Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1986, Page 18
18
FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986.
Iþróttir
•Arni Arason knattspyrnu-
dómari.
Ámi fékk
afreksbikar
dómara
„Ég fór ekki að taka dómara-
störfm alvarlega fyrr en fyrir
fjórum árum því þá varð ég að
gera það upp við mig hvort ég
ætlaði að feta mig upp stigann
eða standa í sömu sporum," sagði
Árni Arason, Akureyringur, nán-
ar tiltekið KA-maður, sem hlaut
„afrek8bikar“ KDS 1986 sem Jó-
hann Gunnlaugsson, kaupmaður
í Reykjavík, gaf. Ég ákvað svo
að leggja mig allan fram og sé
ekki eftir því þótt ég hafi orðið
að leggja svo til á hilluna mitt
annað áhugamál, hestamennsk-
una, bróður mínum til nokkurrar
skarpraunar. Hann vissi að tæki
ég flautuna alvarlega væri úti um
samstarf okkar í hestamennsk-
unni.“
Ámi hafði dæmt í mörg ár hjá
yngri flokkunum áður en hann varð
héraðsdómari. og störfin voru æði
mörg á hverju sumri en jukust um
allan helming eftir það. T.d. hefur
hann skilað nærri 100 störfum sem
knattspymudómari bæði í ár og eins
í fyrra. „Jú, ég fann til leiða á miðju
sumri en harkaði það af mér enda á
leiðinni á landsdómaraprófið og fyrst
ég stóðst það hyggst ég halda áfram,"
sagði Árni, „og koma vel undirbúinn
í næsta leiktímabil". emm
Drætti
frestað
í UEFA
Ákveðið hefur verið að fresta
drætti í næstu umferð í Evrópu-
mótiun félagsliöa í knattspymu -
meistarakeppninni, bikarkeppn-
inni og UEFA-keppninni.
Búið var að ákveða að dráttur-
inn færi fram í Zúrich 12. desemb-
er nk. eða eftir síðari leikina í
UEFA keppninni. Nú er hætt við
það og mun verða dregið 24. jan-
úar á næsta ári.
Athöfnin fer fram í Köln í Vestur-
Þýekalandi og verður sjónvarpað
viða um Evrópu. Ástæðan fyrir þessu
eir sú að þá munu einnig verða gefn-
ar út tilkynningar varðandi úrslit
Evrópukeppni landsliða í knatt-
spyrnu sem fram fer í Vestur-Þýska*
landi árið 1988. Mun t.d., í sambandi
við dráttinn, verða kynnt „lukku-
tröll" Evrópukeppninnar. -klp
llla gekk að Varmá
íslenska kvennalandsliðið í handbolta tapaði gegn USA, 18-26
íslenska kvennalandsliðið mátti
þola átta marka tap gegn því banda-
ríska í gærkvöldi. Leikurinn fór fram
í íþróttahúsinu Varmá að viðstödd-
um tvö til þrjú hundruð áhorfendum.
Fyrir leikinn var búist við sterku
bandarísku liði þar sem íslensku
stúlkurnar léku síðast við það fyrir
ári og töpuðu þá með þriggja marka
mun og þær upplýsingar lágu fyrir
að bandaríska liðið væri í mikilli
framför þar sem það hefði fengið
sænskan þjálfara, Claes Hellgren,
fyrrverandi landsliðsmarkvörð Svía.
Fyrri hálfleikur var þokkalega
leikinn af hálfu íslensku stúlknanna
og náðu þær að halda í við þær
bandarísku sem léku mjög hraðan
handbolta og byggðu mikið á hraða-
upphlaupum. Staðan í hálfleik var
12-10.
Byrjun seinni hálfleiks var án
marka fyrstu tíu mínúturnar en eftir
þá deyfð færðist mikill fjörkippur í
leikinn og íslenska liðið náði að
skora fjögur mörk á móti tveimur og
jafna leikinn í 14-14. En þá hófst
slæmur kafli hjá þeim íslensku. Hver
sóknin á fætur annarri fór forgörðum
sem bandaríska liðið nýtti sér vel og
skoraði átta mörk í röð, mest úr
hraðaupphlaupum, og breytti stöð-
unni í 22-14.
• Boris Becker, tenniskappinn snjalli.
Þeir bestu eru
íslenska liðinu tókst síðan að halda
jöfnu til leiksloka og lokatölur urðu
26-18. Bandaríska liðið er létt og
skemmtilega leikandi og þar bar
mest á þeim Cindy Stinger og Sam
Jones sem skoruðu flest mörkin. Það
kemur þó ekki í veg fyrir að íslensku
stúlkurnar eigi að geta sigrað þetta
lið. Þær eiga tvo leiki til hefnda,
þann fyrri í kvöld í íþróttahúsi Selja-
skóla og síðasta leikinn á morgun,
laugardag, og fer hann fram í Digra-
nesi.
Um leik landsliðsins er fátt að
segja, það hefur trúlega haft áhrif
að erfiðir leikir voru leiknir í 1. deild-
inni í gærkvöldi og stúlkurnar voru
langt frá sínu besta, baráttan í lág-
marki, helst að Ema Lúðvíksdóttir
og Erla Rafnsdóttir sýndu sitt rétta
andlit.
Mörk íslenska liðsins skoruðu
Guðríður Guðjónsdóttir 9/6, Erla
Rafnsdóttir 5, Erna Lúðvíksdóttir 2,
og Katrín Friðriksen 2.
-BD
•Guðný Gunnsteinsdóttir Skúlasonar fyrrverani
að skora.
klárir í slaginn
- á miklu tennismóti í New Yorfc
Nú er ömggt að allar stjörnumar
á karlavængnum í atvinnumennsk-
unni í tennis mæta í New York þegar
Masters keppnin hefst þar 3. desemb-
Þeir Ivan Lendl og Boris Becker
hafa báðir tilkynnt komu sína þang-
að en áður höfðu allir, eða nær allir,
sem vom fyrir neðan þá á listanum
yfir þá bestu tilkynnt komu sína.
Vandamálið er sem fyrr John
McEnroe. Hann var dæmdur í
keppnisbann fyrir skömmu og á ekki
að fá að vera með í þessu móti sem
er eitt af fjómm mestu tennismótum
heims. Eru Bandaríkjamenn uggandi
vegna þess. Hann er þeirra besti
tennismaður og ef hann mætir ekki
er ekki einn Bandaríkjamaður til
sem á möguleika gegn Evrópubúun-
um. Það svíður Kananum og óttast
menn að mótið verði illa sótt og lítið
um það fjallað af þeim sökum.
-klp-.
Sameiginlegt
norrænt átak?
Meðal þeirra mála sem rædd verða
á fundi forustumanna knattspyrnu-
mála á Norðurlöndunum, sem fram
fer 30. nóvember nk., er umsókn
Danmerkur og Svíþjóðar um að fá
að halda lokakeppni Evrópukeppni
landsliða í knattspymu 1992.
Gera Danir og Svíar sér vonir um
að fá það hlutverk. Þeir sóttu einnig
um að halda keppnina 1988 en þá
vom Noregur og Finnland með í
pakkanum. Það tókst ekki eins og
kunnugt er - Vestur-Þjóðveijar urðu
fyrir valinu.
Svíar og Danir telja sig þurfa góð-
an stuðning frá hinum Norðurlanda-
þjóðunum áður en þeir sækja
formlega um. Eitthvað óttast þeir að
Finnar og Norðmenn verði ósam-
vinnuþýðir eða frekar afskiptir í
þessu máli þar sem þeim er ekki boð-
ið aftur að vera með. Af íslandi og
hinum smáþjóðunum virðist knatt-
spyrnuforustan í Svíþjóð og Dan-
mörku hafa litlar áhyggjur fyrir
fundinn.
-klp
Skotinn sló í gegn
- skoraði tvö mörk í sínum fyrsta leik í Frakklandi
Efstu liðin í frönsku 1. deildinni í
knattspymu, Bordeaux og Marseille,
töpuðu bæði leikjum sínum um helg-
ina. Bordeaux tók forustu í deildinni
- þrátt fyrir tapið - á betri marka-
tölu því Marseille tapaði stærra.
Bordeux tapaði, 2.1, fyrir Brest sem
er um miðja frönsku deildina. Kom
það tap mörgum á óvart. Þó kom tap
Marseille fyrir Lens, sem Teitur
Þórðarson lék með fyrir tveim árum,
3.0, enn meira á óvart í Frakklandi
um þessa helgi. Átti enginn von á
því, hvað þá heldur svona stóru tapi.
Monaco kom sér fyrir í þriðja sæti
í deildinni með 1-0 sigri yfir meistur-
unum Paris St. Germain. Var það
léttur sigur því Monaco misnotaði
tvær vítaspyrnur í leiknum.
Ungur skoskur knattspymumaður
stal senunni frá öllum stjömunum í
frönsku knattspymunni um helgina.
Hann heitir Ray Stephen og var
keyptur frá Dundee til Nancy í síð-
ustu viku. Hóf hann sinn feril í
frönsku knattspyrnunni með því að
skora bæði mörk Nancy gegn Toulo-
use. Leiknum lauk 2-0 og féll
Toulouse við það í 4. sætið. Þetta var
þriðji sigur Nancy í deildinni á þessu
keppnistímabili og sá fyrsti síðan í
ágúst.
-klp-
,,54 mættu á fýrstu æfinguna“
- segir Jón Kr. Gíslason, íþróttamaður Keflavíkur 1986
„Ég hef leikið körfuknattleik frá
því ég var í sjötta flokki,“ sagði Jón
Kr. Gíslason, afreksbikarhafi ÍBK
1986, þegar við ræddum stuttlega við
hann um helgina. „Tildrögin að því
að ég tók að iðka þessa skemmtilegu
íþrótt vom þau að Ólafur Jónsson
kennari auglýsti körfuknattleiksæf-
ingu í litla íþróttahúsinu. Áhuginn
leyndi sér ekki. 54 mættu á fyrstu
æfinguna."
jgja má að framhaldið sé í fullu
iræmi við þennan fjölda. ÍBK læt-
æ meira að sér kveða á körfu-
ittleikssviðinu og Jón varð
íslandsmeistari í þriðja flokki ÍBK
árið 1978 og í aukagreininni, knatt-
spymunni, var hann meðal sigurveg-
ara ÍBK þegar þeir sigmðu UBK á
Selfossi í eftirminnilegum leik með
fjórum mörkum gegn einu. Meðal
samheija hans í knattspyrnunni
vom m.a. Ragnar Margeirsson, Óli
Þór Magnússon, Páll Þorkelsson o.fl.
Jón hefur ekki leikið allan sinn
körfúknattleiksferil með IBK - hann
var í eitt og hálft ár með UMFN en
sneri aftur í heimahagana. Eitt ár
dvaldi hann í Washington-fylki við
nám og körfuknattleik. „Mér féll
ekki mjög vel dvölin þar. Samdi ekki
við fjölskylduna sem ég bjó hjá. Svo
var fylkið „rugbyfylki" svo körfu-
knattleikurinn hvarf nokkuð í
skuggann. Annars sér maður það
núna að þjálfunin vestra var mjög
góð borið saman við hér á landi.
Mikil áhersla lögð á grunnþjálfunina
og oft æft sex sinnum í viku á móti
kannski þrisvar 'hjá okkur.“
Ástæðan fyrir því er sú að íþrótta-
húsin hafa ekki meiri tíma aflögu
fyrir körfuknattleikinn og kannski
er það alveg nóg, a.m.k. að áliti Auð-
ar Sigurðardóttur, unnustu Jóns,
ættaðri frá Siglufirði, en með Sigl-
firðingum leikur Jón einmitt knatt-
spymu á sumrum. Auði leiðist samt
ekki á meðan Jón puðar á æfingun-
um. Hún grúfir sig yfir skólabækum-
ar, stefnir að því að ljúka námi á
heilsugæslubraut í FS um jölin.
Jón lauk námi frá íþróttakennara-
skóla íslands í vor og er kennari við
Gagnfræðaskólann í Keflavík svo
hann er í stöðugri snertingu við í-
þróttimar alla daga.
Rétt er að geta þess að það var
KFK sem gaf afreksbikarinn í tilefni
af 30 ára afmæli ÍBK.
-emm
►Jón Kr. Gíslason sést hér með verðlaunagr