Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1986, Page 2
2
FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986.
Fréttir
Dvög að samkomulagi hjá æðstu mönnum ASÍ og VSÍ:
Ólympíuskákmótið í Dubai:
Lægstu laun
hækki í 25 þúsund
krónur á mánuði
kauphækkun 1. desember verði 2,5% - engar aðrar iaunauppbætur - fast gengi
Samkvæmt heimildum sem DV telur
áreiðanlegar hafa æðstu menn ASÍ og
VSÍ rætt um drög að samkomulagi sem
gerir ráð fyrir að lægstu kauptaxtar
hækki upp í 25 þúsund krónur á mán-
uði strax. Umsamdar launahækkanir
upp á 2,5% komi til framkvæmda 1.
desember en launauppbætur, sem
nema um 2% og áttu þá að koma á
launin, geri það ekki. í samnings-
drögunum er gert ráð fyrir föstu gengi
allt næsta ár. Gert er ráð fyrir að
samningurinn gildi út árið 1987.
Þessi drög munu hafa legið fyrir
strax í upphafi samningaviðræðnanna
og þau eru ástæðan fyrir því að stjóm
Dagsbrúnar samþykkti á miðvikudag-
inn var að draga sig út úr samninga-
viðræðunum og að félagið annaðist
sjálft sína samninga. Guðmundur J.
mun hafa hætt við að ganga út af
samningafúndi á miðvikudaginn
vegna þess að hann vildi freista þess
að fá samningsdrögunum breytt.
Samkvæmt sömu heimildum mun
upphlaup Dagsbrúnarmanna á mið-
vikudaginn hafa orðið til þess að koma
í veg fyrir að þessi samningsdrög yrðu
lögð fram á fundinum þann dag. Þess
í stað em menn nú famir að ræða um
2ja til 3ja mánaða samning og að sá
tími verði notaður til að stokka upp
allt taxtakerfið, en það er höfuðkrafa
Dagsbrúnarmanna. Samið yrði um
lægstu laun 25 þúsund krónur á mán-
uði og 2,5% launahækkun 1. desemb-
er. Ekki er talið ólíklegt að slíkur
samningur verði gerður fyrir mánaða-
mót.
Aftur á móti mun vera erfitt að fá
Dagsbrúnarmenn til að falla frá launa-
uppbótinni 1. desember. Tillaga um
samning til stutts tíma var lögð fyrir
fulltrúa VSl í gærkveldi og munu þeir
svara ASl um það mál í dag.
-S.dór
Samninganefndirnar á fundinum í gær.
Samkomulagið í bónusnefndinni:
Helmingur bónusgreiðsla
færður inn í taxtakaupið
Samkomulag náðist í bónusnefnd
samningaviðræðna ASÍ og VSÍ í gær.
Að sögn Ásmundar Stefánssonar, for-
seta ASÍ, náðist þar „umtalsverður
árangur" eins og hann orðaði það.
Samkvæmt heimildum DV gengur
þetta samkomulag út á það í stórum
dráttum að 50% af bónusgreiðslum
verða færðar inn í taxtakaupið. Við
þetta minnkar vægi bónussins veru-
íega. Telja menn að við þetta verði
fiskvinnan manneskjulegri en hún er
nú en margir hafa gagnrýnt harðn-
eskju bónusfyrirkomuiagsins.
Þama mun búið að stíga umtalsvert
skref í lagfæringu lægstu kauptaxta
sem eflaust verður haft að leiðarljósi
í þeim samningum um hækkun lægstu
launa sem væntanlega hefjast í dag.
-S.dór
Ákvörðun um launauppbætur
nú frestað til mánudags
„Þess vegna erum við hér og höldum
áfram. Við erum alls ekki búnir að
gefa upp vonina og viljum reyna til
þrautar,“sagði Þórarinn Þórarinsson,
framkvæmdastjóri VSÍ aðspurður
hvort menn teldu ennþá von um að
ná einhveiju samkomulagi á þeim
þremur dögum sem eftir lifa nóvemb-
ermánaðar, eins og rætt var um í
upphafi,
Ásmundur Stefansson varaði við því
sem heyrðist í fjölmiðlum að samning-
amir væru alveg að takast, fólk gæti
misskilið slíkt. Hann staðfesti umtals-
verðan árangur í bónusnefndinni eftir
fúnd dagsins. En vissa fyrir því að
samningar næðust væri engin. Hann
sagði enga niðurstöðu fengna um það
hvort samningar yrðu til lengri eða
skemmri tíma. Það yrði skoðað betur
í dag.
Guðmundur J. Guðmundsson sagð-
ist myndu halda áfram í samninga-
nefiidinni þrátt fyrir uppákomuna á
miðvikudaginn. Hann vék sér alger-
lega undan því að svara hvers vegna
Þröstur Ólafeson hefði fúllyrt að form-
aður Dagsbrúnar drægi sig út úr
samningunum. Sagði aðeins að Dags-
brún hefði haldið mjög gagnlegan
stjómarfúnd fyrr um daginn og enginn
ágreiningur þar komið upp.
„Ef við gerum kröfur um sérviðræð-
ur munum við að sjálfeögðu tilkjmna
það Vinnuveitendasambandinu fyrst,“
sagði Guðmundur.
Loks var upplýst að ákvarðanatöku
um launauppbætur væri frestað til
mánudagsins 1. desember.
-S.dór
Stórsígur!
Glæsilegar skákir gegn Indónes-
um. ísland í 6. sæti. Eftir að tekið
var til við biðskákir úr 9. og 10.
umferð í gærmorgun kom í ljós að
Pólveijar höfðu unnið sína heima-
vinnu vel. Jóhann „hlýddi" þó
Sznapik yfir fræðin þar til 100
leikjum var náð, þá þóttist hann
fullviss um að fá ekki meira en
jafntefli. Ísland-Pólland 2-2. Þá
tefldu þeir einnig biðskák sína
Helgi Ólafeson og Nogueiras.
Fjallað var um biðstöðuna hér í
þættinum á miðvikudag af nok-
kurri bjartsýni; í ljós kom við
rannsóknir sveitarinnar að hún
var margslungin og í henni leynd-
ust ýmsar hættur. Þó fannst
vænlegt framhald og þegar skákin
átti að fara í bið í annað sinn. Eft-
ir stutta skoðun tilkynnti liðsstjóri
þeirra Kúbumanna um uppgjöfina:
Skák
Áskell Öm Kárason
Ísland-Kúba 2,5-1,5 - sérlega
ánægjulegt fyrir Helga sem hefur
ekki unnið síðan i 1. umferð.
Nogueiras er stigahæsti maðurinn
sem íslendingar hafa lagt að velli
til þessa.
Indónesíumönnum
rúllað upp!
Geysilegur fítonskraftur ein-
kenndi taflmennsku íslensku
piltanna í 11. umferð gegn Indó-
nesíumönnum sem hafa sýnt góðan
ágrangur á mótinu til þessa:
Ardiansjah-Jóhann 0-1
Adianto-Jón L. 0-1
Handoko-Margeir bið
Sitangjang-Karl 0-1
Jón hafði hvítt á 2. borði gegn
góðkunningja okkar frá síðasta
Reykjavíkurmóti, Utut Adianto,
sem fyrir þessa skák hafði unnið
átta í röð og þegar tryggt sér stór-
meistaraáfanga. Jón virtist þó ekki
taka mikið mark á þessari sigur-
göngu heldur beinlínis ,jarðaði“
strákinn í 3 leikjum. Eftir hróks-
fóm í 18. leik, sem Utut áræddi
ekki að þiggja, var staða hans rúst-
ir einar.
Hvítt: Jón L. Ámason.
Svart: Utut Adianto (Indónesíu).
Caro-kann vöm
1. e4 c6 2. d4 d5 3. Rd2 dxe4 4.
Rxe4 Bf5 5. Rg3 Bg6 6. h4 h6 7.
f4!? e6 8. Rf3 Bd6 9. Re5 Bxe510.
fxe5 Re7 11. h5 Bh7 12. c3 c5 13.
Dg4 Hg814. Bc4 cxd415.0-0 Dc7
17. b3 dxc3 18. Ba3 Rbc6. 19.
Hxf7! Dxe5 20. Bxe6 c2 21. Hafl
Bd3 22. Bd7+ Kd8 23. Bxc6 1-0
Mikill mannfjöldi safiiaðist sam-
an við borðið hjá Jóni og Utut
meðan á flugeldasýningunni stóð.
Rétt í þann mund er sýningunni
lauk hófet önnur viðlíka skemmti-
leg í skák Jóhanns á 1. borði.
Hvítt: Ardiansjah (Indónesíu)
Svart: Jóhann Hjartarson.
Drottningarindversk vöm
I. d4 Rffi 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. g3
Ba6 5. b3 Bb4+ 6. Bd2 Be7 7.
Bg2 c6 8. Dc2
Indónesinn teflir þessa marg-
þvældu byijun heldur linkulega.
Hér er algengast að leika 8. Bc3
d5 9. Rbd2 og síðan 10. Re5. Áætl-
un sú sem hvítur fylgir í næstu
leikjum ber ekki vott um mikið
áræði og Jóhanni tekst að sýna
fram á að drottningin er illa stödd
á c2 og biskupinn vita máttlaus á
el.
8. - 0-0 9. Hdl Rbd7 10. Bel Hc8
II. Rbd2 c5
Nú fer að fara um hvítu drottn-
inguna. Hvítur reynir að svara
þessum leik með framrás e-peðsins
en kemur fyrir lítið. Þrýstingur
svarts á c-línunni veldur honum
miklum óþægindum.
12. e4 cxd4 13. exd5 exd5 14.
Rxd4 b5! 15. Rf5 bxc4 16. bxc4
Rb6 16. Dc3 g6! 17. Rxe7 Dxe7
18. c5
Peðið er dauðans matur en hvit-
ur kýs fremur að láta það af hendi
á þennan hátt og vonast til að
færa sér í nyt leppun svarts hróks
á c5.
18. - Hxc519. Da3 Be2 20. Hdcl
Hxcl!! 21. Dxe7?
Gín við agninu. Eftir skákina
iðraðist Indónesíumaðurinn þess
að hafa ekki tekið frekar hrókinn
á cl. I þeirri stöðu er svartur sælu
peði yfir en á töluvert í land með
vinninginn. Nú vinnur Jóhann
mikið lið fyrir drottningima:
21. - Hxal 22. I)xf6 Hxel+ 23.
Bfl Rc4 24. Dd4 Hdl 25. Kg2
Bxfl +
Hvítur gafet upp, enda tapar
hann bæði riddara og biskupi.
Meðan þessu fór fram átti Karl
alls kostar við sinn andstæðing og
innan tíðar var staðan orðin 3-0
fyrir Island. Stífri sókn hjá Karli
lauk með sigri eftir 37 leiki - kær-
kominn sigur hjá þessum yngsta
liðsmanni íslensku sveitarinnar.
Margeir beitti fyrir sig Sikileyj-
arvöm og fékk snemma gott tafl.
Eitthvað gekk honum þó erfiðlega
að færa sér þetta í nyt, enda tefldi
sá austurlenski hvasst og frísklega.
Biðstaðan er þessi:
Margeir
Handoko
Margeir lék biðleik. Þótt hann sé
peði yfir er staðan þröng og erfitt
að tefla til vinnings án þess að
taka mikla áhættu á tapi. Við
spáum jafntefli.
Bandaríkjamenn efstir
Bandaríkjamenn skutust upp í
efeta sætið í gærmorgun er þeim
tókst að vinna biðskák sína gegn
Ungveijum. Þeir treystu stöðu
sína enn síðar um daginn með 3-1
sigri yfir spútniksveit Spánveija.
Önnur helstu úrsht:
Sovétríkin-Búlgaría 2,5-1,5
England-Rúmenía 2,5-0,5 + bið
Ungveijaland-Tékkóslóvakía 2-2
Júgóslavía-Kína 2-2
Staðan á toppnum er þá þessi:
1. Bandaríkin
2. England
3. Sovétríkin
4. Ungverjaland
5. Spánn
6. ísland
29,5
31
+ bið
29.5
28.5
28
27 + bið
7.-10. Búlgaría, Tékkóslóvakía,
Júgóslavía, Kína 26,5. Okkur er
ekki kunnugt um óloknar biðskák-
ir hjá næstu sveitum en ólíklegt
er að nokkur sveit hafi náð að
velta okkar mönnum úr 6. sætinu
þegar biðskákir hafa verið tefldar
nú í morgun. Þetta þýðir að í dag,
í 12. umferð, tefla saman á efeta
borði ísland og Bandaríkin.