Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1986, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1986, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986. 5 Stjómmál Hörð umræða um flugvöll Það fór sem DV spáði í fyrradag. Tillaga þingmanna Norðurlandskjör- dæmis eystra um að íram fari, svo fljótt sem kostur er, rækileg úttekt á mögu- leikum þess að Akureyrarflugvöllur þjóni sem varaflugvöllur fyrir milli- landaflug kallaði fram hörð viðbrögð þingmanna annarra kjördæma, eink- um þingmanna Norðurlandskjördæm- is vestra. Steingrímur J. Sigfusson mælti fyrir tillögunni um Akureyrarflugvöll og lýsti jiann kost langhagkvæmastan fyrir Islendinga. Pálmi Jónsson og Stefán Guðmunds- son, Norðurlandi vestra, sögðu báðir að færustu sérfræðingar hefðu ein- dregið lagt til að Sauðárkróksflugvöll- ur yrði fyrir valinu. Öryggisatriði ættu að ráða vali varaflugvallar fyrst og fremst. Vegna slakra aðflugs- og veð- urskilyrða væri Akureyrarflugvöllur sístur af þeim fjórum kostum sem nefndir hefðu verið. Pálmi sagði að með tillögunni væri verið að drepa málinu á dreif og hefja einhvem kjördæmameting. Austurlandsþingmennimir Jón Kristjánsson og Hjörleifur Guttorms- son minntu báðir á Egilsstaðaflugvöll sem iðulega yrði ófær vegna aur- bleytu. Vonuðust þeir til að þing- heimur væri á sama máli og samgönguráðherra að Egilsstaðaflug- völlur yrði næsta stórverkefhi í flugmálum. Hjörleifur taldi hugmyndir um að varaflugvöllurinn yrði herflugvöllur, kostaður af NATO, stórháskalegar. Halldór Blöndal, Norðurlandi eystra, rifjaði upp hugmyndir um flug- völl á Gáseyri við Eyjafjörð og sagði koma til greina að Atlantshafsbanda- lagið tæki þátt í kostnaði við gerð varaflugvallar þar. Garðar Sigurðsson, Suðurlandi, sem sæti á i flugráði, sagði að varaflugvöll- ur væri ekki forgangsverkefhi í flugmálum og ætti ekki að komast á dagskrá fyrr en eftir nokkur ár í fyrsta lagi. Sagði hann sérfræðinga sammála um að Sauðárkrókur væri hagstæð- asti kosturinn. Steingrímur J. Sigfússon, fyrsti flutningsmaður tillögunnar, sagði í lok umræðunnar að þetta væri spum- ing um forgangsröðun verkefha, spuming um peninga en ekki öryggi. Við hefðum ekki efrii á því, því miður, að kaupa okkur alls staðar fyllsta ör- yggi- -KMU Landbúnaðarmál utan dagskvár Landbúnaðarmál komu til umræðu utan dagskrár á Alþingi í gær. Var það í þriðja sinn á skömmum tíma sem þingmenn sáu ástæðu til að ræða um málefhi þessa atvinnuvegar á þennan hátt. Hjörleifur Guttormsson, Alþýðu- bandalagi, hóf umræðuna. Sagði hann afurðastöðvar ekki telja sig geta stað- ið við ákvæði laga um að greiða bændum fúllt verð fyrir sauðfjár- og mjólkurafurðir fyrir 15. desember. Bankar teldu sig ekki getað hækkað afurðalán. Taldi Hjörleifur alvarlegt mál og stórt dæmi á ferðinni, sumir segðu um meira en milljarð. Jón Helgason landbúnaðarráðherra sagði að staðið yrði við yfirlýsingu ríkisstjómarinnar. Viðskiptaráðherra væri að ganga frá þessu máli. -KMU Slappaðu af! Þú veist hvernig það er. Stífur háls eftir margra tíma akstur í bíl. Strengur í baki eða bólgnir fætur eftir erfiðan vinnudag Clairol nuddkoddinn getur hjápað þér, þú lætur hann einfaldlega gæla við hálsinn, hrygginn og fæturna reglulega yfir daginn, þannig að vöðvar haldist mjúkir og blóðstreymið sé eðlilegra. Þeir sem nota Clairol nuddkoddann koma síður þreyttir heim úr vinnunni. Clairol nuddkoddann þarf ekki að tengja við rafmagn, því hann er knúinn af 2 rafhlöðum sem endast í 150 skipti miðað við 10 mín. notkun í hvert sinn. Clairol nuddkoddinn alltaf við hendina. VIÐ1ÖKUM VEL Á MÓTI ÞÉR SKIPHOLTI 19 SÍMI 29800 VILTU KAUPA SJÓNVARPSSTÖÐ FRÁ í dag kaupir enginn myndbandstæki án HQ mynd- bætirása - þær hafa valdið byltingu í myndgæð- um. Upptaka með HR-D170 HQ, frá VHS hönnuðin- um, er hreint ótrúleg. Nú geturðu tekið upp hágæða mynd úr stöð 1 og 2 og gervihnettinum og skoðað það seinna þegar þú vilt - og auðvitað nýjustu bíómyndina á leigunni. Á meðan horfirðu á eitthvað annað í sjónvarpinu - það er móttakari bæði í myndbandstækinu og sjónvarpinu! Vertu eiginn dagskrárstjóri og veldu þinn eiginn útsendingartíma með HR-D170 HQ, einkasjónvarpsstöðinni þinni. JVC HR-D170 Jólaverð Faco á afburðatæki* leiðtogans: Kr. 38.800 stgr. - með þráðlausri fjarstýringu ■ Kynntu þér niðurstööur neytendasamtakanna ■ Höfum 12 síðna baekling á islensku yfir öll JVC myndbandstæki og um myndbandstæki á íslandi hjá okkur. myndbönd. Hafðu samband og við sendum þér eintak um hæl. * HR-D170 HQ var valið besta grunntækið frá Japan i viðamikilli 115 tækja könnun þýska timaritsins Video í nóvember. í gamla /JU . góða miðbænum íyTw.í FACD LAUGAVEGI 89 ‘S' 91-13008 Umboösmenn: Akureyri: Hljómdeild KEA, Hljómver, Húsavík: KF. Þingeyinga. Ólafsfjörður: Valberg. Borgarnes: KF. Borgfirðinga. Sauðárkrókur: Radíólinan, Hegri. Akranes: Skagaradíó. Keflavík: Littinn hjá Óla, Hljómval. Hella: Vídeóleigan Hellu. Hvolsvöllur: KF. Rangæinga. Neskaupstaður: Nesvídeó. Egilsstaðir: KF. Héraðsbúa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.