Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1987, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1987, Síða 30
30 MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 1987. Andlát Sigurður Guðmundsson ljósmynd- ari lést 24. desember sl. Hann fæddist í Reykjavík 14. ágúst árið 1900. Sig- urður starfaði sem ljósmyndari alla *'Ána tíð. Hann var tvígiftur. Fyrri kona hans var Ingibjörg Guðbjarn- ardóttir og eignuðust þau eina dóttur. Seinni kona Sigurðar var Elínborg Guðbjarnardóttir en hún lést fvrir tveimur árum. Þau eignuð- ust tvö börn. Útför Sigurðar verður gerð frá Fríkirkjunni þriðjudaginn 6. janúar kl. 13.30. Benjamín Franklín Einarsson lést 26. desember sl. Hann var fæddur í Reykjavík 5. ágúst 1912. Foreldrar hans voru Guðrún Jónasdóttir og Einar Ólafsson. Benjamín vann í all- mörg ár í versluninni Liverpool en fcengst af þó á skrifstofu ríkisféhirðis í Arnarhvoli þar til hann hætti fyrir aldurs sakir. Hann var giftur Guð- rúnu Johnson en liún lést árið 1966. Benjamín verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í dag kl. 13.30. Halldór Dagbjartsson, Ljósheim- um 11, lést að heimili sínu að kvöldi gamlársdags. Gísli Guðjónsson, Hlíð, Garðabæ, andaðist 31. desember. Jakob Ólafsson frá Urriðavatni andaðist á öldrunardeild Landspítal- ^ns 1. janúar. I gærkvöldi DV Gísli Jónsson trésmiður lést 25. des- ember sl. Hann fæddist á Sveinseyri við Dýrafjörð 23. apríl 1910, sonur *flollu Bjarnadóttur og Jóns Guð- mundssonar. Gísli starfaði lengst af hjá Ingólfi Guðmundssvni trésmíða- meistara á Landakotsspítala. Hann var tvígiftur. Fvrri kona hans var Sigríður Jóhannesdóttir en hún lést árið 1968. Þau eignuðust fjögur börn. Eftirlifandi eiginkona Gísla er Guð- ríður Ástráðsdóttir. Útför hans verður gerð frá Langholtskirkju í dag kl. 13.30. Helga S. Sigvaldadóttir lést 22. desember sl. Hún fæddist á Syðri-Á á Kleifum í Ólafsfirði 3. júní 1914, dóttir hjónanna Sigríðar Þorsteins- dóttur og Sigvalda Grímssonar. Hún giftist Þórði Ólafssyni en hann lést árið 1953. Þeim hjónum varð fjögurra barna auðið. Síðar eignaðist Helga einn son. Útför hennar verður gerð frá Fossvogskapellu í dag kl. 15. Kristjana Mellström lést í Stokk- hólmi á gamlársdag. • André G. Þormar, fyrrverandi að- algjaldkeri Landssíma Islands. lést í Borgarspítalanum þriðjudaginn 30. desember. María Sigtryggsdóttir frá Flatev á Skjálfanda andaðist á Sólvangi í Hafnarfirði 25. desember sl. Jarðar- förin fer fram 6. janúar 1987 kl. 15 frá kapellunni í kirkjugarði Hafnar- fjarðar. Kristján Erlendur Sigurðsson, bóndi í Hrísdal. Snæfellsnesi. and- aðist í Borgarspítalanum aðfaranótt 2. janúar. Útför Ragnars Sigurðar Jóhann- essonar bifvélavirkja, frá Jófríðar- stöðum, fer fram frá Fríkirkjunni í dag, 5. janúar, kl. 15. Sigurlaug Eggertsdóttir, Háaleit- isbraut 107. Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðju- daginn 6. janúar kl. 13.30. Gróa Þórðardóttir, Skeljagranda 6. Reykjavík, verður jarðsungin frá Aðventkirkjunni í Reykjavík í dag, 4. janúar, kl. 13.30. Geirlaug Guðmundsdóttir, Hlíð- arvegi 30a, Kópavogi, verður jarð- sungin frá Fossvogskirkju þriðju- daginn 6. janúar kl. 15. Hilmar Ólafsson verður jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 6. janúar kl. 15. Einar E. Hafberg verður jarðsung- inn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 6. janúar kl. 10.30. Stefán Haraldsson járnsmiður, Skeljagranda 1, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju miðvikudaginn 7. janúar kl. 15. Útför Snorra Hjartarsonar skálds fer fram frá Dómkirkjunni miðviku- daginn 7. janúar kl. 15. Útför Snorra Gunnlaugssonar bónda, Esjubergi, Kjalarnesi, fer fram frá Dómkirkjunni í dag, 5. jan- úar, kl. 13.30. Jarðsett verður að Mosfelli. Unnur Stefánsdóttir fóstra „Mikla þörf fyrir að tjá sig“ Viðbótin, með tilkomu nýju ijöl- miðlanna. finnst mér vera skemmti- leg. Hins vegar veldur það þvi að ég tapa af efni sem ég vildi horfa á. Ég hef einfaldlega ekki tíma til þess að íylgjast með öllu áhugaverðu efni. Á laugardaginn heyrði ég í Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur á rás 2. Hennar þáttur er nokkuð góður. Einnig hlustaði ég á Hér og nú, fréttaskýringaþátt á ríkisútvarpinu. Það eru afar fróðlegir þættir. Þann daginn fylgdist ég ekki með meiru nema föstu liðunum sem eru fréttim- ar. Yfirleitt horfi ég á fréttimar á báðum sjónvarpsstöðvunum og hlusta á fréttirnar í ríkisútvarpinu. Það er hins vegar leitt að flestar fréttir em neikvæðar, þær eru mest Unnur Stefánsdóttir. krassandi. Geisla horfði ég á með öðm aug- anu í gærkvöldi. Ég tók eftir því að listamennirnir, sem komu þar fram, hafa mikla þörf fyrir að tjá sig enda hefur ekki mikið borið á þeirra skoð- unum í fjölmiðlum. Ég horfi nánast aldrei á bíómynd- ir, einfaldlega vegna þess að ég hef ekki tíma, vil eyða tímanum í ann- að. En íslenskt efni í sjónvarpinu og á stöð 2 læt ég helst ekki fram hjá mér fara. Ætli ég sé ekki svo mikill Islendingur í mér. Dagskráin um jólin var alls staðar til fyrir- myndar enda var mikið af íslensku efni í boði á öllum vígstöðum. Tímaiit Leiklistarblaðið 1. tbl. 13. árgangs Leiklistarblaðsins er nú komið út. Blaðið hefur að geyma margvís- legt efni_ er tengist starfsemi áhugaleik- félaga á íslandi. en einnig efni um norrænt og alþjóðalegt samstarf á sviði áhugaleik- listar. f blaðinu er ítarleg grein um fyrstu leiklistarhátíðina sem haldinn var á ís- landi, þ.e. norræna leiklistarhátíð áhuga- manna sem fram fór í Reykjavík sl. sumar, greint er frá auknum tengslum við jaðar- bvggðir á Norðurlöndum. I blaðinu eru einnig greinar um þátttöku íslenskra leik- hópa í leiklistarhátíðum í Finnlandi og í Monaco. Þá er sagt frá samstarfi leik- félaga á Vestfjörðum. leiklistarstarfi meðal þroskaheftra og skrifað um leik- ræna tjáningu. f blaðinu er viðtal við Ævar Kvaran leikara sem var einn af frumkvöðlum að stofnun bandalags ís- lenskra leikfélaga. Sitthvað fleira er í blaðinu, bæði sem tengist sögu áhugaleik- listar á fslandi og upplýsingar um starfið á líðandi stund. Leiklistarblaðið er eina blaðið sinnar tegundar sem gefið er út hér á landi. Það er bandalag íslenskra leik- lélaga sem gefur blaðið út. Blaðið kostar kr. 150 í Iausasölu, en áskriftargjald er kr. 500, fyrir sex blöð. Ritstjóri og ábyrgðar- maður er Sigrún Valbergsdóttir. Samvinnan Nýtt hefti af Samvinnunni er komið út og er það helgað áttatíu ára afmæli ritsins. Núverandi ritstjóri, Gylfi Gröndal, skrifar grein um sögu blaðsins, hlutverk og til- gang en einnig er efnisþáttur undir fyrir- sögninni Af síðum Samvinnunnar þar sem birtar eru greinar frá ýmsum tímum eftir fyrrverandi ritstjóra. Fyrsta hefti Samvinnunnar kom út í byrjun ársins 1907 undir heitinu Tímarit fyrir kaupfélög og samvinnufélög en árið 1926 var nafninu breytt í Samvinnan. Framan af var ritið eingöngu málgagn samvinnuhreyfingarinnar og á drjúgan þátt í velgengni hennar en síðar varð það jafnframt heimilisrit og lengst af hefur það látið bókmenntir og önnur menningarmál til sín taka. Alls hafa sautján menn starfað á rit- stjórn Samvinnunnar frá upphafi. Aðalrit- stjórar hafa verið: Sigurður Jónsson frá Ystafelli, Jónas Jónsson frá Hriflu, Hauk- ur Snorrason, Benedikt Gröndal, séra Guðmundur Sveinsson, Páll H. Jónsson, Hraðframköllun á Akranesi og í Hafnarfirði Nýlega tóku til starfa tvær nýjar hrað- framköllunarstofur, hjá Bókaverslun Andrésar Níelssonar við Kirkjubraut á Akranesi og hjá Radíóröst, Myndahúsinu, Dalshrauni 13, Hafnarfirði. Báðar þessar framköllunarsamstæður eru frá Kodak og eru mjög fullkomnar og fjölhæfar. Hægt er t.d. að bjóða ýmsar myndastærðir og mismunandi pappírsáferðir, allt eftir ósk- um viðskiptavinarins. En ljósmyndapapp- írinn kemur í ljósþéttum hylkjum, þannig að mjög auðvelt og fljótlegt er að skipta á milli pappírsstærða og áferða. Það er einmitt litpappírinn sem er lykilinn að þessari tækninýjung. En hér er um nýjan litpappír að ræða, Kodak Ektaeolor 2000 og 20001, sem samkvæmt framleiðandan- um býr yfir mestu tækninýjungum á sviði litpappírsframleiðslu frá því að plast- pappírinn kom til sögunnar. Framköllun- artími pappírsins er helmingi styttri en eldri litmyndapappírs, litgæðin eru stöð- ugri og myndirnar litsterkari en áður. Auk þess þola myndirnar betur hnjask og risp- ast síður. Sigurður A. Magnússon og núverandi rit- stjóri. Meðritstjórar hafa verið: Þorkell Jóhannesson, Guðlaugur Rósinkrans og Jón Eyþórsson og blaðamenn: Gísli Sig- urðsson. Dagur Þorleifsson, Sigurður Hreiðar, Örlygur Hálfdánarson, Heimir Pálsson og Eysteinn Sigurðsson. Ymislegt annað efni er í heftinu, svo sem grein um Doris Lessing eftir Hjört Páls- son, smásaga eftir írska rithöfundinn Bernard Mac Laverty og ljóð eftir Kristin Reyr, Bolla Gústavsson og Ragnhildi Ófeigsdóttur. Tórúeikar Ljóðatónleikar Þriðjudaginn 6. janúar kl. 20.30 halda Margrét Bóasdóttir sópran og Margrét Gunnarsdóttir píanóleikari ljóðatónleika í Gerðubergi. Á efnisskrá eru ljóð eftir Schubert, Grieg, Wolf, Jeppson, Faure, Pál ísólfsson og Þorkel Sigurbjörnsson. Sam- starf þeirra Margrétanna hófst haustið 1985 er Margrét Bóasdóttir fluttist til Isa- fjarðar eftir 8 ára búsetu í Þýskalandi en Margrét Gunnarsdóttir er píanókennari við Tónlistarskólann á ísafirði. Þær hafa haldið tónleika á Vestfjörðum og Norður- landi og í október sl. fóru þær í tónleika- ferð til Danmerkur og Svíþjóðar. Happdrætti Dregið í happdrætti Styrktar- félags vangefinna Á aðfangadag var dregið í happdrætti Styrktarfélags vangefinna. Eftirtalin númer hlutu vinning. 1. vinningur. Volvo 740 GLE, árg. ’87 nr. 85727. 2. vinningur. Bifreið að eigin vali fyrir kr. 450 þús. nr. 69513. 3.-10. vinningur. Bifreið að eigin vali fyrir kr. 250 þús. nr. 3712,25525,26456, 61770, 63789, 72661, 81722, 90208. Félagið þakkar veittan stuðning og óskar lands- mönnum farsældar á nýja árinu. Ýmislegt Skíðablaðið Skíðasamband Islands hefur nú sent frá sér 3. tbl. 1986 af Skíðablaðinu. Forsíðu- myndin úr Bláfjöllum á Skíðalandsmóti 1986. Blaðið er að þessu sinni 52 síður. 1 því eru fjölmargar greinar um ýmis mál er tengjast skíðaíþróttinni beint eða óbeint. Efni þeirra höfðar jafnt til almenn- ings og keppnismanna. í blaðinu eru greinar um nýjungar á markaðinum svo sem skó og fl. Upplýsing- ar um hverjir þjálfa hin ýmsu skíðafélög um allt land. Greinar um landslið Islands á skíðum. Fróðleikur um þjálfun. Viðtal um þyrluskíðaferðir hér á landi. Matar- uppskrift skíðamannsins. Sagt frá undir- búningi ólympíuleikanna 1988 og heimsbikarkeppninni á skíðum. Mótaskrá SKI er á sínum stað. Ennfremur er í blað- inu fróðleg grein um fréttamennsku íþróttafréttaritara íslensku fjölmiðlanna og fleiri fróðlegar greinar og fréttaefni. Flestar ferðaskrifstofur landsins kynna skíðaferðir sínar í vetur. Skíðasamband íslands varð 40 ára í sumar og fjallar blað- ið um afmæli sambandsins og segir frá heljarmiklu hófi sem haldið var á afmælis- daginn, 23. júní síðastliðinn. Blaðið er skreytt fjölda mynda, bæði í lit og svart-hvítu. Hreggviður Jónsson, formaður Skíðasambands Islands, skrifar Skíðaspjall að venju. Ritnefnd skíðablaðs- ins skipa þeir Hans Kristjánsson, Ottó Leifsson og Sigurður Einarsson. Um aug- lýsingar sá Helga S. Haraldsdóttir. I sögu Skíðablaðsins er nú brotið blað því þetta 3. tbl. 1986 (4. árg.) er í fyrsta skipti ókeyp- is og dreift þannig um land allt. Skíðablaðið er málgagn Skíðasambands Islands og þannig skíðahreyfingarinnar í heild í landinu. Tapaö-fnndið Duddi týndur Duddi er stór svartur feitur fressköttur sem tapaðist úr Breiðholtinu fyrir þrem vikum. Hann er ómerktur. Þeir sem hafa orðið varir við hann eru vinsamlegast beðnir að hringja í síma 71212. Sóknarpresturinn á Prests- bakka hættir störfum Séra Yngvi Þórir Árnason kvaddi sóknar- börn sín í Staðarsókn á aðventukvöldi sem haldið var 15. þ.m. Fjölmennt var við at- höfnina. Presturinn hefur þjónað söfnuð- inum í hartnær fjóra áratugi. Formaður sóknarnefndar þakkaði prestshjónunum störf þeirra fyrir söfnuðinn. Kirkjukór Staðarkirkju söng undir stjórn Guðrúnar Kristjánsdóttur ásamt börnum úr barna- skóla Staðarhrepps við undirleik kennara síns Ólafar Pálsdóttur. Kirkjukórinn bauð gestum til kaffisamsætis í Staðarskála að athöfninni í kirkjunni lokinni. Walt Disney myndir á mynd- bandamarkaðinn Þessa dagana eru hinar vinsælu Walt Disneymyndir að koma á myndbandaleig- ur landsins með íslenskum texta. Samn- ingar íslenska fyrirtækisins Bergvík sf. og Walt Disney/Tochstone eru nú komnar í höfn. Disneymyndimar koma til með að fylla eyðu sem hefur verið tiltakanleg hér á markaðinum en það hefur verið skortur á vönduðu barna- og fjölskylduefni. Tví- mælalaust á Disneyefnið eftir að auka úrval þessa efnis hérlendis. En þó að Di- sney sé fyrst og fremst tengd barna- og fjölskylduefni vegna hinna háttskrifuðu teiknimynda (og margra leikinna) sem það hefur gert í gegnum árin. Þá hefur fyrir- tækinu tekist að koma á fót á síðustu árum kvikmyndaframleiðslu fyrir fullorðna. Nefnist sá armur Tochstone og er rekinn algjörlega sjálfstætt. Uppgangur hans hef- ur verið með ólíkindum. Nægir að nefna sem dæmi myndirnar Splash, Down and Out in Beverly Hills og Ruthless People. En lítum aðeins á myndirnar sem væntan- legar eru á næstunni frá Bergvík Disney/ Touchstone. Enn þær eru t.d. Andrés Önd, Lísa í Undralandi, Pollýanna, Never cry a wolf, Herbie, Mikki Mús og One Magic Christmas en hún er jólamyndin frá Di- sney í ár. Áætlað er að Bergvík muni gefa út fimm til sex myndir á mánuði og verða þær þá auglýstar sérstaklega hverju sini. BINGQ! Hefst kl. 19.30 Aðalvinningur að verðmæti _________kr.40bús._________ Heildarverðmaeti vinninaa kr. 180 þús. TEMPLARAHOLLIN Eiríksgötu 5 — S. 20010

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.