Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1986, Page 6
6
FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986.
Fréttir
Ragnar Amason lektor á spástefnu Stjómunarfélagsins:
Kol Isteypa í lok næsta
árs líklegri en ella
- spáir allt að 30% verðbólgu en fjármálaráðhena boðar 5% verðbólgu
„Ég tel kollsteypu í árslok lík-
legri en ella,“ sagði Ragnar
Ámason lektor á spástefnu Stjóm-
unarfélagsins í gær um efnahags-
þróun hér á landi á næsta ári.
Ragnar lagði fyrir útreikninga sem
sýndu að með 7% hækkun kaup-
máttar launa steíndi í 26% verð-
bólgu eftir ár og 30% í janúar 1988.
Hann lagði jafnframt fyrir annað
dæmi þar sem ekki er gert ráð fyr-
ir launabreytingum nema 1,5%
launaskriði. í því er reiknað með
3% hækkun á gengi krónunnar til
þess að mæta erlendum verð-
hækkunum. Með því móti verður
niðurstaðan svo til óbreyttur verð-
bólguhraði og nú er um að ræða,
nálægt 12% á ári.
Þorsteinn Pálsson fjármálaráð-
herra vísaði til þjóðhagsáætlunar
í ræðu sinni og hagfræðinga sem
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækur óbund. 8-9 Ab.Bb, Lb.Sp
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 9-10.5 Ab
6 mán. uppsögn 10-15 Ib
12 mán. uppsögn 11-15,75 Sp
Spamaður - Lánsréttur
Sparað í 3-5 mán. 9-13 Ab
Sp. í 6 mán. ogm. 9-13 Ab
Ávisanareikningar 3-9 Ab
Hlaupareikningar 3-7 Sb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1-2 Bb.Úb.Vb
6 mán. uppsögn 2,5-4 Úb
Innián með sérkjörum 8.S-17
Innlán gengistryggð
Bandarikjadalur 5-6.5 Sb
Steriingspund 9-10.5 Ab
Vestur-þýsk mörk 3,9-4 Ab
Danskar krónur 7,5-9,5 Ab
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennir vixlar(forv.) 15,25-16, 25 Úb
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kge/19,5 *
Almenn skuldabréf(2) 15-17 Lb
Viðskiptaskuldabréf (1) kge Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 15-18 Lb
Útlán verðtryggð
Skuldabréf
Að 2.5 árum 5-6,75 Lb
Til lengri tima 5-6,75 Bb.Lb.Úb
Utlán til framleiðslu
ísi. krónur 15-16,5 Vb.Sp
SDR 8-J.25 Allir nema Ib
Bandaríkjadalir 7.5-7.75 Allir nema Bb.lb
Sterlingspund 12,75-13 Allir nema Ib
Vestur-þýsk mörk 6.5 Allir nema Ib
Húsnæðislán 3.5
Lifeyrissjóðslán 5
Dráttarvextir 27
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitala 1517 stig
Byggingavísitala 281 stig
Húsaleiguvisitala Hækkaði 9% 1. okt.
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 111 kr.
Eimskip 228 kr.
Flugleiðir 180 kr.
Hampiðjan 131 kr.
Iðnaðarbankinn 128 kr.
Verslunarbankinn 98 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbankinn reiknar þó vexti
af viðskiptavíxlum miðað við 19,5% árs-
vexti. (2) Vaxtaálag á skuldabréf til
uppgjörs vanskilalána er 2% bæði á
verðtryggð og óverðtryggð lán, nema í
Alþýðubanka og Verslunarbanka.
Skammstafanir: Ab=Alþýðubankinn,
Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðar-
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbank-
inn, Vb=V erslunarbankinn,
Sp = Sparisjóðimir.
Nánari upplýsingar um peninga-
markaðinn birtast í DV á fimmtudög-
um.
Spáð í efnahagsþróunina með aðstoð spákúlu Stjórnunarfélagsins. Þórður Friðjónssor, efnahagsráðgjafi ríkisstjórn-
arinnar og formaður félagsins, Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra og Guðmundur Magnússon prófessor.
DV-mynd KAE.
Fyrirtækin spá í launahækkanir á næsta ári:
Búast við allt að
25% kauphækkunum
Níu fyrirtæki hafa látið Stjómunar-
félaginu í té ýmsar spár um þróun
efnahagsmála á næsta ári. Þau spá að
meðaltali 14,7% kauphækkunum á
árinu. Það fyrirtækið sem býst við
mestu kauphækkunum reiknar með
24,7%. Lægsta spá er hins vegar 8,2%.
Fyrirtækin eru Eimskip, Flugleiðir,
Grandi, Hampiðjan, Hekla, Málning,
Nói-Hreinn-Síríus, Plastprent og SÍS.
Ekki er hægt að sjá hvaða fyrirtæki
spáir hverju þar sem forráðamenn
sumra fyrirtækjanna voru andvígir
því.
Mjög misjafrit er hvemig fyrirtækin
ætla að launahækkanir komi til yfir
árið. Fjögur þeirra búast þó við 5%
hækkun á fyrsta fjórðungi. Tvö búast
ekki við kauphækkunum fyrr en á
öðrum fjórðungi. Það fyrirtækið sem
er með hæstu spána yfir árið reiknar
greinilega með launasprengingu eftir
kosningar og 12% kauphækkun á
þriðja ársljórðungi einum. HERB
Á þessu súlurití má sjá þær spár einstakra en ónafngreindra fyrirtækja um heildarkauphækkanir á næsta ári sem
lagðar voru fram á spástefnunni. Auk þess sést meðaltal allra spánna.
ríkisstjómin styðst við. „Niður-
staða úr reikniformúlum hagfræð-
inganna er sú, að verðbólgan fari
niður undir 5%.“ Þá vom lagðar
fram spár 8 fyrirtækja. Tvö reikna
með tæplega 8% hækkun verðlags
á næsta ári, tvö með 11-12%, tvö
með 15% og tvö með 16-17% verð-
bólgu yfir árið.
í ræðum þeirra Þorsteins, Ragn-
ars og Guðmundar Magnússonar
prófessors kom fram að spár á þess-
ari stundu væm óvenju viðkvæm-
ar vegna ógerðra kjarasamninga.
Einnig viku menn að óvissu-
ástandi á komandi ári vegna
þingkosninga en slík ár hefðu jafn-
an einkennst af þenslu. Og allir
höfðu ræðumennimir áhyggjur af
þenslunni sem farið hefur vaxandi
undanfarið.
Hagfræðingamir gagnrýndu
hallarekstur ríkissjóðs og erlenda
skuldasöfhun sem hefði jafnvel
verið alveg óþörf að hluta. Guð-
mundur Magnússon sagði að með
því að greiða útlendingum hærri
raunvexti en landsmönnum hefði
peningalegur spamaður hér orðið
miklu minni en ella og lánsfé þvi
verið sótt til útlanda.
Fjármálaráðherra sagðist vona
að hallarekstur ríkissjóðs yrði úr
sögunni á næstu þrem árum.
HERB
Útvegsbankinn:
Starfsfólkið
vill endurreisa
bankann
„Það kom fram á fúndi starfs-
fólks og stjómenda hér í bankan-
um í fyrradag að fólkið vill fyrst
og fremst endurreisn bankans. Það
er ein leiðin sem Seðlabankinn
telur koma til greina,“ segir Hinrik
Greipsson, startsmaður Útvegs-
bankans, sem var fúndarstjóri.
„Ég vil taka það firam að vitn-
eskja okkar um að helst væri stefrit
að því að segja okkur öllum upp
byggist á samþykkt þingflokks
Framsóknarflokksins, en við vor-
um með ljósrít af þeirri samþykkt
í höndunum, úr fundargerðarbók
þingflokksins. Á henni má sömu-
leiðis skilja að ætlun framsóknar-
manna sé að okkur verði ráðstafað
að einhverju leyti til hinna ríkis-
bankanna.
Hins vegar var stjóm starfe-
mannafélags Búnaðarbankans
búin að vera á fundi með banka-
stjóminni þar, eftir að tillaga
framsóknarmanna um yfirtöku
þess banka á Útvegsbankanum
kom fram. Stjómin gerði okkur
síðan grein fyrir hugmyndum
bankastjómarinnar þar, ef af þessu
yrði. Milli okkar hefur alltaf verið
mjög gott samstarf og starfsmenn
Búnaðarbankans em okkur mjög
hliðhollir,“ segir Hinrik.
Hann segir að í umræðum á
fundinum hafi bankaráðið verið
spurt hvort það hefði reynt að
vinna endurreisn bankans fylgi.
Þór Guðmundsson, hankaráðs-
maður Alþýðuflokks, spurði á móti
hvað starfefólkið vildi og svar þess
var almennt lófaklapp. „Ég held
að ekki hafi verið hægt að gefa
einfaldara svar,“ segir Hinrik.
HERB