Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1987, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1987, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 1987. Útlönd Tólf fórnst og 160 slös- uðust í lestaárekstn Tólf manns fórust og yfir hundrað og sextíu slösuðust þegar hraðlest með 350 farþega innanborðs rakst á vöru- flutningalest um 24 km norður af Baltimore. Fjórir farþegavagnar lentu í einni bendu, hver ofan á öðrum, og var enn í morgun unnið að þvi að reyna að bjarga fólki sem var fast inni í brakinu. Farþegalestin var á leið frá Was- hington til New York og Boston en áreksturinn varð þegar tvær eða þrjár vöruflutningaiestir virtu ekki rautt viðvörunai’ljós og fóru inn á aðalteina beint í veg fyrir Amtrak-hraðlest sem var á 176 km hraða. Rannsókn er enn of skammt á veg komin til þess að að nokkuð liggi fyrir um hví stjómendur vöruflutningalestanna gættu ekki við- vörunarljóssins. Björgunarmenn hafa háð átakan- lega baráttu til þess að bjarga fólki út úr brakinu og undan eldtungum. Urðu þeir um tíma að ganga að björg- unarstarfinu með reykgrímur vegna kófsins frá eldunum. Einni konu varð ekki bjargað öðru vísi en taka af henni fótinn sem var fastur undir þungu fargi. Fimmtíu vom alvarlega slasaðir af þeim 160 sem fluttir voru á sjúkrahús. 110 gátu þó gengið óstuddir að feng- inni læknishjálp. Það var einnig á Torgi hins himneska friðar í Peking sem Kínverjar fóru í mótmælagöngu fyrir tíu árum. Peking: Stúdentar brenna dagblöð í mótmælaskyni Gagnrýni stúdenta í Peking beinist nú að fjölmiðlum og í morgun brenndu hundruð stúdenta eintökum af hinu opinbera málgagni í Peking. Segja stúdentar fréttir blaðsins af mánaðarlöngum mótmælum rangar. Ekki sé greint frá orsök mótmælanna og fúllyrt sé að stúdentum sé stjómað af fáeinum óeirðaseggjum. Fjölmiðlar gerðu lítið úr göngu þús- und stúdenta að Torgi hins himneska friðar er þeir kröfðust lausnar að minnsta kosti tuttugu og fjögurra fé- laga sinna. Aftur á móti vom birt viðtöl við hermenn, bændur, verka- menn og menntamenn sem kvörtuðu undan því að mótmælaganga stúdenta hefði hindrað eðlilega umferð. Námsmenn em einnig óánægðir með þær fullyrðingar yftrvalda um að sam- særismenn, er nytu stuðnings frá Taiwan, hefðu kynt undir óeirðir í kínverskum háskólum. Róa til Suður- skautslandsins Fjórir Bandaríkjamenn em komnir til syðsta odda Suður-Ameríku, þaðan ætla þeir sér að verða fyrstir til þess að róa yfir til Suðurskautslandsins. Þykir það í mikið ráðist, því að þetta er óveðrasamt svæði, og sir Francis Drake lýsti því árið 1578 sem „bijáluð- um óveðrarassi". Fjórmenningarnir ætla að róa þessa 720 rnílna leið í rúmlega átta metra löngum sérsmíðuðum bát úr áli. Þeir vom dregnir um helgina frá hafhar- bænum Punta í Chile til suðuroddans og biða nú hagstæðs veðurs. Fyrir þeim félögum er Ned Gillette, 41 árs blaðamaður, en hinii' heita Bud Keene, Mark Eickenberger og Jon Turk. - Þeir búast við að verða þijár vikur á leiðinni yfir til Suðurskauts- landsins. Erfiðar aðstæður við olíuhreinsun Sænska olíuflutningaskipið, sem strandaði í Kirjálabotni fyrir jólin, hefúr nú verið dregið til skipasmíða- stöðvar í Landskrona í suðurhluta Svíþjóðar. Olía lak úr skipinu á leið- inni og var ekki hægt að koma í veg fyrir það að sögn hlutaðeigandi aðila. Tæki hvaðanæva úr Svíþjóð vom notuð til þess að hreinsa strendumar en það hefúr verið erfitt vegna mikils öldugangs. Talið er að um tvö hundmð tonn af olíu hafi lekið úr skipinu er það strandaði og hafa þegar fundist fuglar sem lent hafa í henni. Olíuhreinsunartæki voru fengin hvaðanæva úr Svíþjóð til þess að hreinsa strendurnar eftir olíulekann er varð í Kirjálabotni. Danmörk: Reynt að hindra skattaflótta Haukur L. Hauksson, DV, Kaupmaruiahöfa Skattaráðherra Dana, Isi Foighel, mun leggja fram lagatillögur á þing- inu í janúar sem §alla um stöðvun hins svokallaða skattaflótta frá Danmörku. Undanfarin ár hafa margir flúið Danmörku og hina háu skatta þar og um leið flutt umtalsvert fjármagn með sér. Á nú að tryggja ríkinu sinn skerf af þessu fjármagni. Eftir meira en árslangar viðræður hefur nú náðst samkomulag um lagafrumvarp þetta sem er hið strangasta og umfangsmesta er sett hefur verið fram í þessum efnum. Lagafrumvarp þetta kemur í beinu framhaldi hinna nýju skattalaga er tóku gildi hinn fyrsta janúar síðasú liðinn og þar segir meðal annars að setja verði reglur er hindri skatta- flótta.. Reglur þessar tryggi að borgaður verði skattur í Danmörku af þeim launum er þar er unnið fyrir. Þar á meðal er óuppgerður sölu- hagnaður, verðmæti vörulagers og laun. Þannig mun til dæmis kaup- maður ekki geta selt verslun sína og vörulager og flutt úr landi án þess að greiða skatt af þessum fjár- munum en það hefúr verið hægt hingað til. Áuk þess verður ekki hægt að losa bundið fjármagn í hlutabréfum með því að flytja utan né tæma dönsk fyrirtæki af fjár- magni erlendis frá án þess að greiða skatta af þessu fjármagni. SAS á varóbergi gegn eiturtyfja- smyglurum fræðslufundi í líkingu við þá er lækn- ar hafa haldið um sjúkdóminn eyðni. Upplýsingastjóri SAS segir að starfsfólkið eigi ekki að leika tollverði eða lögregluinenn heldur vera á verði gagnvart óvenjulegum hlutum og at- vikum og segja tollvörðum frá þeim. Samkvæmt upplýsingastjóranum voru það upplýsingar frá starfsmanni SAS í Brasilíu sem leiddu til handtöku pars á Kastrupflugvelli er það reyndi að smygla einu kílói af kókaíni inn í landið í desember. Haukur L. Hauksson, DV, Kaupmarmahafn; Starfsfólk SAS í Danmörku, Svíþjóð og Noregi hefur gert samkomulag við tollayfirvöld þessara landa þess efnis að starfsólkið verði tollvörðum innan handar um að koma upp um eiturlyfj- asmyglara. Yfirmaður tollþjónustunnar í Dan- mörku segir að starfsfólkinu verði sagt frá aðferðum smyglaranna auk þess sem því verður sýnt hvemig hin mis- munandi efni líti út. Ekki verður um bein námskeið að ræða heldur DV Danir stela meiru en áður Haukur L. Hauksson, DV, Kaupmiiöfa Ef marka má tilkynningar um þjófnaði til tryggingafélaganna þá stela Danir meiru en nokkru sinni áður. Fyrstu þijá fjórðunga síðast- liðins árs vom að meðaltali til- kynntir 590 þjófnaðir á dag eða 162.000 í allt. Með tilliti til fjölda þjófnaða og verðmætis þýfisins er um að ræða níu prósent aukningu frá 1985. Þetta þýðir að tryggingafélögin greiða um tvær og hálfa milljón danskra króna á dag. Innbrot í sumarbústaði jukust mest á árinu eða um tólf prósent. Kaupmannahafharbúar verða meira fyrir innbrotum en aðrir Danir. 1985 urðu átján af hveijum þúsimd Kaupmannahafnarbúum fyrir innbroti. Gamla ræðan send út vegna mistaka Talsmenn vestur-þýska sjón- varpsins gi'eindu fi-á því í gær að þeir hefðu engar sannanir fyrir því að send hefði verið af ásettu ráði ársgömul ræða kanslarans. Eftirgrennslan heföi leitt í ljós að líklega hefði aðeins verið um röð óhappa að ræða. Það var á gamlárskvöld sem ræðu Helmuts Kohl frá 1985 var sjónvarpað og fúllyrtu meðlimir stjómarflokkanna að um pólitískt skemmdarverk væri að ræða. Hefúr sjónvarpið beðið kanslar- ann afsökunai' á mistökunum. Elton John í hálsaðgerð Breska rokkstjaman, Elton John, kom til Sydney í Ástralíu í dag til að gangast undir hálsupp- skurð. Hann vildi ekkert um það segja hvort söngferill hans væri í hættu, og sagði of snemmt nokkru umjþað að spá. „Eg er að vísu ögn áhyggjufull- ur, já. Hver veit hvenær ég get sungið aftur. En ég hef haft íjögur og hálft ár hvíldarlítið, og ég ætl- aði að taka mér ársfrí frá hljóm- leikjahaldi hvort eð var,“ sagði hann. Elton John varð að aflýsa hljóm- leikum í Perth í síðasta mánuði og féll í yfirlið á hljómleikum í Sydney, en þar ætlaði hann að Ijúka heimsreisu sinni fyrir áramót en á því ferðalagi haföi verið ætl- unin að hann héldi 200 hljómleika. Það hefúr ekki verið látið uppi hvað ami að rokkstjömunni í háls- inum en það er talið að hann sé kominn með eins konar vörtur á raddböndin. Finnar mótmæla húsnæðisskorti Ungt fólk lagði undir sig nætur- afgreiðsluklefa ýmissa banka í höfúðborg Finnlands, Helsinki, í fyrrinótt í mótmælaaðgerðum vegna húsnæðisskorts ungra og aldraðra. Tilefni þessara mótmæla var það að gengið er í garð nýtt ár sem Sameinuðu þjóðimar helga heim- ilisleysingjum. Tóku um þijátíu þátt í því að fylla sérstaka klefa sem em fyrir næturafgreiðslulúgur bankanna. Næturverðir bankanna stugguðu við ungu Finnunum og fóm þeir án þess að lögreglan þyrfti að koma til. Að mótmælunum stóð „Freda 42“, samtök sem stúdentar hafa forystu um. Þau hafa barist fyrir því að greitt verði úr húsnæðiseklu námsfólks, bamafjölskyldna og aldraðra. Sögðu þau blaðamönn- um að þau vildu beina athyglinni að hörmungarástandinu á húsa- leigumarkaðnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.