Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1986, Blaðsíða 28
40
FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986.
AndJát
Ari L. Jóhannesson fv. yfirverk-
stjóri lést 20. nóvember sl. Hann
fæddist 2. febrúar 1910 að Skálmard-
al í Múlahreppi, Barðastrandarsýslu,
sonur hjónanna Oddnýjar Guð-
mundsdóttur og Jóhannesar
Guðmundssonar. Eftirlifandi eigin-
kona Ara er Ásgerður Einarsdóttir.
Þeim hjónum varð þriggja sona auð-
ið. Áður hafði Ari eignast eina dóttir.
Hann helgaði stærstan hluta starf-
sævi sinnar störfum tengdum flug-
inu, fyrst hjá Flugfélagi íslands á
Akureyri en þar hóf hann störf 1944.
Síðar varð hann verkstjóri hjá Flug-
félagi íslands í Reykjavík, seinna
Flugleiðum, og starfaði þar í ein 30
ár. Utför hans verður gerð frá Foss-
vogskirkju í dag kl. 13.30.
Axelía Jónsdóttir frá Köldukinn
lést þann 25. nóvember i Sjúkrahúsi
Stykkishólms.
Björn Bergsteinn Björnsson, Sól-
heimum 30, lést af slysförum 26. þessa
mánaðar.
Útför Sigurástar Sturlaugsdóttur,
Hjaltabakka 12, áður húsfreyju að
Nýp á Skarðsströnd, fer fram frá
Lágafellskirkju laugardaginn 29.
nóvember kl. 14.
Sæmunda Þorvaldsdóttir, Silfur-
götu 28, Stykkishólmi, verður jarð-
sungin laugardaginn 29. nóvember
kl. 13.30 frá Stykkishólmskirkju.
Útför Ragnars Guðmundssonar,
Núpi, Vestur-Eyjafjallahreppi, fer
fram frá Ásólfsskálakirkju laugar-
daginn 29. nóvember kl. 14.
Tilkynningar
Aðventusamkoma Digranes-
safnaðar í Kópavogskirkju
1 Biblíunni er talað um bók, skrifaða utan
og innan. Bækur Biblíutímans voru bók-
roðlar. Það, sem utan á stóð.'var augljóst,
en til þess að sjá letrið á innra borði varð
að opna bókina.
Aðventunni er eigi alls kostar ólíkt far-
ið. Hún á sitt ytra borð, er blasir við öllum,
en það hið innra, sem hún bendir á og býr
yfir, er einatt ekki jafnáberandi. Með að-
ventuhátíðum sínum vill kirkjan auðvelda
þetta, að opna hugina fyrir boðskap að-
ventutímans og helgra jóla, sem horft er
fram til.
Árleg aðventusamkoma Digranessafn-
aðar verður í Kópavogskirkju sunnudag-
inn 30. nóvember kl. 20.30.
Kirkjukór Kópavogskirkju syngur und-
ir stjóm Guðmundar Gilssonar og Kjart-
ans Sigurjónssonar, Kór Öldutúnsskólans
í Hafnarfirði syngur undir stjóm Egils
Friðleifssonar og Bergljót Sveindóttir
syngur einsöng, Gunnar Kvaran leikur á
selló og Guðný Guðmundsdóttir á fiðlu,
Jón Baldvin Hannibalsson, alþm., flytur
ræðu og Ingimar Erlendur Sigurðsson,
skáld, les úr ljóðum sínum.
Sören Jónsson, formaður sóknamefnd-
ar, ávarpar samkomuna og endað verður
á helgistund með almennum söng.
Félag Snæfellinga og Hnapp-
dæla í Reykjavík
Ákveðið hefur verið að taka upp þá ný-
breytni hjá félaginu í vetur að hafa sér-
staka spiladaga þar sem spiluð verður
félagsvist. Ennfremur er áformað að hafa
önnurskemmtiatriði. Fyrsta spilaskemmt-
unin verður haldin sunnudaginn 30.
nóvember nk. í Sóknarsalnum að Skip-
holti 50a og hefst kl. 14.30. Athygli er
vakin á að þetta er tilraun og ef hún tekst
vel þá verður önnur spilaskemmtun hald-
inn sunnudaginn 8. mars nk. Mætið vel
og stundvíslega og takið með ykkur gesti.
Sýningar Þjóðleikhússins um
helgina
Tosca, Uppreisn og Valborg
Óperan Tosca eftir Puccini er á fjölum
Þjóðleikhússins í kvöld og sunnudags-
kvöld. Elísabet F. Eiríksdóttir fer með
hlutverk Toscu í kvöld en Elxn Ósk
Óskarsdóttir á sunnudagskvöldið. Robert
Becker syngur Scarpia og Kristján Jó-
hannsson Cavaradossi. Hljómsveitarstjóri
er Guðmundur Emilsson. í sýningunni
tekur þátt hátt á annað hundrað manns
að meðtöldum einsöngvurum, Þjóðleik-
húskómum, drengjakór, aukaleikurum og
sinfóníuhljómsveit. Síðasta sýning á ópe-
mnni Tosca verður 14. desember. Uppselt
hefur verið á allar sýningar til þessa.
Uppreisn á ísaflrði efitir Ragnar Am-
alds hefur slegið í gegn svo um munar.
Þegar em komnar á þriðja tug sýninga
fyrir fullu húsi. Leikstjóri er Brynja Ben-
ediktsdóttir og leikmyndahönnuður
Sigurjón Jóhannsson. Alls taka um 50
manns þátt í leiknum en í aðalhlutverkun-
um em Róbert Amfmnsson (Magnús
Stephensen), Randver Þorláksson (Láms
H. Bjamason), Kjartan Bjargmundsson
(Skúli Thoroddsen), Lilja Þórisdóttir (The-
odóra Thoroddsen), Lilja Guðrún Þor-
valdsdóttir (Díana) og Helgi Skúlason
(Grímur Thomsen). Uppreisn er sýnd á
laugardag kl. 20.00 og er það næst síðasta
sýning fyrir jól.
Valborg og bekkurinn eftir Finn Met-
hling er sýnd í Leikhúskjallaranum á
sunnudag kl. 16, með Guðrúnu Þ. Step-
hensen og Karli Ágúst Úlfssyni í hlutverk-
um Valborgar og bekkjarins. Þessi hlýlegi
litli söngleikur fjallar í léttum dúr um ævi
ekkjunnar Valborgar sem nú er orðin ást-
fangin á ný. Hægt er að njóta kaffiveitinga
á undan og meðan á sýningu stendur.
nv
AKUREYRI
Starfskraftur óskast til að dreifa DV á Akureyri, þarf
að hafa bíl til umráða.
Upplýsingar á afgreiðslu DV, Skipagötu 13, Akureyri,
milli kl. 13 og 19 í síma 25013.
Nauðungaruppboð
Af kröfu Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hdl., Jóns G. Briem hdl., Brynjólfs Kjart-
anssonar hrl., Inga H. Sigurðssonar hdl., Guðjóns Annanns Jónssonar hdl.
og fleiri verða eftirtaldir lausafjármunir seldir á nauðungaruppboði sem fram
fer föstudaginn 5. desember 1986 kl. 16.00 við Tollvörugeymslu Suður-
nesja, Hafnargötu 90, Keflavík: Bifreiðirnar: Ö-343, Ó-426, 0-839, Ö-1266,
Ö-1458, Ö-1710, Ö-1860, Ö-2048, Ö-2144, Ö-2233, Ö-2384, 0-2774,0-
3217, 0-2417, Ö-3840, 0-4594, 0-5615, 0-5997, 0-6512, 0-6713,
0-6756, 0-7699, Ö-8025, 0-8581, 0-8905.
J-193,J-400, X-1640, R-62077, 0-6120, Honda CB 750 C mótorhjól árg.
'82 Efflinger dísillyftari, gulur að Irt, Massey Ferguson traktorsgrafa árg. '84.
Ennfremur verða seld litsjónvörp, videotaeki, sófasett, sófaborð og homborð
með lituðu gleri. Plötuspilarar, segulbönd, hátalarar, magnari og Nod kraft-
magnari. Einnig 35 bindi af ritsafni Halldórs Kiljan Laxness og 5 bindi af
Skútuöldinni.
_________Uppboðshaldarinn í Keflavík
I gærkvöldi
Unda Ros Michaelsdóttir kennari:
„Misskilið samkeppnina"
Ég horfði á bjargvættinn í gær,
það var horfandi á hann, ósköp
venjulegur bandarískur þáttur. Þeim
gamla missi ég aldrei af. Þessir tveir
þættir eru ágætir til afþreyingar. Ég
horfði líka á í örlagastraumi, hann
er mjög spennandi.
Fréttimar í sjónvarpinu eru alveg
frábærar en ekki fréttatíminn. Hann
er ágætur fyrir fólk sem hefúr nægan
tíma og fjárráð en ég get ekki ímynd-
að mér að einstæðar mæður og aðrir
sem þurfa að vinna mikið hafi nokk-
um tíma til að setjast niður og horfa
á fréttimar. Ég held að Ingvi Hrafn
hafi misskilið samkeppnina. Sjón-
varpið á jú að þjóna hlustendum og
það em 68% þjóðarinnar sem vilja
hafa fréttimar á öðrum tíma. Frétt-
imar em búnar að vera í ein 20 ár
að þróast í það sem þær em núna
Linda Rós Michaelsdóttir.
þannig að sjónvarpið ætti engu að
þurfa að kvíða hvað varðar sam-
keppni. Fréttimar á Stöð 2 eiga langt
í land til'ná fréttunum hjá ríkissjón-
varpinu hvað varðar gæði.
Annars var þátturinn í návígi
nokkuð skemmtilegur, Jón Baldvin
nokkuð góður en Svavar var eins
og gatslitin plata.
Þættir eins og Opperman þættimir
em alveg nauðsynlegir öðm hverju
til að minna á það sem gerðist og
ágætir fyrir námsfólk sem er að læra
söguna.
Bylgjan er mjög gott vinnustaða-
útvarp því þar er efnið brotið upp
og það er ekki alltaf sama tuggan.
Þættimir með Einari á sunnudags-
morgnum em einir þeir bestu sem
boðið er upp á.
Vetrarfagnaður harmoniku-
unnenda
Félag harmonikunnenda heldur vetrar-
fagnáð 29. nóvember kl. 21 í Risinu,
Hverfisgötu 105. Allir velkomnir.
Gallerí Listver
Austurströnd 6, Seltjarnarnesi
Þar stendur yfir málverkasýning Stein-
þórs Marinós Gunnarssonar. Á sýning-
unni eru 70 verk, olíumálverk, vatnslita-
myndir, monotýpur (einþrykk) og
olíukrítarmyndir.
Haf og land er yfirskrift sýningarinnar
og er yrkisefni Steinþórs minningar um
leikvang æskuáranna í Þorpinu (Suður-
eyri) sem er fjaran og ólgandi brimaldan
og hafið í nálægð sinni. Einnig sækir hann
myndefnið í öræfin og í nálægð náttúrunn-
ar.
Hann hefur haldið fjölmargar einkasýn-
ingar hér heima og erlendis.
Hann sýndi seinast í Norræna húsinu
’82.
Sýningin er opin dagana 22.-30. nóv. frá
kl. 16.00-20.00 og um helgar kl. 14.00-20.00.
Börn og foreldrar
Bamabókadagskrá íslandsdeildar IBBY
og Gerðubergs verður sunnudaginn 30.
nóv. kl. 16.00 í Gerðubergi.
Dagskrá verður sem hér segir:
Sigrún Eldjárn les upp úr bók sinni ,,Bét-
veir“. (B2)
Þorvaldur Þorsteinsson les upp úr bók
sinni „Skilaboðaskjóðan”.
Iðunn Steinsdóttir les upp úr bók sinni
„Jólasveinarnir".
Leikarar Alþýðuleikshússins úr leikrit-
inu „Kötturinn sem fer sínar eigin leiðir",
eftir ævintýri Kiplings í leikgerð Ólafs
Hauks Símonarsonar, koma og flytja
söngva.
Húsið opnað kl. 15.00.
Michael Voslensky ræðir um
leiðtogafundinn í Reykjavík
Dr. Michael S. Volensky, prófessor í
Múnchen, flytur erindi á ensku og svarar
fyrirspumum á hádegisfundi sem Samtök
um vestræna samvinnu (SVS) og Varðberg
halda sameiginlega í Átthagasalnum á
Hótel Sögu laugardaginn 29. nóvember.
Salarkynni verða opnuð klukkan 12.
Fundurinn er aðeins opinn félagsmönnum
og gestum þeirra. Umræðuefni dr. Volen-
skys er: Leiðtogafundurinn í Reykjavík.
1. Hver vom hin raunverulegu ágreinings-
efni? 2. Hin tvö kerfi: Hið opna, bandaríska
þjóðfélag, og hið lokaða sovéska þjóð-
félag. Er hægt að bera þau saman? Sé svo,
þá hvemig? Dr. Phil. Amór Hannibalsson,
dósent við Háskóla íslands kynnir ræðu-
mann í upphafi fundar. Voslensky er
höfundur hinnar heimsfrægu bókar um
herrastéttina í Sovétríkjunum, „Nómenk-
latúra", og er nú forstöðumaður Sovét-
rannsóknastofnunarinnar í Múnchen, en
áður var hann m.a. framkvæmdastjóri
Afvopnunardeildar Sovésku vísinda-aka-
demíunnar og starfsmaður Heimsfríðar-
ráðsins.
AEmæli
inn 29. nóvember, Stefán Guð-
mundsson, Eskihlíð 14, Reykjavík.
Á afmælisdaginn ætlar hann ásamt
eiginkonu sinni að taka á móti gest-
um á heimili dóttur sinnar og
tengdasonar á Kjarrvegi 13 í Foss-
vogshverfi eftir kl. 17.
75 ára afmæli á í dag, 28. nóvember,
Þorleifur Guðmundsson, Greni-
mel 4, Reykjavík. Hann og kona
hans, Guðrún Bergsdóttir, taka á
móti gestum í Oddfellow-húsinu í dag
kl. 16-19.
70 ára afmæli á í dag, 28. nóvember,
Ágúst Jóhannesson, hafnarstjóri
Keflavíkurhafnar, Óðinsvöllum 5,
Keflavík.
85 ára verður á morgun, laugardag-
inn 29. nóvember, Þuríður
Guðmundsdóttir frá Bæ í Stein-
grímsfirði, nú í Hrafnistu i Rvík. Hún
ætlar að taka á móti gestum í Safnað-
arheimili Bústaðakirkju á afmælis-
daginn eftir kl. 17.
80 ára verður á morgun, laugardag-
inn 29. nóvember, Svavar Sigfinns-
son, fv. bifreiðastjórí, Máshólum 10,
Breiðholtshverfi. Hann ætlar að taka
á móti gestum á afmælisdaginn í
veitingahúsinu Glóðinni í Keflavík
milli kl. 15 og 18.
Starfsafmæli
Jóakim Elíasson á 40 ára starfsaf-
mæli' hjá Rafveitu Selfoss í dag, 28.
nóvember. Jóakim er 66 ára og á
heima á Austurvegi 57, Selfossi.
Hann hefur starfað víða og alls stað-
ar verið vel kynntur.
Fundur í dag:
Siátrun
laxfiska
Einn helsti sérfræðingur úr hópi
dýralækna í eldi og slátrun laxfiska,
Sverra Ola Roald frá Noregi, mætir á
Hótel Sögu í dag á opnum fundi og
ræðir um þessi mál. Fundurinn hefst
klukkan 16.
Þessa dagana er haldið endurmennt-
unamámskeið fyrir íslenska dýra-
lækna sem snýst um fiskeldi og
fisksjúkdóma. Fyrirlesarar eru bæði
norskir og íslenskir. -HERB