Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1987, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1987, Síða 2
2 MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 1987. Fréttir Samþykkt að rann- saka tannlækningar Eina þingsályktunartillagan og jafnframt eina þingmálið, sem stjóm- arandstöðuþingmenn náðu í gegnum Alþingi fyrir jól, var tillaga Jóhönnu Sigurðardóttir, Alþýðuflokki, um könnun á tannlæknaþjónustu. Með henni fluttu málið Kolbrún Jónsdóttir og Magnús H. Magnússon. Með samþykkt tillögunnar ályktaði Alþingi að fela heilbrigðis- og trygg- ingaráðherra að láta kanna notkun tannlæknaþjónustu hér á landi og kostnað neytenda af henni. Fela ætti Félagsvísindastofnun Háskólans verkefhið. Flutningsmenn segja að eftir slíkum upplýsingum mætti ákveða hvaða leiðir ætti að fara til að auka tann- vemd og fyrirbyggjandi aðgerðir og þar með draga úr tannlæknakostnaði. Þær upplýsingar myndu einnig auð- velda ákvarðanir um frekari þátttöku hins opinbera í tannlæknakostnaði, sem og um mótun stefnu í tannlækn- ingum. -KMU Bílvelta á Lambhagamelum í nótt varð bílvelta á Lambhagamel- um skammt fyrir ofan Akranes. Tvennt var í bílnum, maður og kona, og slasaðist konan töluvert en maður- inn slapp lítt meiddur. Konan var fyrst flutt niður á Akranes en meiðsli henn- ar reyndust það mikil að þyrla Landhelgisgæslunnar var send eftir henni í morgun og flutti hún hana á Borgarspítalann. Mikil hálka var á þessum slóðum er slysið varð og hefur svo verið und- anfarið enda hafa nokkrir bílar lent þama út af veginum. _fri Meinatæknar semja og afturkalla uppsagnirnar - fá sömu hækkanir og ríkismeinatæknar Meinatæknar em aftur byijaðir að vinna á Borgarspítalanum. Sam- komulag tókst í deilu þeirra við Reykjavíkurborg í gær. Starfsmannafélag Reykjavíkur- borgar, fyrir hönd meinatækna, og Reykjavíkurborg, gerðu með sér svo- fellt samkomlag: „Meinatæknar falla frá uppsögn- um úr starfi, sem áttu að koma til framkvæmda 31. desember síðastlið- inn. Meinatæknar fá sömu launa- hækkanir og meinatæknar hjá ríkinu hafa fengið á árinu 1986 og frá sama tíma. Launamál meinatækna verða tek- in til athugunar á næstunni. Reykjavíkurborg lýsir því yfir að komi á ný til uppsagna meinatækna úr störfum á fýrri hluta árs 1987 muni eigi verða beitt ákvæðum um þriggja mánaða framlengingu upp- sagnarfrests og þess ekki krafist að uppsagnarfrestur miðist við mán- aðamót.“ Undir samkomulagið rituðu Magnús Óskarsson borgarlögmaður og Haraldur Hannesson, formaður Starfsmannafélags Reykjavíkur- borgar. ' -KMU _ Bráða- birgða- lausn Margrét Andrésdóttir, meinatæknir á Borgarspítal- anum, sagði í samtali við DV í morgun að þar sem sam- komulag hefði náðst við borgaryfirvöld um kröfur meinatækna hefðu þeir ákveðið að hefja störf að nýju. Margrét sagði að sam- komulag þetta væri byggt á því tilboði sem meinatæknar hefðu lagt fram skömmu fyrir áramót. Margrét sagði hins vegar að meinatæknar litu á þetta samkomulag sem bráða- birgðalausn og myndu komandi kjarasamningar og þróun mála varðandi sölu á Borgarspítalanum ráða miklu um framhaldið. -ÓA Suðurland: Sjópróf hófúst í morgun Sjópróf vegna Suðurlandsins, sem fórst á aðfangadagskvöld, hófust hjá bæjarfógetanum í Hafnarfirði kl. 10 í morgun og munu standa fram í vik- una. -FRI I gær var frumsýnd leikgerð Guðrúnar Ásmundsdóttur um danska prestinn Kaj Munk í Hallgrímskirkju. í tilefni af frumsýningunni kom ekkja Kaj Munk, Lise, til landsins ásamt syni sínum. Hér heilsar forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, upp á Lise Munk. DV-mynd GVA/-ia ..Dæmalaus ákvörðun“ - segir Kristján Ásgeirsson, útgerðarstjóri á Húsavík Sú breyting sem gerð var á fram- salsrétti botnfiskkvóta þeirra skipa sem rækjuveiðar stunda og frysta aflann um borð á næsta ári, og mið- ar að stjómun rækjuveiðanna, hefur að sjálfsögðu vakið upp andstöðu þeirra er málið snertir. Það sem mestum deilum veldur er að láta eitt tonn af bolfiski koma á móti tonni af óskelflettri rækju. „Hér er um dæmalausa ákvörðun að ræða. Markmið kvótakerfisins í bolfiskveiðum var að vernda fisk- stofna og koma á hagræðingu í útgerð. Með þessum nýju ákvæðum í stjómun rækjuveiðanna er verið að auka stórlega óhagræðingu í veiðunum," sagði Kristján Ásgeirs- son, útgerðarstjóri togaranna á Húsavík. Kristján nefndi sem dæmi togar- ana tvo á Húsavík. Júlíus Hafstein hefur verið á rækjuveiðum sl. 3 ár og hefur látið Kolbeinsey hafa bol- fiskkvóta sinn í staðinn. Gilt hefur fram til þessa hálft tonn af rækju á móti einu tonni af þorski. Nú er það tonn á móti tonni. Þetta verður til þess, að sögn Kristjáns, að Júlíus Hafstein verður nú að fara og taka sinn bolfiskkvóta en Kolbeinsey að taka sinn rækjukvóta. Þetta sagðist hann ekki kalla hagræðingu heldur óhagræðingu og að þetta stríddi gegn þeim hugmyndum sem setning kvótakerfisins byggðist á. „Það versta við þetta er þó að með þessu er ekki verið að vemda rækju- stofhinn, því þetta hefur ekkert með vemdun stofnsins eða minni veiði að gera heldurt aðeins óhagræðingu, ekkert annað. Þama hlýtur að vera um hugsanavillu að ræða, ég trúi ekki öðru,“ sagði Kristján Ásgeirs- son. Málið snertir fjölmarga aðila og verður eflaust mikið í umræðunni á næstu vikum. -S.dór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.