Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1987, Side 34
, 34
Sviðsljós
Ólyginn
sagði. . .
Patrick Duffy
vælukjóinn í Dallas er mikið
kvennagull og hafa þær margar
fengið stjörnur í augun jDegar
hann hefur birst á skerminum.
En nú hefur besti vinur hans
Ijóstrað því upp að þegar þeir
voru i menntaskóla hafi Duffy
alltaf átt erfiðast með að ná sér
í stúlkur. Við vinirnir vorum að
fara á stefnumót en þá var hann
alltaf einn eftir og sagðist ekki
hafa ahuga á sífelldu stelpu-
standi. í dag er Duffy giftur
stúlku sem bjó í húsinu við hlið-
ina á honum og á með henni
tvö börn.
Whitney
Houston
segist vera heppnasta stúlka í
heimi. ,,Ég fékk bæði stórkost-
lega söngrödd og útlit. Móðir
mín sagði mér að ég ætti alltaf
að draga fram það besta sem
ég hefði og sýna heiminum
hvað ég gæti. En ég á frænku
minni allt að þakka. Það var hún
sem ýtti mér af stað út í söng-
inn. Hún kynnti mig fyrir útgef-
endum og síðan hef ég ekki litið
um öxl. Líf mitt hefur tekið aðra
stefnu en ég áætlaði í fyrstu. Ég
hélt aldrei að ég næði slíkum
vinsældum á stuttum tíma og
það sem nú er framundan er
aðeins til að hlakka til.
Rod Stewart
er mikill aðdáandi fótbolta og
lætur sig sjaldan vanta þegar
stórleikir eiga sér stað. Hann
dáir skosku liðin og liggur ekki
á liði sínu að láta frá sér fara
fagurmæli um dugnað þeirra og
elju. Hetjan hans er þjálfari
skoska landliðsins Kenny Dalgl-
ish og tönglast hann á því við
alla sem heyra vilja. Fyrrverandi
kærastan hans segir að Rod
hafi sífellt verið að tala um fót-
bolta og sér hafi fundist einum
og langt gengið þegar hann var
farinn að tala um fótbolta upp
úr svefni. „Þá pakkaði ég saman
dótinu mínu og fór," segir þessi
vonsvikna stúlka.
——:--------——-------:--—
MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 1987.
j.jnnnm ■■■■■ /1 wm
Hér er Richard i faðmi fjölskyldunar, systur hans og mágur. Eins og sjá má hefur leikarinn lagt af um fjöldan allan af kilóum.
Það er ekki öll vitleysan eins í
henni Hollywood. Það losna fáir
undan eyðnidylgjum þar í borg. Nýj-
asta tilfellið er Richard Pryor sem
gekk í þá gildru að missa nokkur
kílóin öllum að óvörum.
Fyrrverandi kona Pryors kom
hræðslubylgjunni af stað. Hún segir:
„Hann sprautaði í sig eiturlyfjum,
það var bara byrjunin því síðan lagð-
ist hann á spítala þar sem hann þáði
blóðgjafir en það var fyrir tíma rann-
1X r
sókna á eyðniveirunni í blóði.“
En læknir Pryors og besti vinur,
dr. Richard Grossmann, vísar þessum
sögusögnum „Gróu“ á bug. Hann
segir: „Eyðni er ekki það sem hrjáir
Pryor. Við höfum gert allar þær blóð-
prófanir sem hægt er að gera og þær
eru allar neikvæðar. Ég get ekki
sannprófað allt í lífinu en það hef
ég gert í þessu tilviki."
En hún er samt með lífið í lúkunum
sjálfrar sín vegna. Hún bjó með hon-
um þegar hann neytti kókaíns og
sprautaði í sig eiturlyfjum. Þau
gengu saman í gegnum erfitt tímabil
og það voru allir vissir um að þau
tækju saman aftur eftir að hann
hætti að vera fíkill. En öllum að
óvörum tók Richard upp á því að
giftast komungri stúlku, Jennifer
Lee.
Jennifer segist bera ótta í brjósti
um að Pryor snúi aftur inn í hringiðu
eiturlyfjanna. „Hann má ekki við
neinu mótlæti núna,“ segir hún.
Sjáfur segir Pryor: „Þegar ég sé
kókaín í sjónvarpinu verð ég að
skipta um rás til að kveða niður
löngunina. Ég hef verið án fíkniefna
í þrjú ár en þessi löngun brýst samt
út af og til.“
Það em margar illar tungur sem
segja Pryor og nokkra aðra félaga í
kvikmyndaheiminum haldna þessum
ólæknandi ógnvaldi við mannkynið
og að ekki megi gleyma því að lækn-
ar séu bundnir þagnarskyldu gagn-
vart sjúklingum.
„Tennisbörnin"
á heimshornaflakki
Það er ekki ofsögum sagt að „tennisbörnin" lifi lúxuslífi, þau eru á sífelldu flakki heimshornanna á milli.
Bjöm Borg er á faraldsfæti, svo
sem oft áður, og honum til sam-
fylgdar eru Jannika og Robin sem
fylgdu honum á heimsenda ef með
þyrfti. Björn og fjölskylda voru að
koma til Hong Kong þegar mynd-
inni var smellt af en hann er nú
leiðbeinandi í tennisskóla fyrir
skólabörn.
En John McEnroe lætur sitt ekki
eftir liggja hvað varðar fjölskyldu-
flakkið og fjölskyldan fer með
þangað sem farið er. Hann spókar
sig hér í stórborginni París ásamt
Tatum og Kevin Jack en þau voru
á leiðinni á tennismót í Vestur-
Þýskalandi.
Þeir hafa gætur á sínum, tennis-
kapparnir Björn og John.
•;t l tí í« * 3: WM * 11« ULX-ftJC 1:1:S 11.I. ULC TE 11111111M 1(1 S.X * Jlllltll .*« X >1X X.í
..oi'CKí u