Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1986, Síða 36
62 • 25 • 25
FRÉTT ASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu um frétt hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er
notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 4.500 krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Rltstjórrs - Auglýsíngar - Áskrift - Dreifing: Simi 27022
FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986.
Fréttatími sjónvaips:
Breyt-
ingum
frestað?
- Kári fréttastjóri?
„Ég ætla að láta á það reyna hvort
valdhroki meirihluta útvarpsráðs sé
það mikill að skoðanir allra starfs-
manna íréttastofu sjónvarps séu virtar
að vettugi," sagði Magnús Erlendsson
útvarpsráðsmaður í samtali við DV í
morgun. „Því hef ég hugsað mér að
bera fram tillögu um að fyrirhuguðum
flutningi á fiéttatíma sjónvarps fram
til klukkan 20 verði slegið á frest.“
Fundur útvarpsráðs hófst klukkan
11 í morgun og er DV fór í prentun
var ekki ljóst hverjar undirtektir til-
laga Magnúsar Erlendssonar hafði
fengið.
„Við teljum okkur hafa fært rök fyr-
ir því að flutningur á fréttatíma
sjónvarps fram til klukkan 20 geti
haft alvarlegar afleiðingar en einnig
höfum við lagt til við útvarpsráð að
sjónvarpsfréttir verði lengdar upp í 45
mínútur," sagði Ingvi Hrafri Jónsson
fréttastjóri.
Á fundi útvarpsráðs í morgun var
einnig fjallað um ráðningu nýs frétta-
stjóra á fréttastofu hljóðvarps: „Ég tel
að núverandi varafréttastjóri hafi
meirihlutafylgi í útvarpsráði," sagði
Magnús Erlendsson og átti þar við
Kára Jónasson, einn af fjórum um-
sækjendum um starfið.
-EIR
Verslanir
opnar til
kl. 4 á morgun
Jólaverslunin er að komast á fullt
skrið. Samkvæmt kjarasamningum
mega verslanir vera opnar til kl. 21 á
fóstudögum. Á morgun eru verslanir
opnar til 16.
-A.BJ.
Komdu með f
A1IKLAG4RD
Umfangsmikið fjársvikamái hjá Bílaborg:
Gjaldkeri kærður
fyrir fjárdrátt
Rannsóknarlögreglu ríkisins hef-
ur borist kæra á hendur einum af
gjaldkerum fyrirtækisins Bílaborg
vegna gruns um umfangsmikinn
fjárdrátt viðkomandi hjá fyrirtæk-
inu. Samkvæmt heimildum DV mun
hér vera um að ræða upphæð hátt
á aðra milljón króna.
Ennfremur hefúr komist upp um
hátt á aðra milljón
fjármálamisferli hjá öðrum starfs- þeim hætti að hann tók við reikning-
manni fyrirtækisins sem starfaði í um frá viðgerðarverkstæði fyrirtæk-
annarri deild þess og var þar um að isins og átti síðan að skila þeim til
ræða fjárhæðir upp á nokkur hundr- aðalgjaldkera ásamt uppgjöri. Hann
uð þúsund. þvi máli lauk með sátt mun hafa stundað það að halda eftir
og borgaði viðkomandi „skuld“ sína ýmsum reikningum og þar með
við fyrirtækið. Báðum mönnunum greiðslum fyrir þá, nokkum tíma í
hefur verið vikið úr starfi. einu, en skilað þeim síðan inn og
Fjárdráttur gjaldkerans var með borgað með nýju fé sem hann fékk
í hendumar. Mun þetta hafa gengið
í allnokkum tíma.
Þórir Jensson, framkvæmdastjóri
Bílaborgar, vildi ekkert tjá sig um
þetta mál er DV hafði samband við
hann en sagði að mönnum gæti orð-
ið á í starfi.
-FRI
Nýttís-
lenskt vodka
á Banda-
ríkjamarkað
Nú standa yfir samningar Áfengis-
og tóbaksverslunar ríkisins og
bandaríska fyrirtækisins Glenmore
Distilliries um framleiðslu og sölu
nýrrar íslenskrar vodkategundar á
Bandaríkj amarkaði.
Samkvæmt upplýsingum sem DV
fékk hjá Höskuldi Jónssyni, for-
stjóra ATVR, hófst samvinna ÁTVR
og hinna bandarísku aðila árið 1984
og hefði verið byggt á því að áfengis-
verslunin kostaði engu til við
hönnun, auglýsingar eða aðra mark-
aðssetningu. Sagði Höskuldur að
Glenmore Distillieries hefði síðan
farið að velta fyrir sér nafiii, flösku-
gerð og fleiru og jafnframt rannsak-
að hvaða bragðkeimur myndi falla
Bandaríkjamönnum best. Nú væri
svo komið að útlit flösku og miða
væri tilbúðið ásamt því að uppskrift
hefði verið ákveðin, en enn hefðu
ekki tekist fullnaðarsamningar við
bandaríska fyrirtækið, enda samn-
ingsgerð af þessu tagi margþætt.
Þessu nýja vodka hefur verið valið
nafhið Eldur Is.
-ój
Höskuldur Jónsson með flösku af hinu nýja vodka.
DV-mynd B.G.
LOKI
Engin veðmál tekin
gegn „valdahrokan-
Veðrifl á morgun:
Rigning eða
slydda um
sunnanvert
landið
Á laugardaginn verður austan- og
suðaustanátt á landinu. Allhvasst
og slydda eða rigning um sunnan-
vert landið en mun hægara og
úrkomuminna annars staðar. Hiti
verður á bilinu -3 til 3 stig.
Framboð fatlaðra?
Stjóm Öryrkjabandalags Islands
íhugar möguleika á sérframboði fatl-
aðra við næstu þingkosningar. Á
aðalfundi bandalagsins fyrir mánuði
var því beint til stjómar að möguleiki
á sérframboði yrði kannaður. Tekið
var undir þessar hugmyndir á fundi í
fyrradag með ýmsum aðildarfélögum
Öryrkjabandalagsins og Þroskahjálp-
ar.
„Það ólgar og sýður undir niðri. Nú
er svo komið að fólk, sem lifir á bótum
Tryggingastofnunar ríkisins, hefur
ekki efni á að greiða almenna húsa-
leigu og sjá sér fyrir fæði og klæði.
Getur nokkur ímyndað sér að hægt
sé að lifa af 15 til 18 þúsund krónum
á mánuði?“ sagði Arnþór Helgason,
formaður Öryrkjabandalagsins.
-KMU