Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1986, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 1986.
25
Sandkom
Sjónvarpsleysiö á fimmtudögum
þykir heimstiöindi.
Ekkert
sjónvarp
Það hefur vakið mikla at-
hygli útlendinga, sem hér hafa
verið á ferð, að ekkert sjón-
varp skuli vera hér á fimmtu-
dögum. Þykir flestum þetta
svo ótrúlegt að jaðri við yfir-
náttúrulegt. Er nú svo komið
að BBC, sjónvarpsstöðin
breska, ætlar að senda hingað
lið manna til að gera þátt um
þetta afbrigði.
Að vísu mun BBC vera að
vinna að úttekt á sjónvarpi í
Evrópu og íslensku fríkvöldin
á fimmtudögum þykja feikna-
gott innlegg í þann þátt.
En bresku sjónvarpsmenn-
imir mega hafa hraðan á ætli
þeir að ná sjónvarpsiausu
stemmningunni hér. Það lítur
nefnilega út fyrir að Stöð 2
verði tekin til starfa þegar
þeir koma hingað. Þá er frið-
urinn úti, því sú stöð ætlar að
senda út öll kvöld vikunnar
og byijar meira að segja út-
sendingar á fimmtudegi.
Þess má svo til gamans geta
að í könnun, sem gerð var
meðal sjónvarpsáhorfenda í
Þýskalandi á dögunum, vom
25% þvi fylgjandi að sjón-
varpsútsendingar y rðu aðeins
sex kvöld í viku. Þetta þykir
erfirtektarverð niðurstaða,
því þar glymur sjónvarpið öll
kvöld vikunnar.
Ritvél var það, heillin.
Gott kast
Það var ekki dónalegur afli,
sem Sigurður Ólafsson SF 44
fékk, þegar hann var að toga
í Lóndýpinu á dögunum. I
trollinu var nefnilega þessi
fína ritvél, sem sómt hefði sér
á borði hvaða einkaritara sem
er.
Að sögn blaðsins Eystra-
homs vom skipverjar fljótir
að snara trollinu niður aftur
á sömu slóðum til að vita
hvort þeir fengju ekki skrif-
borð og aðra fylgihluti. En
ritvélin reyndist hafa verið
þama ein á ferð, hvemig svo
sem á því stóð.
isfirðingar fá ekkl að s|ð marga
svona um þessar mundlr.
Framtakssemi
á Ísafirði
Að undanfömu hefur verið
mikil veðurblíða á Isafirði.
menn hafa gert sér ýmislegt
til dundurs í góða veðrinu,
enda fyllast margir jötunmóði
þegar sólin skín.
Það var til dæmis einn laug-
ardagsmorguninn fyrir
skömmu að árrisulir fsfirðing-
ar sáu að myndarlegt skilti
hafði verið sett upp á slátur-
húsinu á staðnum. Var þetta
ákaflega vandað skilti, blá-
málað með hvítum stöfum. Á
þvf stóð:
„Sláturhús Kaupfélags ís-
firðinga, sómi þess, sverð og
skjöldur."
Þótti öllum þetta ansi snið-
ugt, nema forráðamönnum
kaupfélagsins. Þeim fannst
þetta ekki fyndnara en svo,
að þeir rifu skiltið snarlega
niður.
En ástæðan fyrir þessari til-
kynningarstarfsemi á slátur-
húsinu er sú að ráðandi menn
hafa ákveðið að ekki skuli
slátrað einni einustu skjátu á
Isafirði í haust, heldurskuli
fénaðurinn sleginn af í ná-
grannasláturhúsum í Bolung-
arvík, Hólmavík, á Þingeyri
og Flateyri. Þykir mörgum
Isfirðingum þetta hart, en fá
ekki að gert.
Sveitarstjórnln á Súðsvík lét stoppa
húsflutninginn.
Allt skal
ínefhd
Það fyrirfinnst varla svo fá-
tæklegt erindi að ekki þurfi
það í nefnd áður en hægt er
að taka endanlega ákvörðun
um það. Stundum tekur þetta
nefndafargan á sig kostulegan
svip, eins og í Súðavík á dög-
unum.
Að sögn Vestfirska frétta-
blaðsins var það á síðasta ári
sem Orkubú Vestfjarða sótti
um leyfi til sveitarstjómar-
innar í Súðavík til að færa
tiltekið hús um set. Leyfið var
veitt og hófust þeir Orkubús-
menn þegar handa við að
flytjahúsið. Enþeirhöfðu
ekki lengi verið að verki þegar
beiðni kom frá sveitarstjóm-
inni í Súðavík um að stöðva
fr amkvæmdir þegar í stað.
Ástæðan fyrir þessu var sú að
gleymst hafði að leggja málið
fyrirbyggingamefnd. Ekki er
vitað hvort nefndin gaf grænt
ljós á framkvæmdimar, en
alla vega hefur þetta ekki ver-
ið til að flýta fyrir þeim.
Hvað heitir...?
Sá stutti kom þjótandi inn
til mömmu sinnar og spurði
með andköfum:
- Mamma, hvað heitir það
ef einn sefur...svona...undir
öðrum?
- Það heitir væntumþykja,
vinur, svaraði móðirin hátíð-
lega.
- Nei, ég meina ekki það.
- Þó heitir það ást, drengur-
inn minn.
- Neeei...en nú man ég það,
það heitir neðri koja.
Umsjón:
Jóhanna S. Slgþórsdóttlr
Tæpum 1800 tonnum af loðnumjöli var skipað um borð i Keflavíkina á Eskifirði. DV-myndir Emil
Loðnumjöl fyrir 50 milljónir
Emi Iborarensen, DV, Eskifiiði:
Glænýju loðnumjöli frá loðnu-
bræðslunni á Eskifirði var á
dögunum skipað um borð í Kefla-
víkina. Skipið tók tæp 1800 tonn á
Eskifirði og um 1000 tonn á Nes-
kaupstað. Verðmæti þessara
loðnuafurða nemur um 50 milljón-
um króna og munar víst um minna
en það fyrir þjóðarbúskapinn.
Sigurður Þorláksson, skipstjóri á
Keflavíkinni, sagðist fara með
mjölið til fjögurra landa, um 500
tonn til Svíþjóðar, 500 tonn til
Englands, 750 tonn til Frakklands
og 1000 tonn til Danmerkur.
Sigurður Þorláksson skipstjóri sér um að koma mjölinu til fjögurra landa.
P A\ístartarar
UH V ALTERNAT0RAR
Nýir og verksmiðjuuppgerðir CAV startarar og alternatorar,
12 og 24 volta, fyrir bila og báta.
Viðgerða- og varahlutaþjónusta
ÞYRILL
Tangarhöfða 7, 2. hæð, s. 685690.
P. SAMUELSSON & CO. HF.
SKEIFUNNI 15 108 REYKJAVÍK SlMI (91) 687120
Mazda 323 árg. '85 sjálfsk., ekinn
30.000, Ijósblár. Verð 310.000,-
Toyota Corolla Twln cam árg. ’85,
ekinn 23.000, Ijósbrúnn. Verð
560.000,-
Toyota Land Cruiser disil árg. '83,
ekinn 100.000, beige. Verö 840.000,-
Opið virka daga 9-19.
Laugardaga 13-18.
ATH.
Höfum ýmsar tegundir bifreiða á söluskrá
Daihatsu Charade árg. '83, ekinn Toyota Tercel árg. ’81, 4ra dyra,
53.000, rauöur. Verö 240.000,- sjálfskiptur, blár. Verö 210.000,-
Toyota Carina árg. ’82 GL, sjálfsk., Toyota Camry GL árg. ’86, ekinn
ekinn 68.000. Verð 320.000,- 6.000, Ijósgrænn. Verð 570.000,-
Toyota Corolla Liftback árg. ’84, Toyota Tercel árg. ’85 4x4, ekinn
sjálfsk., koparbrúnn, ekinn 43.000. 49.000, grár. Verð 480.000,-
Verð 380.000,-
Toyota Camry GL Liftback, sjálfsk., Toyota Cressida DX sjálfsk. ’82,
árg. '83, vinrauður. Ekinn 54.000. ekinn 68.000, IJósblár, vetrardekk á
Verð 440.000,- felgum. Verð 370.000,-