Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1986, Síða 4
4
FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986.
Stjómmál
Svavar: Er 1. sætið í hættu? Guðrún: Gæti keppt við formann-
inn um efsta sætið.
Þröstur: Hefur sótt mjög á eftir því
sem nær dregur forvalinu.
Forval Alþýðubandalagsins í Reykjavík:
Riðlun fylkinga eykur
óvissu um úrslit
á
Meðan útlit var fyrir að Ólafur
Ragnar tæki þátt í forvali AB i
Reykjavík, sem fram fer um þessa
helgi, var sagt að það myndi valda
svo mikilli óvissu um niðurstöður
að engin leið væri að spá um úrslit.
Þá voru myndaðar alls konar
„blokkir" með og á móti þessum og
hinum. Þrátt fyrir allt virtust línur
þá nokkuð skýrar, nema milli verka-
lýðsforkólfanna Asmundar Stefáns-
sonar og Þrastar Ólafssonar. Fyrst
eftir að ljóst varð að Ólafur Ragnar
var hættm- við þátttöku og farinn
yfir í Reykjaneskjördæmi töldu
menn að allt yrði rólegra í forvalinu
og niðurstöður lægju nokkuð ljósar
fyrir um úrslit. Þetta hefur nú heldur
betur breyst, óvissan er meiri en
nokkru sinni. Ástæðan er einföld.
Allar „blokkir“ og fylkingar hafa
riðlast eftir að Ólafur hætti við.
Meira að segja flokkseigendafélagið,
sem ævinlega hlýðir kalli foringja
sinna, hefur klofhað upp, hvað þá
aðrar fylkingar. Aðeins eitt ér ljóst,
„lýðræðiskynslóðm" og æskylýðs-
fylkingin ætla að tryggja Guðrúnu
Helgadóttur 2. sætið og allt útlit er
fyrir að það takist, alla vega ætti
Guðrún að vera örugg um eitt af
þremur efstu sætunum sem og for-
maðurinn, Svavar Gestsson.
Efsta sætið
Undir öllum venjulegum kringum-
stæðum ætti Svavar Gestsson að
vera öruggur um efsta sæti listans.
Kunnugir telja að honum sé þó ekki
alveg rótt um þessar mundir vegna
þess hve sterk fylking Guðrúnar
Helgadóttur er. Munu margir ætla
að kjósa Guðrúnu í efeta sætið til
að tryggja henni öruggt sæti sem
gæti orðið til þess að Svavar félli
niður í 2. sætið á listanum. Slíkt
myndi verða tahð meiri háttar slys
og hnekkir fyrir formanninn. Þeir
sem best þekkja til eru ekki í neinum
vafa um að þau Svavar og Guðrún
verði í tveimur efetu sætunum,
spumingin er aðeins hvort verður í
hvoru sæti.
Um tima var talið að Ásmundur
Stefánsson gæti blandað sér í barátt-
una um 2. sætið. Nú hallast menn
að því að svo verði ekki og er ástæð-
an fyrst og fremst sú að hann hefur
ekki jafh óskorað fylgi verkalýðs-
armsins og tahð var og ekki heldur
flokkseigendafélagsins en þessar
fylkingar eru klofnar milh hans og
Þrastar ólafesonar.
Baráttan um 3. sætið
Þrír menn eru taldir blanda sér í
baráttuna um 3. sætið, Þröstur, Ás-
mundur og Guðni Jóhannesson,
formaður ABR. Hann tilkynnti þátt-
töku sína í forvalinu eftir að fram-
boðsfresturinn rann út og varð af
nokkur hvellur eins og menn eflaust
muna. Guðni tilheyrir „lýðræðis-
kynslóðinni" og mun hún setja
Guðna í 3. sætið. Hann er einnig
talinn njóta stuðnings unga fólksins
að hluta sem og margra almennra
félagsmanna í Reykjavík, þó ekki
væri fyrir annað en að hann er for-
maður félagsins.
Þegar Ásmundur Stefánsson til-
kynnti um þátttöku í forvalinu var
talið að hann nyti víðtæks stuðnings
bæði verkalýðsarmsins og flokkseig-
endafélagsins. Það hefur nú komið
í ljós að sá stuðningur er ekki jafh
víðtækur og búist var við, Þröstur
Ólafeson heggur þar stærra skarð
en ménn ætluðu. Þá er og ljóst að
Ásmundur ætlaði að nota sviðsljósið
í kringum formannafund ASI sér til
firamdráttar. Þröstur ólafeson, „guð-
faðir“ febrúarsamninganna, virtist
ætla að stela senunni aftur með sam-
þykkt Dagsbrúnar um frestun
samninga um það sem að ríkisvald-
inu snýr framyfir kosningar í vor.
Ásmundur sá þetta og fékk meiri-
hluta VMSÍ og formannaráðstefnu
ASÍ til að hafna þessari hugmynd
Þrastar. Þess í stað fékk Ásmundur
VSl til samninga daginn eftir for-
mannaráðstefnuna. Sviðsljósið var
hans.
Mótleikur Þrastar
Dagsbrún, höfuðvígi Þrastar, greip
þá til þess að samþykkja á stjómar-
fundi sl. miðvikudag ályktun sem
ekki var hægt að skilja á annan
hátt en þann að Dagsbrún væri að
ganga út úr samningaviðræðunum
Fréttaljós
Sigurdór
Sigurdórsson
og óska eftir sérviðræðum. Þröstur
ræddi við fréttamenn um málið og
varpaði fram sprengju. Formaður
Dagsbrúnar gengur út, sagði Þröst-
ur. Guðmundur J. gekk ekki út en
gat afeakað það sem formaður
VMSÍ. Halldór Bjömsson varaform-
aður kemur aftur á móti ekki nálægt
samningunum. Þama náði Þröstur
í allsterkan geisla af sviðsljósinu og
heldur honum alla vega til morguns.
Stuðningsmenn Þrastar Ólafeson-
ar hafa sent frá sér áróðursfjórblöð-
ung, það hafa flestir ffambjóðendur
gert. Það vekur hins vegar mikla
athygli hverjir skrifa undir fyrir
Þröst sem stuðningsmenn. Þar er að
finna nöfri eins og Gunnar Gunnars-
son, framkvæmdastjóra Starfe-
mannafélags ríkisstofnana, Pál
Bergþórsson veðurfræðing, Erling
Viggósson, frægan kosningabar-
áttumann, Guðmund J„ Tryggva
Emilsson, Sigursvein D. Kristinsson
tónlistarskólastjóra, Silju Aðal-
steinsdóttur bókmenntafræðing,
Halldór B. Runólfeson listfræðing,
Halldór Guðmundsson hjá Máli og
menningu og Leó Ingólfeson raf-
eindavirkjd. Þetta er feiknarlega
sterkur hópur. Páll Bergþórsson er
sterkari en margan grunar í gamla
sósíalistahópnum og flokkseigenda-
félaginu. Gunnar Gunnarsson, Silja
og Leó Ingólfeson sýna líka styrk
Þrastar og enginn skyldi vanmeta
menn á borð við Guðmund J. og
Tryggva Emilsson þegar þeir beita
sér.
Það er mat þeirra sem gerst þekkja
til að Þröstur Ólafeson hafi mjög
sótt á síðustu dagana og enginn þor-
ir að spá um hvor þeirra, Þröstur
eða Ásmundur, nær 3ja sætinu. Þeir
eru fleiri sem spá því að Guðni nái
því ekki. Aðrir frambjóðendur eru
taldir fjarri því að blanda sér í bar-
áttuna um 3ja sætið.
Óvissan alger um 4. sætið
í byrjun forvalsbaráttunnar var
talið að Álfheiður Ingadóttir gæti
komið til greina í 3. eða 4. sæti en
það er ekki talið líklegt lengur. Álf-
heiður nýtur stuðnings flokkseig-
endafélagsins en eftir að það
klofnaði upp minnka möguleikar
hennar. Einnig fer þvi fjarri að ein-
hugur sé meðal kvenna í ABR um
stuðning við hana. Konur munu
ekki síður styðja Olgu Guðrúnu, að
því er fróðir menn telja. Það er því
mikil óvissa um hver hreppir 4. sæt-
ið. Þar geta lent annaðhvort Þröstur
eða Ásmundur, Guðni Jóhannesson,
Álfheiður Ingadóttir eða Olga Guð-
rún. Jafrivel Pálmar Halldórsson
kemur til greina í það sæti, en allt
fer þetta eftir því hvemig atkvæði
manna dreifast í kjörinu
200 nýir félagar
Á síðustu dögum hafa 200 nýir fé-
lagar gengið í ABR. Hér er að
sjálfeögðu um smölun að ræða fyrir
forvalið. Talið er að stuðningsmenn
Þrastar hafi komið með um helming-
inn af þessum fjölda. Vitað er um
50 Þrastarmenn sem komu inn á
einu bretti. Tahð er að fjöldinn, sem
tekur þátt í forvalskosningunni,
verði milli 600 og 800 manns. Félag-
ar í ABR losa eitt þúsund. Á mið-
vikudaginn sem leið voru síðustu
forvöð að skrá nýja félaga inn í fé-
lagið þannig að það verða ekki fleiri
sem bætast við.
Verkalýðssætið
Um langt órabil hefur formaður
Dagsbrúnar skipað öruggt sæti á
lista Alþýðubandalagsins í Reykja-
vík. Nú verður það ekki. Miðað við
fyrra kjörfylgi og breyttar kosninga-
reglur ætti AB að fá 3 menn kjöma
í Reykjavík. Fái Ásmundur 3ja sætið
segja menn að það skipti ekki máli
hvort formaður Dagsbrúnar eða for-
seti ASÍ skipi sætið. Aðalatriðið sé
að maður úr verkalýðshreyfingunni
fái ömggt sæti. Nái Þröstur sætinu
segja menn að þar með haldi Dags-
brún sínu sæti. En menn tala líka
um það sem meiri háttar slys ef for-
seti ASÍ nær ekki ömggu sæti.
Einnig spyrja menn: Hvað gerir Ás-
mundur Stefánsson þá? Aðrir benda
á hættuna á því að Dagsbrúnarmenn
móðgist ef þeirra maður nær ekki
ömggu sæti. Þama er flokkurinn því
milli steins og sleggju.
Þeir em líka til verkalýðssinnamir
sem em óánægðir með þá báða Þröst
og Ásmund og kalla þá „hagfræð-
ingagengið" í verkalýðshreyfing-
unni. Þeir hafi hvomgur unnið sig
upp innan verkalýðshreyfingarinn-
ar. Þeim hafi verið rétt allt upp í
hendumar. Þessi hópur, sem er all-
stór, sem og róttækasti hópurinn
innan ABR, sem er best skipulagð-
ur, mun því ætla að styðja Guðna
Jóhannesson. I bæklingi, sem stuðn-
ingsmenn Guðna hafa sent frá sér,
er skotið fast á verkalýðsfoiystuna
og talað um nauðsyn „endurreisnar
verkalýðshreyfingarinnar og afnám
vinnuþrælkunar". Harðara er vart
hægt að gagnrýna verkalýðsforyst-
una.
Því er það eins og í upphafi þessa
fréttaljóss sagði, óvissan hefur ekk-
ert minnkað við það að Ólafur
Ragnar hætti við þátttöku í forval-
inu. Sennilega hefði orðið meira fjör
í forvalsbaráttunni ef hann hefði
verið með, alla vega á yfirborðinu,
en skotgrafahemaðurinn, sem nú á
sér stað, minni.
-S.dór
Stefán norður að gera liðskönnun
]án G. Ifeuksson, DV, Akureyri:
Stefan Valgeirsson þingmaður kom
í gær iil Akureyrar til að kanna liðs-
afla vegna hugsanlegs sérframboðs.
Hann heldur fund með stuðnings-
mönnum sínum á laugardag og fær
þá að sjá undirskriftalistana. Eftir það
ráðgast hann við helstu stuðnings-
menn sína. Búist er við yfirlýsingu frá
honum á mánudag, 1. desember, um
það hvort hann fari fram eða ekki.
„Ég er ekki búinn að ákveða eitt eða
neitt varðandi sérframboð," sagði
Stefán við DV í gær. „Ég er hinn róleg-
asti. Ég bíð bara og ætla að skoða
undirskriftalistana um helgina.“
Haraldur M. Sigurðsson, sem stjóm-
að hefur undirskriftasöfhuninni á
Akurevii, sagðist í gær ekki vilja segja
til um hve margir væru búnir að skrifa
sig á undirskriftalistana.
„Við ætlum ekki að gefa upp hve
margir hafa skrifað sig en Stefán hefur
gott fylgi,“ sagði Haraldur. Fari svo
að Stefán bjóði sig ekki fram verða
listamir brenndir í votta viðurvist.
Menn velta því mjög fyrir sér hveij-
ir fari hugsanlega fram með Stefáni.
Ljóst er að þar verður Akureyringur
að vera í góðu sæti en enginn Akur-
eyringur er í þrem efstu sætum á lista
Framsóknarmanna, B-listanum.
Meðal annarra líklegra, sem nefhdir
em á sérframboðslista Stefáns, em
Gunnar Hilmarsson, sveitarstjóri á
Raufarhöfri, Jóhann Jóhannsson,
framkvæmdastjóri á Þórshöfn, og Þó-
rólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri á
Þórshöfn. Er rætt um að þessir menn
muni skipa efstu sæti listans verði af
sérframboði.