið og í þeim
sængurfot. Að jafnaði sváfú tveir
menn í hverju rúmi þannig að þama
á baðstofuloftinu hafa sofið tólf
manns. Á neðri hæðinni vom tvö
lítil herbergi, stofa og svefnherbergi.
Kirkjan að Keldum er frá árinu 1875 og þar er mjög iomleg altaristafla, skorin út í tré. Margir fagrir gripir em í
kirkjunni. DV-myndir A.Bj.
Mjög lágt er undir loft og dymar
lágar en allt er timburklætt í þessu
eina húsi. Stiginn upp á loftið er
mjög athyglisverður, þægilegur stigi
sem ekki er mjög brattur, en tréþrep-
in em orðin slitin eftir undangengna
íbúa staðarins.
Kirkjunni er mjög vel við haldið
og margir fagrir gripir þar að sjá.
Keldur em ekki í alfaraleið en
skammt frá henni og sannarlega
þess virði að leggja lykkju á leið sína
og skoða þennan foma stað. Greiða
verður 50 kr. í aðgangseyri og rita
menn nöfii sín í gestabók sem er að
finna í timburklæddu stofunni.
Sagnfræðilegar upplýsingar em
fengnar úr Landið þitt eftir Þorstein
Jósepsson.
-A.BJ.
Mjöll Dögg Jónsdóttir snvrtisérfræð-
ingur: Ég er nýkomin úr sumarfríi og
gerði viðreist um landið. Fór austur
og vestur og hafði það alveg yndis-
legt. Mér finnst frábært að komast
aðeins úr skarkalanum og reyni að
fara eins oft í helgarferðir og ég get.
Ég hef farið talsvert um Evrópu og
Ameríku en ekkert þetta árið. Næsta
sumar fer ég líklega í heimsreisu, það
er að segja ef ég hef tíma.
-Ró.G.
DV-myndir Óskar örn
Burstabær frá
söguöldinni
Gamli bærinn að Keldum á Rang-
árvöllum er sannarlega þess virði
að gera sér ferð austur til þess að
skoða hann. Þetta er heldur ekki svo
ýkja löng leið, um einn og hálfur
tími austur undir Hellu. Farið er af
þjóðvegi nr. 1 þar sem merkt er
Gunnarsholt. Þar liggur hringvegur
upp í sveitina og er haldið áfram
eftir honum þar til komið er að Keld-
um og raunar aftur niður á hring-
veginn A 1.
„Allir voru þeir mættir óvinir
Njáls, nema Ingjaldur á Keld-
um“
Keldur er kunnur sögustaður \ir
Njálssögu. Þar bjó fngjaldur sem
frægur var fyrir að bregðast Flosa í
aðfórinni að Bergþórshvolsfeðgum.
Keldur urðu seinna eitt af höfuð-
bólum Oddaverja og bjó Jón Lofts-
son þar síðustu ár ævi sinnar. Á 13.
öld bjó þama fræg kvenhetja, Stein-
vör Sighvatsdóttir (Sturlusonar).
Á Keldum er mjög fom burstabær,
raunar er talið að elsti hluti skálans
sé frá söguöld. Hluti bæjarins getur
verið frá öldinni sem leið en er afar
fornlegur í útliti. Á hlaðinu við hlið
gamla bæjarins er íbúðarhús frá fyrri
hluta aldarinnar en skammt frá em
íbúðarhús í nútímalegri bygginga-
stíl.
Kirkja var byggð á Keldum 1875.
Mjög fomleg altaristafla er i kirkj-
unni, skorin út í tré. Hún er talin
vera frá 1792, eftir Ámunda Jónsson
smið.
Það er eins og ferðamanninum sé kippt nokkrar aidir aftur á bak við að koma aö Keldum sem eru ekki nema
í tæplega tveggja klst. akstursfjarlægð frá Reykjavík.
Hvert ferðu
í sumarfn?
Ragnar Ingi Aðalsteinsson kennari:
Ég fór vestur í Dali í sumarfrí og
dvaldi þar í sumarhúsi. Hér á landi
er svo geysilega mikið til af fallegum
stöðum að mér mun ekki endast ævin
til að skoða þá alla. Ég hef ekki ferð-
ast erlendis í mörg ár og finnst það
sóun á peningum að eyða þeim í utan-
landsferðir. Annars er ég ekki mikill
áhugamaður um sumarfrí.
Valgerður Sigurðardóttir: Þetta árið
hef ég alveg verið frá virrnu vegna
meiðsla og hef ekkert ferðalag farið
í. Hef þó skroppið í dagsferðir aðeins
út fyrir borgina. Ég hef ekki ferðast
mikið og aldrei farið til útlanda.
Pardus -stál
Drvdir húsin
Stallað þakstál á aðeins
510>'
kr. ferm.
í brúnu og svörtu
■