Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1987, Síða 10
10
MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 1987.
Utiönd
Kólumbía
Enginn óhultur
fyrir eituifyfja-
kóngunum
Þegar leigumorðingi skaut til bana
Guiellermo Cano, ritstjóra E1
Espectador, næststærsta dagblaðs
Kólumbíu, þótti mörgum að nú hefðu
eiturlyfjasalar gengið of langt. Þar er
fólk þó vant miklu ofbeldi og glæpum.
Yfirvöld sökuðu eiturlyfjakónga um
verknaðinn og voru fljót að fyrirskipa
heimild til neyðarráðstafana. Fjöl-
miðlar fögnuðu ákvörðun stjómarinn-
ar og litu á hana sem ágæta herferð
gegn eiturlyfjasölunum.
En stjómarerindrekar og sumir
staðarmenn telja aðgerðimar ófull-
nægjandi og koma of seint til þess að
hægt sé að bæla niður þann ótta sem
víða ríkir en sjaldan er talað um,
nefnilega að enginn sé óhultur sem
revnir að setja sig upp á móti eitur-
lvfjakóngunum.
Dálkahöfúndur E1 Espectador, sem
hvað harðvítugast hefur gagnrýnt
stefhu stjómarinnar í þjóðfélagsmál-
um. gerir lítið úr fyrirskipunum yfir-
valda og segir að hægt hefði verið að
handtaka eiturlyfjakóngana þar sem
þeir em.
Hrói höttur nútímans
Sést hefur til nokkurra þeirra í Me-
dellin sem er aðalmiðstöð mafíunnar.
Snemma á þessum áratug vom eitur-
lvfjasalar þar í bæ örlátir á fé til
félagsmála og keyptu þeir sér þar með
vemd samtímis sem þeir nutu álits sem
Hrói höttur nútímans.
Samkvæmt fyrirskipunum stjómar-
innar er lögreglu og her heimilt að
gera skyndirannsóknir á maríjúana-
og kókaplantekrum og vinnslustöðv-
um. Viðurlög við misnotkun vopna
hafa verið hert, uppljóstrurum hefur
verið lofuð vemd og verðlaunum heit-
ið. Þeir er koma upp um eiturlyfjasala
eiga þess jafnvel kost að setjast að
utanlands undir nýju nafrii.
Haft er eftir vestrænum sendifull-
trúa að þegar stjórn Virgilio Barco tók
við í ágúst síðastliðnum hafi forsetinn
ekki lagt áherslu á að takast á við
eiturlyQavanaamálið. En ef til vill
verði eitthvað gert nú þegar áhrifa-
mikill blaðamaður hefur verið myrtur.
Sendifulltrúum þykir morðið á rit-
stjóranum vera áberandi líkt morði á
dómsmálaráðherra landsins árið 1984
en hann barðist ötullega gegn eitur-
lyfjasölum.
Stríðið ekki unnið
Þá viðurkenndu yfirvöld að þau
stæðu andspænis eiturlyfjavandamáli
og þáverandi forseti landsins gaf heim-
ild til þess að Kólumbíumenn, sem
ákærðir voru fyrir eiturlyíjasölu í
Bandaríkjunum. yrðu framseldir.
Margir kókaínframleiðendur vom
handteknir en sérfræðingar þeir er
berjast gegn eiturlyfjum í Kólumbíu
og erlendis gera sér grein fyrir að
stríðið er ekki unnið á meðan eitm--
lyfjasalar komast upp með hótanir.
Hver sá dómari er dæmir gegn eitur-
lyfjamafíunni hættir lífi sínu, fullyrðir
embættismaður nokkur er ekki vill
láta nafns síns getið. Evrópskur
stjómarerindreki kveður fastar að
orði er hann slær því fram að dómarar
í Kólumbíu verði annaðhvort ríkir eða
drepnir. Sá hinn sami nefndi um leið
að útflutningstekjur af eiturlyfjasölu
em meiri en löglegar tekjur af kaffi-
sölu, en þær em áætlaðar þrír millj-
arðar dollara fyrir síðastliðið ár.
Eiturlyflasalar í Kólumbíu vom sak-
aðir um morð á tveimur lögreglustjór-
um og þremur dómurum á síðastliðnu
ári. Samtals hafa tuttugu og sex blaða-
menn verið drepnir síðastliðin tíu ár.
Flestir þeirra skrifuðu um eiturlyfla-
sölu.
Af ótta við mafíuna em þeir ekki
margir sem setja nöfnin sín undir slík
skrif núna en nokkrir dálkahöfundar
og ritstjórar halda þó áfram að hvetja
þjóðina til sameiginlegs átaks gegn
eiturlyfjakóngunum sem tröllríða öllu
þjóðfélaginu.
í baráttunni gegn eiturlyfjasölum hafa yfirvöld í Kólumbíu nú gefið her og
lögreglu heimild til þess að fara I skyndirannsóknarferðir á kókaplantekrur.
Útflutningstekjur af eiturlyfjasölu eru meiri en útflutningstekjur af kaffi.
Reagan Bandaríkjaforseti hefur í mörg horn að lita í byrjun hins nýja árs.
Nýja árið byrjar
erfiðlega hjá
Reagan forseta
Nýja árið byrjar erfiðlega hjá Ron-
ald Reagan Bandaríkjaforseta þegar
hann snýr aftur úr sex daga áramóta-
orlofinu sem hann tók sér. Krankleiki
bæði líkamlega og pólitískt markar
fyrstu vikurnar.
Byrjar árið með sjúkrahúsvist
Reagan forseti, sem er 75 ára, átti
að leggjast í gær inn á sjúkrahús til
þess að gangast undir nýjar rannsókn-
ir á því hvemig krabbameinið, sem
þjakaði hann 1985, hefst við. í dag
átti hann síðan að gangast undir upp-
skurð vegna blöðmhálskirtilsbólgu.
En ekki er búist við að hann þurfi að
dvelja á sjúkrahúsinu nema fjóra
daga.
Hinn pólitíski krankleiki erfiðari
Fegirrn yrði hann ef hann gæti jafh
auðveldlega komist frá hinum póli-
tíska krankleika, sem vopnasalan til
írans hefur bakað honum. En núna í
vikunni fer eimmitt að komast skriður
á fyrirgrennslanir kjömefnda öld-
ungadeildarinnar og fulltrúadeildar-
innar, rannsókn alríkislögreglunnar
og aðrar eftirgrennslanir sem hófust
upp úr vopnasöluhneykslinu. Það mál
hefur tröllriðið stjómmálaumræðunni
vestan hafs undanfamar vikur ásamt
vangaveltum um hvort gagnbyltingar-
menn í Nicaragua hafi verið þeir einu
sem fengu að sækja sér gull í leyni-
bankareikninga í Sviss eða hvort hluti
vopnasöluágóðans hafi hugsanlega
farið inn í kosningasjóði einhverra
stjómmálamanna í Bandaríkjunum.
Sól Reagans forseta hefur aldrei ve-
rið eins lágt á himnum og eftir að
vopnasöluhneykslið kom upp. Reynd-
ar sýna annálar að aldrei hafi per-
sónufylgi nokkurs Bandaríkjaforseta
hrapað jafh snögglega og eimmitt hjá
Reagan upp úr Iransmálinu.
Uppstokkun í starfsliði
og lygamælingar
Núna undir helgina tók embætti
Frank Carlucci sem öryggisráðgjafi
forsetans, og í dag tekur til starfa
David Abshire, fyrrum sendiherra hjá
NATO, en hann var skipaður af forset-
anum til þess að samræma samstarf
embættismanna Hvíta hússins við
rannsóknimar á Iransmálinu. Ein-
hverjar hreinsanir hafa farið fram
meðal starfsliðs öryggisráðs forsetans,
sem Carlucci veitir forstöðu, og búast
má við fleiri mannaskiptum. Sérstakur
fulltrúi, Kenneth Adelman, hefur und-
irbúið embættistöku Carluccis.
Adelman þykir hafa farið vægðarlaust
fram. Allir fíilltrúar öryggisráðsins og
starfsmenn hafa verið beðnir um að
gangast undir lygamælaprófanir hjá
alríkislögreglunni til samvinnu í rann-
sókn FBI. Sumir starfsmenn em sagðir
hafa fagnað því sem tækifæri til þess
að hreinsa sig af grunsemdum, en aðr-
ir munu hafa tekið það óstinnt upp
og hefur þótt það bæði niðurlægjandi
og óþarft.
Reagan vék Oliver North ofursta,
sem var starfsmaður ráðsins, frá störf-
um 25. nóvember, en hann er talinn
hafa komið því svo fyrir að ágóðinn
af vopnasölunni til írans væri lagður
inn á bankareikninga í Sviss sem
contraskæruliðar í Nicaragua höfðu
aðgang að. Um sama leyti sagði John
Poindexter af sér sem öryggisráðgjafi
forsetans.
Engin miskunn hjá Magnúsi
Það var í hans stað sem Carlucci
var skipaður, en síðan er búið að halda
allnokkra fundi í ráðinu og er sagt að
sumir þeirra hafi verið æði stormas-
amir. Þar meðal annars hefur starfs-
liðið mótmælt því að sjá sýknt og
heilagt nöfii sín í fjölmiðlunum orðuð
við hinar og þessar grunsemdir og at-
huganir á vopnasölunni án þess að
hafa sjálft möguleika, þagnarskyl-
dunnar vegna, tjl þess að bera af sér
áburðinn. Verra fannst samt mörgum
að lesa í blöðunum að þeim hefði ve-
rið vikið úr starfi án þess að nokkur
yfirmanna þeirra hefði haft fyrir því
að tilkynna þeim sjálfum um það fyrst.
Og leiðinlegast þótti ýmsum að upp-
sagnimar bæri að á sama tíma sem
íransmálið brynni heitast, svo að
einna helst leit út sem þeir hefðu brot-
ið eitthvað af sér varðandi vopnasöl-
una.
Fjárlagaumræða framundan
Auk þess að fást við ágjöfina af ír-
ansmálinu mun Reagan í þessari viku
byrja hina árlegu viðureign forsetans
við þingið út af fjárlögunum og ríkis-
reikningunum. Og síðustu vikuna í
janúar flytur forsetinn vanalega hina
árlegu stefnuræðu sína (state of the
union-adress), sem hverjum forseta
þykir jafnan mikið undir að vanda vel
til.
Umsjón: Ingibjörg Bára Sveinsdóttir og Guðmundur G. Pétursson