Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1986, Side 9
FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986.
9
Norski slátrarinn ívar Löre og fjölskylda hafa unniö allan sólarhringinn að
undanförnu til að anna eftirspurn eftir sviðum i Noregi. Brátt hefst útflutning-
ur fjölskyldunnar á sviðum til Hollands.
Norðmenn
sólgnir í svið
Pán Vflhjatmssan, DV, Osló:
Slátrarinn Ivar Löre í Voss í Vest-
ur-Noregi annar ekki eftirspum eftir
sviðum.
Fyrir fáum árum voru svið nær
óþekkt á borðum Norðmanna. Núna
lítur út fyrir að margir þeirra ætli að
hafa svið í jólamatinn.
ívar Löre hefur undanfama tvo
mánuði sent áttatíu þúsund kjamma
til verslana víðs vegar um landið.
Hann hefur í nítján ár reykt svið en
viðskiptavinimir fram að þessu ein-
göngu verið bundnir við heimabæinn,
Voss.
ívar segir það langa hefð í Voss að
borða svið og telur að brottfluttir
sveitungar hafi kennt öðrum Norð-
mönnum sviðaát. „Enda em svið
herramannsmatur," segir slátrarinn.
Fjölskylda ívars hefur unnið allan
sólarhringinn undanfarið til að anna
eftirspum eftir sviðum. Það er ekki
nóg með að Norðmenn vilji svið, held-
ur hafa fyrirspumir borist frá Holl-
andi.
Ivar og fjölskylda hefja brátt sviða-
útflutning þangað.
Flest fomarlömb
skellinöðruslysa
yngn en
Haukur L. Haukssan, DV, Kaupmannahofn:
Um fjömtíu prósent þeirra er lentu í
slysum á skellinöðrum á síðasta ári
vom undir nítján ára aldri. Alls áttu
sér stað sextán hundmð og fimmtán
skellinöðruslys, þar af fimmtíu og sex
dauðaslys.
Þó skellinöðruslysum hafi fækkað
um helming frá 1979 em líkumar á
að lenda í slysi hinar sömu og þá en
tólf af hverjum þúsund ökumönnum
skellinaðra lenda í slysi á ári hveiju.
mtjan ara
Um sextíu prósent skellinöðruslys-
anna em svokölluð sólóslys þar sem
enginn annar er viðriðinn. I fjömtíu
prósent slysanna eiga bifreiðir hlut að
máli.
Upplýsingar þessar er að fá hjá
tryggingarfélögunum. Þykir athyglis-
vert að sex drengir undir sextán ára
aldri létu lífið á skellinöðrum í fyrra
og níutiu og sex slösuðust.
Mega ökumenn skellinaðranna ekki
vera yngri en sextán ára.
Gorbatsjov
ásakar USA fyrir
að fara fram úr
takmörkun SALT-2
„Ákvörðun Bandaríkjamanna um
að fara upp fyrir takmarkanir
SALT-2 samkomulagsins um fjölda
kjamavopna em alvarleg mistök,
sem munu gera erfiðara fyrir við
afvopnunarviðleitninasagði Mik-
hail Gorbatsjov, leiðtogi Sovétríkj-
anna.
Vamarmálaráðuneytið banda-
ríska hafði sagt á miðvikudag að það
mundi bæta enn við flota B-52
sprengiflugvéla en þær bera stýri-
flaugar. Þar með fer fjöldi þeirra upp
fyrir 1320-takmörkin, sem kveðið var
á um í SALT-2 samkomulaginu við
Sovétmenn. Samkomulagið, sem
náðist upp úr viðræðum 1979, var
aldrei löggilt af Bandaríkjaþingi en
Washingtonstjómin hefur fram að
þessu haldið sig innan ramma þess.
Á fundi með fréttamönnum í morg-
un í Nýju Delhí að lokinni fjögurra
daga heimsókn á Indlandi sagðist
Gorbatsjov ekki hafa séð opinbera
yfirlýsingu um fyrirætlanir Banda-
ríkjamanna í þessum efnum en ef
rétt væri eftir vamamiálaráðuneyt-
inu haft þá styngi þetta i stúf við
það sem um var talað á leiðtogafund-
inum í Reykjavík og aðrar yfirlýs-
ingar Washingtonstjómarinnar eftir
hann.
Andstæðingarnir
tala nú um Northgate
Haukur L. Haukssan, DV, DaDas:
Uppljóstranir Edwin Meese, ríkissak-
sóknara Bandaríkjanna, um að hluti
fjánnagns þess er fékkst með sölu á
vopnum til íran hafi verið fengið
skæmliðum contrahreyfingarinnar í
Nicaragua í hendur til vopnakaupa,
hafa ekki einungis komið Reagan for-
seta og ríkisstjóm hans í klemmu
heldur virðast jafhframt ætla að leiða
til enn flóknarí stöðu sem ómögulegt
er að segja hvar endar.
Meese skýrði frá því á þriðjudag að
hluti af fjármagni þvi er fékkst fyrir
vopnabúnað er seldur var frá Banda-
ríkjunum gegnum ísrael til Iran hafi
verið lagður inn á bankareikning í
Sviss. Reikningurinn hafi verið undir
yfirráðum forystumanna contra-
skæmliða og hafi fjármagnið farið til
kaupa á vopnum fyrir hreyfinguna.
ísraelsstjóm þvertók fyrir það í gær
að hafa átt þátt í nokkrum slíkum til-
færslum á fjármunum. Sögðust ísraels-
menn hafa selt vopnin til íran í
greiðaskyni við Bandaríkjamenn og
þeir hafi ekki vitað annað en fjármun-
imir hafi allir átt að renna til banda-
rísku leyniþjónustunnar, CLA, að
minnsta kosti hefðu þeir ekki haft
hugmynd um að neitt hefði farið til
contrahreyfingarinnar.
Talsmaður bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins fullyrti í gær að ráðu-
neytinu hefði verið með öllu ókunnugt
um tilfærslur þessar og jafriframt að
sjálfstæðar tilraunir ráðuneytisins til
öflunar á upplýsingum í málinu hefðu
ekki gefið til kynna að neinir slíkir
flutningar á fjármagni hefðu farið
fram.
Helstu forystumenn contraskæm-
liða þvertóku einnig fyrir það í gær
að hreyfingu þeirra hefði borist nokkr-
ar peningasendingar eftir þeim leiðum
sem Meese saksóknari tiltók.
Augu manna beinast nú æ meir að
spumingum um hvað raunverulega
búi hér að baki.
Ekki er talin ástæða til að rengja
Meese. Talið er fullvíst að fjármunir
þeir sem hér um ræðir fari til skæm-
liðahópa sem berjast gegn ríkisstjóm
sandinista í Nicaragua. Ekki er heldur
ástæða til að rengja ísraelsmenn í því
að frá þeim hafi fjármunimir farið til
CIA eða inn á bankareikninga sem
bandaríska leyniþjónustan tilgreindi
við þá.
Og loks er ekki heldur talin ástæða
til að vefengja orð forystumanna
contraskæmliða um að þeir hafi ekki
séð þetta fjármagn.
Meðal andstæðinga Reagans forseta
hefur sú tilgáta skotið upp kollinum
hvað eftir annað undanfarin tvö ár
að bandaríska stjómin eða leyniþjón-
ustan í umboði stjómvalda hafi rekið
sína eigin hópa andspymumanna gegn
ríkisstjóm Nicaragua. Hópa sem
tengdir séu contrahreyfingunni, en séu
í raun reknir af Bandaríkjastjóm.
Þessar tilgátur fá nú byr undir báða
vængi því tilvist slíkra skæmliðahópa
myndi skýra á einfaldan hátt hvað
varð af fjármununum frá íran og jafh-
framt hvers vegna enginn kannast við
að hafa fengið þá í hendur.
Hitt er svo ljóst að leiði rannsókn
tilvist slíkra hópa í ljós á íranmálið
eftir að valda Reagan forseta og ríkis-
stjóm hans mun meira hugarangri en
það hefur gert til þessa.
Ef til vill reynast þá þeir hafa rétt
fyrir sér sem nú þegar em famir að
nefna mál þetta Northgate, það er
North eftir þeim starfsmanni öryggis-
málaráðsins sem virðist hafa fram-
kvæmt vopnasölumar og fjármagns-
flutningana upp á eigin spýtur og gate
að sjálfsögðu eftir Watergate málinu
sem varð Nixon fyrrum Bandaríkja-
forseta að falli.
Vilja herða eftir-
lit á Malakkasundi
Indónesía og Malaysía hafa orðið
ásátt um að auka öryggiseftirlit á
Malakkasundi, sem er meðal fjölf-
ömustu siglingaleiða heims. Þessi
tvö ríki hafa ákveðíð að gera út sam-
eiginlega eftirlitsleiðangra um
sundið.
Vamarmálaráðherra Malaysíu og
yfirmaður herafla Indónesíu gáfu út
sameiginlega yfirlýsingu um þetta
samstarf í gær að afloknum fundi
þeirra beggjá á Jövu.
Tilgangurinn er að stemma stigu
við smygli, eiturlyfjastreymi, ólög-
legum fiskveiðum og mengun frá
olíuskipum. En á þessum slóðum
hafa einnig verið brögð að sjóránum.
Samstarf þessara ríkja mun ná til
þess að skiptast á upplýsingum um
þá, sem gerast brotlegir, fylgjast með
olíumengun og starfa saman að því
að hreinsa upp olíubrák á sundinu,
sama hvert hana rekur. Ætlunin er
að gera út eftirlitsleiðangra saman
bæði í lofti og á sjó, og hafa sam-
starf um ratsjáreftirlit.
Útiönd
Austurríkismenn
æstír í lottó
Jóhanna Rútsdóttir, DV, Vimrborg:
Hér i Austurríki er spilað lottó
af fullum krafti og má trúlega full-
yrða að hver einasti Austurríkis-
maður þekki spilið og kunni
leikreglur þess.
Lottó er spilað í hverri viku og
eru tölurnar frá einum og upp í
tuttugu og fimm dregnar út í tíu
mínútna löngum sjónvarpsþætti á
sunnudagskvöldum.
Samkvæmt nýafstaðinni skoð-
anakönnun horfa níutíu prósent
þjóðarinnar alltaf á þennan þátt
og i viku hverri seljast að minnsta
kosti fimm milljónir raða.
Vinningar eru í formi peninga
og ákvarðast upphæðir eftir þátt-
töku hverju sinni.
Ef þátttakandi er einn með allar
tölumar sex réttar er vinningsupp-
hæðin yffrleitt um þrjátíu milljónir
íslenskra króna.
Það kemur einnig fyrir að enginn
er með sex rétta og er þá vinnings-
upphæðin tvöföld i næstu viku.
A bakhlið seðilsins má svo lesa
nokkrar tillögur um hvemig eyða
megi vinningsmilljónunum á
skemmtilegan hátt.
Hver vildi ekki eiga litla eyju í
karabíska hafinu með pálmatrjám,
fjörutíu lítra af fínu frönsku ilm-
vatni eða bjóða tuttugu vinum
sinum með sér í átta vikna heims-
reisu?
Það er því kannski ekkert und-
arlegt að sumir ljónhcppnir vinn-
ingshafar skuli fá taugaáfall í
kaupbæti.
Austurríkis-
menn deila
um sænsk
flugvélakaup
Snorri Valssan, DV, Vinarborg:
Miklar deilur hafa staðið yfir hér
í Austurríki að undanfömu vegna
flugvélakaupa austurríska flug-
hersins. I sumar sem leið gerðu
austurrísk yfirvöld samning við
Svía um kaup á svokölluðum Dra-
ken orrustuflugvélum sem margir
telja þegar orðnar úreltar.
Bæði ílialdsmenn og græningjar
mótmæltu kröftuglega þessum
samningi. íhaldsmenn vildu kaupa
aðra fullkomnari tegund frá
Bandaríkjunum en græningjar
vildu yfirhöfuð ekki kaupa neinar
fiugvélar.
Mál þetta komst síðan í sviðsljó-
sið á ný fyrir skömmu er flugslys
varð á meðan á þjálfunartíma
austurrískra fiugmanna stóð í Sví-
þjóð.
Nokkrir flugmenn austurríska
flughersins vora við æfingar í Suð-
ur-Svíþjóð er ein Draken-vélin
fórst á venjubundnu æfingafiugi
með austurrískan flugmann um
borð.
Enginn veit enn nákvæmlega
hvað gerðist en vélin hrapaði í
hafið skammt undan strönd Sví-
þjóðar.
Skipuð hefur verið sérstök rann-
sóknamefhd vegna flugslyssins og
er hún enn að störfum enda ennþá
verið að bjarga braki úr vélinni.
Almennt álit austurrísku flug-
mannanna er að erfitt sé að fljúga
Draken-vélunum og þurfi lítið út
af að bera til að illa fari. Sem dæmi
má nefha að þetta er tólfta slysið
sem orðið hefur á Draken-vélun-
um.
Á hinn bóginn, ef bilun í tækni-
búnaði hefur valdið slysinu, horfir
málið öðravfsi við.
Þá hafa Austurríkismenn átyllu
til að rifta samningnum og það er
einmitt það sem þeir virðast vilja
þessa stundina. En rannsóknar-
nefridin lýkinr störfum sínum i
næsta mánuði og þá kemur væntr
anlega hið sanna um orsakir
slyssins í ljós. *