Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1987, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1987, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 1987. Til sýnis og sölu POTTOFNAR með Danforskrönum, lampar og innihurðir á góðu verði. Komið í Síðumúla 12, (bakhús) milli kl. 14 og 18 virka daga DV. HJÚKRUNARFRÆÐINGAR Langar ykkur ekki að breyta til? Okkur bráðvantar hjúkrunarfræðinga í fastar stöður og til afleysinga. Góð vinnuaðstaða og léttur vinnu- andi meðal starfsfólks. Að sjálfsögðu bjóðum við upp á góð launakjör og gott húsnæði. Mikil vinna ef ósk- að er. Ef þið hafið áhuga þá hafið samband við hjúkrunarforstjóra í síma 96-71166 og heima í síma 96-71417. Sjúkrahús Siglufjarðar. SÉRLEYFI TIL FÓLKSFLUTNINGA MEÐ LANGFERÐABIFREIÐUM Skv. lögum nr. 29/1983 um skipulag á fólksflutning- um falla úr gildi hinn 1. mars 1987 öll sérleyfi til fólksflutninga með langferðabifreiðum. Ný sérleyfi til fólksflutninga með langferðabifreiðum verða veitt frá 1. mars 1987 og skulu umsóknir um sérleyfi sendar til Umferðarmáladeildar, Vatnsmýrar- vegi 10,101 Reykjavík eigi síðar en 15. febrúar 1987. í sérleyfisumsókn skal tilgreina: 1. þá leið eða leiðir sem sótt er um sérleyfi á. 2. skrásetningarnúmer, ár- gerð og sætatölu þeirra bifreiða sem nota á til sérleyf- isferða. Reykjavík 20. janúar 1987, Umferðarmáladeild. Styrkir til háskólanárns í Noregi Norsk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau bjóði fram í löndum sem aðild eiga að Evrópuráðinu fimm styrki til framhaldsnáms við háskóla í Noregi skólaárið 1987-88. Ekki er vitað fyrirfram, hvort einhver þess- ara styrkja muni koma í hlut Islendinga. Umsóknir skulu sendar til: Utenriksdepartementet, Kontoret for kulturelt samkvem med utlandet, P.O. Box 8114 - Dep. N - 0032 Oslo 1, fyrir 1. apríl nk., og lætur sú stofnun í té umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar. 15. janúar 1987. Menntamálaráðuneytið. VIKAN AUGLÝSINGADEILD Þverholti 11. sími 27022 FYRIRTÆKI - ATVINNUREKENDUR! VIKAN er ekki sérrit, heldur fjölbreytt, víðlesið heimilisrit, og býður hagstæðasta aug- lýsingaverð aUra íslenskra tímarita. Útlönd______________ 3 Vaxandi gagnrýni á Hans Holmér Claes Zeime, aðalsaksóknarinn í Palmemálinu, er ekki sammála Hans Holmér lögreglustjóra um að níutíu og fimm prósent likur séu á þvi að lögreglan sé á réttri leið. _ símamynd REUTER. Gunnlangur A Jónssan, DV, Lundr Gagnrýnin á Hans Holmér, lög- reglustjóra í Stokkhólmi, vex nú enn á ný þegar hann lét í gær til skarar skríða gegn kúrdísku samtökunum PKK án nokkurs sjáanlegs árangurs. Leif Silbersky, einn kunnasti lögfræð- ingur Svía og verjandi eins Kúrdanna, krafðist þess í sjónvarpsviðtali í gær- kvöldi að Holmér segði af sér. Allir þeir Kúrdar, sem gripnir voru grunaðir um aðild að Palmemorðinu, voru látnir lausir síðdegis í gær. Hins vegar eru enn í haldi þrír Kúrdar grunaðir um morð á öðrum Kúrda í Stokkhólmi 1985. Sannanimar gegn þeim sem hand- teknir voru vegna Palmemorðsins reyndust ekki nægilegar til þess að fá þá úrskurðaða í gæsluvarðhald. Claes Zeime, aðalsaksóknarinn í málinu, mætti á blaðamannafund með Holmér þar sem hundruð fréttamanna úr öllum heimshomum vom viðstadd- ir. Hann sagði meðal annars að hann teldi að lögreglan hefði ekki færst nær lausn málsins síðastliðna tvo mánuði. Hundeltur af lögreglunni Gunnlaugur A. Jánssan, DV, Khafru Rétt áður en Kúrdinn Huseyin Yildirim, lögfræðingur og félagi í kúrdísku samtökunum PKK, var handtekinn af sænsku lögreglunni í gær sagði hann í viðtali við Svenska Dagbladet að hann hefði lögreglu- menn Hans Holmérs stöðugt á hælunum. „Ég hef séð lögreglumenn veita mér eftirför, mynda mig þegar ég hitti fólk og ég þykist vita að þeir hleri símann minn líka,“ sagði Yildi- rim. Hann sagði að allir Kúrdar í Svíþjóð liðu fyrir það að það væri á allra vitorði að aðalvinnukenning Holmérs væri sú að PKK stæði á bak við morðið á Olof Palme. „Hol- mér hagar sér eins og klaufalegur tyrkneskur sveitalögreglumaður og hann skaðar sænskt lýðræði með framkomu sinni,“ sagði Yildirim. Hann sagðist eiga von á að sænska lögreglan léti þá og þegar til skarar skríða gegn PKK. „En það yrði at- burður sem Svíar hefðu ástæðu til að skammast sín fyrir á alþjóðavett- vangi. Við höfum hreina samvisku og ekkert að fela. Látum þá bara koma hingað og snuðra,“ sagði Yildirim ennfremur í viðtali við Svenska Dagbladet. Huseyin Yildirim, lögfræðingur kúrdísku hryðjuverkasamtakanna PKK, er einn þeirra þriggja manna sem eru enn í haldi hjá sænsku lögreglunni,- Símamynd REUTER Kanslari Vestur-Þýskalands, Helmut Kohl, stendur I ströngu þessa dagana. Kosningar fara fram í landinu þann 25. janúar en auk þess vanda, sem fylgir kosningabaráttunni, þjarma Bandaríkin nú að stjórninni vegna hand- töku Libana nokkurs. - Simamynd Reuter. Mannrán og kosningar Rétt fyrir kosningamar í Vestur- Þýskalandi, sem fara fram næstkom- andi sunnudag, þarf stjóm landsins að glíma við vandamál sem skapast hefúr vegna ráns á vestur-þýskum kaupsýslumanni, sem átti sér stað í Beirút síðastliðinn laugardag. Telur stjómin að tengsl séu á milli ránsins á kaupsýslumanninum og handtöku á Líbana í Frankfurt fyrir viku. Líbaninn er grunaður um aðild að flugráni sem var framið 1985. Ekki minnkaði álagið á vestur- þýsku stjómina þegar bandarísk yfirvöld fóm fram á það í gær að fá að yfirheyra Líbanann. Hefur leið- togum fjögurra stærstu flokkanna verið greint frá málavöxtum og hafa sósíaldemókratar, sem em í stjómar- andstöðu, lýst yfir samúð sinni með stjóminni. Að sögn yfirvalda hafa engar kröfúr borist frá mannræningjunum. I frétt- um vestur-þýska sjónvarpsins var greint frá því að Hans-Dietrich Genscher utanríkisráðherra hefði haft samband við ýmsar stjómir í MiðausL urlöndum, þar á meðal í Sýrlandi og íran.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.